Morgunblaðið - 04.11.1986, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 1986
47
Minning:
Stefanía Ó.
Valdi-
marsdóttir
Fædd 14. marz 1904
Dáin 9. október 1986
Mamma hringdi að morgni dags
þann 9. þessa mánaðar og sagði
mér að amma væri dáin. Hún dó í
nótt, blessunin ... Gömul kona sem
lifað hefur sinn dag sofnaði loks
örþreytt að kvöldi, svefninum langa.
Liðin eru sjö ár frá þvf hún veiktist
af erfiðum sjúkdómi og örlög henn-
ar voru ráðin.
Þá baðst þú guð að taka þig:
mínu hlutverki er lokið -
en hann svaraði í heilagri bræði:
sá sem vill lifa skal deyja
sá sem vill deyja skal lifa
þú skalt að lokum deyja úr þrá
eftir dauðanum.
Og hann tók ljósið úr augum þínum
og hljóminn úr eyrum þínum
og þú kúrðir þig niður
eins og visnað blóm
- blómstrið eina.
(Jóhannes úr Kötlum)
Hvíldinni fegin hverfur hún á vit
feðranna, „handan yfír djúp pínu
og dauða“. Hlutverki hennar er lok-
ið í þessu lífi. Hún markaði á langri
leið sinni djúp spor í minningar
okkar sem eftir lifum, í söknuði og
trega.
Amma mín heitin, Stefanía Ósk
Valdimarsdóttir, fæddist á Efri-
Mýrum í Engihlíðarhreppi í Aust-
ur-Húnavatnssýslu þann 14. mars
1904. Foreldrar hennar voru Anna
Guðmannsdóttir frá Krossanesi á
Vatnsnesi og Valdimar Stefánsson
bóndi á Efri-Mýrum. Hún var elst
fjögurra systkina, þeirra Guð-
manns, Ragnhildar og Eggerts.
Amma ólst upp í foreldrahúsum til
fermingaraldurs, en fór þá að vinna
fyrir sér eins og títt var um ungl-
inga á þeim tíma, m.a. á sjúkrahús-
inu á Blönduósi. Hóf hún þar nám
í hjúkrun, en varð frá að hverfa
sökum heilsubrests. Fluttist hún þá
suður til Reykjavíkur og dvaldist
þar um nokkurra ára skeið. I
Reykjavík kynntist hún eftirlifandi
eiginmanni sínum, afa mínum, Agli
Geirssyni frá Múla í Biskupstung-
um, og giftust þau þann 3. október
1930 og hófu búskap í Múla sama
ár. Þar bjó hún samfleytt í 52 ár.
Þeim varð sex barna auðið, misstu
það fyrsta en hin lifa öll; tvíburam-
ir Geir og Anna Sigríður, Guðbjörg,
Jónfna Margrét og Páll Haukur.
I Múla hélt amma myndarlegt
heimili sem orð fór af fyrir höfð-
ingsbrag og rausnarskap. Þar var
löngum mikill gestagangur enda
Múli í alfaraleið. Tók hún öllum vel
sem þangað komu og gerði aldrei
mannamun. Bömum sínum var hún
mikið og þótti þeim afar vænt um
hana. Amma var fíngerð, fremur
smávaxin og fríð sýnum. Hreinlynd
var hún og skaprfk og með afbrigð-
um hreinskiptin en þó kyrrlát í
viðmóti og eitthvað tigið í fasi henn-
ar og hlýtt. Hún var ekki orðmörg,
hafði gaman af lestri góðra bóka
og var mjög trúuð. Líf eftir dauð-
ann var henni hugleikið og las hún
gjaman bækur um þau efni. Hún
var sérdeilis mannglögg og duldist
fátt fyrir henni af þessum heimi
og öðrum. Þangað sem hún er kom-
in.
Og nú veit ég hvar:
í rikinu sem varð til
er hinn krossfesti gaf upp andann
þar situr þú og spinnur
bláa geisla í sokk.
(Jóhannes úr Kötlum)
Við barnabörnin þökkum henni
allt sem hún gaf okkur í guðs friði.
Stefán
Fyrirtæki, bankar, stofnanir
Við höfum allt í barnakrókinn.
Kynnið ykkur dönsku
HUKIT tréleikföngin
og húsgögnin.
Þau eru í
sérflokki.
40 ára reynsla
á barnaheimilum.
Heildverslunin
ÍSKLASSh/f
sími 651099 & 51020
WANG
••
WANG-TOLVUNAMSKEIÐ
Eins og undanfarin ár bjóðum við í Tölvudeild Heimilistækja
upp á ýmis konar námskeið um tölvur og tölvuvinnslu. Við
viljum sérstaklega minna okkar viðskiptavini á þau nám-
skeið sem haldin verða nú í nóvember og desember.
5.— 7. nóv. WANG-ritvinnsla 1
5.— 7. nóv. Business Graphics
11.—13. nóv. WANG-ritvinnsla 2
11.—13. nóv. Multiplan
18.—20. nóv. WANG-ritvinnsla 1
25.—27. nóv. WANG-gagnagrunnur
2. — 4. des. MS-DOS-stýrikerfi
3. — 5. des. WANG-gagnagrunnur
8.—10. des. DATAEASE-gagnagrunnur
ÍO.—12. des. WANG-ritvinnsla 2
16.— 18. des. W AN G-rit vinnsla 1
Auk reglubundinna námskeiða bjóðum við einnig sérstök
námskeið fyrir stofnanir og fyrirtæki.
Vinsamlegast hafið samband við Björgu Birgisdóttur, kynn-
ingar- og kennslufulltrúa, í síma 91-27500.
Tölvudeild Heimilistækja
WANG
Góður matur og hröð þjón-
usta eru helstu kostir steik-
arabarsins á Hrafninum.
Nú er loksins mögulegt að fá virkilega góðan mat
í hádeginu án þess að eyða öllum matartímanum í bið.
Steikarabar er íslenskt nýyrði fyrir
enska hugtakið „Carvery". Fjölmargir
íslendingar hafa kynnst „Carvery" á
Bretlandi en nú kynnir Hrafninn, fyrst
íslenskra veitingahúsa, steikarabarinn
hér heima.
Á steikarabarnum velur þú um ofn-
steikt nautakjöt, grillsteikt lambakjöt,
ofnsteikt grísakjöt, grillaða kjúklinga
eða pottrétt. Kokkurinn aðstoðar þig
við valið og sker kjötið á diskinn.
Meðlætinu blandar þú saman að eigin
smekk.
Með steikarabarnum fylgir súpa,
brauð og salatbar.
Fyrir þá sem ekki vilja kjöt er jafnan
um fjóra mismunandi fiskrétti að velja.
Á steikarabarnum setur þú saman
þinn eigin matseðil og borðar eins og
þig lystir.
Hádegisverður kl. 11.30-14.00* kr. 580,-
Kvöldverður kl. 17.30-21.00* kr. 640,-
*Ath. aðeins opið matargestum.
4