Morgunblaðið - 04.11.1986, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 04.11.1986, Qupperneq 52
52 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 1986 t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, RAGNHILDUR SIGBJÖRNSDÓTTIR, Höfn f Hornafirði, lóst 31. október. Útförin fer fram frá Hafnarkirkju föstudaginn 7. nóvember kl. 11.00. Þeir sem vilja minnast hennar eru beðnir að láta Elli- og hjúkrunar- heimilið Skjólgarð njóta þess. Birna Kjartansdóttir, Árni Kjartansson, Anna Kjartansdóttir, Sigbjörn Kjartansson, tengdabörn og barnabörn. t Maðurinn minn, ODDUR HELGI HELGASON, forstjóri, Sólvallagötu 68, Reykjavfk, andaðist í Landspítalanum að morgni 3. nóvember. Friðbjörg Ingjaldsdóttir. t ÞRÁINN HARALDSSON lóst á heimili sínu í Noregi 2. nóvember. Guöný Guðjónsdóttir, Vigdfs Hannesdóttir. t Eiginkona mfn, móðir, tengdamóðir og amma, ÁSTRÍÐUR G. REYKDAL, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu í dag kl. 13.30. Krlstján J. Reykdal, Fanney Reykdal, Vigfús Magnússon, Gylfi Reykdal, Jón Reykdal, Jóhanna Þórðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Útför eiginmanns míns, föður, stjúpföður, afa og langafa, GUÐLAUGS DAVÍÐSSONAR, múrarameistara, Grettisgötu 33b, ferframfrá Hallgrímskirkju miðvikudaginn 5. nóvemberkl. 15.00. Ágústa Guðmundsdóttir, börn, tengdabörn, barnabörn, barnabarnabörn. t Sálumessa fyrir dr. HINRIK H. FREHEN SMM, blskup, verður sungin í Dómkirkju Krists konungs Landakoti föstudaginn 7 þ.m. kl. 13.30. Jarðsett veröur í grafreit Kristskirkju. Fyrir hönd prestanna, sóra A. George SMM. t Eiginmaöur minn, faðir, tengdafaðir, afi og bróðir, SIGURÐUR ÓMAR ÞORKELSSON, radfóeftirlitsmaður, Móaflöt 22, Garðabæ, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 5. nóv. kl. 13.30. Jarösett verður í Görðum að lokinni baenagjörð i Garða- kirkju. Inga Eirfksdóttir, Bertha Sigurðardóttir, Tryggvi Magnússon, Margrét Þorkelsdóttir, Magnús Friðriksson og barnabörn. t Alúðarþakkir fyrir auösýnda vináttu og samúð við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, PETRÍNU GUÐLAUGAR SÆMUNDSDÓTTUR, Ásvallagötu 17, Reykjavfk. Guðrún K. Guðmundsdóttir, Kristfn Guðmundsdóttir, Þorgerður Guðmundsdóttir, Hólmsteinn Hallgrímsson, Sæmundur Guðmundsson, Eyrún Óskarsdóttir, Halldóra Guðmundsdóttir, Júlíus Gestsson, barnabörn og barnabarnabörn. Minning: Kristján Sigurðs- son — vélstjóri Oft er lífið torráðin gáta og dauð- inn gerir sjaldnast boð á undan sér. Dauðsfall sem snertir okkur djúpt hefur orðið í vinnuhópi okkar. Hann sem okkur hafði fundist svo fjarri dauðanum er skyndilega horf- inn, það er erfítt að sætta sig við slíkt en þannig er lífsins gangur. Kristján Sigurðsson fæddist í Hafnarfírði 16. júní 1927. Við eig- um margar góðar minningar um Kristján, því hann var sannur drengur og vinur góður, það vitum við sem höfum misst svo mikið við fráfall hans, því Kristján gat auð- veldlega sagt okkur skoðanir sínar umbúðalaust án þess að það særði, við vissum að hann virti skoðanir okkar og hvatti okkur oft til dáða. Kristján var hógvær maður í framkomu allri, traustur vinur og tryggur sinni fjölskyldu og sínu starfi. í dag grúfir sorg yfir fjölskyldu hins látna, hún á minningar um heilsteyptan og umhyggjusaman eiginmann, föður og afa, minningar sem nú eru sárar en munu í tímans rás verða minningar sem oma, minningar sem bæta og gefa von. í dag kveðjum við Kristján hinstu kveðju en minningin um góðan vin mun ávallt lifa í hugum okkar og sendum við eftirlifandi eiginkonu hans, Kristínu Þórðardóttur, og fjöl- skyldu okkar innilegustu samúðar- kveðjur og biðjum algóðan guð að gefa þeim styrk. Jóhann Ólafur og synir. Sú harmafregn barst mér þriðju- daginn 28. október síðastliðinn, að Kristján Sigurðsson, vélstjóri, Mið- vangi 133, Hafnarfirði, hefði látist af slysförum við vinnu sína þá um morguninn. En þar hniginn fyrir aldur fram góður drengur og kær vinur okkar héma á Hjallaveginum, og mun hans sárt saknað af mörg- um. Kristján fæddist hinn 16. júní 1927 í Hafnarfirði, sonur hjónanna Valgerðar ívarsdóttur og Sigurðar Kristjánssonar, er þar bjuggu. Þau eignuðust mörg böm, sem öll eru vel af Guði gerð. Ólst Kristján upp í skjóli góðra foreldra og með stór- um systkinahópi, uns hann var orðinn fulltíða maður. Hann hóf snemma að sækja sjóinn, en lagði síðar stund á nám í vélvirkjun. Eft- ir það var hann lengst af vélstjóri á mótorbátnum Arsæli Sigurðssyni, en fyrir 14 ámm kom hann í land og réðst þá til Vélaverkstæðis Jó- hanns Ólafs hf. Hann var alla tíð vinsæll og vel látinn af vinum og starfsfélögum, bæði skipsfélögum sínum og eins í Vélsmiðjunni. Kristján var ákaflega duglegur að vinna og fylginn sér, enda vinnu- dagurinn oft langur. Hinn 27. maí 1950 gekk Kristján að eiga Kristínu Þórðardóttur frá Brúsastöðum við Hafnarfjörð, dótt- ur hjónanna Þórðar á Brúsastöðum og Salóme konu hans. Hjónaband þeirra var einkar farsælt, enda hjónin samhent og samtaka í öllum hlutum. Þeim varð fimm barna auðið, og em bömin í aldursröð þessi: Ing- veidur Salóme, Þórður; Sigurður, Valgerður og Kristín. 011 em þau efnisfólk. í fyrstu settu þau heimili sitt við Sunnuveginn í Hafnarfirði, uns þau keyptu sér íbúð við Hólabraut. En þegar fjölskyldan stækkaði og bamabömin sáu dagsins ljós, hófu þau að reisa sér húsið nr. 133 við Miðvang. Því var fulllokið fyrir nokkmm ámm og höfðu þau útbúið einkar fallegan og vel hirtan garð umhverfís heimili sitt. Störfuðu þau saman í garðinum og höfðu yndi og ánægju af. Sjálf kynntist ég Kristjáni og Kristínu árið 1950, þegar ég giftist til Hafnarfjarðar. Er ekki að orð- lengja það, að heimili þeirra var sem annað heimili mitt og bama minna, hvenær sem á þurfti að halda. Kristján og Gunnar, eiginmaður minn, vom vélstjórar hvor á sínum bát, sem oftast komu samtímis að t Hjartanlegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur sam- úð og hlýhug við andlát og útför INGU RÚNU WARRICK. Sérstakar þakkir færum við læknum og starfsfólki deildar 32 A Landspítalanum. Michael Ingólfur Warrick og systkini hinnar látnu. t Hjartans þakklæti til allra sem auðsýndu samúö og vinarhug við andlát og jarðarför BIRGIS HALLDÓRSSONAR. Guðbjörg Guðmannsdóttir, börn, fósturbörn, tengdabörn og barnabörn. t Innilegar þakkir flyt ég öllum þeim sem veittu mér ómetanlega aðstoð, samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, GEORGS SHEPPARDS GEORGSSONAR. Björg Sveinsdóttir. Legsteinar ýmsar gerðir Marmorex Steinefnaverksmiðjan Helluhrauni 14, sími 54034, 222 Hafnarfjörður bryggju. Guðrún Bára, dóttir mín, hefur mikið sótt til Kristínar á umliðnum árum og fyrir allt hið góða atlæti í hennar garð, vil ég þakka innilega nú. Kristján var hæglætismaður hversdagslega, en fjarska skemmti- legur í mannfagnaði. Hann var einstaklega góður fjölskyldufaðir og natinn við böm sín. Hann tók þau með sér í gönguferðir um bæ- inn, í heimsóknir vestur að Brúsa- stöðum til afa og ömmu, svo og til aldraðrar móður sinnar, sem býr nú í skjóli dóttur sinnar. Leið varla sá sunnudagur, að hún fengi ekki heimsókn af þeirra hendi. I Heilagri ritningu er hvatt til gestrisni og gjafmildi. Varla þurftu þau hjónin, Kristján og Kristín, á þeirri áminningu að halda. Þau voru ávallt veitandi í samskiptum sínum við aðra. Þegar ég missti Gunnar, bónda minn, fyrir flórum árum, buðu þau mér að halda erfisdrykkju á heimili þeirra. Ég og fjölskylda mín sendum Kristínu, vinkonu minni, bömunum öllum og Valgefði, móður Kristjáns, okkar innilegustu samúðarkveðjur og þökkum hlýja vináttu og góða samfylgd. Guð blessi minningu Kristjáns Sigurðssonar. Lilja Bjarnadóttir Kveðja frá starfsfélögum í dag verður til moldar borinn Kristján Sigurðsson, vélstjóri, Mið- vangi 133, Hafnarfirði, starfsfélagi okkar er varð fyrir slysi við vinnu sína, sem dró hann til dauða að- faranótt 28. október sl. Kristján var duglegur og ósér- hlífínn starfsfélagi, sem gott var að starfa með. Stórt skarð hefur nú verið höggvið í okkar vinnuhóp því ávallt var hægt að reiða sig á hann og treysta honum í hvívetna. Við viljum senda eiginkonu hans og öðrum aðstandendum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Starfsfélagar á Vélaverk- stæði Jóhanns Ólafs hf. Blómostofa fnöjinm Suðurtandsbraut 10 108 Reykjavík. Sími 31099 Opið öll kvöld til kl. 22,- éinnig um helgar. Skreytingar við öli tilefni. Gjafavörur. ftenfi^ninrnije fnurnójjE i mu
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.