Morgunblaðið - 04.11.1986, Page 58
58
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. NÓVEMBER 1986
ha£ er blátt 10 -úírcc oq vancar-
sj* i i y' f 1. ^
a. ycio tramr>je>l\d. »
Ast er...
að mæta
snemma á stefnu-
mótið.
TM Rej. U.S. Pat. Oft —all rights reserved
© 1986 Los Angeles Times Syndicate
Þetta er ef til vill dul-
klæddur njósnari frá
„Júventus".
HÖGNI HREKKVÍSI
i0’6
n EKKl SPARISIUFRIP!"
Áfram II Trovatore
Sl. föstudag fór ég í íslenzku
óperuna í Gamla bíói að sjá sýningu
á óperunni II Trovatore. Það er
skemmst frá því að segja, að þetta
reyndist stórkostlega skemmtileg
sýning, stemmning í salnum var
geysigóð og fögnuður áheyrenda
mjög mikill í lok sýningar. Frammi-
staða einsöngvaranna var með
einstökum glæsibrag og var þar
hvergi veikan hlekk að finna, en
hljómsveit og kór skiluðu sínum
hlut einnig mjög vel.
Uppistaða sýningarinnar er þó
að sjálfsögðu hin frábæra tónlist
snillingsins Verdi með aragrúa
glæstra aría, sem hver um sig er
hreinasta gullkom. Löngu eftir að
sýningum er lokið hljóma hinar
grípandi laglínur úr þessum aríum
í höfði manns. Það er því auðvelt
að skilja að þessi ópera skuli vera
ein vinsælasta ópera allra tíma og
sú ópera sem hvað mest hefur not-
ið hylli almennt.
í stuttu máli sagt finnst mér
þetta vera ein albezta óperusýning
sem ég hef séð og var greinilegt á
undirtektum annarra áheyrenda
umrætt kvöld, að þeir væru á sama
máli. Maður fyllist stolti yfir því
að þetta skuli vera hægt að fram-
kvæma hér á íslandi og er óhætt
að fullyrða að sýning sem þessi sé
ómetanlega mikils virði fyrir
mannlíf og menningarlíf á íslandi.
Því miður var þessi sýning aug-
lýst sem sú síðasta á II Trovatore,
en ég vil leyfa mér að skora á ráða-
menn Islenzku óperunnar að halda
sýningum enn áfram þannig að
fleiri megi fá að njóta. Jafnframt
vil ég skora á íslenzkt tónlistar-
áhugafólk og raunar almenning
allan að láta ekki þessa sýningu
fram hjá sér fara.
Að endingu vil ég beina þeirri
fyrirspum til ráðamanna sjónvarps-
ins, hvort ekki sé ástæða til að taka
þessa sýningu upp fyrir sjónvarp
og sýna þar? Geysileg vinna hefur
verið lögð í uppsetningu þessarar
sýningar og væri synd ef ekki væri
hægt að varðveita hana til frambúð-
ar á þessum sjónvarpstímum sem
við nú lifum á.
íslendingnr
Málið má ekki
liggja í þagnargildi
Ég vil þakka Kristínu G. fyrir
grein hennar í Velvakanda. Ég er
eins og hún hissa á að ekkert skuli
heyrast frá foreldrum eða aðstand-
endum um þetta mál, svo lítið er
ekki búið að setja út á alla starf-
semi Sólheima.
Að vísu hef ég ekki jafn slæma
reynslu og Kristín en tel mig þó
geta sagt að margt er til í því sem
skrifað hefur verið um þetta mál.
Væri nú ekki ráð að upplýsa hvcij-
ir em í stjóm heimilisins?
Kveikja þessara skrifa minna er
nýafstaðið afmælisþing Þroska-
hjálpar og aðalfundur foreldra og
vinafélags Sólheima en þar var ekki
minnst einu orði á þetta alvarlega
mál. Vitaskuld má ekki þagga það
niður, á því græða stjórnendurnir.
Olga E.
Víkverji skrifar
Fyrir þjóð með jafn fámenna
utanríkisþjónustu og íslending-
ar hafa yfir að ráða, þá skiptir
miklu að ræðismannakerfið sé vel
virkt og að til þess að gegna þeim
störfum séu fengnir traustir og
áhugasamir menn. Ræðismanna-
starfíð er hins vegar ólaunað og oft
hefur það viljað brenna við að menn
sækist fremur eftir því sem skraut-
íjöður í hatt sinn en að þeir geri
það að brennandi áhuga á því að
láta gott af sér leiða fyrir Island
og Islendinga. Sennilegt er þó að
þetta hafa fremur átt við hér á
árum áður og greinilegt er að af
hálfu utanríkisráðuneytisins er nú
ýmislegt gert til að styrkja tengslin
við ræðismennina.
í sumar var til dæmis ræðis-
mönnum Islands erlendis öllum
boðið hingað til lands til skrafs og
ráðagerða og sumir hverji voru jafn-
vel að kynnast landinu í fyrsta sinn
meðan aðrir voru að endurnýja
kynnin eftir langan tíma. Það er
enginn vafi á því þessir fundarhöld
hér á landi hafa mikla þýðingu fyr-
ir ræðismennina og færa þá nær
umbjóðendum sínum í þessu fjar-
læga landi í norðri. Þetta var amk.
reynsla hóps Islendinga sem fylgdi
Steingrími Hermannssyni, forsætis-
ráðherra, á ferð hans um Austurl-
önd §ær að leið í opinbera heimsókn
til Kína. Bæði í Bangkok í Thail-
andi og í Hong Kong mæddi talsvert
á ræðismönnum íslands og á báðum
stöðum lögðu þeir sig alla fram um
að greiða götu okkar íslending-
anna.
Sérc.' .klega reyndi þó á ræðis-
mann Islands í Hong Kong, þar sem
islenski hópurinn hafði þar viðkomu
bæði áður en opinbera heimsóknin
til Kína hófst og eftir að henni lauk.
Var því í mörgu að snúast fyrir
ræðismanninn, Anthony Hardy.
Hann er fyrrum starfsmaður bresku
utanríkisþjónustunnar en var síðan
lengi forstjóri norsks skipa- og
flutningamiðlunarfyrirtækis í Hong
Kong og nú nýverið hefur hann
opnað eigin skrifstofu á þessu sviði.
Tengsl hans við íslands eru tilorðin
vegna þess að norska fyrirtækið er
umboðsaðili bæði Flugleiða og
Hong Kong á þessum slóðum.
Hardy er greinilega vel þekktur
maður í viðskiptaheiminum í Hong
Kong og með víðtæk sambönd inn
í stjórnkerfið og viðskiptalífið í
þessari miklu banka- og kaupsýslu-
miðstöð. Var hann ótrauður að
koma á tengslum milli íslensku við-
skiptasendinefndarinnar sem þama
var á ferð og viðeigandi aðila í
Hong Kong og greiða götu okkar
íslendinganna á alla mögulegan
hátt. Er alls ekki ólíklegt að þessi
tengsl kunni að skila sér síðar meir
margfalt í viðskiptasamböndum
milli íslensks atvinnulífs og sam-
svarandi aðila í Hong Kong, og
sýnir svo ekki verður um villst að
góður ræðismaður getur þannig
verið gulis ígildi.
XXX
að var fyrir tilstilli Hardy ræð-
ismanns í Hong Kong að
Steingrími Hermannssyni og
íslensku viðskiptanefndinni var boð-
ið að heimsækja aðalstöðvar Hong
Kong og Shanghai Banking Corpor-
ation í Hong Kong. Hong Kong
bankinn éins og hann er venjulega
kallaður, er fjórtándi stærsti banki
heims og hefur nýlega hreiðrað um
sig í einni glæsilegustu og dýrustu
byggingu veraldar. Þetta er fjórða
aðalbygging bankans sem rís þama
á sama stað frá því að bankinn hóf
starfsemi sína 1865 og var nýja
byggingin tekin formlega í notkun
í nóvember 1985. Sem arkitektúr
er byggingin ævintýri líkust en
höfundur hennar er breski arkitekt-
inn Norman Foster og af mörgum
er þessi aðalbygging Hong Kong
bankans talin fegursta og nýstár-
legasta bankabygging heims um
þessar mundir, - 42 hæðir og tæpir
100 þúsund ferml Og þyki.Islend-
ingum mikill íburður í íslenskum
bankabyggingum, setti þá senni-
lega hljóða að ganga um sali Hong
Kong bankans, því að þar hefur
ekkert verið til sparað. Enda fór
kostnaður við bygginguna að því
er sagt er algjörlega úr böndunum.
Upphafleg kostnaðaráætlun hljóð-
aði upp á 200 milljónir Bandaríkja-
dollara eða um 8 milljarða ísl. króna
en byggingin kostaði þegar upp var
staðið þrefalt meira eða 600 milljón-
ir dollara. Leiðsögumaður Islend-
inganna um bankann gat þessa að
vísu í engu - en sagði hins vegar
að kostnaðurinn við bygginguna
kæmi vel út fyrir bankann í skatta-
legu tilliti.
Eftir þessa heimsókn var ekki
laust við að okkur Islendingunum
þætti flestum sem Seðlabankinn
okkar við Arnahól væri orðinn
ósköp lágreist og hógvær bygging.