Morgunblaðið - 06.11.1986, Page 1
64 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
250. tbl. 72.árg.
FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1986
Prentsmiðja Morgimblaðsina
Systir
Shirmans
komin til
Israels
Tel Aviv, AP.
Hvítblæðisjúklingurinn
Mikhail Shirman faðmaði
systur sína að sér er hún kom
til ísraels í gær og gat hún
ekki varist gráti. Inessa
Fleurova barðist fyrir því 11
mánuði að fá brottflutnings-
leyfi frá Sovétríkjunum til
þess gefa bróður sínum bein-
merg.
Fleurova fór frá Sovétrílcjunum
á mánudag og millilenti í Vín á
leiðinni til Tel Aviv. Hún fór ásamt
manni sínum, Viktor Fleurov, og
tveimur dætrum. „Guði sé lof, loks
erum við komin til ísraels," sagði
Fleurova á hebresku þegar hún sté
úr vélinni.
„Við erum hingað komin. En við
getum ekki gleymt vinum okkar,
sem urðu eftir. Þeir hjálpuðu okkur
að beijast tii sigurs," sagði
Fleurova við blaðamenn í ísrael.
Shirman kom til Reykjavíkur
meðan á leiðtogafundinum stóð 11.
og 12. október til að vekja athygli
bandarískra öldungadeildarþing-
manna og mannréttindasamtaka á
máli sínu.
Þeir sögðu mér í Bandaríkjunum
að för mín til Reykjavíkur hefði
ráðið úrslitum um það að Sovét-
menn leyfðu systur minni og
fjölskyldu hennar að fara,“ sagði
Shirman í gær.
Shirman fékk að fara frá Sov-
étríkjunum 1980. Hann hefur
unnið við rannsóknir á krabba-
meini og á síðasta ári komst hann
að því að hann hefði hvítblæði.
Honum var sagt að aðeins bein-
mergsflutningur úr systkini gæti
bjargað lífi hans.
í dag verður kannað hvort hægt
er að nota beinmerg Fleurovu til
aðgerðarinnar. Sé svo fer aðgerðin
fram á Hadassah sjúkrahúsinu í
Jerúsalem.
Mikhail Shirman, Inessa Fleurova og dætur hennar Sasha og Marianna.
AP/Símamynd
Grænland:
Fá Grænlend-
ingar kosninga-
rétt 16 ára?
Kaupmannahöfn, frá Nils Jörgen Bruun,
Grænlandsfréttaritara Morgunbladsins.
STJÓRNARFLOKKARNIR á
grænlenska landsþinginu hafa
lagt til að kosningaaldur verði
lækkaður úr átján árum niður í
sextán ár.
Tillaga þessi verður til umijöllun-
ar um leið og kosningalöggjöfin
verður endurskoðuð á þinginu. Ta-
lið er að meirihluti þingmanna sé
fylgjandi þessari breytingu.
„Þeir, sem eru sextán og sautján
ára, eru skattgreiðendur eins og
annað fullorðið fólk og ættu því
einnig að hafa kosningarétt," sagði
Lars Emil Johansen, þingmaður á
landsþinginu, þegar tillagan var
lögð fram.
Andstæðingar Reagans með
meirihlute í báðum deildum
Demókratar segjast ekki stefna í átök við forsetann
Washington, AP og Reuter.
DEMÓKRATAR fögnuðu því ákaft í gær að þeir skyldu
hafa unnið meirihluta í öldungadeild Bandaríkjaþings.
Ronald Reagan forseti óskaði sigurvegurum í þingkosning-
unum til hamingju og vottaði þeim, sem biðu lægri hlut,
samúð sína. Forsetinn lofaði um leið að „ljúka bylting-
unni, sem við hófum með slíkum ágætum 1980“.
Demókratar, sem eru í stjómar-
andstöðu, bættu við sig átta sætum
í öldungadeildinni og sitja því 55
þingmenn þeirra næsta þing, sem
hefst í janúar. Repúblikanar hafa
45 sæti, en höfðu 53 sæta meiri-
hluta í sex ár.
„Ef á heildina er litið færa úrslit
kosninganna frekar góð tíðindi,
þótt við höfum tapað meirihluta í
öldungadeildinni," voru fyrstu um-
mæli Reagans um kosningamar.
„Stefnskrá okkar er óbreytt og ég
hlakka til að hefjast handa við að
knýja hana fram.
Demókratar sögðu aftur á móti
að sigur þeirra í kosningunum á
mánudag bæri því vitni að kjósend-
ur hefðu veitt þeim fulltingi sitt til
að beijast gegn ýmsum umdeildum
áætlunum forsetans. Þar á meðal
mætti nefna stuðning við skæruliða
í Nicaragua. Demókratar sögðust
þó ekki stefna i átök við forsetann
og styðja hann í geimvamamálum.
Þeir kváðust vilja hefjast handa sem
fyrst við að stjóma landinu í sam-
vinnu við hann.
Demókratar bættu einnig við sig
sætum í fulltrúadeildinni, enn ekki
var vitað fyrir víst hversu mörgum
þegar Morgunblaðið fór í prentun,
þar sem talningu var ekki alls stað-
ar lokið. Demókratar höfðu þá
unnið 258 þingsæti og höfðu for-
ystu í baráttunni um eitt. Repúblik-
anar höfðu tryggt sér 173 sæti og
voru sigurstranglegri þar sem kom-
Allsheijarþmg Sameinuðu þjóðanna:
Sovétmenn kalli her
sinn frá Afganistan
Sameinuðu þjóðunum, Reuter.
ÞESS var krafist á allsheijar-
þingi Sameinuðu þjóðanna I
gær að Sovétmenn kölluðu
her sinn heim frá Afganistan.
Þetta er áttunda sinni, sem
slík krafa er samþykkt á aUs-
heijarþinginu síðan Sovét-
menn réðust inn i Afganistan
í desember 1979.
Nærri 50 ríki stóðu að þessari
kröfu. Fulltrúar 122 ríkja greiddu
atkvæði með henni, 20 fulltrúar
á móti og 11 sátu hjá. í fyrra
voru greidd atkvæðu um kröfu
með líku orðalagi og fór þá á svip-
aðan veg.
Sovétmenn voru ekki nefndir á
nafn í samþykktinni frekar en
áður. Þar var réttur Afgana til
að ráða sjálfir stjómarfari í
landinu án utanaðkomandi íhlut-
unar ítrekaður.
Allir hlutaðeigandi aðiljar vora
hvattir til að vinna snöfurmann-
lega að lausn á deilunni og gera
þeim fjórum milljónum Afgana,
sem flúið hafa heimkynni sín,
kleift að snúa aftur af sjálfs-
dáðum. Fjórðungur Afgana er
landflótta um þessar mundir.
Pakistanar kveðast hafa veitt
um þremur milljónum flótta-
manna hæli og margir dveljast í
íran.
AP/Slmamynd
Þingkonan Barbara Mikulski veifar stuðningsmönnum sínum eftir
að lýst hafði verið yfir henni sem sigurvegara yfir repúblikananum
Lindu Chavez í kosningunum um sæti Maryland-fylkis í öldungadeild-
ið var talningu um þijú.
Engu að síður hafa demókratar
bætt við 73 sæta meirihluta sinn í
fulltrúadeildinni. Demókratar höfðu
253 sæti fyrir kosningamar og
repúblikanar 182.
Niðurstöður þessar era áfall fyrir
Reagan, sem ferðaðist um Qórtán
fylki á tveimur vikum til að hjálpa
frambjóðendum Repúblikana þar.
Repúblikönum gekk betur í fylk-
isstjórakosningunum, sem einnig
fóra fram á mánudag. Þeir höfðu
unnið a.m.k. átta fylkisstjóraemb-
ætti af demókrötum samkvæmt
talningu seint í gærkvöldi. Demó-
kratar hafa því aðeins naumt
forskot þar því að 26 fylkisstjórar
era úr þeirra röðum eftir kosning-
amar, en 24 fylkisstjórar era
Repúblikanar.
„Byltingu Reagáns er lokið, ef
hún hófst þá nokkurn tíma,“ sagði
demókratinn Thomas P. O’Neill,
sem lætur nú af störfum forseta
fulltrúadeildarinnar. Lokatölur í
kosningunum liggja ekki fyrir fyrr
en eftir nokkrar vikur.
Reagan sagði þegar hann ávarp-
aði starfsmenn Hvíta hússins að
markmið sín yrðu áfram þau sömu:
meiri velmegun í Bandaríkjunum
og friður í heiminum.
Enginn einn málaflokkur ein-
kenndi kosningabaráttuna að þessu
sinni, en erfíðir tímar í landbúnað-
arhéraðum Bandaríkjanna vora
greinilega vatn á myllu demókrata.
Þeri unnu öldungadeildarsæti í
Norður- og Suður-Dakóta og náðu
meira fylgi í Wisconsin en búist var
við.
Tuttugu og tveir svartir menn
verða á næsta þingi og hafa þeir
aldrei verið fleiri.