Morgunblaðið - 06.11.1986, Qupperneq 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1986
Skilnings-
tréð
Erlendar fréttir eru enn fyrirferð-
armiklar á Stöð 2 en þó sækja
fréttamenn stöðvarinnar í sig veðrið á
innlendum vettvangi svo mjög reyndar
að í þriðjudagsfréttum stöðvarinnar
gaf einn fréttamaðurinn í skyn að frétt
Stöðvar 2 af „lánsviðskiptum" Stefáns
Benediktssonar alþingismanns hefði
nánast orðið þess valdandi að Stefán
ákvað að gefa ekki kost á sér í fram-
boð fyrir Alþýðuflokkinn i næstu
kosningum.
Fréttamenn eiga ekki að stýra
gangi sögunnar heldur aðeins að upp-
lýsa almenning um gang veraldarinn-
ar. En ef þeir hafa með starfa sínum
áhrif á gang veraldarinnar til góðs
þá má alltaf fagna hógværiega sigri
eftirá. Það er auðvitað gleðilegt til
þess að vita að fréttamenn Stöðvar 2
mættu karlmenni á borð við Stefán
Benediktsson, manni sem afsalar sér
umsvifalaust völdum þá hann sér sína
sæng uppreidda ekki í lagalegum
skilningi heldur í siðferðilegum, þótt
oft hafí menn nú fengið skammtíma-
lán hjá vinum og kuningjum á meðan
beðið var eftir bankaláni. En Stefán
fer að þeirri frumreglu að alþingis-
menn skuli sýna gott fordæmi í
hvívetna. Væri óskandi að alþingis-
menn allir sem einn hefðu til að bera
svipað siðferðisþrek og Stefán Bene-
diktsson. Nú, og ekki má gleyma því
að sumir alþingismenn eru líka ráð-
herrar.
Nei, áfram með smérið Páll Magn-
ússon og hlífðu hvergi valdsmönnum
án þess þó að víkja nokkru sinni af
hinum þrönga vegi. Það er nóg til af
hæfum og heiðarlegum mönnum er
sækjast eftir setu á Alþingi og í ríkis-
stjóm. Hinir verða bara að sætta sig
við að sitja á sínu rétta priki. Harð-
skeytt og heiðarleg fréttamennska
getur hjálpað almenningi að greina
milli hafranna og sauðanna og máski
rennur upp sú tíð að hér setjast á ný
við stjómvöl flokkanna menn með
bein í nefí er hafa stjóm á sínum
mönnum, menn er hafa þor til að blása
burtu svikalogni siðspillingarinnar.
Upplýsinga-
fjölmiölun
Undirritaður er sum sé þeirrar
skoðunar að fréttir eigi fyrst og
fremst að vera upplýsandi fremur
en að fréttamenn felli dóma yfír
mönnum. Máski hefír þörfin fyrir
upplýsandi og fræðandi útvarps-
og sjónvarpsefni aldrei verið brýnni
en nú á tímum yfírfljótandi léttmet-
isfjölmiðlunar. Daglangt dynur
poppið í eyrum og Hollywood-
framhaldsþættir fylla skerminn að
kveldi. Til allrar hamingju er þó enn
að finna á dagskrá ljósvakafjölmiðl-
anna töluvert af fræðsluefni. Eg
vil hér nota tækifærið og benda á
afar fróðlega þætti sem Bjami Sig-
tryggsson stýrir á rás 1 og nefnast
þeir Torgið. í þessum þáttum kem-
ur Bjami ótrúlega víða við.
í síðasta þætti ræddi hann til
dæmis við Halldór Kristjánsson
verkfræðing um einkatölvuævintýr-
ið en Halldór telur að við íslending-
ar höfum sett heimsmet í einka-
tölvueign. Erum við íslendingar hér
langt á undan öðrum Norðurlanda-
þjóðum enda tollar lágir á tölvum.
Þá hefir Póstur og sími greitt mjög
fyrir tölvusamskiptum en þó má
gera betur því enn hindrar sú stofn-
un fijálsan innflutning á svokölluð-
um modemum (móðum — nýyrði
samanber móða= fljót) en þessi
tæki gera samskipti tölva möguleg.
Hefír sá sem hér ritar átt í vandræð-
um með að kaupa slíkt tæki til
flutnings á greinarkominu. Von-
andi sjá símamenn að sér og heimila
innflutning á ódýrari 1200 bita
móðum en hér fást — ekkert má
hindra upplýsingabyltinguna.
Ólafur M.
Jóhannesson
ÚTVARP/SJÓNVARP
Leikendur og leikstjóri.
Ríkisútvarpið:
Fimmtudagsleikritið
í kvöld verður flutt leikritið
Pétur og Rúna, eftir Birgi
Sigurðsson undir leikstjóm
Eyvindar Erlendssonar.
Pétur og Rúna er fyrsta
leikrit Birgis. Það var
frumflutt í Iðnó árið 1972
eftir að hafa unnið 1. verð-
laun í leikritasamkeppni,
sem Leikfélag Reykjavíkur
efndi til á 75 ára afmæli
sínu.
í leikritinu er sagt fr
aungum hjónum, sem hafa
kastað hinum ríkjandi gild-
um efnishyggjunnar á glæ
í því skyni að koma sér út
úr lífsgæðakapphlaupinu.
Þessi skoðun er ekki par
vinsæl meðal ættingja
þeirra og vina, sem em
önnum kafnir við að „koma
sér áfram“.
Leikarar em: Jóhann
Sigurðarson, Guðbjörg
Thoroddsen, Margrét
Helga Jóhannsdóttir, Pálmi
Gestsson, Edda Heiðrún
Backman, Ámi Tryggva-
son, Bessi Bjamason og
Karl Guðmundsson.
Bylgjan:
Spjallað við Ævar
og Jónu Rúnu
Kvaran
■■■■ í þætti Jónínu
9O00 Leósdóttur, Á
~ fimmtudegi, á
Bylgjunni, mun hún að
venju fá gesti í kaffi til sín.
Að þessu sinni hefur hún
fengið til sín hjónin Ævar
og Jónu Rúnu Kvaran, en
þau hjónin em landskunn
fyrir afskipti sín af dulræn-
um málum og Ævar auk
þess kunnur fyrir leik sinn,
upplestur og framsögn.
I þættinum spjallar
Jónina við þau hjónin um
heima og geima og koma
þá við sögu dulræn atvik,
ritstörf Ævars, leiklistar-
störf hans og margt fleira.
Þá verður leikin tónlist
eftir höfði gestanna og um
það val fjallað.
Þess má geta að þáttur-
inn verður endurtekinn
Ævar Kvaran.
næsta sunnudagskvöld
klukkan 23:00.
UTVARP
FIMMTUDAGUR
6. nóvember
6.45 Veðurfregnir. Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 Morgunvaktin
Páll Benediktsson, Þorgrim-
ur Gestsson og Lára
Marteinsdóttir. Fréttir eru
sagðar kl. 7.30 og 8.00 og
veöurfregnir kl. 8.15. Til-
kynningar eru lesnar kl.
7.25, 7.55 og 8.25.
7.20 Daglegt mál
Guðmundur Sæmundsson
flytur þáttinn.
9.00 Fréttir
9.03 Morgunstund barn-
anna: „Maddit" eftir Astrid
Lindgren. Sigrún Árnadóttir
þýddi. Þórey Aðalsteins-
dóttir les (9).
9.20 Morguntrimm. Tilkynn-
ingar.
9.35 Lesið úr forystugreinum
dagblaðanna.
10.00 Fréttir
10.10 Veðurfregnir
10.30 Ég man þá tíð
Hermann Ragnar Stefáns-
son kynnir lög frá liðnum
árum.
11.00 Fréttir.
11.03 Söngleikir á Broadway
1986
Fjórtándi þáttur: „Jerry’s
Girls". Umsjón. Árni Blan-
don.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar
12.20 Fréttir
12.45 Veöurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 í dagsins önn - Efri ár-
in. Umsjón: Sigrún Björns-
dóttir.
14.00 Miödegissagan: „Ör-
lagasteinninn" eftir Sigbjörn
Hölmebakk. SigurðurGunn-
arsson les þýðingu sína (3).
14.30 I lagasmiöju
Andrews Lloyd Webber.
15.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
15.20 Landpósturinn
Frá svæðisútvarpi
Reykjavíkur og nágrennis.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið
Stjórnandi: Sigurlaug M.
Jónasdóttir.
17.00 Fréttir.
17.03 Tónskaldatími
Leifur Þórarinsson kynnir.
17.40 Torgiö — Menningar-
mál
Meöal efnis er fjölmiðlarabb
sem Bragi Guðmundsson
flytur kl. 18.00. (Frá Akur-
eyri.) Umsjón: Óðinn Jóns-
son.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.30 Tilkynningar.
19.40 Daglegt mál
Endurtekinn þáttur frá
morgni sem Guðmundur
Sæmundsson flytur.
19.45 Að utan
Fréttaþáttur um erlend mál-
efni.
20.00 Leikrit: „Pétur og Rúna"
eftir Birgi Sigurðsson.
Leikstjóri: Eyvindur Erlends-
son. Leikendur: Jóhann
Sigurðarson, Guðbjörg
Thoroddsen, Margrét Helga
Jóhannsdóttir, Pálmi Gests-
son, Edda Heiðrún Back-
man, Árni Tryggvason,
Bessi Bjarnason og Karl
Guðmundsson. (Leikritið
veröurendurtekiö nk. þriðju-
dagskvöld kl. 22.20).
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 „Ástkona franska lautin-
antsins"
Magdalena Schram kynnir
bókina og höfund hennar,
John Fowles. Lesari: Róbert
Arnfinnsson.
23.00 Túlkun í tónlist
Rögnvaldur Sigurjónsson
sér um þáttinn.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
/Z
SJÓNVARP
FÖSTUDAGUR
7. nóvember
17.55 Fréttaágrip á táknmáli
18.00 Litlu prúðuleikararnir
(Muppet Babies). 16. þáttur.
Teiknimyndaflokkur eftir Jim
Henson. Þýðandi Guðni
Kolbeinsson.
18.25 Stundin okkar
Endursýndur þáttur frá 2.
nóvember.
18.55 Auglýsingarog dagskrá
19.00 Spitalalíf
(M*A*S*H). Sjötti þáttur.
Bandarískur gamanmynda-
flokkur sem grrist á neyðar-
sjúkrastöð bandaríska
hersins í Kóreustríðinu. Að-
alhlutverk: Alan Alda.
Þýðandi Kristmann Eiðsson.
19.30 Fréttir og veöur
20.00 Auglýsingar
20.10 Sá gamli
(Der Alte). 21. Garðyrkju-
maöurinn. Þýskur saka-
málamyndaflokkur.
Aðalhlutverk Siegfried Low-
itz. Þýðandi Veturliði
Guðnason.
21.10 Unglingarnir í frumskóg-
inum
Umsjón: Vilhjálmur Hjálm-
arsson. Stjórn upptöku:
Gunnlaugur Jónasson.
21.40 Þingsjá
Umsjónarmaður Ólafur Sig-
urðsson.
21.55 Kastljós
Þáttur um innlend málefni.
22.25 Á döfinni
22.35 Seinni fréttir
22.40 Bolinn frá Bronx
(Raging Bull). Bandarisk
verðlaunamynd frá 1980.
Leikstjóri Martin Scorsese.
Aðalhlutverk: Robert De
Cathy Moriarty, Joe
og Frank Vincent.
hnefaleikamannsins
Jakes La Motta.sem kallað-
ur var Bolinn frá Bronx. Jake
ólst upp i hörðum skóla og
var vægðarlaus I hringnum.
Hann hlaut mikinn og skjót-
an frama en þoldi illa
meðlætið enda sneri gæfan
viö honum bakinu. Þýðandi
Kristmann Eiðsson. Atriði I
myndinni eru ekki við barna
hæfi.
00.50 Dagskrárlok
Niro,
Pesci
Saga
STODTVÖ
FIMMTUDAGUR
6. nóvember
17.30 Myndrokk.
18.30 Teiknimyndir.
19.00 iþróttir. Umsjón Heimir
Karlsson.
20.00 Fréttir.
20.30 Bjargvætturin (Equaliz-
er). Bandariskur sakamála-
þáttur.
21.30 Tiskuþáttur
(Videofashion).
22.00 Óréttlæti (Blind Justice).
Bandarisk kvikmynd.
23.30 Fljótið (The River).
Bandarísk kvikmynd með
Mel Gibson og Sissy
Spacek í aðalhlutverkum.
Endursýning.
01.30 Dagskrárlok.
FÖSTUDAGUR
7. nóvember
9.00 Morgunþáttur
í umsjá Kolbrúnar Halldórs-
dóttur og Kristjáns Sigurjóns-
sonar.
12.00 Hádegisútvarp
með fréttum og léttri tónlist I
umsjá Gunnlaugs Sigfússon-
ar.
13.00 Bót i máli
Margrét Blöndal les bréf frá
hlustendum og kynniróskalög
þeirra.
15.00 Allt á hreinu
Stjórnandi: Bertram Möller.
16.00 Endasprettur
Þorsteinn G. Gunnarsson
kynnir tónlist úr ýmsum áttum
og kannar hvað er á seyöi um
helgina.
18.00 Hlé.
20.00 Kvöldvaktin
Stjórnandi: Andrea Jónsdóttir
23.00 Á næturvakt
með Ásgeiri Tómassyni og
Vigni Sveinssyni.
3.00 Dagskrárlok.
Fréttir eru sagðar kl. 9.00,
10.00, 11.00, 12.20, 15.00,
16.00 og 17.00.
SVÆÐISÚTVARP
REYKJAVÍK
SVÆÐISÚTVARP VIRKA
DAGA VIKUNNAR
17.30—18.30 Svæðisútvarp fyr-
ir Reykjavik og nágrenni — FM
90,1 MHz.
AKUREYRI
18.00—19.00 Svæðisútvarp fyr-
ir Akureyri og nágrenni — FM
96,5 MHz.
98*9
BYL GJAN
FIMMTUDAGUR
6. nóvember
06.00—07.00 Tónlist í morg-
unsárið.
Fréttir kl. 7.00.
07.00—09.00 Á fætur með
Siguröi G. Tómassyni. Létt
tónlist með morgunkaffinu.
Sigurður lítur yfir blöðin og
spjallar við hlustendur og
gesti.
Fréttir kl. 8.00 og 9.00.
09.00—12.00 Páll Þorsteins-
son á léttum nótum. Palli
leikur öll uppáhaldslögin og
spjallar við hlustendur til
hádegis.
Fréttir kl. 10.00, 11.00 og
12.00.
12.00—14.00 Á hádegismark-
aði með Jóhönnu Haröar-
dóttur.
Jóhanna leikur létta tónlist,
spjallar um neytendamál og
stýrirflóamarkaðikl. 13.20.
Fréttir kl. 13.00 og 14.00.
14.00—17.00 Pétur Steinn á
réttri bylgjulengd. Péturspil-
ar og spjallar við hlustendur
og tónlistarmenn.
Fréttir kl. 15.00, 16.00 og
17.00.
17.00—19.00 Hallgrímur
Thorsteinsson i Reykjavík
síðdegis. Hallgrímur leikur
tónlist, lítur yfir fréttirnar og
spjallar við fólk sem kemur
við sögu.
Fréttir kl. 18.00 og 19.00
19.00—20.00 Tónlist með
léttum takti.
20.00—21.30 Jónína Leós-
dóttir á fimmtudegi. Jónína
tekur á móti kaffigestum og
spilar tónlist eftir þeirra
höfði.
21.30— 22.30 Spurningaleik
ur. Bjarni Ó. Guðmundsson
stýrir verðlaunagetraun um
popptónlist.
22.30- 23.00 Sakamálaleik-
húsið — Safn dauðans.
2. leikrit. Eitur í mínum bein
um. Endurtekið.
23.00-24.00 Vökulok. Frétta
menn Bylgjunnar fjalla um
fréttatengt efni og leika
þægilega tónlist.
24.00—01.00 Inn í nóttina
með Bylgjunni. Ljúf tónlist
fyrir svefninn.