Morgunblaðið - 06.11.1986, Síða 28
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1986
28
Jólakort Barnaspítalasjóðs
Hringsins í ár
Barnaspítalasjóður
Hringsins:
Jólakortin
komin út
JÓLAKORT til styrktar Barna-
spítalasjóði Hringsins eru komin
á markaðinn. Hönnuður kor-
tanna að þessu sinni er Guðrún
Geirsdóttir, félagskona í Hringn-
um.
Kortin eru í tveimur litum, blá
« og rauð. A bakhlið er merki félags-
ins. Þau verða seld áýmsum stöðum
í borginni, m.a. á Bamaspítala
Hringsins, Hagkaupum og í blóma-
og bókabúðum.
Austurlandskjördæmi:
Athugasemd
* ÞORSTEINN Gústafsson
formaður prófkjörsnefndar
Sjálfstæðisflokksins í Austur-
landskjördæmi segir að prófkjör
i kjördæminu hafi verið jafn opið
og flokksreglur heimila og unnið
samkvæmt samþykktum kjör-
dæmisráðs.
„Það mátti lesa það óbeint í við-
tali við Sverri Hermannsson í
blaðinu í fyrradag að prófkjörið
hafi verið lokað öðrum en flokks-
bundnum Sjálfstæðismönnum.
Prófkjörið var eins opið og flokks-
reglur heimila, opið þeim sem skrifa
undir stuðningsyfirlýsingu við Sjálf-
stæðisflokkinn og hafa undirritað
innritunarbeiðni í flokkinn auk
hinna flokksbundnu."
Hótel Borg:
Bubbi Morthens
með tónleika
í KVÖLD heldur Bubbi Morthens
tónleika á Hótel Borg með hljóm-
sveit sinni MX21 og hefjast þeir
kl. 22. Húsið opnar hinsvegar kl.
21.
í fréttatilkynningu segir, að
^ ástæðan fyrir tónleikum þessum sé
væntanleg hljómplata frá Bubba,
en útgáfudagur hennar hefur verið
ákveðin miðvikudaginn 12. nóv-
ember og ber platan heitið Frelsi
til sölu.
Leiðrétting
V'egna fréttar í Morgunblaðinu í
gær um framboðsmál stjórn-
málaflokkanna er rétt að taka
fram að ekki hefur verið gengið
. endanlega frá framboðslistum
Sjálfstæðisflokksins til alþingis-
kosninganna næsta vor nema í
Austurlandskjördæmi þó próf-
kjör eða skoðanakannanir hafi
farið fram i öllum kjördæmum
nema Vesturlandi. Endanlegar
ákvarðanir um skipun framboðs-
lista eru í höndum kjördæmis-
-ráða á hverjum stað.
Straxúr
efsta sæti
VINSÆLDALISTI Bylgjunnar
hefur breyst nokkuð frá fyrri
viku. Hljómsveitin Strax féll úr
fyrsta sætinu fyrir Status Quo.
Stærstu stökkin á listanum eiga
kvennahljómsveitin Bangles og
Lionel Richie, sem fara upp um
14 og 16 sæti.
Listinn lítur þá svona út:
1. (5) In the army now / Status Quo
2. (1) Moscow, Moscow / Strax
3. (3) True Blue / Madonna
4. (18) Walk like an Egyptian /
Bangles
5. (7) I've been loosingyou / A-ha
6. (6) True colors / Cyndi Lauper
7. (9) Hi, hi, hi / Sandra
8. (2) Rain or shine / Five Star
9. (4) Died in your arms / Cutting
Crew
10. (26) Love will conquer all / Lion-
el Richie
Reykjaneskjördæmi:
Athugasemd
Vegna mistaka birtist eftirfar-
andi athugasemd ekki í blaðinu
í gær og er beðist velvirðingará
því:
„I viðtali við mig í Morgunblaðinu
í dag er sagt í lokin að ég væri
þess fullviss að tillögu kjömefndar
um uppröðun listans yrði ekki
breytt og að listinn yrði eins og
nefndin legði til í næstu kosningum.
Eg sagði að ég væri þess full-
viss, að kjörnefnd breytti ekki
tillögu sinni, en tillaga kjömefndar
yrði lögð fyrir kjördæmisráð, sem
tæki endanlega afstöðu og gæti því
breytt framkominni tillögu á hvaða
hátt, sem það óskaði.
4. nóvember, 1986.
Gísli Ólafsson."
Leiðrétting
Margt gesta var við athöfnina, m.a. forseti íslands frú Vigdís Finnbogadóttir. Morgunbiaði«/Emar Faiur
Leiklistarskólinn
fær nýtt húsnæði
„ÞAÐ er mikill gleðidagur í dag, er Leiklistarskólanum er formlega
afhent þetta húsnæði. Islenska þjóðin á skilið að búa vel að leiklistar-
nemum því Islendingar eru með áhugasömustu þjóðum um leiklist.
Ég vona að tilkoma þessa húsnæðis verði leiklistinni og íslensku
þjóðinni til heilla.“
Eitthvað á þessa leið mæltist
Sverri Hermannssyni menntamála-
ráðherra er hann afhenti Leiklistar-
skólanum formlega nýtt húsnæði
að Sölvhólsgötu 13. Og Helga Hjör-
var skólastjóri rakti sögu skólans í
stuttu ávarpi á eftir. Hún sagði
m.a. að skólinn hefði búið við þröng-
an húsakost frá því hann var
stofnaður fyrir 12 ámm. Starfsemi
skólans hefði farið fram í bráða-
birgðahúsnæði, og á tímabili fór
kennsla fram á 7 stöðum og iðulega
þurftu nemendur að fara milli bæj-
arfélaga til að sækja tíma.
Húsnæðisvandræði skólans hefðu
verið lögð fyrir í tíð þriggja mennta-
málaráðherra, en það hefði ekki
verið fyrr en hún hefði gengið á
fund Sverris Hermannssonar í
fyrrahaust að ráðin var bót á hús-
næðisvandanum með þeirri ákvörð-
un að skólinn fengi til umráða um
1200 fermetra húsnæði við Sölf-
hólsgötu. Auk Leiklistarskólans er
söngmálastjóri þjóðkirkjunnar í
hluta húsnæðisins og hvalarann-
sóknardeild Hafrannsóknarstofn-
unar, en Leiklistarskólinn hefur til
umráða um 900 fermetra.
Um 26 nemendur stunda nú nám
við Leiklistarskólann, en námið er
þriggja ára langt, auk Nemenda-
leikhúss sem er starfrækt á fjórða
ári. Umsækjendur um skólavist eru
að jafnaði 70-80, og komast því
færri að en vilja. Helga sagðist
vona að með tilkomu þessa nýja
húsnæðis yrði hægt að bjóða upp á
Nafn eins frambjóðanda i próf-
kjöri Alþýðuflokksins i Reykja-
neskjördæmi, Rannveigar
Guðmundsdsóttur, féll niður í
frétt Morgunblaðsins af fram-
boðsmálum flokkanna. Þá misrit-
aðist nafn Elinar Harðardóttur
sem einnig býður sig fram í sama
prófkjöri. Morgunblaðið biðst
velvirðingar á þessum mistökum.
INNLENT
Kór Víðistaðasóknar í A. Hansen
Fimmtudagskvöldið 6. nóvember stendur Kór
Víðistaðasóknar fyrir skcmmtikvöldi í Veitinga-
húsi A. Hansen í Hafnarfirði.
Þar mun kórinn syngja lög úr leikritum, söngleikj-
um og revíum og segir í fréttatilkynningu að
dagskráin sé öll af léttara taginu og eins og áður
á skemmtikvöldum kórsins gefst áheyrendum tæki-
færi til að taka virkan þátt í almennum söng.
Dagskráin hefst kl. 21.00. Aðgangur er ókeypis og
öllum heimill.
Mikil aukning í bókunum í millilandaflugi:
Flugleiðir bæta
ekki við ferðum
- en DC-8 flugvélar hlaupa undir bagga ef með þarf
FLUGLEIÐIR munu ekki bæta aukist í nóvember um 40% miðað
við ferðum á áætlunarleiðum við síðasta ár, eins og kom fram
sínum þrátt fyrir að bókanir hafi í frétt í Morgunblaðinu á mið-
vikudag. Fyrst um sinn verður
látið nægja að bæta DC-8 vélum
félagsins inn á áætlunarleiðir,
ef Boeing 727 vélarnar reynast
ekki anna eftirspurn eftir ferð-
um.
Skýringar á auknum bókunum
má m.a. finna í talsverði fargjalda-
lækkun þegar vetraráætlun Flug-
leiða tók gildi. Að sögn Margrétar
Hauksdóttur hjá kynningardeild
Flugleiða hefur eftirspurn eftir
styttri ferðum og pakkaferðum au-
kist að mun undanfarið, þá sérstak-
lega til Bretlands, en þangað verðui'
m.a. flogið á DC-8 vélum á næs-
tunni. Aukning í bókunum hefur
þó ekki verið bundin við þessar ferð-
ir að sögn Margrétar, heldur hefur
hún verið á öllum áætlunarleiðum
Vetraráætlun Flugleiða er nokk-
uð stærri en áætlun síðasta vetrar,
þar sem beint flug til Orlando frá
Keflavík hefur bæst í áætlunina auk
flugs milli Keflavíkur og Narss-
arssuak í Grænlandi í samstarfi við
Grænlandsflug. Bæklingur um vetr-
aráætlun Flugleiða í millilandaflugi
hefur verið gefinn út og er þar að
finna upplýsingar um flug milli ís-
lands og allra höfuðborga í Evrópu
og 10 borga í Bandaríkjunum auk
rútuferða frá Luxemborg. í bækl-
ingnum er einnig listi yfir allar
áætlunarleiðir Flugleiða, raðað eftir
flugnúmerum og margt fleira.