Morgunblaðið - 06.11.1986, Síða 50

Morgunblaðið - 06.11.1986, Síða 50
50 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 1986 # Jón Páll œfir nú af kappi fyrir keppnina „sterkasti maður heims“ sem verður í Nice siðar í þessum mánuði. Morten Frost kemur DANINN Morten Frost, sem almennt er talinn besti bab- mintonleikari heims, verður meðal þáttakenda á norður- landamótinu í Babminton sem haldið verður í Laugardals- höllinni um aðra helgi. Allir bestu babmintonleikar- ar norðurlandanna mæta til leiks 15. og 16. nóvember, þannig að hér verður leikið bab- minton eins og það gerist best í heiminum. Auk Mortens Frost kemur t.d. Kirsten Larsen frá Danmörku og Stefan Karlson frá Svíþjóð, en hann er marg- faldur heimsmeistari í tvíliða- leik ásamt Thomas Kilström. Eg ætla að baka þá Páll um keppnina „sterkasti maður heims“ JÓN PÁLL Sigmarsson aetlar sér að endurheimta titilinn „sterkasti maður heims" en mótið verður haldið i' Nice í Frakklandi 19.-21. nóv- ember. Um síðustu helgi tók Jón Páll þátt i upphitunarmóti i Skotlandi og þar bar hann sigurorð af öllum keppendum sínum með miklum glæsibrag því Jón Páll vann allar fimm greinarnar. Sterkasti maður heims, Capes, mætti i jakkafötum með slaufu f þessa keppni og var því ekki með, en hann verður með í Frakklandi og mun eflaust gera allt sem hann getur til að koma í veg fyrir að Jón Páll endurheimti tftilinn. = HEÐINN = VÉLAVERSLUN, SÍMI 24260 SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA-LAGER HAÞRÝSTI- VÖKVAKERFI Sérhæfó þjónusta. Aóstoöum vió val og uppsetningu hvers konar háþrýstibúnaóar. Á mótinu í Skotlandi var keppt í fimm greinum. Fyrst jafnhöttuðu menn trjábol einn mikinn sem hægt var að þyngja með lóðum, síðan lyftu jötnarnir hnöttóttum steinum og var Jón Páll sá eini sem lyfti öllum fjórum upp á tunnuna. Hann gerði þó gott betur því kom- ið var með nýjan stein sem enginn hefur lyft áður og eftir að keppend- ur höfðu reynt að lyfta honum án árangurs gekk Jón Páll að og snar- aði honum upp á tunnuna. Vel gert hjá kappanum. Næsta þrekraun var að toga til sín dráttarvél um 20 metra og þar vann Jón eins og annars staðar. Þá var komið að krossfestingarlyf- tunni en þá halda menn 12,5 kílóum í hvorri hendi beint út frá öxlum. Mjög erfitt atriði en Jón Páll vann. Síðasta þrekvirkið var bænda- gangan en þá áttu menn að ganga með 75 kílóa trjádrumb undir hvor- um handlegg eins langt og menn gátu. Yfirburðir Jóns voru einna mestir í þessari grein því eftir að hann afði tryggt sér sigurinnn tók hann nokkur dansspor með þessi 150 kíló og höfðu áhorfendur gam- an að. Jón Páll fékk 20 stig fyrir þessar greinar en næstur honum varð Mark Higgins frá Bretlandi með 13 stig og Hollendingurinn Cees de Vreugd varð þriðji með 11 stig, en hann er heimsmeistarai í yfir- þungavikt í kraftlyftingum. Jón Páll mun nú æfa fram að mótinu í Frakklandi en hann sagð- ist vera vel heitur um þessar mundir. „Ég hef verið að hnoða þessa stráka í tæpt ár og nú ætla ég að setja þá í ofninn og baka þá, enda hef ég með mér fagmann sem er Valbjörn bakari Jónsson og Hjalti Árnason, Úrsusinn, verð- ur einnig með í för þannig að það er alvara í þessu," sagði Jón Páll. Á mótinu verður keppt í átta greinum hverri annarri erfiðari en Jón er ákveðinn í að endurheimta titilinn og til þess að geta einbeitt sér sem best að keppninni og sleppt áhyggjum af kostnaði sem þessu fylgir óneitanlega hefur hann opnað gíróreikning sem hægt er að leggja inná ef menn vilja styrkja hann til fararinnar. Númerið er 66400-6 og þeir sem leggja 1000 krónur eða meira inn á reikninginn fá 1000 króna afslátt af æfingum hjá Líkamsræktarstöð- inni Borgartúni 29 í desember eða janúar, en þar æfir Jón Páll reglu- lega. Austur-Þjóðverjar unnu Norðmenn AUSTUR-ÞJÓÐVERJAR, sem sigr- uðu íslendinga tvívegis með eins marks mun i landsleik í hand- knattleik í siðustu viku, léku við Norðmenn um helgina og unnu V- RADIAL stimpildælur = HEÐINN = VÉLAVER2LUN-SIMI 24260 . LAGER-SERPANTANIR-WONUSTA 1X2 o •o 9 -Q c 3 ? O 2 > o Tíminn c c ? s a Dagur *o e- <0 1 (0 'ti cc Bylgjan Sunday Mirror Sunday People News of the World Sunday Express Sunday Telegraph SAMTALS 1 X 2 Stuttgart — Werder Bremer 2 1 1 1 1 X 1 - - - - — 5 1 1 Coventry — Nott’m Forest 2 2 X 2 2 X X — - — — — 0 3 4 Everton — Chelsea 1 1 i 1 1 1 1 — - — — — 7 0 0 Leicester — Newcastle 1 1 i 1 1 1 1 — — — — — 7 0 0 Man. City — Aston Villa X 1 X 2 X X X — — — — — 1 5 1 Norwich — Tottenham 2 X X 1 2 1 2 — — — — — 2 2 3 Oxford — Man. United 2 X 1 2 2 1 X — - — — — 2 2 3 QPR — Li verpool 2 X 2 2 2 2 2 — — — — — 0 1 6 Sheff. Wed. — Southamptor 1 1 1 1 1 1 1 — - — - — 7 0 0 Watford — Charlton 1 1 1 X 1 1 1 — — — — — 6 1 0 Wimbledon — Luton 2 1 2 1 1 1 1 — — — — — 5 0 2 Birmingham — Oldham 2 1 1 2 X 2 2 - - - - 2 1 4 þá örugglega 27:21 og síðan 26:22. Fyrri leikurinn fór fram í Bergen á laugardaginn að viðstöddum 2.000 áhorfendum. Þá sigruðu Austur-Þjóðverjar, 27:21, eftir að staðan í hálfleik hafði verið 12:9. Rudiger Borchardt og Frank Wahl skoruðu flest mörk Þjóðverja, eða 5 mörk. Arild Akeroe skoraði sjö mörk fyrir Norðmenn. í seinni leiknum, sem fram fór í Stavanger á sunnudaginn, sigr- uðu Austur-Þjóðverjar, 26:22, eftir að staðan í hálfleik hafði verið 12:10. Jan Wangen og Roger Kjenndalen skoruðu sjö mörk hvor fyrir Norðmenn. 3.200 manns fylgdust með leiknum. Margir með 12 rétta TÓLF raðir komu upp með 12 leikjum róttum í 11. leikviku íslenskra getrauna. Vinningur fyrir hverja röð var kr. 102.250. 312 raðir komu fram með 11 leikjum réttum og gefur hver röð kr. 1.685. Rétt röð var þessi: 12X-11X-X11-X11

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.