Morgunblaðið - 15.11.1986, Page 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1986
Forseti Sameinaðs þings:
Miiming'arorð um
Agúst Þorvaldsson
- fyrverandi alþingismann og bónda
Þorvaldur Garðar Kristjáns-
son, forseti Sameinaðs þings,
flutti eftirfarandi minningarorð
um Agúst Þorvaldsson, fyrrver-
andi alþingismann og bónda á
Brúnastöðum, á Alþingi fimmtu-
daginn 13. nóvember sl.:
Agúst Þorvaldsson fyrrverandi
alþingismaður og bóndi á Brúna-
stöðum andaðist í gær í sjúkrahúsi
hér í borg, 79 ára að aldri.
Ágúst Þorvaldsson var fæddur í
Simbakoti á Eyrarbakka 1. ágúst
1907. Foreldrar hans voru Þorvald-
ur verkamaður og sjómaður þar
Bjömsson bónda á Bollastöðum í
Hraungerðishreppi Bjömssonar og
kona hans, Guðný Jóhannsdóttir
bónda í Hæringsstaðahjáleigu og
síðar í Eyrarkoti á Eyrarbakka
Magnússonar. Nokkurra vikna var
hann tekinn í fóstur á Eyrarbakka
og var þar tíu fyrstu æviárin, en
fluttist þaðan að Brúnastöðum í
Hraungerðishreppi og átti þar
heimili upp frá því. Rúman áratug,
1925—1936, var hann við sjóróðra
í Vestmannaeyjum á vetrarvertíð-
um. Bóndi á Brúnastöðum varð
hann árið 1932.
Ágúst Þorvaldsson átti skamma
setu á skólabekk, naut bama-
fræðslu fjóra vetur á æskuárum.
Með bóklestri og við aðra lífsreynslu
öðlaðist hann þann fróðleik og þá
menntun sem entist honum til giftu-
dijúgrar forustu í félagsmálum á
ýmsum sviðum. Hann var formaður
Ungmennafélagins Baldurs í sveit
sinni 1932—1941, í hreppsnefnd
Hraungerðishrepps 1936—1966,
oddviti hennar frá 1950, í skatta-
nefnd 1946—1950, úttektarmaður
frá 1948 og sáttamaður frá 1950.
Formaður áfengisvamamefndar
var hann frá 1961. Hann var í stjóm
Mjólkurbús Flóamanna frá 1961, í
stjóm Mjólkursamsölunnar frá
1966, formaður stjómarinnar frá
1970. Frá 1976 var hann formaður
jarðanefndar Ámessýslu og for-
maður Veiðifélags Ámesinga. Hann
var í stjóm Framsóknarfélags Ár-
nessýlsu 1947—1967. Við alþings-
kosningar 1956 var hann kjörinn
þingmaður Ámesinga og sat á Al-
þingi samfeilt til vors 1974, var
þingmaður Suðurlandskjördæmis
frá hausti 1959, sat á 19 þingum
alls. Formaður spamaðamefndar
var hann 1956—1957, í endurskoð-
unamefnd laga um aðsetur ríkis-
stofnana 1959—1962, formaður
vélanefndar ríkisins 1958—1963 og
1967—1972, í endurskoðunamefnd
ábúðarlaga 1959 og í endurskoðun-
amefnd laga um stofnlánadeild
landbúnaðarins o.fl. 1972. í banka-
ráði Búnaðarbanka íslands var
hann 1977—1980, hafði áður verið
þar varamaður.
Ágúst Þorvaldsson var fyrst og
fremst bóndi. Hann vann lengstum
að búi sínu, stýrði fjölmennu rausn-
arheimili, bætti jörð sína stórum
að ræktun og húsakosti. Stéttar-
bræður hans kusu hann til forustu-
starfa og hann brást ekki þvi sem
honum var til trúað. í tæpra tveggja
áratuga setu á Alþingi átti hann
lengst af sæti í landbúnaðamefnd
og ijárveitinganefnd. Landbúnaðar-
mál voru honum að vonum hugstæð
og sinnti hann mest þeim mála-
flokki auk annarra nytjamála
kjördæmis síns. Hann var vel máli
farinn, þjálfaður af félagsstörfum
frá unga aldri, hógvær og stefnu-
fastur. Síðustu æviárin naut hann
rósamrar elli á Brúnastöðum, hafði
fengið bú þar í hendur sonum
sfnum.
Ég vil biðja háttvirta þingmenn
að minnast Ágústs Þorvaldssonar
með því að rísa úr sætum.
Bók um Neró
BÓKAÚTGÁFAN Örn og Örlyg-
ur hefur gefið út bókina Neró
eftir Michael Grant í þýðingu
Dags Þorleifssonar.
I frétt frá útgefenda segir m.a.:
„í bók þessari skyggnist Michael
Grant gagnrýnum augum gegnum
mistur fomra sagna og ímyndana
og bregður upp hlutlægri mynd af
Neró með manni og keisara."
„Þótt Neró væri illræmdur fyrir
ofbeldi og léti stjómmálin mæta
afgangi þótti hann að sumu leyti
skjmsamur stjómandi. Sérstaklega
þótti honum takast vel upp er hann
náði friðarsamningi við Parþa,
granna Rómaveldis í austri, sem
annars gátu sjaldan verið til friðs.“
Bókin er prýdd myndum og eiga
svart/hvítu myndimar að gera le-
sandanum auðveldara um vik að
átta sig á Neró og hans rómversku
samtíð, en Iitmyndimar sýna list-
ræn afrek aldarinnar og á það jafnt
við um veggmyndimar í Húsinu
gullna og Pompei og mannamyndir.
Brúin yf ir Kwai
BÓKAÚTGÁFAN Öm og Örlyg-
ur hefur gefið út bókina' Brúin
yfir Kwai eftir Pierre Boulle i
þýðingu séra Sverris Haraldsson-
ar.
í frétt frá útgefanda segir m.a.:
„Brúin yfír Kwai er dramatísk saga
og hlaðin spennu en einnig lýsir hún
árekstri ólíkra heima og þrautseigju
og reisn manna þegar mest á ríður.
Jafnframt leiðir hún á kfminn hátt
fram tilgangsleysi og fánýti styij-
alda. Sagan naut þegar mikilla
vinsælda í heimalandi höfundar og
hefur verið þýdd á Qölmörg tungu-
mál og árið 1957 varð gerð eftir
henni heimsfræg, samnefnd kvik-
mynd sem sýnd var hér á landi við
miklar vinsældir. Hlutu leikaramir
Alec Guinness og Sessue Hayakwa
mikla frægð fyrir túlkun sína og
Nicholson og Saito, svo og David
Lean fyrir leikstjóm."
Bókin er sett og umbrotin hjá
Filmum og prenti en prentuð í
Víkingsprenti. Bókband var unnið
hjá Amarfelli.
Hafskipsskýrslan rædd á þingi:
Hörð gagnrýni á banka-
stjóra og bankafáðsmenn
’ UTANDAGSKRÁRUMRÆÐIJR um skýrslu um viðskipti Útvegs-
banka íslands og Hafskips fóru fram á Alþingi sl. miðvikudag.
Úrdráttur úr fyrri hluta þessara umræðna birtist á þingsíðu
Morgunblaðsins í gær og nú verða stuttlega raknar ræður í siðari
hluta umræðnanna.
Sigríður Dúna Kristmundsdótt-
ir (Kvl.Rvk) sagði þungar ásakan-
ir verar bomar á „gæslumenn
almannafjárs" í skýrslu nefndar-
innar og taldi það vera „óþægilegt
fyrir ýmsa aðila þegar samtrygg-
ing fjármagns og pólítísks valds
væri dregin f dagsljósið".
Sigríður Dúna sagði að banka-
ráðsmenn og bankastjórar hefðu
átt að víkja tímabundið úr störfum
vegna þessa máls og taldi að
! ábyrgð Alþingis í þessu máli væri
gríðarleg. Alþingi hefði skipað
bankaráð og bankastjóra þá sem
bæru ábyrgðina og bæri Alþingi
að sinna eftirlitsskyldu.
Sigríður Dúna gagniýndi einn-
ig að bankaráðsmenn Útvegs-
bankans, með einni undantekn-
ingu, hefðu verið endurkjömir og
taldi að Alþingi bæri að setja lög
sem mundu fyrirbyggja að hlutur
eins og viðskipti Hafskips og Út-
vegsbankans endurtæki sig.
Jón Baldvin Hannibalsson (A.
Rvk.) taldi það nú vera ljóst að
ummæli bankaráðsmanna á
síðasta vetri um stöðu mála bæri
ekki saman við við skýrsluna.
Kjamann í skýrslunni taldi hann
þó vera að í lok hennar spyija
skýrsluhöfundar hvort ríkis-
bankakerfið sé þannig uppbyggt
að enginn beri ábyrgð á mistökun-
um. Einnig sagði hann það vekja
athygli hversu hart hinir pólítískt
kjömu bankastjórar væru gagn-
lýncfir og væri gagnrýnin mun
harðari en nokkur alþingismaður
hefði leyft sér að hafa í frammi
sl. vetur. Einnig benti Jón Baldvin
á að á fimm ára tímbili, 1980-85,
hefði Bankaeftirlit Seðlabankans
aldrei skoðað skuldastöðu Haf-
skips.
Hann taldi það athyglisvert að
það hefðu ekki verið þær stofnan-
ir sem ættu að fylgjast best með
málum, s.s. bankaráð og Banka-
eftirlitið, sem hefðu vakið athygli
á þessu máli heldur fulltrúi hins
„umdeilda blaðs Helgarpóstsins“.
Jón Baldvin taldi að þann lær-
dóm ætti að draga af þessu máli
að ríkisbankakerfíð væri „silalegt
kerfí sem ætti vont með að taka
ákvarðanir". Seðlabanki hefði
stillt upp valkostum og kominn
væri tími til að taka ákvarðanir.
Jón Baldvin taldi að koma ætti
upp hlutafélagsbönkum „með
breiða eignaraðild og aðhald frá
raunverulegum hluthöfum". Ríkið
ætti að hætta afskiptum af við-
skiptabönkunum en þó væri
nauðsynlegt að hafa einn sterkan
ríkisbanka á umþóttunarskeiðinu.
Krístín Ásgeirsdóttir (Kvl.Rvk.)
sagði skýrsluna bera vott um að
hagsmunir almennings hefðu ve-
rið grafnir og gleymdir í þessu
máli. Ekki væri óeðlilegt að fyrír-
tækjum væri hjálpað en spuming-
in væri hvar ætti að draga mörkin,
hvenær rekstur fyrirtækis væri
orðin vonlaus.
Hún sagði það vera niðurstöðu
sína eftir lestur skýrslunnar að
þeir sem höfðu setið, og sætu, í
bankaráði væru ekki starfí sínu
vaxnir og taldi hún ástæðuna vera
þá að þeir væru pólítískt kosnir.
Kristín taldi stefnubreytingu
þurfa að koma til við kosningar
í bankaráð og að kosið yrði eftir
hæfíleikum.
Stjómmálamenn ættu að forð-
ast að komast i þá aðstöðu að
hægt væri að beita þá þrýstingi
og taldi Krístín það vera „blett á
Alþingi" að alþingismenn væru
kosnir í bankaráð og að nú sætu
þar sömu menn og áður.
Ólafur Þ. Þórðarson (F.Vf.)
sagði ábyrgð Alþingis byggjast á
lagasetningu og kosningu í
bankaráð. Lýsti hann því yfír að
hann væri reiðubúinn að segja af
sér starfí sínu ef Jóhann Ein-
varðsson, fulltrúi Framsóknar-
flokksins í bankaráði Útvegs-
bankans, hefði gerst brotlegur við
lög. Einnig spurði Ólafur hvað
Arinbjöm Kristinsson, fulltrúi Al-
þýðuflokksins í bankaráði Útvegs-
bankans, hefði brotið af sér til
að verða settur af. Hann væri
eini maðurinn sem hefði verið
dæmdur í þessu máli.
Ólafur sagði hlutafélagsbanka
ekki vera neina allsherheijarlausn
á þessu máli. Sagði hann slíka
banka einnig geta orðið gjaldþrota
og minnti á gjaldþrot íslands-
banka og annara banka í heims-
kreppunni miklu.
Taldi Ólafur að menn ættu að
athuga hvað hægt væri að gera
í bankalöggjöfínni til að stórfelid
gjaldþrot ættu sér ekki stað t.d.
takmarka útlán til einstakra aðila.
Valdimar Indriðason (S.Ve.)
sagði menn verða að lesa þessa
skýrslu með „opnum huga og án
þess að draga ályktanir". Taldi
hann það vera „harðan dóm“ að
bankastjórar Útvegsbankans
bæru meginábyrgð á þessu máli
þar sem þeir hefðu allir starfað í
mjög skamman tíma. Hann taldi
að yfírmenn bankans hefðu
brugðist rétt miðað við aðstæður.
Valdimar bað þingmenn um að
ræða varlega um að bankaráð-
menn ynnu eftir pólítískum fyrir-
skipunum því það væri rangt.
Hann taldi það ekki „vera blett á
Alþingi" að hafa kosið sig í banka-
ráð. Hann hefði unnið í atvinnu-
rekstri í 27 ár og hefði engra
hagsmuna að gæta í sambandi
við Útvegsbankann.
Steingrímur J. Sigfússon
(Abl.Ne) sagði að taka bæri fyrir-
komulag við bankaeftirlit til
endurskoðunar til að koma í veg
fyrir að „bankaslys" af þessu tagi
endurtæki sig. Taldi hann að
stofna bæri sjálfstæða bankaeftir-
litsstofnun, Bankaeftirlit ríkisins.
Steingrímur taldi að ekki væri
þó hægt að álasa Bankaeftirliti
Seðlabankans vegna þróun við-
skipta Útvegsbankans og Haf-
skips. Bankaeftirlitið hefði
margsinnis varað við þessu. Aftur
á móti taldi hann að þeir sem
hefðu tekið við upplýsingum
Bankaeftirlitsins hefðu brugðist
Matthías Bjamason (S.Vf.) bað
menn um að „gæta orða sinna"
og taldi að „svívirðilega" hefði
verið talað um þingmenn. Mátt-
hías sagði mikið starf hafa verið
unnið í bankamálum undanfarið
og minntist m.a. á ný lög um við-
skiptabanka.
Vegna orða Svavars Gestsonar,
fyrr í umræðunum, um „hið sterka
pólítíska afl“ að baki Hafskips í
ríkisbankakerfínu sagði Matthías
að Sjálfstæðisflokkurinn hefði
hvergi meirihluta í bankaráðum
ríkisbankana og spurði hvort
þetta „sterka pólítíska afl“ gæti
verið síðasta ríkisstjóm, sem
Svavar Gestsson átti sæti í.
Hann sagði deiluna um framtíð
bankans ekki snúast um það hvort
við ættum að hafa ríkisbanka eða
einkabanka hejdur það, að gallinn
við einingu Útvagsbankans við
einkabankana sé að einkabank-
amir eru of litlir. Matthías sagðist
telja það vera 'nauðsynlegt að
hafa sterkan einkabanka hér á
landi.
Að lokum sagðist hann ekki
telja það vera til bóta að fjölga
stofnunum með því að stofna nýja
bankaeftirlitsstofnun. Bankaeftir-
litið væri orðið mun sjálfstæðara
með nýjum lögum um Seðlabanka.
Kjartan Jóhannsson (A.Rn)
sagði þess gæta í málflutningi
sumra þingmanna að þeir vilja
„skjóta sér á bak við að ekki er
ljóst ennþá hvort um lögbrot sé
að ræða“. Sagði hann að banka-
ráðsmenn væm „menn í vinnu"
hjá Alþingi og spumingin væri
„hvort þeir hefðu staðið sig eða
ekki“. Taldi hann skýrsluna sína
að þeir hefðu ekki staðið sig.
Hann taldi það einnig vera
spumingu sem menn þyrftu að
spyija sig hvort Hafskip væri ein-
stakt dæmi eða hvort fleiri
stórviðskiptaaðilar ríkisbankana
hefðu hlotið „óeðlilega lánafyrir-
greiðslu". „Það ganga sögur um
að svo sé“, sagði Kjartan.
Hann óskaði eftir því að banka-
málaráðherra myndi athuga þetta
sérstaklega.