Morgunblaðið - 15.11.1986, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 1986
45
Sjávarútvegsráðherra:
Sea Shepherd verði
útilokað frá fund-
um Hvalveiðiráðsins
„ÞAÐ er enginn vafi á því að við
munum taka það upp innan Al-
þjóðahvalveiðiráðsins að samtök
á borð við Sea Shepherd hafi
engan aðgang hvorki að fundum
ráðsins né upplýsingum sem
þangað berast. Það hefur gætt
mikils frjálsræðis innan ráðsins
að því er varðar aðgang hinna
ýmsu hópa að fundum ráðsins
og einnig hefur ekki verið fylgst
nægilega með því að þeir sendi-
fulltrúar sem þangað koma séu
löglega til þess kvaddir," sagði
Halldór Ásgrímsson sjávarút-
vegsráðherra þegar Morgun-
blaðið spurði hann hvort
ísiendingar muni endurskoða
samskipti sín við Alþjóða hval-
veiðiráðið i ljósi atburðanna hér
á landi um helgina líkt og Norð-
menn eru að íhuga.
„VIÐ höfum rætt þetta áður okk-
ar á milli, íslendingar og Norðmenn,
og erum sammála um það að eins
og nú standa mál viljum við reyna
að freista þess að halda Alþjóða
hvalveiðiráðinu saman. Hitt er svo
Ríkissljórn íslands aðvöruð í júlí 1985:
Sameiginlegar hót-
anir Greenpeace, Sea
Shepherd og fleiri
„Þetta er allt sama pakkið,“ segir
Kristján Loftsson, forsljóri Hvals hf.
Skemmdarverkunum
slegið upp í banda
rískum fjölmiðlum
Halldór Asgrímsson
annað mál að ef ýmis vinnubrögð
þar batna ekki mun hvalveiðiráðið
springa," sagði Halldór.
Halldór sagði að ómögulegt væri
að segja hvemig atburðimir um
helgina mæltust fyrir meðal hvai-
veiðiandstæðinga úti í heimi. Hann
taldi þó að mikill meirihluti væri
andvígur slíkum aðgerðum. Því
miður væri allt of algengt að hótað
sé aðgerðum sem þessum eða efna-
hagslegum þvingunum til að koma
fram málstað. „Mér finnst að hótan-
ir, af hvaða tagi sem þær eru, sýni
að viðkomandi aðilar era ekki að
beijast fyrir nægilega sterkum
málstað," sagði Halldór Ásgrímsson
„ÞÓTT Greenpeace samtökin
reyni nú að sveija af sér þessa
drengi í Sea Shepherd, þá er þetta
sami grauturinn í sömu skál. Það
sést best á því að þeir skrifa iðu-
lega sameiginlega undir hótunar-
bréf sem send eru um allan heim,“
sagði Kristján Loftsson, forsijóri
Hvals hf. í samtali við Morgun-
blaðið. Máli sínu til stuðnings
vísaði Kristján til bréfs, sem af-
hent var Halldóri Ásgrímssyni,
sjávarútvegsráðherra á þingi Al-
þjóðahvalveiðiráðsins í Bourne-
mouth í júlí 1985.
Bréfið er stílað til ríkisstjómar
íslands, þar sem meðal annars er
hótað innflutningshöftum á
íslenskar fiskafurðir og veiðibanni á
Frá Jóni Áajjeiri Sigurðssyni, fréttaritara
FRÉTTIR af aðgerðum Sea Shep-
herd hafa verið áberandi í sjón-
varpi, útvarpi og blöðum hér í
Bandarikjunum í vikunni. í frá-
sögnum var einungis greint frá
atburðum og þvi að Sea Shepherd
samtökin segist hafa gert þetta til
að stöðva hvalveiðar íslendinga.
Ekkert nýtt kom fram í fjölmiðlum
hér.
Hið virta New York Times sló
fréttinni upp með stórri mynd,
þriggja-dálka fyrirsögn og ítarleg-
um texta á forsíðunni á mánudag.
Fréttasjónvarpið CNN sýndi mjmdir
af sokknum hvalbátum í Reykjavík-
urhöfn og skýrði frá skemmdar-
verkunum í Hvalfirði. Aðrar
sjónvarpsstöðvar eins og CBS, NBC
og ABC sögðu einnig frá atburðun-
um í fréttatímum.
Yfírleitt hefur umfjöllun fjölmiðla
verið hlutlæg. Paul Watson hefur
víða komið fram og skýrt frá ástæð-
um Sea Shepherd fyrir skemmdar-
verkunum. Ennfremur hafa
röksemdir íslendinga fyrir hvalveið-
um verið nefndar, eins og til dæmis
í Los Angeles Times, þar sem vitn-
Morgunblaðsins í Bandaríkjunum
að er í Helga Ágústsson hjá sendi-
ráðinu í Washington.
Fyrstu umfjöllun CNN sjónvarps-
ins um hvalbátana fylgdu myndir
af grindadrápi í Færeyjum, án þess
að tekið væri fram að þetta væri
ekki mynd frá íslandi. Sigurður
Þorvaldsson læknir í Kalifomíu
hringdi í sjónvarpsstöðina og kvart-
aði yfír þessari fölsku fréttamynd.
Grindadrápsmyndin, sem Paul Wat-
son mun hafa fært CNN, var þegar
í stað tekin úr umferð.
New York Times sem nýlega
lagðist eindregið gegn hvalveiðum
íslendinga í forystugrein, slær dag-
lega ugp „orðum dagsins" á annarri
síðu. Á mánudaginn vora þessar
tilvitnanir í rammagrein: „Samtök
okkar hafa fullan rétt á að sökkva
hvalbátum, af því að ísland hefur
brotið gegn hvalveiðibanninu," er
haft eftir Paul Watson hjá Sea
Shepherd samtökunum. Á sama
stað segir Halldór Ásgrímsson sjáv-
arútvegsráðherra: „Þetta þjappar
okkur Islendingum saman. Við lát-
um ekki ofbeldisverk hafa áhrif á
okkur."
Paul Watson forystumaður Sea Shepherd:
Höfum sökkt
fimm skipum
PAUL Watson hélt því fram í sam-
tali við Morgunblaðið að Sea
Shepherd-samtökin hefðu sökkt
samtals 5 hvalveiðiskipum, að
hvalbátum Hvals hf. meðtöldum,
og komið þvi til leiðar að þijú
önnur voru tekin úr umferð.
„Við sökktum spænska hvalveiði-
skipinu Sierra við norðurströnd
Portúgals undan Portó 6. febrúar
1980, höfðum áður siglt á það 16.
júlí 1979. Þá sprengdum við tvö hval-
veiðiskip, Ispo I og Ispo II í höfninni
í Vigo á Spáni 27. apríl 1980.
Við sendum síðan sveit manna til
Kanaríeyja til að stöðva veiðar hval-
bátsins Astra, sem gerður var út
Frelsisstríð
Kvikmyndir
Sæbjörn Valdimarsson
Frelsi — Sweet Liberty ★ ★
>/2
Laugarásbíó.
Leikstjóri, handritshöfundur
og framleiðandi Alan Alda.
Tónlist Bruce Broughton.
Aðalleikendur Alan Alda, Mic-
hael Caine, Bob Hoskins,
NicheUe Pfeiffer, Saul Rubin-
ek, Lise Hilboldt. Bandarísk.
Universal 1986.
Einn besti - og vinsælasti sjón-
varpsþáttur sem gerður hefur
verið er farsinn Spítalalíf —
MASH, sem kominn er á skjáinn
hér heima að nýju. Að halda þætti
gangandi við bullandi vinsældir
og í háum gæðaflokki um langt
árabil er auðvitað margra manna
verk og árangur góðrar hópvinnu.
En þó er einum manni öðram
fremur þakkað lífseigla Spítala-
lífs, sá er Alan Alda. Hann kom
ekki aðeins við sögu sem hinn
síhressi Hawkeye, burðarás þátt-
anna, heldur hafði hann dijúga
hönd í bagga við leikstjórann og
handritun. Var prímusmótor með
glæsilegum árangri.
En Alda er metnaðarfullur
listamaður og eftir að Spítalalífi
lauk hefur hann snúið sér að
handritsgerð, leik og leikstjóm
fyrir stóra tjaldið. Sweet Liberty
er nýjasti afrakstur hans á því
sviði og hér ræður Alda öllum
meginþáttunum; leikstjóm, fer
með aðalhlutverkið og er hand-
ritshöfundur.
Hér segir frá litlum háskólabæ
á Nýja Englandi þar sem allt fer
á annan endann er fjölmennur
hópur kvikmyndagerðarmanna
kemur á staðinn að taka sögulega
mynd frá tímum Frelsisstríðsins.
Ekki nóg með það, heldur er
myndin byggð á bók eftir einn
bæjarbúa, sögukennarann Alan
Alda.
Gleði Alda yfír kvikmyndun
bókarinnar er ekki langvinn, því
um leið og hann fær handritið í
hendumar frá höfundi þess, Bob
Hoskins, kemur í ljós að það er
bölvaður leirburður, sniðið fyrir
unglingamarkaðinn.
Alda gengur heldur ekki sem
best í einkalífínu, því vinkona
hans, Lise Hilboidt, vill ekki
hleypa honum inn á sig, en bæði
era þau fráskilin. Hann fer þá að
halda við aðalleikkonu myndar-
innar, Michelle Pfeiffer, og Lise
svarar fyrir sig með því að gamna
sér við meginkarlpeninginn, fiag-
Tveir góðir saman. Alan Alda og Bob Hoskins í Frelsi. Banda-
riskur og breskur gamanleikur i gæðaflokki.
arann Michael Caine. En að því
kemur að myndatöku lýkur, kvik-
myndafólkið heldur aftur til
Hollywood og bæjarbragurinn
fellur í fyrri skorður. En loftið
hefur hreinsast hjá skötuhjúunum
og þau staðfesta ráð sitt eftir að
þokunni léttir.
Sem gamanmynd lukkast
Frelsi nokkuð vel en hálfsoðinn
boðskapur Alda hvað snertir
ákvarðanarétt og almennt per-
sónufrelsi liggur honum greini-
lega fullþungt á hjarta — og það
sem verra er, hann kemur honum
engan veginn til skila. Til þess
era gamanmál og ærsli myndar-
innar of sterkir þættir, bera
alvörana ofurliði.
En sem skemmtun er myndin
því betri, mörg atriði bráðhress,
einsog myndin í heild ef stflbrotin
era undanskilin. Alda vegnar
langbest í leikarahlutverkinu en
Caine og Hoskins stela senunni.
Pfeiffer (In to the Night) er freist-
ingin uppmáluð og þá er einkar
ánægjulegt að sjá hina síungu,
hálfáttræðu Alice Faye í topp-
formi.
hveija þá þjóð sem flytur inn afurð-
ir af hvölum veiddum af Islending-
um. Síðan segir: „Stuðningsmenn
okkar um allan heim skipta milljón-
um. Við ætlum að kynna félögum
samtaka okkar og almenningi
heimalöndum okkar fyrirhuguð
hvaladráp íslendinga. Við vonum að
ríkisstjóm íslands afturkalli veiði-
leyfið fyrir 1. september 1985, til
þess að forðast hveijar þær alþjóð-
legu aðgerðir sem skaðað gætu
íslendinga."
Undir þetta bréf skrifa fulltrúar
23 náttúravemdasamtaka, þar á
meðal World Wildlife Fund Intem-
ational, Greenpeace og Sea Shep-
herd. Kristján Loftsson sagði að
þetta bréf væri ekkert einsdæmi um
samvinnu þessara samtaka. „Þetta
lið sver af sér hvert annað þegar
því hentar svo, en er svo með sam-
eiginlegar aðgerðir og hótanir hinn
daginn. Þetta er allt sama pakkið
hvort sem það kallar sig Greenpe-
ace, World Wildlife Fund eða Sea
Shepherd", sagði Kristján.
þaðan. Hún hengdi upp veggspjöld
þar sem heitið var 25.000 Banda-
ríkjadala verðlaunum þeim sem sökkt
gæti bátnum. Tveimur vikum seinna
seldu eigendumir bátinn til Suður-
Kóreu þar sem hann fór til fiskiveiða.
Þeir voru hræddir um að missa skip
sitt og hljóta engar bætur því við
létum Lloyd’s vita um aðgerðir okkar
og félagið tók bátinn úr tryggingu.
Þá leiddi umflöllun fjölmiðla um
Sierra-málið til þess að ríkisstjóm
Suður-Afríku lét kyrrsetja hvalveiði-
bátana Susanne og Theresa, sem
gerðir vora út þaðan. Suður-afríski
sjóherinn sökkti þeim báðum stuttu
seinna," hélt Watson fram í samtali
við Morgunblaðið.
Sýning
idag, 15. nóvember
kl. 10-16
Gjöriö svo vel og litiö inn
Við sýnum eldhúsinnrétt-
ingar, innihurðir, fata-
skápa, viðarþiljur eða allt
í íbúðina eða húsið. Not-
um eingöngu 1. flokks
hráefni. Vönduð vinna,
sérsmíðum. Fagmenn
með 20 ára reynslu verða
á staðnum.
Innihurð, gerð:
París
Ein sú vinsælasta í dag
JPinnréttingar
Skeilan 7- Reykjavik - Simar 83913 -31113