Morgunblaðið - 09.01.1987, Page 2

Morgunblaðið - 09.01.1987, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 1987 Landsmenn 243.698 talsins: _ Islendingnm fjölgaði um tæp 2000 í fyrra Barneignir 1985 og 1986 ekki færri síðan 1947 MANNFJÖLDI á íslandi hinn 1. desember síðastliðinn var 243.698, samkvæmt bráðabirgða- tölum frá Hagstofu íslands. Karlar voru 122.438 en konur 121.260. Á einu ári nemur fjölg- unin 1.948 eða 0,81%. Það er nokkru meiri fjölgun en árið 1985, en talsvert minni en árin þar á undan. Árið 1985 fjölgaði um 0,68% og árin 1981 til 1984 um 1,21% á ári að meðaltali. Nákvæmar tölur um breytingar mannfjöldans árið 1986 liggja ekki fyrir enn, en svo virðist sem tala brottfluttra af landinu hafi orðið um 200 hærri en tala aðfluttra, en tala fæddra um 2.100 til 2.200 hærri en tala látinna. Árin 1981 til 1983 fluttust um 1.000 fleiri til landsins en frá því, en árin 1984 til 1986 fluttist sami fjöldi brott umfram þá sem fluttust hingað frá útlöndum. Brottflutning- ur umfram aðflutning árið 1986 varð minni en að jafnaði 20 árin á undan. Samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar eru horfur á að tala bamsfæðinga sé svipuð því árið 1986 sem hún var 1985, en þá og árið 1984 fækkaði þeim mikið frá fyrra ári. Ætla má, að á árinu 1986 hafi fæðst rúmlega 3.800 lifandi böm, en þau voru 3.856 árið 1985 og 4.371 árið 1983. Hafa ekki fæðst svo fá börn sem á ámnum 1985 og 1986 síðan árið 1947, og hefur þó tala kvenna á bamsburðaraldri ríflega tvöfaldast síðan þá. Á árinu 1986 dóu á landinu rúm- lega 1.600 manns, en tala látinna vex lítið eitt frá ári til árs með hækkandi tölu roskins og aldraðs fólks. 26 meinatæknar hafa sagt upp störfum: „Eðlilegt fram- hald málsins“ - segir talsmaður meinatækna ALLS höfðu 26 meinatæknar á Borgarspítalanum sagt upp störfum síðdegis í gær að því er Magnús Skúlason, aðstoðarfram- kvæmdastjóri spítalans, sagði í samtali við Morgunblaðið. Er það þorri þeirra sem drógu uppsagn- ir sínar til baka með samkomu- laginu frá 4. janúar síðastliðnum, en þeir voru 33 talsins. „Þessar uppsagnir okkar nú eru í eðlilegu framhaldi af því sem áður hefur gerst í málinu," sagði Val- borg Þorleifsdóttir, talsmaður meinatækna, er hún var spurð um ástæður fyrir uppsögnunum. „Við höfðum áður boðist til að fresta uppsögnum okkar um 3 mánuði á meðan málin skýrðust um breyting- ar á eignaraðild og stjómun spítal- ans, en það var talið ólöglegt. Við gerðum því bráðabirgðasamkomu- lag þar sem við drógum uppsagnir okkar til baka og í því samkomu- lagi var ákvæði um þriggja mánaða uppsagnarfrest og að ekki væri heimilt að framlengja hann. Þetta kemur því í sama stað niður og boð okkar um að fresta uppsögnunum um þijá mánuði,“ sagði Valborg. Valborg sagði að í raun hefði ekkert verið komið til móts við kröf- ur meinatækna á Borgarspítalanum í kjaramálum. „Það hafa engar við- ræður átt sér stað um okkar kjaramál og ég fæ ekki séð að nokk- ur áhugi sé fyrir hendi á slíkum viðræðum af hálfu viðsemjenda okkar,“ sagði hún. SJÓMANNADEILAN Morgunblaðið/Einar Falur Fulltrúar fiskvinnslunnar ræða málin fyrir utan Arnarhvál i gær eftir fund með viðskiptaráðherra og sjávarútvegsráðherra. Frá vinstri eru Sigurður Markússon framkvæmdastjóri sjávarafurðadeildar Sambandsins, Friðrik Pálsson forstjóri Sambands hraðfrystihúsanna, og Magnús Gunnarsson fram- kvæmdasfjóri Sölusambands íslenskra fiskútflytjenda. Ráðherrar kalla á deiluaðila til að fá upplýsingar um stöðuna: Bráðabirgðalög ekki til umræðu sem stendur RÍKISSTJÓRNIN hefur ekki á þessari stundu í hyggju að gripa inn í sjómannadeiluna, en sjávarútvegsráðherra og viðskiptaráðherra kölluðu í gær á fulltrúa sjómanna og útvegsmanna, fulltrúa fisk- vinnslunnar og einnig fulltrúa undirmanna á kaupskipum og vinnuveitenda þeirra til að afla sér upplýsinga um stöðu mála. „Samkvæmt þeim fréttum sem við höfum haft undanfama daga vorum við að vona að mál væru að þokast verulega áfram en eftir það sem gerðist í morgun eru menn að sjálfsögðu miklu svart- sýnni en áður. Við komumst síðan að raun um í dag að þessi deila er í hinum mesta hnút og það er erfitt að meta á þessari stupdu hvemig mál munu þróast áfram en við töldum okkur bera skyldu að kynna okkur stöðuna," sagði Halldór Ásgrímsson sjávarútvegs- ráðherra í samtali við Morgun- blaðið eftir fundina í gær. Halldór var spurður að því hvort til greina kæmi að ríkisvald- ið grípi inn í deiluna, þá með bráðabirgðalögum. „Frekari af- skipti af deilunni hafa ekki komið til tals,“ sagði Halldór. „Við höf- FISKVERKENDUR og stjórn- endur fisksölusamtakanna hafa miklar áhyggjur af þvi hve hægt miðar í kjaradeilu sjómanna og útgerðarmanna. Fulltrúar kaup- enda í yfimefnd Verðlagsráðs sjávarútvegsins samþykktu á gamlársdag 2% hærra fiskverð en þeir þurftu. Það gerðu þeir að beiðni fulltrúa sjómanna og útgerðarmanna, þar sem þeir töldu það greiða fyrir kjara- samningum. Þessi 2% kosta fiskvinnsluna um 200 miiyónir miðað við fiskkaup eins árs. Vegna þessa kemur það fisk- verkendum mjög á óvart að ekki skuli verið að semja, heldur ver- ið að leika einhvers konar hráskinnsleik, eins og Árai Benediktsson orðar það i sam- tali við Morgunblaðið. um að sjálfsögðu miklar áhyggjur af málinu. Það er til dæmis ljóst að birgðastaða frysts físks í Bandaríkjunum er komin á mikið hættustig. Hinsvegar held ég að öllum deiluaðilum sé ljóst hve málið er orðið alvarlegt og það kom skýrt fram í þessum viðræð- um.“ Aðalbitbein sjómannadeilunnar er rækjutogarinn Hafþór sem gerður er út frá Ísafírði en skipið var tekið á leigu frá Hafrannsókn- arstofnun. Halldór var spurður hvort ríkisstjómin myndi reyna að beita sér fyrir að togarinn kæmi í land, eins og krafist hefur „VIÐ stöndum fast á því, að setjast ekki að samningaborð- inu fyrr en Hafþór er kominn inn og jafnframt krefjumst við þess, að verkfallsbijótar í sigl- ingurn snúi skipum sínum til hafnar. Við höfum vissulega áhyggjur af stöðu fiskvinnslu og fiskvinnslufólks, en við er- um að beijast fyrir rétti okkar „Það er mjög alvarlegt miðað við stöðu fiskvinnslu og þjóðarbús- ins að deiluaðilar virðast vera hættir að fjalla um aðalatriði máls- ins, en stunda þess í stað þrætubók- arlist, sem snýst um það hvort einn skipstjóri sigli skipi sínu inn,“ sagði Friðrik Pálsson, forstjóri SH. „Þessi staða hlýtur að koma mjög illa við okkur fulltrúa fiskkaupenda í yfimefnd Verðlagsráðs sjávarút- vegsins, sem gengum langt úr götu á gamlársdag til að samþykkja fískverð, sem deiluaðilar gætu sætt sig við og fullyrtu að myndi greiða fyrir samningum. Allir hugsandi menn hljóta að skora á alla deiluað- ila að hætta þessum skollaleik og að þeir setjist af alvöru að samn- ingaborðinu," sagði Friðrik Páls- son. Ámi Benediktsson, fram- verið af hálfu sjómanna. „Við höfum ekkert velt því fyr- ir okkur," sagði Halldór. „Skipið er leigt og sá samningur rennur út eftir eitt og hálft ár og að sjálf- sögðu em allar athafnir þess á ábyrgð leigutaka." Halldór sagði aðspurður að ekkert hefði verið fjallað um hvort knýja ætti það fram með lagasetningu að togar- inn sigldi í land. Halldór sagðist ekkert geta sagt til um það í gærkvöldi hvert næsta skref ráðherranna og ríkis- stjómarinnar yrði en það myndi sjálfsagt ráðast af þeirri stefnu sem málin tækju í dag. og þetta virðist eina leiðin. Við verðum að beita þrýstingi,“ sagði Hólmgeir Jónsson, fram- kvæmdastjóri Sjómannasam- bands íslands, í samtali við Morgunblaðið. Hólmgeir sagði ennfremur, að strax í næstu viku kæmi að því, að ólöglegu skipin færu að selja kvæmdastjóri Félags Sambands- fiskframleiðenda og annar fulltrúa kaupenda í yfimefnd, sagði f sam- tali við Morgunblaðið, að á gaml- ársdag hefði orðið samkomulag um það, að beiðni seljenda í yfimefnd- inni, að fiskverð hækkaði meira, en kaupendur hefðu áður náð sam- komulagi um með oddamanni, í trausti þess, að verið væri að greiða fyrir kjarasamningum með því. „Þess vegna hefur það komið okk- ur mjög á óvart að ekki skuli verið að semja, heldur verið að leika ein- hvers konar hráskinnsleik, algjör- lega óskyldan samningum og okkur óskiljanlegan. Það verður einnig að hafa það í huga, að meira er í húfi en hagsmunir útgerðarmanna og sjómanna, það eru hagsmunir þjóðarinnar allrar, hagsmunir fisk- verkunarstöðva og starfsfólks þeirra. Það má segja að öllum þess- um hagsmunum sé fómað," sagði Ámi Benediktsson. Sjómenn á Hafþóri: Hvorki samnings- né verk- fallsbrot Fordæmum þvergirðings- hátt samninganefndanna MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi orðsending frá skipverjum á rækjutogar- anum Hafþóri. Þeir telja að hvorki sé verið að fremja á þeim verkfalls- né samnings- brot. Ennfremur fordæma þeir þvergirðingshátt samninga- nefnda sjómanna, „sem krefj- ast þess að samningar séu brotnir á okkur með því að sigla í land“, eins og segir í orðsend- ingunni: „Okkar álit er að hvorki sé verið að fremja á okkur samn- ings- né verkfallsbrot. Eins viljum við fordæma þann þvergirðing- ingshátt samninganefnda, sem krefjast þess að samningar séu brotnir á okkur með því að sigla skipinu í land. í samningunum eru ákvæði um landanir innan lands og þar eigum við bæði jóla og áramótafrí. Sé hins vegar landað erlendis, eigum við 60 eða 90 klukkustunda frí eftir því hvort siglt er til heimahafnar eða haldið beint á veiðar. Því miður treystum við okkur ekki til að heimfæra ákvæði um frí þegar landað er innan lands yfir á sölur erlendis. Eins finnst okkur að allar kröfur á hendur skipstjóra okkar hljóti að flokkast undir atvinnuróg. Þá viljum við benda á að fréttaflutn- ingur af þessu máli hefur hingað til næstum eingöngu verið ein- hliða, þar sem sjónarmið samn- inganefnda hafa verið túlkuð." „Það skrifa allir undir þetta,“ sagði Hörður Steingrímsson, vél- stjóri, í samtali við Morgunblaðið. afla sinn erlendis. Fulltrúi SSÍ yrði þá kominn utan til viðræðna við fulltrúa Alþjóðasambands flutningaverkamanna um það, hvemig bezt væri að hindra lönd- un úr skipunum. Vegna fréttar Morgunblaðsins um mat Þjóðhagsstofnunar á því, að sjómenn hafi þegar fengið það bætt, sem tekið var af þeim með lögunum um kostnaðarhlutdeild árið 1983, sagði Hólmgeir, að það væri ekki rétt. Stofnunin tæki inn í dæmið ýmsa þætti, sem ekkert ættu skylt við hlutaskipti. Nú vantaði sjómenn um 13% upp á að fá sama hlut úr aflanum og fyrir lögin. Þjóðhagsstofnun reiknaði inn í dæmið kauptrygg- ingu, leiðréttingu á lífeyri og fæðispeningum og aukinn skatt- afslátt. Það væri allt hæpinn útreikningur, sem tæplega yki hlut sjómanna nema skattafsláttt- urinn, en hann kæmi ekki frá útgerð. Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ, sagði stöðu þessarar deilu orðna furðulega. Sjómenn settu eitt skilyrði í dag og annað á morgun, þegar það fyrra stæðist ekki. Héldu þeir þessu áfram, væri ekki sjáanlegt annað en að deilan væri óleysanleg. Guðjón A. Kristjánsson, forseti Farmanna- og fiskimannasam- bands íslands, sagði að málið væri allt í hnút. Engar viðræður væru og þetta virtist því ill- eða óleysanlegt. Stunda þrætubókarlist í stað samninga um kjör — segir Friðrik Pálsson, forstjóri SH Hólmgeir Jónsson, f ramkvæmdastj óri SSI: „Erum að berjast fyrir rétti okkar“

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.