Morgunblaðið - 09.01.1987, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 1987
c
5
LISTAMAÐURINN Baltas-
ar hefur nýlega lokið við
gerð myndskreytingar í
Víðistaðakirkju í Hafnar-
firði. Verkið er á fimm
flötum, 16 til 50 fermetrar
að stærð, en alls er verkið
200 fermetrar. Myndefnið
sótti listamaðurinn í Sælu-
boðorð Fjallræðunnar og
sagðist hann í samtali við
Morgunblaðið hafa haft
nokkuð fijálsar hendur um
val efnisins.
Um er að ræða freskumynd,
sem unnin er á blautan múrinn,
blandaðan kalki og marmara-
sandi í þremur mismunandi
lögum. Múrinn stendur 10 til 15
cm frá ytri vegg og er fjaðrandi
á púðum svo verkið eyðileggist
ekki komi til jarðskjálfta. Baltas-
ar sagði að mexíkanskar fresku-
myndir hefðu staðist öll átök í
hinum mikla jarðskjálfta þar í
landi á sl. ári. Hita- og rakastig
var mjög vandmeðfarið á meðan
á vinnu verksins stóð og þurfti
að halda því jöfnu allan tímann.
Því þurfti einnig að flýta vinnu
þess sem mest. Hin svokallaða
freskuaðferð er talin ein varan-
legasta aðferð myndlistarinnar
og varðveitast litirnir sérstaklega
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Baltasar og aðstoðarmaður hans, Orri Árnason, við vinnu í Víðistaðakirkju í Hafnarfirði
. v l i \ W 1
* E
Notaði mexíkanska hug-
mynd og íslenskt liugvit
segir Baltasar um gerð 200 fermetra listaverks í Víðistaðakirkju í Hafnarfirði
velj að sögn listamannsins.
I verkið fóru 3.000 lítrar af
kalki og 12 tonn af sandi svo
dæmi séu tekin og þurfti að hand-
þvo hann allan og þurrka síðan.
Algengasta plága freskumynda
eru sprungur eins og dæmin
sanna á verkum Michellangelos,
Rafaels og Leonardos. „Þeir not-
uðu alltof mikið kalk í hlutfalli
við sandinn þar sem stíll þeirra
tíma krafðist fínni áferðar. Því
mynduðust sprungur í verkum
þeirra. Ég nota hinsvegar einn
skammt af kalki á meðan ég
nota helmingi meira af sandi.
Freskumyndir hafa alla tíð
haft mikla meiningu og skjóta
þær sífellt upp kollinum á tímum
trúarlegra eða pólitískra vakn-
inga. Sumir halda að freskur
tengist aðeins trú, en það er reg-
inmisskilningur," sagði Baltasar.
Listaverkið í Víðistaðakirkju
er stærsta myndskreyting Balt-
asars til þessa og ein stærsta
myndskreytingin á Islandi. Balt-
asar sagðist vonast til að fá fleiri
tækifæri til að gera freskumynd-
ir því hann sagðist njóta sín mjög
við vinnuna auk þess sem hann
hefði safnað upplýsingum um
tækni þessa. „Ég kynntist fresk-
um fyrst á námsárum mínum.
Síðan hef ég á undanförnum
árum farið til Mexíkó og kynnt
mér tæknina betur. Eg nota
þessa ævafomu mexíkönsku
hugmynd og blanda síðan
íslensku hugviti saman við. Út-
koman varð hreint frábær, að
mínu mati. Vandinn er þó sá að
ég þarf sjálfur að byija á því að
kenna aðstoðarfólki mínu hand-
brögðin, en í Mexíkó er hægt að
fletta upp í símaskránni og fá til
sín sérstaka freskumúrara,
freskujámiðnaðarmenn til að
hjálpa sér við vinnuna,“ sagði
Baltasar.
Kanna hand-
tökumálið
„VIÐ erum að athuga mál Hörpu
og á þessu stigi get ég ekkert
meira sagt,“ sagði Steven
Gangstead, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Menningarstofnun-
ar Bandaríkjanna.
Morgunblaðið skýrði frá því um
helgina að ung kona í Keflavík,
Harpa Högnadóttir, hefði verið
handtekin við vinnu sína hjá Islensk-
um markaði í Chicago. Nú í vikunni
hefur Morgunblaðið ítrekað haft
samband við Steven Gangstead, sem
segir að verið sé að kanna málið.
„Harpa hefur ekki sent formlega
beiðni til okkar um að kanna málið
og það kemur því ekki til kasta okk-
ar að svo stöddu.“
Astirningar
hittast í Bú-
staðakirkju
ÁSTIRNINGAR hittast í Bú-
staðakirkju nk. laugardag kl.
16.00. Þar verða sýndar myndir
frá starfinu og Bogi Pétursson,
forstöðumaður, mun kynna það.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
Ástirningar hittast á stór-
Reykjavíkursvæðinu sér til
skemmtunar. Þessi liður starfsins
er til þess gerður að tengja foreldra
drengjanna við starfið og eins til
þess að hafa samband við þá yfir
veturinn. Eldri sem yngri Ástirning-
ar eru velkomnir ásamt vinum og
vandamönnum. Aðgangur verður
ókeypis en í lokin verður tekið á
móti fijálsum framlögum til styrkt-
ar starfinu.
Sumarbúðirnar að Ástjörn hafa
nú verið starfræktar í 40 ár og því
er víst að margir sem búa á stór-
Reykjavíkursvæðinu hafa komið að
Ástjöm sem sést best á því að á
síðasta sumri dvöldust 70 drengir
af stór-Reykjavíkursvæðinu á
Ástjörn.
Þú svalar lestrarþörf dagsins
Bíla-happdrætti
Handknattleikssambands íslands
20 BÍLAR DREGNIR ÚT í
KVÖLD