Morgunblaðið - 09.01.1987, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 1987
27
Námskeið um
öryggismál
fyrir sjómenn
SLYSAVARNASKÓLI sjómanna
efnir til almenns námskeiðs fyrir
sjómenn, dagana 13.-16. janúar
nk. Fjallað verður um helstu
þætti öryggismála, svo sem end-
urlífgun og skyndihjálp, flutning
slasaðra og ráð til að halda lífi
við erfiðar aðstæður, meðferð
ýmissa björgunartækja um borð
i skipum og höfnum. Björgun
með þyrlum. Lög og reglur um
búnað skipa svo og brunavamir
og slökkvistörf.
Leiðbeinendur á námskeiðinu
verða frá Slysavamafélagi Islands,
Landssambandi slökkviliðsmanna,
Landhelgisgæslunni. Siglingamála-
stofnun og Líffræðistofnun Háskól-
ans.
Þess má geta að fyrri námskeið
um öryggismál sjómanna, sem
SVFÍ hefur gengist fyrir hafa verið
fjölsótt og færri komist að en vildu.
Upplýsingar varðandi námskeið-
in verða gefnar á skrifstofu SVFÍ,
eða í skólaskipinu Sæbjörgu í síma
985 20028. Skipið liggur við Ör-
firisey, undan fiksverkunarstöðinni
Granda hf.
Morgunblaðið/ÁstvaldurJóhannesson
Hurðinni
var spark-
aðupp
BROTIST var inn í Valhúsaskóla
á Selljarnarnesi í fyrrinótt og
talsverðar skemmdir unnar.
Nemendur skólans tóku eftir því
í gærmorgun að búið var að eyði-
leggja hurð á eðlisfræðistofunni.
Hafði hurðinni verið sparkað upp
og lásinn við það rifnað úr henni í
heilu lagi og hurðin tekin af hjörun-
um. Sá sem þetta gerði hefur síðan
farið inn í stofuna, losað borðplötu
af skólaborði og brotið hana. Ekki
virðist neitt hafa horfið úr skólan-
um, svo þama hefur skemmdar-
fýsnin ein valdið.
Á stóm myndinni sést hurðin sem
brotin var upp í Valhúsaskóla. Á
innfelldu myndinni er lásinn úr
hurðinni.
Búðardalur:
Gott veður um
hátíðarnar
Búðardal.
JÓLAUNDIRBÚNINGUR og
jólahald var hér með hefðbundn-
um hætti. Guðsþjónustur vom í
öllum kirkjum sóknarprestsins,
séra Friðriks Hjartar. Enda veð-
ur mjög gott um hátíðarnar, svo
fólk gat farið allra sinna ferða.
Gamlársdagur rann upp með
heiðskýru veðri og hátíðarblæ. Hér
var kveikt í áramótabrennu kl.
20.00 um kvöldið og safnaðist fólk
saman eins og venjulega. Mikið var
sprengt af allskyns ragettum og
sprengjum sem gerði heilmikla
samstöðu og gleði.
Dansleikur var haldin í Dalabúð
um nóttina og fór mjög vel fram,
lítil sem engin óhöpp og það er
mest um vert að allir séu glaðir og
hressir.
Vonandi verður hið nýja ár okkur
gjöfult og gott.
Kristjana
Jólin kvödd
á Neskaupstað
Neskaupstað.
NORÐFIRÐINGAR kvöddu jólin
með pompi og pragt. Kom fjöldi
manns saman við íþróttahúsið og
gekk með kyndla fylktu liði, með
álfakóng og álfadrottningu í
broddi fylkingar, að brennu á
bökkunum sem eru utarlega í
bænum.
Við brennuna var stiginn álfa-
dans og félagar úr Lionskór
Norðíjarðar leiddu fjöldasöng. Þá
var björgunarsveitin Gerpir með
flugeldasýningu. Veður var með
eindæmum gott og tókst skemmtun
þessi mjög vel. Það var Lionessu-
klúbburinn Ósk ásamt íþróttafélag-
inu Þrótti sem stóðu að þessari
skemmtun.
- Sigurbjörg
Börnin voru klædd ýmsum furðuklæðnaði og voru tíu bestu búningarnir tilnefndir. Morgunblaðið/EG
Vel heppnuðþrettandagleði í Vogunum
A ÞRETTANDANUM var haldin þrettánda-
gleði í Vogunum, sem fór fram með skrúð-
göngu um byggðarlagið, álfabrennu, flugelda-
sýningu og skemmtun í félagsheimilinu
Glaðheimum. Fjölmenni tók þátt i gleðinni.
Það var kl. 20.00 að skrúðganga lagði af stað
frá félagsheimilinu með hestamenn í fararbroddi,
síðan kom dráttarvél með kerru, en í kerrunni
voru álfakóngur og álfadrottning, ásamt fjölda
álfa og harmonikkuleikara. Síðan gengu allskyns
verur á eftir, þar má nefna Grýlu, drauga, púka
ofl. Fór skrúðgangan eftir Ægisgötu, Aragerði og
Tjarnargötu að brennu á Eyrarkotsbakka. Þar var
dansað og sungið, og þegar flugeldasýningu björg-
unarsveitarinnar lauk var farið í skrúðgöngu í
félagsheimilið Glaðheima þar sem jólin voru döns-
uð út. Þar voru tilnefndir tíu bestu búningar
dagsins.
- EG
Akranes:
Batnandi afkoma ein-
staklinga og fyrirtækja
INNHEIMTA á álögðum gjöldum
Bæjarsjóðs Akraness gekk vel á
árinu 1986 og í heildina var hún
betri en árið á undan.
Álögð útsvars- og aðstöðugjöld
ársins 1986 námu kr. 140.128.916.
Af þessari tölu innheimtust kr.
127.046.867, sem eru 90,6%
álagðra gjalda. en var á sama tíma
í fyrra 89,6%. Álögð fasteignagjöld
1986 voru kr. 34.392.000 og inn-
heimtist af því kr. 33.377.351, sem
er rösk 97%. Á sama tíma í fyrra
innheimtist rösk 96% fasteigna-
gjalda.
Að sögn Þorvarðs Magnússonar
innheimtustjóra Akranesbæjar eru
ástæður góðrar innheimtu greini-
lega betri afkoma einstaklinga og
fyrirtækja. Þetta er þó ekkert nýtt
á Akranesi því yfirleitt innheimtast
gjöld vel hjá bæjarsjóði og er inn-
heimtuhlutfallið að jafnaði með því
besta á landinu. Við viljum halda
okkur í toppbaráttunni í því eins og
í knattspymunni. Þar fer saman
góðir knattspymumenn og skilvísir
gjaldendur, sagði Þorvarður Magn-
ússon að lokum.
JG
Fundur um
framtíð-
arhorfur
Samtökin Ungt fólk fyrir friði
heldur fund á sunnudaginn kl'.
16 til að ræða framtíðarhorfur.
Fundurinn verður í húsnæði Iðn-
nemasambandsins að Skólavörð-
ustíg 19. Þar verður rætt um
kjarnorkuvígbúnað í heiminum og
um þátttöku íslendinga á Friðar-
hátíð Norðurlanda í Stokkhólmi 24.
- 28. júní nk.
Borgarnes:
Afmæli hjá
Sjálfstæð-
iskvenna-
félaginu
Sjálfstæðiskvennafélag Borg-
arfjarðar verður með opið hús i
Sjálfstæðishúsinu við Brákar-
braut í Borgarnesi næstkomandi
laugardag í tilefni af 20 ára af-
mæli félagsins.
Sjálfstæðiskvennafélagið nær
yfir Mýra- og Borgarfjarðarsýslu.
Það var stofnað fyrir 20 árum og
var Ásgeir Pétursson sýslumaður
aðalhvatamaðurinn að stofnun
þess. Kristjana S. Leifsdóttir á Brú-
arreykjum er formaður félagsins.
Afmælisveislan hefst klukkan
15.
Angela Molina í hlutverki Annunziata leiðir hóp reiðra kvenna
um götur Napólí.
Camorra sýnd
í Regnboganum
í Regnboganum er verið að
sýna kvikmyndina Camorra,
sem Lína Wertmtlller leikstýrir,
en hún hefur hlotið alþjóðlega
viðurkenningu sem leikstjóri.
Með aðalhlutverk fara Harvey
Keitel, Angela Molina og
Francisco Rabal.
Kvikmyndin er spennumynd og
fjallar um keðju afbrota á vegum
Camorra-glæpasamtakanna
Napólí. Erfiðlega gengur að upp
lýsa málin og margir þykja
grunsamlegir. Rauði þráðurinn er
hópur sterkra, ákveðinna kvenna.
(Úr fréttatilkynningu.)