Morgunblaðið - 09.01.1987, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 09.01.1987, Blaðsíða 28
Skíðavertíðin haf in: Flóðlýst í Hlíðar- fjalli um helgina FLÓÐLÝST verður í Hlíðarfjalli í fyrsta sinn í vetur nú um helgina. Að sögn Vilhelms Jónssonar í SSkíðastöðum, er skíðafæri mjög gott og verður troðið eftir þörfum um helgina. Skíðalyftumar verða í gangi frá kl. 10 til 17 laugardag og sunnudag. í dag, föstudag, verða þær opnar frá kl. 13 til 19 skv. vetraráætlun. Vilhelm sagði, að skíðanám- skeið væru þegar hafín, bæði væri boðið upp á helgamám- skeið og lengri námskeið í miðri viku. Hægt væri að velja sér námskeiðstíma allt frá því kl. 10 að morgni til kl. 19 að kvöldi frá þriðjudögum til fímmtudaga. Eins er hægt að fá einkatíma. Vilhelm sagði að skíðafæri væri orðið mjög gott, nýfallinn snjór sem búið væri að troða, þannig að gott færi væri bæði fyrir svigskíði og gönguskíði. Hjá Veðurstofunni fengust þær upplýsingar, að reiknað væri með áframhaldandi sunn- anátt, jafnvel með strekkings- vindi, hitastig verður svipað og í gær, fímmtudag. Sjónvarp Akureyri Dagskrá Sjónvarps Akur- eyrar verður sem hér segir í kvöld, föstudagskvöld: Kl. 20.30 Bóló. Teiknimynd fyrir yngri áhorfenduma. Kl. 21.55 Myndrokk. Nú verða sýnd myndbönd ýmissa þungarokkshljómsveita. Kl. 22.50 Allt er þá þrennt er. Gamanþáttur sem fjallar um Jack, en hann reynist heldur heppnari en aðrir í að lenda í vandræðum. Kl. 23.15 Giftingahugleiðing- ar frú Delafields. - Bandarísk kvikmynd um ættmóður stórrar og auðugrar fíölskyldu. Hún verður ástfangin af lækni sínum, þrátt fyrir ólíka fortíð þeirra. Þessi mynd var ranglega sögð eiga að vera á dagskrá í gær- kvöldi, fimmtudagskvöld, í stað Nighthawks, og er beðist vel- virðingar á því. Menningarmálanefnd: Úttekt á menningarmálum Menningarmálanefnd bæjarins ákvað á fundi sínum 12. des- ember sl. að fela amtsbóka- verði og menningarfulltrúa, Ingólfi Armannssyi, að láta gera úttekt á ýmsum þeim þáttum sem snúa að menning- armálum. Stefnt er að því að úttektinni verði lokið 1. apríl n.k. í fréttatilkynningu frá menning- armálanefnd segir m.a., að á umræddum fundi nefndarinnar hafi verið ræddar hugmyndir sem komið hafi fram á málþingi 22. nóvember sl., en þær hafí beinst mjög að aðstöðu fyrir ýmiss konar menningar- og félagsstarf í bæn- um. í fréttatilkynningunni eru eftir- taldir þættir nefndir, sem gera á úttekt á: „- Húsnæði í bænum, sem er í notkun eða möguleikar á að nýta fyrir ýmis konar menningar- starfsemi; - húsnæði í byggingu, sem hugsanlegt er að hægt verði að nýta til slíkrar starfsemi; - hönnunarforsendur fyrir húsnæði, sem þyrfti að byggja á næstu árum til að sinna þeirri starfsemi, sem ekki væri með góðu móti hægt að koma fyrir í þegar byggðu eða áætluðu húsnæði. Sjónvarp Akureyri: Ruglun strax í næstu viku BJARNI Hafþór Helgason sjón- varpsstjóri hafði samband við Morgunblaðið í tiiefni af frétt blaðsins í gær um að ruglun sjón- varpsefnis hæfist um mánaðar- mótin. Sagði hann upplýsingar þar um byggðar á misskilningi starfsmanns sjónvarpsins. Hið rétta væri, að ruglun hæfist strax í næstu viku, þegar fyrstu mynd- lyklarnir bærust hingað. Að sögn Bjama munu 300-400 myndlyklar koma í næstu viku, en á milli 500 til 600 hafa verið pantað- ir. Hann ítrekaði, að ruglun efnis hæfíst um leið og búið væri að af- greiða þessa myndlykla, sem bærust í næstu viku. Bjami bað einnig um að leiðrétt- ar yrðu upplýsingar frá þeim um fréttaútsendingar, þ.e. að þær hæf- ust fljótlega. Hið rétta væri, að engin ákvörðun lægi fyrir þar um. Blaðbera vantar Blaðbera vantar í Innbæ og Víðilund. Upplýsingar í síma 23905. JHttgtmltfiKfetfr Hafnarstræti 85. Morgunblaðið/Fríða Proppé Fjórir af leikurunum í hlutverkum sínum, talið frá vinstri: Guðrún Marinósdóttir, Guðjón Peder- sen, María Arnadóttir og Einar Jón Briem. Rauðhærði riddarinn frumsýndur í kvöld: „Skemmtilegt og nærgöngult verk“ -segir Guðjón Pedersen, sem leikur eitt aðalhlutverkið LEIKFÉLAG Akureyrar frumsýnir í kvöld leikritið Hvenær kemurðu aftur rauðhærði riddari? eftir Mark Medoff. „Skemmti- legt, nærgöngult og kafar djúpt inn á grófar tilfinning- ar. Aðalboðskapurinn, eins og ég skil hann er, að aðgát skuli höfð í nærveru sálar,“ sagði Guðjón Pedersen, sem fer með eitt aðalhlutverkið í leiknum. Rætt var við Guðjón og Skúla Gautason, sem leikur rauðhærða riddarann, eftir æfingu nýverið, en Skúli lék sama hlutverkið í uppfærslu Nemendaleikhússins í Reykjavík á verkinu í fyrravor. Þeir félagar voru sammála um að verkið væri mjög nærgöngult og að það væri alls ekki við hæfi viðkvæmra, né bama yngri en 12 ára vegna ofbeldisatriða. Þeir tóku sérstaklega fram, að þrátt fyrir gróf ofbeldisatriði væri leik- ritið mjög skemmtilegt. Leikritið gerist á litlum veit- ingastað, skyndibitastað, syðst í Nýju Mexíkó í lok sjöunda áratug- arins. Þangað koma viðskiptavin- ir, m.a. Teddy, fyrrverandi hermaður í Viet-Nam, sem Guðjón Pedersen leikur. Guðjón sagði, að efni leikritsins ijallaði að sínu mati að hluta á lúmskan hátt um Viet-Nam stríðið, en hermaðurinn fyrrverandi væri skaðaður á geðs- munum eftir þá lífsreynslu. Um persónu Teddys sagði Guðjón m.a.: „Hann á sína drauma og hann hittir á þessum stað jafnoka sinn í rauða riddaranum og upplif- ir fortíðina að nokkru í gegnum hann. Hann segir t.d. nokkrum sinnum, er hann fréttir að rauð- hærði riddarinn sé á förum: Mig langaði einu sinni líka til að fara í burtu. - Hann fór í burtu, til Viet-Nam.“ Skúli sagði, að efni leikritsins væri sérstaklega næmt og að það hefði mjög fína strengi. Hann var spurður hvort hann þekkti Teddy fyrir sama mann í þessari upp- færslu og í uppfærslu Nemenda- leikhússins, þ.e. hvort uppfærsl- umar væru svipaðar. Hann svaraði: „Ég hef verið svo mikið á kafi í þessu að ég get ekki dæmt um það. Ég reyni að gleyma gamalli uppfærslu um leið og ég kem inn í nýja. Nei, ég get engan veginn dæmt um það“. Miklar sviptingar eru á sviðinu og er það hálf óhijálegt Guðjón og Marinó Þorsteinsson í hlutverkum sinum. í lok verksins, glerbrot og rusl út.um allt. Þeir Guðjón og Skúli sögðu enda, að meiningin væri að „rústa öllu“. þeir voru því spurðir, hvort enginn hefði slasast á æfíngum og hvort ekki væri erfitt að standa í svo miklum slagsmálum. Þeir töldu, að þetta kæmist upp í vana og Guðjón bætti við: „Það er þeim mun betra að leika þessi atriði sem æfingin og leikurinn er minni. Það er að segja þeim mun raunverulegri sem slagsmálin eru, þeim mun auðveldara er að sýna viðbrögð. Það er auðveldara að æpa af sárs- auka, þegar maður finnur til. Við sláumst sem sagt sem mest í al- vörunni." Þeir félagar sögðu í lokin, að þeir vonuðust til að sem flestir kæmu á leikritið. Það ætti enginn að verða fyrir vonbrigðum, alla vega væri erfítt að láta sér leið- ast. - Hvort þeir kviðu frumsýn- ingunni? „Það er auðvitað alltaf mús í maganum, Það er bara gaman," sögðu þeir. Aðrir leikarar í Rauðahærða riddaranum eru: Inga Hildur Har- Teddy tuskar rauðhærða ridd- arann til. Guðjón Pedersen og Skúli Gautason. aldsdóttir, Marinó Þorsteinsson, Þráinn Karlsson, María Ámadótt- ir, Einar Jón Briem og Guðrún Marinósdóttir. Leikritið er í þýð- ingu Stefáns Baldurssonar, leik- stjóri er Pétur Einarsson. Lýsingu annast Ingvar Bjömsson. Leik- mynd gerði Om Ingi Gíslason, búninga Freygerður Magnúsdótt- ir. Þetta er fjórða leikverk Leik- félags Akureyrar á þessum vetri. Næsta og fímmta leikverkið verð- ur söngleikurinn Kabarett, sem æfingar em nú að hefjast á. Að sögn Péturs Einarssonar leik- hússtjóra hefur aðsókn verði nokkuð góð í vetur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.