Morgunblaðið - 09.01.1987, Síða 34

Morgunblaðið - 09.01.1987, Síða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 1987 Stjörnu- speki Umsjón: Gunnlaugur Guðmundsson „Kæri stjömuspekingur. Getur þú lesið úr stjömukorti minu. Ég er fædd 9.1. 1962 kl. 1.30—2 að nóttu í Reykjavík. Með fyrirfram þakklæti." Svar: Þú hefur Sól, Venus og Mars saman í Steingeit, Tugl, Merkúr, Satúmus og Júpíter í Vatnsbera, Vog Rísandi og Ljón á Miðhimni. Jarðbundin Sól í Steingeit táknar að þú ert að upplagi jarðbundin og raunsæ. Þú ert alvörugefin og vilt öryggi og varanleika í líf þitt. Þú ert heldur íhalds- söm á það sem þér er kært. í sjálfstjáningu ert þú varkár og formföst. Þú vilt bíða og sjá til áður en þú tekur ákvarðanir, ert yfirveguð og frekar laus við fljótfæmi. Skipulögð Mars í Steingeit táknar að Íú hefur skipulagshæfíleika. vinnu ert þú samviskusöm og vandvirk. Þú ert metnað- argjöm að því leyti að þú vilt byggja upp og sjá áþreifan- legan árangur gerða þinna. Trygglynd Venus í Steingeit táknar að þú ert varkár í ást og vin- áttu. Þú ert trygglynd þeim sem þú elskar og vilt varan- leika í mannleg samskipti. Þú ert einnig að mörgu leyti gamaldags og íhaldssöm á þessu sviði. Félagslynd - Tungl í Vatnsbera táknar að þú ert tilfínningalega yfirveg- uð. Þú ert vingjamleg og félagslynd, en þú hleypir fólki samt sem áður ekki of nálægt þér, þ.e. þú átt til að vera ópersónuieg og fjarlæg. Þú vilt einnig að skynsemi stjórni tilfinningum og reynir því að hafa hemil á sjálfri þér og er ildla við of mikla tilfinn- ingasemi hjá öðrum. Þér er einnig illa við að aðrir geri of miklar kröfur til þín, þar sem sjálfstæði skiptir þig töluverðu máli. Vingjarnleg Vog Rísandi táknar að þú ert vingjamleg og ljúf í fram- komu og átt auðvelt með að umgangast fólk. Þú ert á margan hátt fæddur dipló- mat, þó þú eigir einnig til að vera þver og stíf. Yfirveguð Merkúr og Satúmus saman í Vatnsbera táknar að þú ert skipulögð og yfirveguð í hugsun og átt auðvelt með að vera hlutlaus. Þú hefur gott formskyn og hefur t.d. hæfileika í arkitektúr óg á skyldum sviðum. Það sem helst getur hins vegar háð þér er að þú átt til að vera of kröfuhörð við sjálfa þig og gera of lítið úr eigin hæfileik- um. Félagsleg skipulagsstörf Þegar á heildina er litið má segja að kort þitt gefi til kynna yfirvegaða og skipu- lagða persónu sem vill hafa fætuma fasta á jörðinni. Yfir þér er ákveðin rósemi og heiðríkja og í þér býr sterk skynsemi. Það sem þú tekur þér fyrir hendur þarf að vera skynsamlegt og uppbyggj- andi og veita þér öryggi. Vegna Vogar og Vatnsbera er ágætt að þú vinnir með öðru fólki, að starf sitt feli ekki í sér einangrun, heldur samstarf og samskipti, eða ákveðinn eril. Júpíter á Nept- únus ásamt Vog og Ljóni á Miðhimni gefur síðan til kynna listræna og skanand; hlið. GARPUR TOMMI OG JENNI HU/STAPU, KlS/. ÉG ETR BlMBO 1 TRÚPUR. Oú ÉS EK AE>AL TR.ÚÐui?IMKI HER. /V1UMPU ÞA€> ' Pwi CR PA- ' LtTIP EfZVlTT SMÁFÓLK S0UND5 UKE A TKAlN GOIN6 THR0U6H A TUNNEL, HUH, MA'AM? Hljómar eins og lest að fara um jarðgöng, ekki satt, kennari? Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Undirmálsopnanir á einum í hálit em tískufyrirbæri um þess- ar mundir. Bandaríkjamennimir Soloway og Goldman, sem skarta meðal annars heims- meistaratitli, hafa tekið upp þessa sagnaðferð, og það með nokkuð góðum árangri ef marka má eftirfarandi spil gegn öðmm snillingum, Sontag og Becker: Norður gefur; AV á hættu. Norður ♦ 976 ♦ D10974 ♦ 106 ♦ KD8 Vestur ♦ 2 ♦ K865 ♦ ÁD9743 ♦ 104 Austur ♦ ÁDG1085 ♦ 32 ♦ G82 ♦ 65 Suður ♦ K43 ♦ ÁG ♦ K5 ♦ ÁG9732 Vestur Norður Austur Suður — 1 hjarta 1 spaði 2 lauf 2 tíglar Pass Pass 2 hjörtu Pass Pass 2 spaðar 3 lauf Pass Pass Pass Opnun Goldmans í norður á einu hjarta sýndi 7—10 punkta og fimmlit, og sú er skýringin á hægagangi Goldmans í suður. Það standa 3 spaðar í AV, svo það er sigur í sögnum hjá NS að fá að spila þijú lauf. (Að vísu em þrjú grönd ansi freistandi samningur, en honum má hnekkja með réttri vöm.) Hvað um það. Gegn þremur laufum spilaði Becker út einspil- inu í spaða, semm austur drap á ás og spilaði drottningunni um hæl. Becker trompaði kóng suð- urs og spilaði sofandi trompi í næsta slag. Og missti þar með af tækifæri, sem menn fá ekki oft á ævinni. Goldman gat nú sótt hjartað í rólegheitum og hent spaðataparanum niður í fríhjarta. Snilldarvömin sem Becker missti af var að spila tíguldrottningunni og búa þar með til innkomu á gosa austurs. Gegn þeirri vöm á sagnhafí ekk- ert svar. Umsjón Margeir Pétursson Það er ekki bara sókn sem fóm- ir geta skilað miklum árangri. Þessi staða kom upp í viðureign stórmeistaranna Hans Ree og Vlastimil Hort á alþjóðlega mót- inu í Wijk aan Zee í janúar sl. Sem sjá má er Hort, sem hefur svart, liði undir í endatafli og í krappri vöm. Samt tókst honum að hanga á jafntefli: ist að „patta“ hvítu drottninguná: 59... .Hxh4!, 60. Kxh4 - Bd4! (Nú á hvíta drottningin engan reit, svo Ree var ekkert meira að gert. Eftir nokkra tilgangslausa leiki féllst Ree á jafntefli:) 61. Kg3 - Ke7, 62. Kf3 - Bal. Jafntefli.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.