Morgunblaðið - 09.01.1987, Síða 45

Morgunblaðið - 09.01.1987, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. JANÚAR 1987 45 VELVAKANDI SVARAR í SÍMA 691100 KL. 17-18 FRÁ MÁNUDEGI TIL FÖSTUDAGS Þessir hringdu . . Nóg komið af skítkasti Undrandi sjónvarps- og út- varpsunnandi hringdi: Mér fannst nú nóg komið af skítkastinu sem ausið var yfir heimili landsins, þegar á fýrsta degi ársins var sýnt ógeðfellt klámleikrit í Rikissjónvarpinu, þó ekki bættist við hið argasta guð- last sem ég held að hafi heyrst til þessa, 2. eða 3. janúar í Ríkisút- varpinu og var auglýst sem skemmti- og gamanþáttur. Þar sem ég hef mjög gaman af léttu gamni og eftirhermum ætlaði ég svo sannarlega að leggja við hlustimar. Þáttur þessi var nefndur Skriðið til skara. Stjóm- endur eru sennilega ungir menn sem hafa ætlað að slá sér veru- lega upp. Væri nú ekki æskilegt að ráða- menn væm vandari að vali þess fólks sem þeir kjósa til að koma fram í þessum virðulegu fjölmiðl- um sem em eign allra lands- manna? Ég veit um nokkra sem ætluðu að hlusta á þáttinn en urðu svo hneykslaðir, eftir að hafa heyrt ósómann, að þeir skrúfuðu fyrir tækin. Það má hastarlegt heita þegar fólk ætlar að hafa ánægju af því sem fram er borið að þá skuli það þurfa að bíta í það súra epli að stundin verður því bæði til hryggðar og gremju. Það hlýtur að vera til nóg af skemmtilegu efni og góðu fólki sem skiiur eftir göfugar hugsanir og fyllir mann von um bjartari tíð með blóm í haga sálar og líkama. Gleðilegt ár í Guðs friði. Rautt veski tapaðist Ásta Jónsdóttir: hringdi: Ég varð fyrir því óláni um dag- inn að týna rauðu samanbrotnu veski, líklega í grennd við Hlemm, daginn fyrir gamlársdag. Ef ein- hver heiðarlegur maður hefur fundið þetta veski, sem í var tölu- vert af peningum, strætisvagna- miðar, happdrættismiðar, myndir, skilríki o.fl., bið ég hann um að skila því, a.m.k. skilríkjunum. Finnandi vinsamlegast hringi í síma 23923. Þakkir til Krist- jáns Alberts- sonar Þ. hringdi: Nú þegar daglega er hellt yfir mann alla vega viðbjóði, í bókum og fjölmiðlum, langar mig til að biðja þig fyrir kveðju og þakklæti til Kristjáns Albertssonar fyrir bókina Margs er að minnast, sem kom út fyrir jólin. Ég gef henni þrjár stjömur. Góð, skemmtileg, falleg. Tapaði leður- hönskum Agnar Elíasson hringdi: Ég tapaði nýjum leðurhönskum sl. mánudag. Hanskana fékk ég í jólagjöf og er mjög annt um þá. Líklega tapaði ég þeim er ég fór frá bflastæði við Tryggvagötu yfir í Landsbankann eða þá við Lind- argötu. Finnandi vinsamlegast hringi í 20748. Týndi gullhring Emiliía hringdi: Ég týndi gullhring fyrir jól. Hringurinn er með bláum steinum og enn í kassanum sem hann var keyptur í. Finnandi vinsamlegast hringi í síma 622753. Léleg hraðsend- ingarþjónusta Haraldur Jóhannson hringdi: í vetur hef ég nokrum sinnum þurft að fá varahluti frá Reykjavík og hafa þeir stundum verið sendir með flugi. En af einhveijum ástæðum eru svona pakkar oftast skildir eftir þegar vélamar fara frá Reykjavík. Maður þarf að borga kostnaðinn við það að senda pakkana með leigubíl á flugvöllinn en yfírleitt hefur maður líka þurft að láta leigubfla sækja pakkana aftur og setja þá í flutningabíl. Mér fínnst þessi lélega þjónusta fyrir neðan allar hellur, enda er maður látinn borga stórfé fyrir þessa flutninga. Ég veit um fjölda fólks sem hefur þessa reynslu af Flugleiðum í sambandi við svona flutninga. Klám og lauslæti ekki í tísku Sjónvarpsáhorfandi hringdi: Þó margt skemmtilegt og gott hafí verið í útvarpi og sjónvarpi nú yfír hátíðimar þá hafa margir hneykslast vegna leikrits Ríkis- sjónvarpsins að kvöldi nýársdags, einu af þeim kvöldum sem böm fá að vaka lengur og horfa á sjón- varpið. Þjóðin sem greiðir starfs- mönnum Ríkissjónvarpsins launin mun lítið þakka fyrir brjálæðis- og klámmyndir á hátíðarkvöldi, fáum geðjast að slíku. Nýársleik- rit Ríkissjónvarpsins var móðgun við konur. Klám og lauslæti er ekki í tísku núna. „Skessan í þokuimi - Svargrein i. { Velvakanda þann 21. desember sl. birtist greinin „Skessan í þok- unni“, undirrituð af Fróðhreppingi og er þar rætt um samnefndan kafla í bókinni „Draumar og æðri hand- leiðsla" eftir Aðalheiði Tómasdóttur, en ritari bókarinnar er Ingvar Agnars- son. I grein sinni hneykslast höfundur umræddrar Velvakandagreinar á fá- einum atriðum í nefndri frásögn. Vil ég fara um efni hennar nokkrum orðum, þar sem mér er málið skylt og eru hér fáeinar tilvitnanir ásamt skýringum mínum og leiðréttingum: 1. Fróðhreppingur byijar á að gefa höfundi bókarinnar þá ráðleggingu að þar ætti „heiðarleiki að sitja í öndvegi og sannsögli til hægri handar". Mun hann vera sá eini sem gefur höfundi umræddrar bók- ar þá einkunn að hún sé bæði óheiðarleg og ósannsögul. 2. Þá talar Fróðhreppingur um, að ekki sé rétt farið „með skírnar- nafn kynsystur sinnar og samtí- ðarkonu í Fróðárhreppi". Þessu er til að svara að umrædd kona var ávallt af öllum kölluð Ásta, eins og hún er nefnd í sögunni, en fullt nafn hennar var Áslaug. Það hefur hingað til ekki talist niðrandi eða nein hneisa að vera nefndur því stuttnefni, sem almennt er not- að af vinum og ættingjum. 3. Þessu til viðbótar segir Fróðhrepp- ingur: „Nú er ekki nóg með þetta, þvi þessi sama góða kona er rangfeðruð". Þessi athugasemd er alveg rétt og er ritara bókarinn- ar þar um að kenna. Bið ég afsökunar á þeim mistökum. Ás- laug var Jónsdóttir, og voru þær Aðalheiður bræðradætur. Hinsveg- ar var Áslaug gift Þorgils Þorgils- syni og mun mér hafa orðið þama á í messunni vegna eigin óaðgæslu og ókunnugleika, en alls ekki í þeim tilgangi að særa neinn. Þetta voru mikil sæmdarhjón að allra áliti. 4. Þá segir Fróðhreppingur enn, að þessi góða kona, Aslaug, sé í sög- unni talin Jafnvel af tröllum komin". — Þama hlýtur greinar- höfundi eitthvað að hafa skjöplast með skilninginn á því sem í sög- unni segir. Þar var hvergi talað um að Áslaug væri tröll eða af tröllum komin, heldur aðeins að þessi vera sem nálgaðist í þok- unni, sýndist í fyrstu vera tröllsleg, eins og allt annað í umhverfinu, uns hún kom nær telpunni, sem var að villast, enda þekkti hún hana þá og varð „fegnari en frá verður sagt“. Greinarhöfundur mun vera eini lesandinn, sem ekki getur skilið hvað í sögunni felst. 5. Að lokum segir Fróðhreppingur um áðumefnt atriði, að það sé „ómerkileg aðför á látinni sæmdarkonu og frænku". Hér ber að sama brunni: Greinarhöf- undur skilur bersýnilega ekki það, sem hann les. (Ath. Allar leturbreytingar em mínar.) n. Ég vil taka upp lítinn kafla úr þeirri frásögn bókarinnar, sem hér er rætt um. Sögumaður, Aðalheiður Tómas- dóttir, þá um tíu ára gömul, er að leita að nokkrum lambám fram í Valladal. Veður var þungbúið og þoka efst á fjöllum. Orðrétt segir hún: „Allt í einu lagð- ist yfir þoka, niðdimm og ógnvænleg °g byrgði alla útsýn. Ég hélt áfram göngunni um sinn en brátt tapaði ég öllum áttum og vissi ekki hvert halda skyldi. Ég nam staðar. Þokan var svo dimm, að ég sá aðeins það sem næst var. Én hvað allt sýndist nú stórt og hrikalegt. Steinar í nágrenninu urðu sem háir klettar og strýtur, og sýnd- ust taka á sig allskonar kynjamyndir. Sumir litu út eins og tröll með grettar brúnir en aðrir eins og einhver huldu- dýr. Það ýrði úr þokunni og hún leið eins og flygsur undan vindinum, svo að allar þessar kynjamyndir virtust vera á hreyfíngu. Best væri að koma sér sem fyrst niður úr þessum ömur- lega fjalladal. En í hvaða átt ætti ég að halda? Það vissi ég ekki. Ég var hálfsmeyk þama, ein og yfírgefín langt frá öllum, umkringd þessum óhugnanlegu og síkviku furðuverum sem þokubólstramir gerðu enn ískyggilegri. Ég rýndi út í dimmuna. Hvað var nú þama á ferð? Það var eins og ein af þessum kynjamyndum væri á hreyfingu. Jú, það var ekki um að villast. Þetta hreyfðist og stækkaði óðum. Þetta var að sjá eins og tröll- kerling, stór og ógurleg. Það fór að fara alvarlega um mig. Ég stóð þó kyrr og starði á þessa ógnvænlegu vem, sem kom út úr þokunni. Brátt tók hún á sig fullkomna mannsmynd. Og er hún var komin næstum alveg til mín þekkti ég hver þetta var. Þetta var þá mannleg vera, ein af nágranna- konunum, Ásta Þorgilsdóttir í Hrísum. Ég varð fegnari en frá verður sagt. Hún varð undrandi að rekast á mig héma. „Hvað, ert þú héma, Heiða mín,“ sagði hún, „alein hér að villast í þpkunni, rétt eins og ég.“ Ég held að engum, nema Fróð- hreppingi, ritara Velvakandagreinar- innar, geti fundist þessi frásögn vera „ómerkileg aðför að látinni sæmd- arkonu og frænku". Þeir sem lent hafa í þoku vita, að allir hlutir nágrennisins sýnast stórir og tröllslegir, hvort sem um er að ræða steina eða menn. Og það er langt frá, að bókarhöfundur telji konuna frá Hrísum vera af tröllum komna. Það hlýtur hver maður, sem söguna les, að skilja. Þykist ég þá hafa svarað að mestu hinni illkvittnu grein á hendur Aðal- heiði Tómasdóttur, höfundar bókar- innar, „Draumar og æðri hand- leiðsla“, og leiðrétt þann misskilning sem fram kemur hjá Fróðhreppingi í grein hans. Ingvar Agnarsson Strengdir þú áramótaheit á þann veg að hreyfing og hollir lifnaðarhættir sætu í fyrirrúmi á nýja árinu? Hjá Dansstúdíói Sóleyjar er boðið uppá létta og skemmtilega leikfiml fyrir fólk á „besta aldri". Sóley og Aðalheiður sjá til þess að allir hafi gott og gaman af og vonast til þess að sjá sem flesta, bæði konur og karla. Kennarar Sóley Jóhannsdóttir og Aðalheiður Þóra Jónsdóttir sjúkraþjálfari. Innritun er hafin i símum: 68-77-01 og 68-78-01 frá kl. 13-17. Kennsla hefst 12.janúar og afhending skírteina er laugard. lO.janúar. Engjateigi I , símar 687701 og 687801.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.