Morgunblaðið - 15.01.1987, Blaðsíða 1
72 SÍÐUR B
STOFNAÐ 1913
ll.tbl. 75. árg.
FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 1987
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Hreinsanir hafnar í Kína:
Kunnur rithöfund-
ur rekinn úr komm-
únistaflokknum
Peking, AP, Reuter.
KUNNUR rithöfundur, Wang Ruowang, var í gær rekinn
úr kommúnistafiokki Kina fyrir óhróður um sósíalismann
og stuðning við auðvaldsstefnu. Hann er fyrsti flokks-
félaginn, sem rekinn er úr kommúnistaflokknum í kjölfar
stúdentaóeirðanna í landinu.
Fréttastofan Nýja Kína, hin op-
inbera fréttastofa landsins, skýrði
svo frá, að þessi ákvörðun hefði
verið tekin af aganefnd kommún-
istaflokksins í Shanghai. Var
brottreksturinn rökstuddur með
því, að Wang hefði neitað að bæta
ráð sitt, þrátt fyrir það að hann
hefði verið harðlega gagnrýndur
fyrir stuðning við borgarlega
ftjálshyggju í verkum sínum og
fyrir andstöðu við grundvallarregl-
ur flokksins undanfarin tvö ár.
Wang hefði jafnvel gengið svo
langt, að lýsa hinu sósíalistíska
þjóðfclagskerfi Kína sem „blekk-
ingu“.
ur fundur hans og háttsetts stjóm-
málamanns frá Japan fyrr í vikunni
féll niður og var því borið við, að
Hu væri veikur.
Ekki er talið líklegt, að Hu láti
strax af embætti sem formaður
kommúnistaflokksins. Hann hefur
hins vegar sætt gagnrýni af hálfu
Deng Xiaopings, valdamesta
manns Kína. Er álitið, að Deng
vilji, að Hu segi af sér á 13. flokks-
þinginu, sem halda á í september
nk.
Ekki láta aliir bugast, þótt kólni. Mynd þessi var tekin, er sannir afkomendur víkinganna fengu sér bað
í vök, sem hafði verið höggvin í ísinn í Eyrarsundi í gær. Unga stúlkan, sem er frá bænum Vedbæk
fyrir norðan Kaupmannahöfn, fær að ganga í „Samtök berserkja og valkyrja“, þegar hún hefur iðkað
hreystiböð af þessu tagi í 10 ár.
Neyðarráðstafanir í Evrópu vegna kuldanna:
Herlið til hjálparstarfa í
Frakklandi og Bretlandi
London, AP, Reuter.
FRANSKA stjórnin kallaði í gær út herlið og kom á fót neyðarmið-
stöð til aðstoðar fólki vegna vetrarkuldanna. Allt að 14 sm jafnfallinn
snjór féll þá síðdegis í París og um mikinn hluta Frakklands. Er
þetta fjórða mesta snjókoma, sem mælzt hefur í París, frá því að
Á mánudag var tilkynnt, að
Guan Weiyan, rektor háskólans í
Hafei, hefði verið látinn víkja úr
embætti og hann sagður „bera
ábyrgð á þeim vondu áhrifum, sem
stúdentaóeirðirnar hafa haft alls
staðar í landinu“. Þá var annar
háskólakennari að nafni Fang
Lizhi, stjarneðlisfræðingur og
varaforseti raunvísindadeildarinn-
ar í sama háskóla, einnig rekinn
úr starfi og hann sakaður um
óhróður um sósíalismann og leið-
toga flokksins.
Brottrekstur þessara manna
hefur komið af stað orðrómi um,
að umfangsmikil endurskipulagn-
ing kommúnistaflokksins standi
nú fyrir dyrum og að Hu Yaobang,
formaður flokksins, standi mjög
höllum fæti. Var haft eftir heimild-
um í Austur-Evrópu, að stjórn-
málaráð eða miðstjóm kínverska
kommúnistaflokksins ætti að koma
saman til sérstaks fundar á laugar-
daginn til þess að ræða ástandið
í flokknum.
Hu, sem verður 72 ára á þessu
ári, hefur ekki sést opinberlega
síðan 29. desember sl. Fyrirhugað-
veðurmælingar hófust.
Segja má, að nær öll Evrópa sé
nú í greipum kuldans og fregnir
berast alls staðar af fólki, sem orð-
ið hefur úti. Er talið, að tala látinna
af völdum kuldanna sé nú orðin
yfir 50. í Þýzkalandi mældizt sums
staðar meira frost en nokkru sinni
áður. Þannig mældist þar 25 stiga
frost á Celsius á Schönfeld-flug-
velli í Austur-Berlín.
Í Bretlandi er víða allt í kafi í
snjó. Þar var herlið kallað út og
þyrlur notaðar til aðstoðar fólki.
Þannig var vanfær kona flutt á
sjúkrahús í þyrlu, sem sótti hana á
þjóðveg í Norfolk. Sjúkrabíll, sem
konan var í, stóð þar fastur að
baki snjóplóg, sem ekki megnaði
að ryðja braut í gegnum snjóinn,
en hann er þarna orðinn 45 sm djúp-
ur.
Kuldabylgjan hefur nú náð langt
suður á Spán. Þar var þjóðvegurinn
milli Madrid og Barcelona lokaður
í margar klukkustundir vegna
ófærðar. Ávaxtauppskera lands-
manna er nú talin í mikilli hættu,
ef ekki hlýnar bráðlega. í sumum
fjallahéruðum mældist yfir 15 stiga
frost og vegir yfir til Frakklands
voru víðast hvar tepptir vegna
snjóa.
Ekki er ástandið betra í Austur-
Evrópu. Þar skýrði blaðið Neps-
zabadsag, málgagn ungverska
kommúnistaflokksins, frá því að
3000 hermenn hefðu verið kallaðir
út til að ryðja snjó og hjálpa fólki.
í mörgum borgum Sovétríkjanna
er ástandið mjög slæmt. Þar er
frostið víða um 30 stig og er skort-
ur á eldsneyti og rafmagni orðinn
mjög tilfinnanlegur í borgum eins
og Leningrad, Kiev, og Volgograd.
TASS-fréttastofan skýrði frá því
í gær, að miðstjórn kommúnista-
flokksins hefði varað embættis-
menn flokks og ríkis á mörgum
stöðum við því, að þeir kynnu að
verða gerðir ábyrgir fyrir því per-
sónulega, ef verulegur skortur yrði
hjá almenningi á eldsneyti og raf-
magni til húshitunar.
Afganistan:
Einhliða vopna-
hlé Kabúl-
stjórnarinnar
Islamabad, Reuter, AP.
STJÓRNIN í Kabúl í Afganistan,
Gífurlegt mannfall
í Persaflóastríðinu
Teheran, Keuter, AP.
ÍRANIR tilkynntu í gær, að þeir hefðu hafið sókn á nýjum vígstöðv-
um á miðjum landamærunum við írak og endurheimt þar landsvæði,
sem verið hefði á valdi íraka allt frá upphafi stríðsins milli þjóð-
anna fyrir 6 árum. Þá væri ekkert lát á sókn þeirra inn í írak á
suðurlandamærum ríkjanna, en sókn þessi hófst fyrir sex dögum.
írakar sögðu aftur á móti, að
nýbyrjaðri sókn írana á miðvíg-
stöðvunum hefði verið hrundið.
Hefði írönum tekizt aðeins skamma
stund að ná þar á sitt vald litlu
landsvæði, en þeir verið hraktir
þaðan og skilið eftir sig „hrauka
af líkum fallinna hermanna sinna".
Blaðið Khaleej Times, eitt út-
breiddasta dagblaðið, sem gefið er
út í arabaríkjunum við Persaflóa,
hélt því fram í gær, að tala fallinna
í átökunum undanfama viku væri
ekki undir 70.000 manns og að ein
milljón manna hefði dáið eða særzt
frá upphafi stríðsátakanna fyrir 6
árum.
„íran og írak eru smám saman
að fremja sjálfsmorð," segir blaðið.
Hefur það eftir sérfræðingum, að
mannfall hafi þó verið mun meira
hjá írönum en írökum eða þrír á
móti einum.
íranskur skriðdreki, sem írakar
hafa tekið herfangi við borgina
Basra. Þar hafa bardagarnir
undanfarið verið hvað mann-
skæðastir.
sem nýtur stuðnings Sovétstjórn-
arinnar, lýsti i gær yfir einhliða
vopnahlé í stríðinu við frelsis-
sveitimar i landinu. Á vopnahléð
að standa í sex mánuði.
Leiðtogi kommúnistaflokksins,
Najibullah, skýrði svo frá í útvarps-
ræðu, að hermenn stjórnarinnar
myndu hætta bardögum á miðnætti
og halda til búða sinna. Skoraði
hann á frelsissveitimar að gera slíkt
hið sama.
Frelsissveitimar hafa ekki viljað
fallast á vopnahlé að svo komnu,
en leiðtogar sjö helztu fylkinganna
i þeirra hópi hyggjast koma saman
til fundar á laugardag og taka af-
stöðu til vopnahlésins. Talið er, að
þeir muni hafna því og halda áfram
baráttunni gegn Kabúlstjórninni.
Hafa þeir hvað eftir annað lýst því
yfir, að friðarviðræður komi ekki
til greina fyrr en allur her Sovét-
manna sé á burt frá Afganistan.