Morgunblaðið - 15.01.1987, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 1987
A vél-
hjólum
í vor-
veðri
Borgarbúar sjá ekki oft lög-
reglumenn á vélhjólum í um-
ferðinni á þessum tíma árs, en
nú er færð svo góð að hjólin
hafa verið dregin fram úr
geymslum sínum.
Að sögn lögreglunnar eru hjólin
alltaf notuð þegar færð leyfir og
nú eru fimm hjól á götunum. Oft-
ast eru hjólin ónotuð í janúar vegna
hálku og snjóa, en vegna vorveðurs
að undanfömu eru götur auðar.
Kollegar lögreglumannanna á meg-
inlandi Evrópu geta tæpast notað
sín hjól núna, því þar er víðast hvar
mikill snjór og kuldi.
Morgunblaðið/Júlíus
Þeir Stefán Guðjónsson, Svavar G. Jónsson og Jónas Þorgeirsson þeysa nú um götur Reykjavíkur á vélhjólum, enda er færð einstak-
lega góð miðað við árstíma.
VEÐURHORFUR í DAG:
YFIRLIT á hádegi í gær: Skammt noröaustur af Labrador er
víðáttumikil 970 millibara djúp lægð sem þokast norðnorðaustur.
Milli Færeyja og íslands er 1036 millibara hæð sem þokast austur.
SPÁ: Allhvöss sunnan- og suðaustanátt og skúrir um sunnan- og
vestanvert landið en hægari sunnan og úrkomulaust í öðrum lands-
hlutum. Hiti á bilinu 4 til 6 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
FÖSTUDAGUR og LAUGARDAGUR: Suðlæg átt og fremur hlýtt í
veðri. Rigning eða skúrir um sunnan- og vestanvert landið en þurrt
og viða léttskýjað á noröur- og norðausturlandi.
TAKN:
O Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýiað
Alskýjað
y, Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / /
/ / / / Rigning
/ / /
* / *
/ * / * Slydda
/ * /
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
10° Hitastig:
10 gráður á Celsíus
V Skúrir
*
V El
= Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—[- Skafrenningur
|"7 Þrumuveður
VEÐUR VIÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
hiti
veöur
Akureyri
Reykjavfk
Bergen
Helsinki
Jan Mayen
Kaupmannah.
Narssarssuaq
Nuuk
Osló
Stokkhólmur
Þórshöfn
Algarve
Amsterdam
Aþena
Barcelona
Berlín
Chicago
Glasgow
Feneyjar
Frankfurt
Hamborg
Las Palmas
London
Los Angeles
Lúxemborg
Madríd
Malaga
Mallorca
Miami
Montreal
NewYork
Parfs
Róm
Vin
Washington
J Winnipeg
2 skýjað
3 skýjað
-7 lóttskýjað
-12 skýjað
2 skýjað
-9 alskýjað
7 alskýjað
-1 alskýjað
-7 alskýjað
-10 alskýjað
3 léttskýjað
9 skýjað
-12 mlstur vantar
4 skýjað
-17 renningur
2 skýjað
0 snjóél
1 rlgnlng
-9 mistur
-14 þokumóða vantar
-3 snjókoma
11 mistur
-7 skýjað
0 lóttskýjað
8 léttskýjað
S alskýjað
11 léttskýjað
-5 alskýjað
1 skýjað
-6 |}okumóða
17 skýjað
-12 snjókoma
2 alskýjað
-7 alskýjað
Vertrarhörkur valda
verðhruni á fiski
VETRARHÖRKURNAR sunnan
við okkur hafa talsverð áhrif á
sölu á ferskum fiski. Ófærð frá
hafnarborgunum Hull og Grims-
by hefur komið í veg fyrir ao
hægt sé að flytja fiskinn til ann-
arra landshluta. Vegna þess
hefur verð á fiskinum hrunið
þessa dagana, eða úr rúmum 70
krónum niður í 35 krónur fyrir
hvert kíló. Verð er hins vegar
enn i hærri kantinum í Þýzkal-
andi og Frakklandi.
Á þriðjudag seldi Ýmir HF 163
lestir í Grimsby. Heildarverð var
7,2 milljónir, meðalverð 44,06 krón-
ur. Dagstjaman KE seldi sama dag
150 lestir í Hull. Heildarverð var
7,1 milljón króna, meðalverð 47,39.
Otur Hf seldi á þriðjudag 140 lestir
í Cuxhaven. Heildarverð var 8,9
milljónir, meðalverð 64,01. Sama
dag seldi Klakkur VE 167 lestir í
Bremerhaven. Heildarverð var 10,8
milljónir, meðalverð 64,73.
A miðvikudag seldi Núpur ÞH
59,3 lestir í Hull. Heildarverð var
2,9 milljónir, meðalverð 48,05.
Hjörleifur RE seldi einnig í Hull,
138 lestir. Heildarverð var 6,4 millj-
ónir, meðalverð 46,33. Loks seldi
Ottó Wathne NS 163 lestir í Grims-
by. Heildarverð var 5,8 milljónir,
meðalverð 35,76. Breki VE seldi á
miðvikudag 215 lestir í Bremer-
haven. Heildarverð var 12,3 milljón-
ir, meðalverð 57,07. Loks seldi
Dalborg EA afla sinn í Boulogne á
miðvikudag. Ekki hafa fengizt ná-
kvæmar upplýsingar um söluna.
Aflinn var að mestu þorskur og ýsa
og mun meðalverð hafa verið um
60 krónur.
í gær var alveg ófært vegna
snjóa frá Grimsby og illfært frá
Hull. Þar sem miklum vandkvæðum
er bundið að flytja fiskinn til ann-
arra landshluta, hefur fískverðið á
markaðnum lækkað verulega, en
mikill hluti landaðs fisks á þessu
svæði fer til annarra landshluta,
þegar allt er með felldu.
Hótel Mælifell
á Sauðárkróki:
Greiðslu-
stöðvun í
þrjá mánuði
HÓTEL Mælifell á Sauðárkróki
hefur fengið greiðslustöðvun í
þijá mánuði vegna tímabundinna
erfiðleika í rekstri fyrirtækisins.
Greiðslustöðvunin var veitt 29.
desember síðastliðinn.
Guðmundur Tómasson hótelstjóri
sagði í samtali við Morgunblaðið
að rekstur hótelsins væri alltaf erf-
iður yfir vetrartímann, en ástæðan
fyrir því að nú var beðið um
greiðslustöðvun væri sú að á síðasta
ári var ráðist í framkvæmdir og
anddyri og setustofa hótelsins end-
urbætt og reksturinn hefði síðan
ekki staðið undir kostnaðinum við
þetta.
Guðmundur sagðist reikna með
að málin leystust farsællega fyrir
vorið og þá væri hægt að halda
áfram endurbótum á húsakynnum
hótelsins.
Sambandið hættir
rekstri Torgsins
Verslunardeild Sambandsins hefur í hyggju að hætta rekstri versl-
unarinnar Torgsins við Austurstræti í Reykjavík en þar hefur
aðallega verið seldur fatnaður. Leigusamningi við eigendur hússins,
sem verslunin er í, hefur verið sagt upp frá og með 1. apríl, svo
og starfsfólki verslunarinnar, tæplega 20 manns.
í samtali við Morgunblaðið sagði unarinnar hefði verið boðið upp á
Hjalti Pálsson forstöðumaður versl-
unardeildar að rekstur Torgsins
hefði ekki gengið vel. Verslunin
væri erfið að því leyti að hún er á
þremur hæðum og því .þyrfti þar
of margt starfsfólkmiöað yið rekst-
urinn. '
Hjalti sagði að starfsfólki verel-
önnur störf hjá Sambandinu, ef það
óskaði. Einnig væri sá möguleiki í
athugun að reyna að finna hent-
ugra húsnæði fyrir verslun á borð
við Torgið, sem aðallega selur fatn-
að frá fataverksmiðju Sambandsins
á Akureyri.