Morgunblaðið - 15.01.1987, Blaðsíða 56
56
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 1987
„Skóli á að opna glugga að
nýjum víðáttum og þekkingu“
- Nýbygging Fjölbrautaskóla Suðurlands
tekin í notkun við hátíðlega athöfn
Selfossi.
FJÖLBRAUTASKÓLI Suður-
lands hefur nú fengið þak yfir
höfuðið, nýja stórglæsilega
byggingu sem er sú eina sinnar
tegundar á landinu og sú eina
^sem hönnuð er sérstaklega með
þarfir fjölbrautaskóla í huga. Sá
hluti byggingarinnar sem tekinn
var í notkun laugardaginn 10.
janúar er 3000 fermetrar að
grunnfleti en í heild verður
byggingin 5400 fermetrar. I
máli Þorsteins Pálssonar fjár-
málaráðherra kom fram að unnið
er að því að gera samning um
framkvæmdirnar við skólann
milli menntamálaráðuneytis,
fjármálaráðuneytis og heima-
aðila sem tryggja mun framhald
framkvæmda og kveða á um
kost naðarskip ti ngu.
Formleg afhending byggingar-
innar til skólastjómar skólans fór
'►fram í samkomusal skólans sem þó
er ekki fullkláraður en var ruddur
svo þar mætti hafa þennan mann-
fagnað. Nemendur skólans sáu um
kaffiveitingar og hveijum sem vildi
var boðið að skoða bygginguna
þennan dag.
Þorsteinn Pálsson afhendir lykil-
inn að skólanum til Þórs Vigfús-
sonar skólameistara og húsið er
•Tormlega tekið í notkun.
Garðar Hannesson varaformaður
byggingarnefndar skólans afhenti
Hirti Þórarinssyni lykilinn að bygg-
ingunni. Hjörtur fór nokkrum
orðum um sögu skólans og tilurð
hans sem byggðist fyrst og fremst
á því að heimaaðilar hafa hrundið
í framkvæmd áformum sínum og
áhugamálum varðandi aukna fram-
haldsmenntun. Um það vitnar
skólasaga Suðurlands með sína
bautasteina þar sem sá nýjasti og
stærsti er stórbygging Fjölbrauta-
skólans þar sem gert er ráð fyrir
að rúmlega 600 nemendur rúmist
''»yið nám.
Guðmundur Kr. Jónsson bygg-
ingarstjóri lýsti framkvæmdum og
einstökum verkþáttum. Arkitekt
hússins er dr. Maggi Jónsson. Aðr-
ir hönnunaraðilar eru Júlíus Sólnes
sem gerði sérstaka úttekt vegna
jarðskjálftahættu. Verkfræðistofa
Suðurlands sem sá um burðarþols-
og lagnahönnun, Verkfræðistofa
Benedikts Bogasonar sá um burðar-
þolskönnun við uppsteypu, verk-
fræðistofan Fjölhönnun sá um hita-,
hreinlætis- og loftræstilagnir og
vei-kfræðistofan Rafhönnun um
■ hönnun raflagna.
Framkvæmdir við húsið hófust
23. júlí 1983 þegar fyrsta skóflu-
stungan hafði verið tekin. Fossvélar
á Selfossi sáu um jarðvinnu, vöru-
bílstjórafélagið Mjölnir um flutning
fyllingarefnis í bílastæði. Ahalda-
hús Selfossbæjar sá um skolplagnir
, Jjg sprengingar, Selós sf. um smíði
vinnubúða og Sigfús Kristinsson
byggingameistari um uppsteypu
kjallara hússins en því verki lauk
24. maí 1984. Sigfús hefur verið
aðalverktaki hússins við uppsteypu
sem hófst 10. nóvember 1984 og
lauk í árslok 1985. Síðan við að
loka húsinu og skila því eins og það
er í dag. Sú vinna hófst 20. apríl
1986.
Að frágangi hússins komu marg-
ir aðilar. Trésmiðja Þorsteins og
Ama smíðaði glugga, úti- og inni-
hurðir og innréttingar. Vökvalagnir
sf. á Selfossi sáu um hita- og hrein-
lætislagnir, Rásverk í Hafnarfirði
um loftræstilagnir og Rafstjóm sf.
í Reykjavík sá um uppsetningu
stýribúnaðar fyrir loftræstikerfíð.
Siggj Gíslason á Selfossi sá um
raflagnir, Límtré hf. á Flúðum
framleiddi límtré í burðarvirki þaks-
ins og Kaupfélag Amesinga smíðaði
festingar fyrir límtré, handföng og
handrið. Siguijón Erlingsson og
Guðmundur Kr. Ingvarsson
múrarameistarar á Selfossi önnuð-
ust múrverk, Samverk á Hellu
framleiddi allt gler í húsið samtals
45 tonn. Gluggasmiðjan í Reykjavík
annaðist uppsetningu glerþaks
hússins, Málningaþjónustan Sel-
fossi sá um alla málun og Guð-
mundur R. Oskarsson frá Reykjavík
sá um dúkalögn.
í máli Guðmundar byggingar-
stjóra kom fram að allir verktakar
hefðu lagst á eitt um að verkið
gengi fram eins og best hefði verið
á kosið. Húsið var vatns- og vind-
helt 23. október og til þess það var
tekið í notkun liðu 70 almanaks-
dagar eða 50 venjulegir vinnudag-
ar. Hátt á annað hundrað menn
hafa komið að frágangi hússins og
er sá hópur þess albúinn að takast
á við framhald verksins.
Dr. Maggi Jónsson lýsti bygging-
unni og því eftir hvaða forsendum
hún væri hönnuð. Hann kvað húsið
vera svar við vandlega íhuguðum
þörfum sem unnar voru upp af
undirbúningsnefnd sem í áttu sæti
ásamt honum Heimir Pálsson og
Erlendur Hálfdánarson. Markmiðið
hefði verið að byggja vandað hús
sem ekki þyrfti ótímabært og kostn-
aðarsamt viðhald.
„Þetta hús er þáttur í framfara-
sögu þessa byggðarlags," sagði
Þorsteinn Pálsson fjármálaráðherra
sem gegndi á samkomunni embætti
menntamálaráðherra. Hann flutti
kveðjur frá Sverri Hermannssyni
og sagði það ætlun menntamála-
Mik.il! fjöldi fólks var við athöfnina í skólanum.
Nemendur gengu um götur Selfossbæjar og kvöddu kennslustaði skólans á táknrænan hátt.
ráðuneytis og fjármálaráðuneytis
að tekið yrði tillit til þess að fram-
kvæmdir við byggingu framhalds-
skóla kostuðu meira en bygging
grunnskóla, ennfremur varðandi
þessa byggingu að kostnaðarauki
gæti orðið vegna hönnunar með til-
liti til jarðskjálftahættu. Hann sagði
að unnið væri að samkomulagi milli
ríkis og heimaaðila sem eyddi óvissu
um fjármögnun framkvæmda við
skólann.
„Skóli á að opna mönnum glugga
að nýjum víðáttum og þekkingu,"
sagði Þorsteinn og benti á að stóri
glugginn sem einkennir húsið gæti
verið tákn um það. Þorsteinn sagði
skólann vera einn þáttinn í því sem
tryggði það að óskir ungs fólks um
veru í heimabyggð sinni yrðu að
veruleika. „Þetta hús er í órofa
samhengi við það sem áður hefur
verið gert í því efni og framfara-
spor,“ sagði Þorsteinn og ennfrem-
ur: „Skóli á að gera menn að góðum
mönnum og það er ósk mín til Fjöl-
brautaskóla Suðurlands að hann
eigi einnig eftir að gera menn að
góðum íslendingum."
Hjörtur Þórarinsson formaður
skólanefndar afhendi Þorsteini
Pálssyni lykilinn að húsinu og Þor-
steinn síðan Þór Vigfússyni skóla-
meistara og byggingin þá formlega
tekin í notkun. Að því búnu söng
kór Fjölbrautaskólans nokkur log á
samkomunni undir stjórn Jóns Inga
Sigurmundssonar.
Séra Sigurður Sigurðarson sókn-
arprestur flutti ávarp og blessunar-
orð. Hann minnti á siðferði
menntunar og boðskap þeirra
fleygu orða að vammlaus maður
þyrfti ekki að óttast ógn vopnanna.
I þeim fælist sú ósk að geta sú sem
guð hefði gefíð manninum yrði ekki
til þess að tortíma honum. í lok
ávarps síns færði Sigurður skólan-
um Biblíu að gjöf.
Aðrir sem fluttu ávarp voru
Heimir Pálsson fyrsti skólameistari
Fjölbrautaskóla Suðurlands sem
minnti á að aldrei áður hefði verið
hannað hús sérstaklega ætlað fjöl-
brautaskóla. Jón R. Hjálmarsson
fræðslustjóri. gat þess að miklar
vonir væru bundnar við skólann
einkum af þeim rúmlega 30 grunn-
skólum sem starfandi eru í fræðslu-
umdæminu. „Megi hér alltaf vera
hátt til lofts og vítt til veggja í öll-
um skilningi,“sagði Jón.
Ingvar Asmundsson formaður
skólameistarafélags íslands benti á
að á síðastliðnum 15 árum hefðu
orðið meiri breytingar á framhalds-
námi en áður hefði verið. Agústa
Ragnarsdóttir flutti ávarp fyrir
hönd nemenda og benti hún á að
félagslíf nemenda ætti eftir að taka
miklum breytingum með tilkomu
hússins, kynni nemenda ykjust er
þeir losnuðu við sífelld hlaup milli
kennslustaða. Hún fagnaði góðri
Séra Sigurður Sigurðarson afhendir skólameistara Biblíu til skólans.
y' ■ '
m.
*. •.
■ ■
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Fyrsti áfangi nýbyggingar Fjölbrautaskóla Suðurlands við Tryggvagötu á Selfossi.