Morgunblaðið - 15.01.1987, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 1987
33
Flóttamaður frá Iran:
Ottast um líf sitt ef hann
verður sendur frá Islandi
MAÐUR frá íran, sem hefur dva-
list hér á landi síðan í desember,
var handtekinn af útlendingaeft-
irlitinu síðdegis á þriðjudag og
var ætlanin að hann yrði sendur
úr landi í gærmorgun. Af því
varð ekki þar sem vinir hans
fengu yfirvöld til að kanna mál
hans betur. Maðurinn, sem er 22
ára, óttast mjög um líf sitt ef
hann fer aftur til Iran.
Maðurinn, sem hér eftir verður
nefndur dulnefninu Hassan, starf-
aði innan pólitískrar hreyfingar í
íran, sem barðist gegn Khomeini
og fylgismönnum hans. Að sögn
erlendra vina hans, sem dveljast
hér á landi, voru nokkrir félaga
hans teknir af lífi, en hann komst
sjálfur úr landi með því að beita
mútum til að fá vegabréf. Hassan
fór til Istanbúl í Tyrklandi og þar
fékk hann vegabréfsáritun til Is-
lands. Var ætlan hans að hitta hér
bróður sinn, sem er búsettur í
Bandaríkjunum ásamt fjölskyldu
sinni og kom bróðir hans hingað í
desember. Sjálfur hafði Hassan
reynt að fá vegabréfsáritun til
Bandaríkjanna, en ekki tekist.
Hingað til lands kom Hassan 5.
desember og rann dvalarleyfi hans
út 17. desember. Þá hafði hann
sótt um að fá að dveljast hér áfram,
en íslensk yfirvöld töldu engar þær
ástæður vera sem réttlætt gætu
áframhaldandi dvöl. Síðdegis á
þriðjudag var Hassan því tekinn
höndum og var tjáð að hann yrði
sendur aftur til Tyrklands. Átti
hann að fara úr landi kl. 7 í gær-
morgun, en vinir hans, sem áður
DREGIÐ hefur verið fyrri
umferð í happdrætti Handknatt-
leikssamband íslands og eftir er
að draga í seinni umferð.
Til að mæta fjölmörgum óskum
um annan miða og eins vegna
þeirra, sem voru ekki með í fyrri
útdrætti, en vilja vera með í seinni
útdrætti, 9. febrúar nk., mun HSÍ
á næstunni bjóða ódýrari miða á
er minnst á, fengu brottför hans
frestað eftir samtöl við íslenska
embættismenn og er hann nú laus
úr haldi.
Hassan óttast mjög að fara til
Tyrklands, því hann er þess fullviss
að yfirvöld þar sendi hann aftur til
íran. Hann var eitt sinn tekinn
höndum í Tyrklandi og fluttur að
landamærum íran, en þá tókst hon-
um að losna gegn gjaldi. Þar sem
hann er liðhlaupi úr íranska hernum
verður hann dreginn fyrir herdóm-
stól þar í landi og að öllum líkindum
tekinn af lífi.
*
Ekki amast við Irönum
í Tyrklandi
Karl Jóhannsson hjá útlendinga-
eftirlitinu sagði að dvalarleyfí
mannsins hér væri löngu útrunnið
og þar eð dómsmálaráðuneytið
hefði synjað um framlengingu þess
kr. 250. Miðar greiddir 9. janúar
og fyrr gilda aftur 9. febrúar.
Þessir ódýrari miðar, sem sendir
verða út á næstunni, eru innifaldir
í heildarmiðafjölda í happdrættinu
244 þúsund.
Misskilningur hefur komið upp,
þar sem heildarmiðafjöldi er 244
þúsund, en til fyrirtækja voru send
5 númer á einum miða og heildar-
númerafjöldi því 271.316. Það skal
hefði átt að senda hann úr landi.
„Maðurinn dvaldi ólöglega í landinu
og hafði leitað sér að vinnu, en slíkt
er brottrekstrarsök í fleiri löndum
en Islandi. Hann var margbúinn að
bijóta af sér þegar við tókum
hann,“ sagði Karl. „Það er tóm vit-
leysa að hann lendi í erfiðleikum
ef hann er sendur aftur til Tyrk-
lands. Það sem ég hef fyrir mér í
því eru fréttir kollega minna erlend-
is og svo kaupi ég Time. Fyrir
rúmum mánuði sagði það virta
tímarit frá því að þúsundir írana
dveldust í Tyrklandi og það væri
ekki amast við þeim þar. Þessi
maður kom líka hingað á fölskum
forsendum, því hann sagðist ætla
að hitta bróður sinn og þeir bræður
fullvissuðu yfirvöld um að hann
kæmi ekki hingað til að sækja um
vegabréfsáritun til Bandaríkjanna.
Hálfum öðrum mánuði áður en hann
kom hingað hafði hann samt sótt
um áritun til Bandaríkjanna í Tyrk-
þó tekið fram til að forðast frekari
misskilning, að reglum um, að
heildarverðmæti vinninga skuli vera
*/g af heildarverðmæti útgefínna
númera, var fylgt og vel það. Þá
hefðu þurft að vera 47 bílar sam-
tals í vinninga, en þeir voru 50
talsins.
Bæði til að mæta þessum mis-
skilningi og eins til að hvetja
landsmenn til enn betri þátttöku í
landi, en ekki fengið og skömmu
eftir að hann kom hingað sótti hann
um áritun hjá bandaríska sendiráð-
inu. Slíka áritun fá menn auðvitað
ekki í hvelli og hann bað um að fá
að bíða hér til að byija með í 2-3
ár. Því var hafnað, sem er ósköp
eðlilegt, því maður sem kemur á
fölskum forsendum og falast eftir
vinnu er alls staðar brottrækur úr
landi og það er m.a. skýrt tekið
fram í útlendingalögunum,“ sagði
Karl Jóhannsson.
Ólafur Waltér Stefánsson, skrif-
stofustjóri í dómsmálaráðuneytinu
sagði að ákveðið hefði verið í gær-
kveldi að bíða með að senda
manninn úr landi. „Það var talin
ástæða til að skoða málið betur og
endanleg niðurstaða liggur ekki
fyrir fyrr en við höfum fengið öll
gögn málsins í hendur frá útlend-
ingaeftirlitinu. Meira er ekki hægt
að segja sem stendur."
seinni umferðinni hefur HSÍ ákveð-
ið að draga um 50 bíla 9. febrúar
í stað 30 bíla eins og fyrirhugað
var og verða því 23 bílar í vinninga
umfram það sem þyrfti að vera.
Vonumst við til, að það verði enn
frekari hvatning til að hvetja lands-
liðið okkar til stórra sigra, um leið
og þakkað er fyrir veittan stuðning.
(Frétt frá HSl)
GENGIS-
SKRÁNING
Nr. 8 - 14. janúar 1987
Kr. Kr. ToU-
Ein.KI. 09.15 Kaup Sala gengi
Dollari 40,000 40,120 40,580
Stpund 59,888 50,068 59,145
Kan.dollari 29,267 29,354 29,400
Dönskkr. 5,6567 5,6727 5,4561
Norskkr. 5,5815 5,5983 5,4364
Sænskkr. 6,0537 6,0719 5,9280
Fi.mark 8,6430 8,6690 8,3860
Fr.franki 6,4360 6,4554 6,2648
Belg. franki 1,0411 1,0442 0,9917
Sv.franki 25,6739 25,7510 24,7326
Holl. gyllini 19,1022 19,1595 18,2772
V-þ. mark 21,5459 21,6106 20,6672
Itlíra 0,03025 0,03034 0,02976
Austurr. sch. 3,0599 3,0690 2,9416
Port.escudo 0,2811 0,2819 0,2742
Sp.peseti 0,3125 0,3135 0,3052
Jap.yen 0,25999 0,26077 0,25424*
Irsktpund 57,520 57,693 56,123
SDRISérst.) 49,6537 49,8026 49,2392
ECU, Evrópum. 44,3820 44,5151 42,9296
Willy Milly í
Laugarásbíó
Laugarásbíó hefur tekið til sýninga
myndina Willy Milly. Milly Neiss-
mann á sér eina ósk og hún er að
verða strákur. Hún trúir að fólk
geti fengið óskir sínar uppfylltar
ef það fylgist með sólmyrkva. Það
gerir hún og ósk hennar rætist.
Ekki eru öll vandamál Millyar^
sem nú fær nafnið Willy, leyst og
söguþráðurinn fylgir henni/honum
í gegnum ný vináttubönd og nýjan
skóla þar sem ýmislegt er öðruvísi
en Milly hélt. Leikstjóri myndarinn-
ar er Paul Schneider en aðalhlut-
verk er í höndum Pamelu Segall.
Austur-
bæjarskóli:
Nemendur
kveiktu í
TVEIR tíu ára gamlir drengir
hafa viðurkennt að hafa borið
eld að einangrunarplötum, sem
staflað var upp á neðstu hæð
Austurbæjarskólans.
Eldur kom upp í Austurbæjar-
skólanum um hádegið á mánudag,
en greiðlega gekk að ráða niðurlög-
um hans. Drengirnir tveir, sem eru
báðir nemendur í skólanum, hafa
viðurkennt íkveikju.
Enn er unnið að rannsókn á
bruna veiðihúss við Elliðaár og
vinnuskúr við Sævarhöfða. Eldur
kom upp á báðum stöðunum
skömmu eftir miðnætti aðfaranótt
þriðjudagsins.
„Hassan yrði tekinn af lífiu
VINIR íranans Hassan hér á
landi hafa látið Morgunblaðið fá
yfirlýsingu um málið, eins og það
snýr við þeim. Það er að ósk
Hassan sjálfs sem dulnefni er
notað, því hann óttast um afdrif
fjölskyldu sinnar í íran að öðrum
kosti.
Yfírlýsing vina hans er á þessa
leið: „Hassan yrði tekinn af lífi ef
hann færi aftur til Iran. Hann óskar
aðeins eftir því að fá að dveljast á
Islandi þar til hann fær leyfí til að
fara til ættingja sinna í Banda-
ríkjunum.
Útlendingaeftirlitið ákvað að
Hassan skyldi sendur úr landi og
er þar líklega um að kenna skorti
á lagalegri aðstoð, tungumálaerfið-
leikum hans og því, að upplýsingar
hafa ekki komist til skila. Til allrar
hamingju urðu samtöl við íslenska
embættismenn til þess að mál hans
verður tekið upp aftur.
Nánari könnun á tiltækum upp-
lýsingum og samskipti við þá sem
til þekkja leiða án efa í ljós að lífi
Hassan yrði stefnt í voða ef hann
yrði sendur úr landi. Hassan hefur
setið í haldi í Iran vegna pólitískra
skoðana sinna og nokkrir vina hans
hafa verið teknir af lífi. Þegar hann
dvaldist í Tyrklandi var hann eitt
sinn nærri því að vera sendur aftur
til íran.“
Bíla-happdrætti HSÍ:
Vinningiim fjölgað um 20
Kjartans J. Jóhanns-
sonar minnst á Alþingi
HELGI Seljan, varaforseti sam-
einaðs þings, flutti eftirfarandi
minningarorð um Kjartan J. Jó-
hannsson, lækni og fyrrverandi
alþingismann, á Alþingi í gær.
Kjartan andaðist á sjúkrahúsi í
Reykjavík miðvikudaginn 7. jan-
úar, tæplega áttræður að aldri.
„Kjartan J. Jóhannsson var
fæddur 19. apríl 1907. Foreldrar
hans voru hjónin Jóhann Ármann
úrsmiður Jónasson bónda í
Drangshlíð undir Eyjafjöllum Kjart-
anssonar og Ólöf Jónsdóttir bónda
á Álftanesi á Mýrum Oddssonar.
Hann lauk stúdentsprófí frá
Menntaskólanum í Reykjavík vorið
1925 og læknisfræðiprófi frá Há-
skóla íslands 1931. Síðar á árinu
1931 var hann fimm mánuði við
framhaldsnám í sjúkrahúsi í Niirn-
berg í Þýskalandi. Á starfsferli
sínum eftir það fór hann margar
náms- og kynnisferðir til sjúkra-
húsa erlendis og kynnti sér í flestum
ferðum einkum handlækningar og
svæfingar, en einnig barnávemdar-
og áfengismál. Árið 1978 var hann
. viðurkenndur sérfræðingur í heimil-
islækningnum. Á árunum 1931—
1932 gegndi hann um stundarsakir
héraðslæknisstörfum í Seyðisfjarð-
arhéraði, Blönduóshéraði og loks í
Stykkishólmshéraði. Haustið 1932
settist hann að á Isafirði sem starf-
andi læknir og var jafnframt
aðstoðarlæknir við sjúkrahúsið þar
og staðgengill héraðs- og sjúkra-
húslæknis 5 fjarvistum hans.
Sjúkrahúslæknir var hann 1942—
1946 og nokkra mánuði á árinu
1954, meðan beðið var eftir nýjum
sjúkrahúslækni. Vorið 1963 var
hann skipaður héraðslæknir í Kópa-
vogshéraði en lét af því embætti í
febrúar 1978 fyrir aldurs sakir.
Eftir það var hann yfirlæknir
sjúkrahótels Rauða kross íslands í
Reykjavík.
Kjartan J. Jóhannsson lagði víða
Kjartan J. Jóhannsson
lið í félagsmálum og frarnkvæmdum
á starfsárum sínum á ísafirði og
síðar hér syðra. Hann var formaður
nefndar, sem sá um uppbyggingu
sundhallar á ísafirði 1944—1945,
formaður Skíðafélags ísafjarðar, í
stjóm Skógræktarfélags ísafjarðar,
formaður Læknafélags Vestijarða
og ísafjarðardeildar Rauða krossins
og síðar í stjóm Rauða kross ís-
lands. Hann var í stjóm útgerðarfé-
laga og rækjuverksmiðju á ísafirði.
í bæjarstjórn ísafjarðar átti hann
sæti 1950—1958. Umdæmisstjóri
Rótarý-klúbbanna á íslandi var
hann 1951—1952. Á Alþingi átti
hann fyrst sæti í nóvember og des-
ember 1946 sem landskjörinn
varaþingmaður Sjálfstæðisflokks-
ins. Alþingismaður Isafjarðarkjör-
dæmis Var hann 1953—1959 og
Vestfjarðakjördæmis 1959—1963,
sat á 12 þingum alls. I trygginga-
ráði átti hann sæti 1953—1971 og
í áfengisvamaráði frá stofnun þess
1954 til 1978. Árið 1954 var hann
Iqörinn í milliþinganefnd í heilbrigð-
ismálum en var leystur frá störfum
í nefndinni að eigin ósk. Sama ár
var hann kosinn í nefnd til að endur-
skoða lög um almannatryggingar.
í stjórn atvinnuleysistryggingasjóðs
var hann 1956—1963. I maí 1959
var hann kjörinn í milliþinganefnd
til að athuga á hvem hátt unnt
væri að búa öldmðu fólki skilyrði
til að nota starfsorku sína og árið
1966 í nefnd til að stjóma fram-
kvæmd breytingar frá vinstri til
hægri umferðar. Formaður Geð-
verndarfélags íslands var hann
1966—1975 og formaður Félags
íslenskra bifreiðaeigenda 1971—
1974 og síðar heiðursfélagi þess.
Kjartan J. Jóhannsson lauk lækn-
isfræðiprófi tæplega hálfþrítugur
og starfaði við lækningar og líknar-
mál ævilangt upp frá því. í þeim
störfum sínum ávann hann sér hylli
á heimaslóðum sínum með ljúf-
mennsku, samviskusemi og ósér-.#
hlífni. Hann var ötull starfsmaður,
vel íþróttum búinn, viðbragðsfljótur
og félagslyndur. Vegna þessara og
annarra mannkosta hlóðust á hann
margvísleg störf á öðram sviðum.
Á Alþingi sinnti hann mest heil-
brigðismálum og framfaramálum
kjördæmis síns. Mörg áranna á
þingi átti hann sæti í fjárveitinga-
nefnd og var formaður hennar á
tveimur síðustu þingunum. Hann
átti framkvæði að lögum um bann
við hnefaleikum, sem vora sam-
þykkt árið 1956. Hann bar fram á
Alþingi tillögu um hægri umferð
og átti síðan þátt í farsælli fram-
kvæmd laga um það efni. Hann var
tillögugóður og samstarfsfús og
lauk miklu ævistarfi á löngum ferli.
Ég vil biðja háttvirta alþingis-
menn að minnast Kjartans J.
Jóhannssonar með því að rísa úr
sætum.“