Morgunblaðið - 15.01.1987, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 15.01.1987, Blaðsíða 60
i^TERKT KDRT *f$titt(Igifetí>' Wterkurog kJ hagkvæmur auglýsingamiðill! FIMMTUDAGUR 15. JANUAR 1987 VERÐ I LAUSASOLU 50 KR. Fríhöfnin á Keflavíkurflugvelli: Hagnaður um 180 milljónir 4 fyrra Afkoma fyrirtækisins aldrei betri en á sl. ári REKSTUR Fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli gekk ein- staklega vel á siðastliðnu ári, en þá velti fyrirtækið um 13,6 millj- ónum doliara, sem samsvarar liðlega 560 milljónum islenskra króna og varð hagnaður af rekstrinum um 180 milljónir króna, samkvæmt upplýsingum Guðmundar Karls Jónssonar, forstjóra Fríhafnarinnar. Guðmundur Karl sagði í samtali við Morgunblaðið að afkoma fyrir- *>.ækisins hefði aldrei verið betri en á liðnu ári. Hann sagði að skil í ríkissjóð af hagnaði af rekstrinum hefðu verið 165 milljónir króna. Guðmundur sagðist þakka þessa bættu aíkomu auknum farþega- fjölda um flugvöllinn, svo og hagstæðri farþegaskiptingu, en ís- lendingar hefðu verið í miklum meirihluta. Þeir versluðu ávallt mun meira en útlendingar. JÖankastjórar Útvegsbankans: Hörð gagnrýni á skýrsluna BANKASTJÓRAR Útvegsbank- ans telja að misskilningur, mótsagnir og villandi og rangar ályktanir einkenni skýrslu um viðskipti bankans við Hafskip, sem birt var i nóvember á síðasta ári. Þetta kemur fram í ýtarleg- um athugasemdum við skýrsl- una, sem bankastjórarnir hafa sent viðskiptaráðherra og bank- "■Lráði Útvegsbankans. Skýrslan, sem bankastjóramir gagnrýna, var samin af þriggja manna nefnd, er Hæstiréttur til- nefndi í samræmi við lög frá Alþingi í desember 1985. I henni er Qallað á mjög gagnrýnin hátt um viðskipti Útvegsbankans og Hafskips. Sjá nánar á bls. 24. Mikið fuglalíf á Tjörninni Morgunblaðið/Ámi Sæberg MIKIÐ fuglalíf er nú á Tjörninni í Reykjavík og hefur fuglum þar fjölgað undanfarin þijú til fjögur ár miðað við það sem áður var. Ævar Pedersen fuglafræðingur sagði að álíka fuglafjöldi væri nú á Tjörninni og í fyrra. Um það bil hundrað álftir hafa haft hér vetur- setu undanfama tvo vetur á meðan aðrar álftir fljúga til Bretlands á haustin. Stokkendur em hér á bilinu 500 til 1.000 talsins og em þær mikið á ferðinni á milli Tjamarinnar, Skerjafjarðar og jafnvel halda þær út á sjó er Tjömina leggur. Grágæsir em hér á bilinu hundrað til tvö hundmð talsins og em fuglamir líklega þeir sömu og hér vom sl. vetur, að sögn Ævars. Staðan í kjaradeilu fiskimanna og útgerðar á miðnætti: Líkur voru á að sam- komulag næðist í nótt SAMKOMULAG hafði ekki tek- ist í sjómannadeilunni um miðnætti í nótt, en viðræðum miðaði vel áfram í gær og bjart- Brottrekstur fræðslustjóra Norðurlands eystra: Norðlendingar líta enn á Sturlu sem fræðslusljóra Skólamenn hvelja til niðurfellingar kennslu á morgun VIÐBROGÐ norðlenskra skólamanna við brottrekstri Sturlu Krist- jánssonar, fræðslustjóra Norðurlandsumdæmis eystra, eru mjög harkaleg og eindregin. Fræðsluráð hefur ályktað að menntamála- ráðuneytið geti ekki mælt fyrir um verkefni fræðsluskrifstofunnar nyrðra án atbeina fræðsluráðsins. Líta því Norðlendingar enn á Sturlu sem fræðslustjóra. Á fjölmennum fundi skólastjóra, -^fíirkennara og stjómar Bandalags kennara í kjördæminu síðdegis í gær var samþykkt samhljóða harð- orð ályktun með beiðni til forsætis- ráðherra um að hann afturkallaði uppsögnina. Þá Iýsti fundurinn yfir stuðningi við ákvarðanir fræðslu- ráðs frá því fyrr í gær þess efnis að hundsa bréf ráðuneytisins um — Yjýja skipan á yfirstjóm fræðslu- skrifstofunnar. Auk þess skorar fundurinn á skólamenn að sýna samstöðu um að fella niður kennslu á morgun, föstudag, og nota tímann til að ræða stöðu mála. Niðurlag ályktunarinnar en „Við munum áfram líta á Sturlu Kristjánsson sem fræðslustjóra á Norðurlandi eystra." í samtali við blaðamann Morgun- blaðsins í gærkvöldi sagði einn skólastjóranna á Norðurlandi eystra, að þeir túlkuðu þessar að- gerðir menntamálaráðherra sem svar hans við ósk þeirra um viðræð- ur og höguðu sínum viðbrögðum í samræmi við það. Af hálfu ráðuneytisins var farið fram á það við Úlfar Bjömsson, skrifstofustjóra fræðsluskrifstof- unnar, að hann tæki að sér störf fræðslustjóra um tíma, þar til ráðið verði í starfið. Með skeyti til ráðu- neytisins hafnaði Úlfar þessari ósk. Telur hann það mál fræðsluráðs Norðurlands eystra að ráðstafa sínu starfí. Sjá nánar bls. 34-35. sýni ríkti um að samkomulag næðist í nótt. Fyrir miðnættið lá fyrir óformlegt samkomulag um stærstu málin, hlutfall afla til skipta við sölu afla heima og erlendis úr gámum, en það verður að öllum líkindum 75 til 76%. Steingrímur Hermanns- son, forsætisráðherra, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær- kveldi, að slitnaði upp úr viðræðum á ný, myndi hann þegar óska eftir að Alþingi yrði kallað saman til að taka málið fyrir. Samningafundur hófst klukkan 11 árdegis og stóð enn er komið var fram yfir mið- nætti. „Þessu hefur skilað jafnt og þétt áfram í dag, en það er dálít- ið eftir ennþá,“ sagði Guðlaugur Þorvaldsson, ríkissáttasemjari, er Morgunblaðið náði sambandi við hann skömmu fyrir miðnættið. „Það er ekki búið að ganga frá stærsta málinu formlega, en það er eiginlega búið að ganga frá öllu öðru. Það sýndi sig að mikið var ófrágengið, þegar viðræður hófust að nýju. Eg vona að það gangi saman í nótt og á bágt með að trúa að það slitni upp úr við- ræðum úr þessu, en maður veit aldrei hver framvindan verður," sagði Guðlaugur ennfremur. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins var óformlegt sam- komulag komið fyrir miðnættið um þann hluta afla, sem kemur til skipta, bæði við sölu hans heima og við sölu úr gámum er- lendis. Þó voru ýmis atriði varð- andi þetta ófrágengin. Ekki fengust upplýsingar um það hve mikill hluti aflans skyldi koma til skipta, en það munu vera nálægt 75 til 76%. Það mun vera frágengið af hálfu Farmanna- og fískimanna- sambandsins og Sjómannasam- bandsins, að kosið verði um samningana þannig að heildamið- urstaða ráði úrslitum, en ekki atkvæðagreiðsla innan einstakra félaga. Verkfalli verður ekki af- lýst fyrr en að lokinni atkvæða- greiðslu, verði samkomulagið samþykkt. Fundað var óformlega um deilu undirmanna á farskipum og kaup- skipaútgerðarinnar í gær og búist við að formlegur fundur yrði boð- aður í dag. Sjá ennfremur forystugrein, frétt á bls. 2 og viðtöl á bls. 32.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.