Morgunblaðið - 15.01.1987, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 15.01.1987, Blaðsíða 54
54 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 1987 Ást er ... ... að fínna að fátt. er svo með öllu illt að eigi boði nokkuð gott TM R«g. U.S. Pat. Off — all rlghts reserved 01986 Los Angetes Times Syndícate Úr því þú getur búið til músarholu, hlýt ég að geta búið til flugnagat? Guð er eins og Bibl- ían segir hann vera Svar við hugvekju Einars J. Gíslasonar þ. 23.11.86. Guð er ekki eins og mennirnir vilja hafa hann. Hann er eins og Biblían segir frá. Og þar stendur allur sannleikurinn, og ekki bara hálf- ur eins og prestamir segja frá. Þeir velja gjarnan þann hluta sem þeim líst best á og sleppa öllu hinu. í III. Mósebók 26:1-45 stend- ur t.d.: „Blessun eða bölvun. Þér skuluð eigi gjöra yður falsguði, né heldur reisa yður skurðgoð, til þess að tilbiðja hjá þeim, því að ég er Drottinn, Guð yðar. Mina hvíldardaga skuluð þér halda og fyrir mínum helgidómi lotningu bera; ég er Drottinn. Ef þér breytið eftir mínum setn- ingum og varðveitið mínar skipanir og haldið þær, þá skal ég jafnan senda yður regn á réttum tíma og landið mun gefa ávöxt sinn og trén á mörkinni bera aldin sín. Skal þá ná saman hjá yður þresking og vínbeija- tekja, og sáning; og þér skuluð eta yður sadda af brauði og búa öruggir á landi yðar. Og ég vil gefa frið í landinu, og þér skuluð leggjast til hvíldar og enginn skal hræða yðar; óarga„dýrum“ vil ég eyða úr landinu og sverð skal ekki fara um land yðar. Og ég vil snúa mér til yðar og gjöra yður frjósama og marg- falda yður, og ég vil gjöra sáttmála minn við yður. Og ég mun reisa búð mína meðal yðar og sál mín skal ekki hafa óbeit á yður. Og ég mun ganga meðal yðar og vera Guð yðar, ojg- þér skuluð vera mín þjóð. Eg er Drottinn, Guð yðar, sem íeiddi yður út af Egyptalandi, til þess aö þér væruð eigi þrælar þeirra. En ef þér hlýðið mér ekki og haldið ekki allar þessar skipanir, og ef þér hafnið setningum mínum og sál yðar hefir óbeit á dómum mínum, svo að þér hald- ið ekki allar skipanir mínar, en rjúfið sáttmála minn, þá vil ég gjöra yður þetta: Ég vil vitja yðar með skelfingu, tæringu og köldu, svo að augun slokna og lífíð fjarar út. Og þér skuluð sá sæði yðar til einskis, því að óvin- ir yðar skulu eta það. Og ég vil snúa augliti mínu gegn yður og þér skuluð bíða ósigur fyrir óvin- um yðar; og íjandmenn yðar skulu bíða ósigur fyrir óvinum yðar; og fjandmenn yðar skulu drottna yfir yðar og þér skuluð flýja, þótt enginn elti yður. En ef þér viljið enn ekki hlýða mér, þá vil ég enn refsa yður sjö sinn- um fyrir syndir yðar. Og ég vill bijóta ofurdramb yðar, og ég vill gjöra himininn yfir yðaur sem járn og land yðar sem eir. Þá mun kraftur yðar eyðast til ónýtis; land yðar skal eigi gefa ávöxt sinn og trén á jörðunni eigi bera aldin sín. Og ef þér gangið í gegn mér og viljið ekki hlýða mér, þá vill ég enn slá yður sjö sinnum, eins og syndir yðar eru til. Og ég vill hleypa dýrum merkurinnar inn á meðal yðar og þau skulu gjöra yður barnlausa, drepa fénað yðar og gjöra yður fámenna, og vegir yðar skulu verða auðir. Og ef þér skipist ekki við þessa tyftun mína, heldur gangið í gegn mér, þá vill ég einnig ganga gegn yður. Og ég vill láta sverð koma yfir yður, er hefna skal sáttmál- ans; munuð þér þá þyrpast inn í borgir yðar, en ég vill senda drepsótt meðal yðar og þér skul- uð seldir í óvina hendur.“ Og svo áfram í þessum dúr. Guð er fyrst og fremst rétt- látur Guð. í sálm. 9:8-9 segir: „Drottinn ríki að eilífu, hann hefir reist hásæti sitt til dóms. Hann dæmir heiminn með rétt- vísi, heldur réttlátan dóm yfir þjóðunum.“ í sálm. 21:9-11 seg- ir: „Hönd þín nær til allra óvina þinna, hægri hönd þín nær til allra hatursmanna þinna. Þú gjörir þá sem glóandi ofn, er þú lítur á þá, Drottinn; hann tortím- ir þeim í reiði sinni og eldurinn eyðir þeim. Ávöxtu þeirra af- máir þú af jörðinni og afkvæmi þeirra úr mannheimi." Sálm. 25:8-10 „Góður og réttlátur er Drottinn, þess vegna vísar hann syndurum veginn. Hann lætur hina voluðu ganga eftir réttlætinu og kennir hinum vol- uðu veg sinn. Allir vegir Drottins eru elska og trúfesti fyrir þá, er gæta sáttmála hans og vitnis- burða. En auglit Drottins horfir á þá, er illa breyta, til þess að afmá minningu þeirra af jörð- unni,“ 34:17 (Opinberun 20:15) Sálm. 58:4: „Ogurlegir eru frá móðurlífi viknir af leið, lygarar fara villir vegar frá móður- skauti!“ Sálm. 64:11 „En hinn réttláti mun gleðjast yfír Drottni og leita hælis hjá honum, og allir hjartahreinir munu sigri hrósa.“ í Malaki 3:6 stendur: „Ég, Drottinn, hefi ekki breytt mér.“ í Jes. 45:7 „Ég er Drott- inn sem tilbý ljósið og framleiði myrkrið, sem veiti heill og veld óhamingju — ég, Drottinn, gjöri allt þetta.“ í Malaki 4:5-6: „Sjá, ég sendi yður Elías spámann áður en hinn mikli og ógurlegi dagur Drottins kemur. Hann mun sætta feður við sonu og sonu við feður, til þess að ég komi ekki og Ijósti jörðina banni." Og í Jesaja 66:15-16 stendur: „Því sjá, Drottinn kemur í eldi, og vagnar hans eru sem vind- bylur, til þess að gjalda reiði sína í heift og hótun sína í elds- logum. Þvi að Drottinn mun dóm heyja með eldi, og með sverði sínu yfir öllu holdi, og þeir munu margir verða, er Drottinn fellir. Sjá einnig Jesaja 26:21 og 13:6-13. Já, Drottinn vor er réttlátur Guð. Margrét Helgadóttir HÖGISTI HREKKVÍSI l~-JbULj „H/4NN L/ETUJ? M'G VITA EFHANN VERÐUK SVAMGUF?. “ Yíkrerji skrifar Víkveiji sótti á dögunum tón- leika sem haldnir voru í Gerðubergi, menningarmiðstöðinni í Breiðholti. Leið hans hafði ekki áður legið í þessa byggingu enda nokkuð úr leið fyrir íbúa í vest- urbæ. En það er óhætt að óska Breiðhyltingum til hamningju með þessa miðstöð menningar og tóm- stunda. Víkveiji komst að raun um að þarna var að finna prýðilegan sal fyrir smærri tónleika, eins og um var að ræða í þessu tilfelli, og allar vistarverur hinar vistlegustu að öðru leyti. Reyndar saknaði Víkveiji þess að bókasafnið skyldi ekki vera opið og því bæði hann og ýmsir fleiri tónleikagestir höfðu hug á að nota tækifærið til að skoða safnið. Hlýtur því að vera um- hugsunarefni fyrir forráðamenn útibús Borgarbókasafnsins þarna í Gerðuberginu hvort ekki eigi að hafa safnið opið á kvöldin, eða amk. þau kvöld þegar einhveijir list- viðburðir eru á ferðinni, þar sem búast má við einhveijum mannsöfn- uði og ætla má að þar innan um séu einhveijir borgarbúar sem ekki gera sér að öllu jöfnu ferð í þessa myndarlegu menningarmiðstöð þarna efra. XXX Oft er kvartað undan barnaefni í sjónvarpi. Nýja sjónvarps- stöðin, Stöð 2, hefur tekið þá stefnu að vanda nokkuð til bamaefnis sem þar er á dagskrá, þó að e.t.v. megi kvarta undan því að það sé meira og minna allt úr sömu áttinni. En alltént er það kærkomin viðbóta við það efni fyrir börn, sem löngum hefur verið að finna á dagskrá ríkis- sjónvarpsins, sem segjast verður eins og er að hefur verið í býsna föstum skorðum um langt skeið. Það verður að teljast skynsamleg stefna hjá nýju sjónvarpsstöðinni að leggja rækt við barnaefni, því að líklega er það efni ásamt kvik- myndunum, best fallið til að draga að sér áhorfendur og gefur mörgum fjölskyldum tilefni til að réttlæta fjárfestingu í lykilabúnaði og áskrif að nýju stöðinni. Á sama tíma hlýt- ur að vera orðið tímabært fyrir ríkissjónvarpið að skoða sinn gang í dagskrárefni fyrir böm. XXX að er alltaf ánægjulegt þegar stjómmálamenn em sjálfum sér samkvæmir og fylgja sannfær- ingu sinni. Hínn óvæntu viðbrögð Þorsteins Pálssonar, fjármálaráð- herra, gegn fyrirhugaðri lagasetn- ingu í kjaradeilu sjómanna og farmanna, hafa eðlilega vakið mikla athygli, enda sjaldgæft að ráðherra rísi gegn áformum ríkisstjómar með þessum hætti. En Þorsteinn hefur allt frá því að hann sat í Vinnuveitendasambandinu verið eindreginn talsmaður fijálsra samninga — án afskipta ríkisvalds- ins, sem leiða má rök fyrir að hafí verið íhlutunarsöm um of í þessum málum á liðnum ámm. En Þorsteinn er þannig trúr sannfæringu sinni og sýnir umtalsvert pólitískt hug- rekki. Vonandi munu deiluaðilar virða það við hann.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.