Morgunblaðið - 15.01.1987, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 1987
15
hugmyndir sínar um enn eitt náms-
lánakerfið, sem ekki líkist neinu af
því sem rætt hafði verið um. Finnur
Ingólfsson hefur haldið því fram
opinberlega að hann hafi með til-
lögugerð sinni, er hann kynnti á
fundi með SÍNE rétt eftir áramótin,
verið að forða námsmönnum frá
aðför sjálfstæðismanna með Sverri
ráðherra í broddi fylkingar. Þetta
er heldur meira en tekið verður með
þögninni einni. Það sem Finnur
gerði var þetta: 1. Hann hugðist
reyna að koma því á okkur sjálf-
stæðismennina í samráðsnefndinni
að við hefðum lagt grundvöllinn að
þeim tillögum sem nefndin sendi frá
sér. Þetta eru bein ósannindi eins
og glöggt má sjá hér að framan.
Þakið og umframlán á markaðs-
vöxtum voru og eru hans einkaupp-
fynding. Okkar hugmyndir að lausn
vandans voru allt aðrar, en notast
mátti við tillögu Finns sem mála-
miðlun. 2. Finnur var búinn að
skrifa undir tillögur í tvígang með
öðrum samráðsnefndarmönnum.
Með tillögum sínum á SÍNE-fundin-
um reyndi hann að koma sér og
sínum flokki hjá því að standa við
undirskrift sína. Sjálfur orðar hann
þetta svo: „Að ég skuli hafa verið
tilbúinn til að sýna tilslökun í samn-
ingum við námsmenn með því að
hverfa frá tillögum sem ég hafði
'áður stutt og styðja frekar tillög-
ur . . . “ Finnur er sem sé þeirrar
skoðunar að eðlilegt sé að það fari
eftir hentugleikum hvenær halda
beri gerða samninga. Ég held að
vinnubrögðin sem Finnur lýsir svo
sjálfur teljist sem betur fer eins-
dæmi í íslenskri stjómmálasögu og
ég leyfi mér hér að fordæma þau
harðlega. Það er að athuga að Finn-
ur Ingólfsson var auðvitað ekki í
persónulegum erindum við störf í
samráðsnefndinni heldur var hann
að vinna í samráðsnefndinni sem
fulltrúi samstarfsflokks okkar í
ríkisstjóm sem gerði framferði hans
allt stórum alvarlegra. Ég hef heyrt
raddir sem mæla þessari háttsemi
Finns bót. Um þær vil ég segja
þetta: Heimur versnandi fer.
Hvað gerist?
Hætt er við því að frumhlaup
Finns hafi sett málið í verri stöðu
en það var fyrir. Það er skoðun
mín að lagafrumvarp það er sam-
ráðsnefndin skilaði af sér í desem-
ber bytjun hafí verið nothæft til að
tryggja hagsmuni námsmanna og
Lánsjóðsins, þótt þau meginatriði
sem það byggir á séu mun síðri en
þau sem menntamálaráðherrann
kynnti þinginu í apríl 1986. Senni-
legt er að álitlegra hefði verið að
semja við alþýðuflokkinn um málið.
Nú er um tvennt að ræða að mínu
viti, annað hvort að leggja strax
fram frumvarp af hálfu ríkisstjóm-
arinnar, sem í öllum megindráttum
yrði byggt á síðari tillögu samráðs-
nefndarinnar, eða að gefa yfírlýs-
ingu af hálfu ríkisstjómarinnar að
ekki hafí náðst samstaða um málið
og ekkert verði því af lagasetningu
í bráð.
Höfundur er lögmaður og hefur
starfað að endurskoðun laga um
námslán og námsstyrki.
Guðmann Þorvaldsson meðlimur Ellismella, til vinstri, afhendir
Bjama Stefánssyni bæjarstjóra söfnunarféð.
Afkomendur heiðurs-
borgara safna fé
Eskifirði.
NÝLEGA komu til fundar við
bæjarstjórann á Eskifirði nokkr-
ir meðlimir hljómsveitarinnar
Ellismella og afhentu fé, er þeir
höfðu safnað til styrktar félags-
starfi aldraðra á Eskifirði, að
upphæð rúmlega 132 þúsund
krónur.
Það var á sl. hausti að það komu
saman nokkrir afkomendur Friðriks
Árnasonar, stofnuðu hljómsveit og
slógu upp balli, þar sem gömlu
góðu lögin voru sungin og leikin
fyrir fullu húsi. Tilefnið var 200 ára
afmæli Eskifjarðarbæjar og 90 ára
afmæli Friðriks Árnasonar, fyrrver-
andi hreppsstjóra og fyrsta heiðurs-
borgara á Eskifirði. Og árangurinn
sýndi sig nú á dögunum þegar hluti
hljómsveitarmanna afhenti bæjar-
stjóranum rúmlega 132 þúsund
krónur er veija skyldi til kaupa á
ýmsum föndur- og tómstundavör-
um og öðru því er verða mætti til
að efla félagsstarf aldraðra í bæn-
um.
- Ingólfur
GREIDENDUR
Á bakhlið launamiðans eru prentaðar
leiðbeiningar um útfyllingu einstakra
reita launamiðans. Þar kemur m.a.
fram að í reit 02 á launamiða skuli telja
fram allar tegundir launa eða þóknana
sem launþegi fær, ásamt starfstengdum
greiðslum svo sem:
1. verkfærapeninga eða verkfæra-
gjald,
2. fatapeninga,
3. flutningspeninga og greiðslu far-
gjalda milli heimilis og vinnu-
staðar.
Greidda fæðispeninga skal telja fram í
reit 29 ásamt upplýsingum um vinnu-
dagafjölda viðkomandi launþega.
Frestur til að skila launamiðum rennur
út þann 20. janúar. Það eru tilmæli
að þér ritið allar upplýsingar rétt
og greinilega á miðana og vandið
frágang þeirra.
RÍKISSKATTSTJÓRI
HRINGDU
og fáðu áskriftargjöld-
in skuldfærð á________
greiðslukortareikning
þinn mánaðarlega.
SÍMINN ER
691140 691141
CHEVROLET MONZA
1987 árgerðirnar eru komnar — Beinskiptir — Sjálfskiptir — Aflstýri — 4ra og 3ja dyra s
— Framhjóladrifinn — Þægilegur — Öruggur — Sparneytinn
Verð: 453.000 3ja dyra beinskiptur
Verð: 460.000 4ra dyra beinskiptur,
514.000 4ra dyra sjálfskiptur.
507.000 3ja dyra sjálfskiptur
miwutrí
HOFÐABAKKA 9 5IMI 687300
Y' 11 :
L" * ."JB - * - m- “j