Morgunblaðið - 15.01.1987, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 1987
25
Yfirlýsing frá framkvæmdaráði Slysavarnafélags íslands:
Landhelgisgæslan
ákvað sjálf að láta
TF SÝN bíða morguns
í FRÉTTAFLUTNINGI um ágrein-
ing milli Slysavarnafélags íslands
og Landhelgisgæslunnar um stað-
setningu sjóbjörgunarstjómstöðvar
hefur þess sums staðar gætt, að
menn hafi talið að leitar- og björg-
unaraðgerðir vegna Suðurlands-
slyssins 24. og 25. desember sl.
hafi á einhvern hátt liðið fyrir þenn-
an ágreining. Sérstaklega tengdu
starfsmaður Landhelgisgæslunnar
og læknir úr þyrlusveit hennar þessi
mál á óviðeigandi og ábyrgðar-
lausan hátt í viðtali í fréttatíma
ríkissjónvarpsins laugardaginn 10.
þ.m. Fréttastofa sjónvarpsins end-
urtók svo fullyrðingar úr þessum
viðtölum í fréttatíma sl. mánudag
án þess að geta í nokkru sjónar-
miða SVFÍ, sem höfðu rækilega
verið kynnt fréttamönnum og sérs-
taklega beðið um að þau kæmu
fram.
Við aðgerðir á aðfangadagskvöld
og jólanótt vegna Suðurlandsslyss-
ins voru höfð í huga sömu sjónarmið
og jafnan hafa gilt í björgunarmið-
stöð SVFI við leitar- og björgunar-
aðgerðir, þ.e. að kallaðir yrðu til
þeir aðilar, sem líklegastir væru til
að geta á sem skemmstum tíma
fundið og bjargað áhöfn skipsins. I
þessu tilviki var um að ræða leit
að gúmbát í ólgusjó og myrkri úti
á reginhafi, en reynslan hefur sýnt,
að ef neyðarsendir bátsins bregst,
getur reynst afar erfitt að finna
hann við slíkar aðstæður. Þess
vegna var fyrst leitað til aðila, sem
vitað var að hefðu yfir að ráða flug-
vélum með fullkomnum leitarbún-
aði, sérstaklega leitartæki er
skynjar innrauða hitageisla og get-
ur því fundið menn jafnt í sjó sem
í bátum og hafa þar af leiðandi
mikla yfirburði við leit miðað t.d.
við TF SÝN, flugvél Landhelgis-
gæslunnar. Félagið hafði vitneskju
um slíkar flugvélar á Keflavíkur-
flugvelli og í Skotlandi. I þessum
vélum er einnig búnaður til að kasta
til manna í neyð, m.a. gúmbátar.
Jafnframt var hugað að mögu-
leikum til þyrluflugs, en vegna
fjarlægðar frá landi var ljóst, að
eldsneytisvél þyrfti að vera með í
slíku flugi. Þess vegna kom þyrla
Landhelgisgæslunnar ekki til álita
hér þar sem hún getur ekki tekið
eldsneyti á flugi. Þessir möguleikar
voru kannaðii- á Keflavíkurflugvelli,
í Noregi og Skotlandi. Þá var haft
samband við björgunarstiórnstöð-
ina í Þórshöfn í Færeyjum, sem
kallaði þegar út dönsku freigátuna
Vædderen, sem reyndist happa-
dijúgt.
í framhaldi þessa eða kl. 00.07
var haft samband við Landhelgis-
gæsluna en ofangreindar aðgerðir
höfðu hafist upp úr kl. 23.20. Var
hafist handa við að hafa TF SYN
tilbúna til flugs og kom þá m.a. í
ljós, að í hana vantaði búnað til að
kasta niður til manna í neyð og að
beiðni Landhelgisgæslunnar fékk
SVFI opnaða verslun með slíkan
búnað og sendi félagið starfsmann
sinn til að sækja hann og koma
honum á flugbækistöð Landhelgis-
gæslunnar. Einhver bilun kom
einnig í ljós í vélinni. Það var hins
vegar sjálfstæð ákvörðun stjórn-
stöðvar Landhelgisgæslunnar
um kl. 02.30, sem borin var und-
ir aðra, sem stóðu að leitinni,
þ.e. stjórnstöðina á Keflavíkur-
flugvelli og stjórnstöð SVFÍ, að
rétt væri að láta flugvélina bíða
til morguns til að leysa hinar
vélarnar af. Deildarstjóri SVFÍ
taldi þetta rétta ákvörðun.
Nimrod-þotan frá Skotlandi og
Orion-vélin frá Keflavíkurflugvelli
Björgunarsveitarmenn að störfum.
komu á umrætt svæði um kl. 04.00.
Kl. 04.18 tilkynnti Nimrod-þotan
að gúmbátur væri fundinn, en báts-
veijar kveiktu á blysi, er þeir heyrðu
í vélunum.
Það eru stjórnendur leitarflug-
véla í tilvikum sem þessum, sem
ákveða hvað réttast sé að gera á
vettvangi, en rétt er að taka fram,
að áhafnir Nimrod-þotanna eru
þrautþjálfaðar til leitar- ogbjörgun-
arstarfa. Stjórnendur flugvélanna
mátu aðstæður þannig í þetta sinn,
að ekki væri rétt að kasta niður
bát. Bát var hins vegar kastað nið-
ur síðar um morguninn eftir að birti.
Engin ástæða er til að ætla, m.a.
í ljósi fyrri reynslu, að þótt TF SÝN
hefði ásamt hinum tveimur vélunum
komið á vettvang um nóttina, hefði
áhöfn hennar þá varpað niður bát
fremur en áhafnir hinna vélanna.
Nærvera þriðju flugvélarinnar í lág-
flugi hefði og^ leitt til aukinnar
slysahættu. Akvörðun sljórn-
stöðvar Landhelgisgæslunnar
var því tvímælalaust eðlileg mið-
að við allar aðstæður.
Fullyrðingar í fjölmiðlum eftir á
um hugsanleg önnur viðbrögð
áhafnar TF SÝNar en viðbrögð
þeirra áhafna, sem voru á staðnum,
verða að teljast getgátur og bolla-
leggingar út frá staðreyndum, sem
nú liggja fyrir, en voru mönnum á
vettvangi ekki ljósar.
Þess má geta hér, að af hálfu
Landhelgisgæslunnar hafði verið
boðaður fundur 6. janúar með þeim
aðilum hér á landi, sem unnu að
umræddum leitar- og björgunarað-
gerðum, til að ræða um framkvæmd
aðgerða. Að ósk Landhelgisgæsl-
unnar var fundinum frestað til 12.
janúar, en tveimur dögum áður kom
hins vegar einn þeirra, sem ásamt
fleirum átti að sitja fundinn fyrir
hennar hönd, fram í sjónvarpi með
ásakanir og fullyrðingar, sem hér
hefur verið vikið að.
Umræður um slys og björgunar-
aðgerðir eftir á eru nauðsynlegar
og gagnlegar til þess að læra af
og hagnýta í framtíðinni til að auka
öryggi og stuðla að björgun manns-
lífa. Ýmsa lærdóma má þannig
draga af slysunum um jólin og
hljóta þau mál að verða rædd. Mikil-
vægt er hins vegar að sú umræða
verði málefnaleg og öfgalaus. Æsi-
fregnir með ásökunum og órök-
studdum fullyrðingum um
björgunarmál í ólestri, sem ákveðn-
ir aðilar hafa dreift að undanförnu
varðandi þessi mál, að því er virðist
til að afla málstað sínum í öðru
máli stuðnings, eru hins vegar eng-
um til góðs.
Fyrstu orgeltónleikarnir
í Hallgrímskirkju
FYRSTU orgeltónleikarnir í
Hallgrímskirkju verða haldnir
n.k. sunnudag kl. 20.30. Hörður
Askelsson, organisti kirkjunn-
ar, spilar þá bæði stór og smá
verk eftir Bach, m.a. nokkra
forleiki um jólasálma.
í stuttu samtali sem blaðamað-
ur Morgunblaðsins átti við Hörð
í tilefni tónleikanna, sagði hann
að þessir tónleikar væru ári á eft-
ir áætlun. Fyrirhugað hefði verið
að efna til þeirra á síðasta ári en
þeir eru í röð Baeh tónleika sem
efnt var til í tilefni af 300 ára
afmæli Bachs þá. Aður en Hörður
komst til að halda tónleikana fauk
hann á stéttinni fyrir framan
Hallgrímskirkju í nóvemberóveðr-
inu 1985 og fótbrotnaði.
Að Bach tónleikunum standa
m.a. Félag íslenskra organleikara,
Söngmálastjóri Þjóðkirkjunnar og
Kirkjukórasamband Islands.
Öllurn er heimill ókeypis að-
gangur að þessum fyrstu orgel-
tónleikum í Hallgrímskirkju.
Morgunblaöið/Einar Falur
Hörður Áskelsson, organisti
Hallgrímskirkju, við orgelið.
Hann spilar ýmis verk eftir
Bach á tónleikum n.k. sunnu-
dag.
IÐNTÆKNISTOFNUN
Eftirtalin námskeið verða haldin
á næstunni hjá Iðntæknistofnun:
Raftæknideild:
19.-22. jan. Örtölvutækni III. Vélbúnaður. Inn/út tengingar.
Stjórnvistunar-'og gagnalínur. Minnisrásir, RAM,
ROM og EPROM. Tengirásir8255, 8251 og
8253.40 kennslustundir,
2.-4. feb. Örtölvutækni I. Grunnnámskeið. — Hvernig vinn-
ur 8088-örgjörvinn? Forritun á véla- og smalamáli
(assembler). 30 kennslustundir.
9.-12. feb. Örtölvutækni II. Forritun, framhaldsnámskeið.
Smalamál. Skipanamengi iAPX 8088. Minnis-
skipting (segments). 40 kennslustundir.
Vinnuvélanámskeiðin:
26. jan. Námskeiðfyrir stjórnendur vinnuvéla. Haldið
í húsi VSFK í Keflavík. Hefst mánudaginn 26. jan.
Upplýsingar hjá Vinnueftirlitinu í Keflavík í síma
1002.
Verkstjórnarfræðslan:
19.-22.jan.
26.-29. jan.
2,- 5. feb.
9.-12. feb.
Stjórnun 1. Undirstöðuatriði i stjórnun og mann-
legum samskiptum.
Verkskipulagning. Haldið á Eskifirði. — Undir-
stöðuatriði í skipulagningu verka og áætlanagerð.
Vinnuumhverfismál. — Helstu atriði i vinnulög-
gjöf og bótarétti. Skyldur verkstjóra og ábyrgð.
Oryggismál, brunavarnirog slysavarnir.
Stjórnun 2. Haldið í Borgarnesi. — Undirstöðuat-
riði i verktilsögn. Líkamsbeiting við vinnu. Stjórnun
breytinga og hegðun einstaklinga við vinnu.
Málmtæknideild:
19.-24. jan. Hlífðargassuða. — 1. Ryðfrítt stál. 2. Ál. — Flokk-
un og eiginleikar. Tæring, suðugallar og orsakir.
Aðferðir, tæki, efni.
Rekstrartæknideild:
6,- 7. feb. Stofnun og rekstur fyrirtækja. Haldið á Sauðár-
króki. — Stofnáætlun og frumkvöðull fyrirtaekis.
Viðskiptahugmynd og markaðsmál. Fjármáí, fé-
lagsmál og reglugerðir.Öflunupplýsinga og
reynsla annarra.
Fræðslumiðstöð iðnaðarins:
17. og
19.-27. jan.
26.-30. jan.
26.-31. jan.
26.-30. jan.
3.-5. og
7. feb.
5., 9.,
11., 13.
og 14. feb.
Vökvakerfi I og II. Grunn- og framhaldsnám-
skeið í vökvakerfum, haldin í einni lotu. —
Vökvakedi, frumatriði, einstakir hlutar, efni. Bil-
analeit og viðgerðir. Formúlur.töflurogtákn. —
Ætlað málmiðnaðarmönnum og vélstjórum.
Útveggjaklæðningar. Námskeið unnið af starfs-
mönnum Rannsóknastofnunar byggingariðnaðar-
ins og haldið í samvinnu við hana. —
Veggklæðning og frágangur. Festingar. Loftræst
og óloftræstmúrklæðning.Markaðskönnun,
kostnaður, skoðunarferðir. — Ætlað meisturum
og sveinum í húsasmíði.
Flísalagnir. Haldið hjá Rannsóknastofnun bygg-
ingariðnaðarins, Keldnaholti. — Flísalögn á gólf
og veggi. Skemmdir og viðgerðir. Steinlögn, ter-
rassólögn. Staðlar. Kostnaður. Heilbrigðis-
mál.Skoðunarferðir og kynning á efnum og
áhöldum. — Ætlað starfandi múrurum.
Steypuskemmdir. Haldið hjá Rannsóknastofnun
byggingariðnaðarins. — Eöli skemmda og orsak-
ir. Greining. Undirbúningurviðgerða. Viðgerðirá
sementsbundnum efnum, plastefnum.frost-
skemmdum.alkalískemmdumog á skemmdu
yfirborði. Sprautusteypa Pússning. Fljótandi
steypa. Verk- og efnislýsingai. Áætlanir. — Ætlað
iðnaðarmönnum, verkfræðingum og tæknifræð-
ingum í byggingargreinum.
Gluggar og glerjun. Haldið hjá Rannsóknastofn-
un byggingariðnaðarins. — Gluggaefni og
gagnvörn, lögun, stærðir og geröir, hengsli og
stormjárn. ísetning i mismunandi veggi. Endur-
bætur,—Efnisfræði glers, þéttilistar og fúguefni.
isetningaraðferðir, viðgerðirá einangrunargleri.
Efnisfræði stáls. Haldiö íTækniskóla íslands. —
Efnisuppbygging, framleiðsla, oxun, afoxun. Ibl-
öndunarefni. Flókkun, staðlar. Málmsuða,
suðuhæfni stáls.Suðuþræðir.aðferðir.gallar.
Gæðaeftirlit. Tæring og tæringarvarnir. — Ætlað
járniðnaðarmönnum, kennurum málmiðngreina
og sölumönnum smiðaefnis.
Námskeið í Reykjavik eru haldin í húsakynnum Iðntækni-
stofnunar, nema annað sé tekið fram. Nánari upplýsingar
og innritun hjá stofnuninni í síma (91)687000, Fræðslumið-
stöð iðnaðarins i' síma (91)687440 og Verkstjórnarfræðslunni
í sima (91)687009.
Geymid auglýsinguna!