Morgunblaðið - 15.01.1987, Page 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 1987
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
MARÍA STEINGRÍMSDÓTTIR,
Fossvöllum 19,
Húsavfk,
andaðist i sjúkrahúsi Húsavíkur 13. janúar.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Móðir okkar,
AÐALHEIÐUR BERGÞÓRA LÍKAFRÓNSDÓTTIR,
Hátúni 10a,
er látin.
Börnin.
t
Móðir okkar,
KRISTENSA JÓHANNA TÓMASDÓTTIR,
Álfaskeiði 90,
Hafnarfirði,
andaðist á Sólvangi aðfaranótt 13. janúar.
Kristfn Kristjánsdóttir,
Ólafur Kristjánsson,
Tómas Kristjánsson,
Aðalheiður Kristjánsdóttir.
t
JÓN HELGI EINARSSON,
vörubflstjóri,
frá Melum á Kjalarnesi,
andaðist á Reykjalundi 13. janúar.
Vandamenn.
t
Bróðir minn,
GUÐMUNDUR GÍSLASON
frá Árbœjarhelli,
Holtum,
andaðist í Borgarspítalanum 10. janúar.
Guðbjörg Gfsladóttir.
t
Útför eiginkonu minnar,
SESSEUU GUÐMUNDSDÓTTUR,
sem lést af slysförum þann 9. janúar 1987 verður gerð frá
Áskirkju föstudaginn 16. janúar kl. 13.30.
Reynald Jónsson
og börn.
t
Útför móður okkar, tengdamóöur og ömmu,
ÞURÍÐAR KRISTÍNAR VIGFÚSDÓTTUR,
Öldugötu 44, Reykjavík,
verður gerð frá Dómkirkjunni föstudaginn 16. janúar kl. 13.30.
Vigfús Guðmundsson,
Guðrún Guðmundsdóttir,
Filippus Guðmundsson,
ingibjörg Guðmundsdóttir,
Sigurður Guðmundsson,
Kristfn Guðmundsdóttir,
Sigrfður Guðmundsdóttir,
og barnabörn.
Guörún Elfn Jónasdóttir,
Héðinn Valdimarsson,
Bergþóra Skúladóttir,
Sig. Þráinn Kárason
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐMUNDUR JÓHANNESSON
frá Siglufirði,
Miðvangi 41,
Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði föstudaginn 16.
janúar kl. 13.30.
Ólaffa Ólafsdóttlr,
Hilmir Guðmundsson, Ásrún A. Ólsen,
Gréta Guðmundsdóttir, Hörður Arnþórsson,
Bryndfs Guðmundsdóttir, Sverrir Aðalsteinsson,
barnabörn og barnabarnabarr..
Anna S. Þórðar-
dóttir — Minning
Anna Sigriður Þórðardóttir lést
17. desember sl. Hún var dóttir
hjónanna Sigríðar Grímsdóttur og
Þórðar Þórðarsonar.
Anna fæddist á Breiðabólstað á
Álftanesi 8. september 1904, elst
tíu systkina.
Þórður og Sigríður bjuggu um
tíma á Bessastöðum á Álftanesi,
þar sem Þórður var ráðsmaður. Þau
fluttu til Hafnarfjarðar 1915, en
þaðan stundaði hann sjómennsku.
I Halaveðrinu mikla, er svo var
nefnt, fórst Þórður með togaranum
Robertson. Þá var árið 1925. Eigna-
laus ekkja með tíu börn átti ekki
mikla möguleika á að sjá fjölskyldu
farborða. Móðir Önnu var hins veg-
ar viljasterk kona og ákvað hún að
halda flölskyldu sinni saman í
lengstu lög. Slíkt varð ekki gert
nema með einstökum dugnaði og
samheldni. Samheldni er var svo
sterk að hún hefði getað heft sjálf-
stæði þeirra einstaklinga er við
bjuggu. Sú varð þó ekki raunin á
með Önnu.
Skömmu eftir að faðir hennar
fórst andaðist bróðir hennar,
Steingrímur Gunnar, aðeins 9 ára
gamall.
Anna tók þá vinnu er ómennt-
aðri ungri stúlku bauðst. Það var
ekki alltaf starf er féll vel að lund
þessarar stoltu konu. Hún þráði á
þeim árum án efa lengri skóla-
göngu.
Hvað er meðfætt og hvað þrosk-
ast með okkur fyrir ytri áhrif skal
ekki metið hér, en það kom fljótt í
ljós að Anna Þórðardóttir átti ekki
bara draum, hún átti sér markmið
sem hún stefndi ótrauð að. Hún
varð sjálfmenntuð, vel að sér um
flesta hluti og fylgdist fram á
síðasta dag vel með þjóðmálum.
Hún hafði alla tíð mjög ákveðnar
skoðanir á mönnum og málefnum
+
Minningarathöfn um eiginmann minn, fööur okkar, tengdaföður
og afa,
JÓN EÐVALDSSON,
Suðurgötu 28, Sandgerði,
sem fórst með mb. Arnari ÍS 125 23. nóvember sl. fer fram frá
Hvalsneskirkju laugardaginn 17. janúar kl. 14.00.
Guðbjörg Ástvaldsdóttir,
Grétar Mar Jónsson,
Kári Jónsson, Sesselja Aðalsteinsdóttir,
Steinunn Jónsdóttir, Vignir Sigursveinsson
og barnabörn.
t
Minningarathöfn um eiginmann minn, föður okkar, son, bróður
og tengdason,
JÓHANNES PÁLSSON,
Suðurgötu 16, Sandgerði,
sem fórst með mb. Arnari ÍS 125 23. nóvember sl. fer fram frá
Hvalsneskirkju laugardaginn 17. janúar kl. 14.00.
Anna Margrét Kristjánsdóttir,
Páll Jóhannesson, Heiða Fjóla Jóhannesdóttir,
Helga Björk Jóhannesdóttir,
Páll Jóhannesson, Gestheiður Jónsdóttir,
Sigríður Pálsdóttir, Grímkell Jónsson,
Fjóla Gfsladóttir.
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
SR. EIRÍKUR J. EIRÍKSSON,
Hörðuvöllum 2, Selfossi,
fv. skólastjóri Núpsskóla,
sfðar prófastur og þjóðgarðsvörður Þingvöllum,
sem lést 11. þ.m., verður jarðsunginn frá Selfosskirkju laugardag-
inn 17. janúar 1987 kl. 14.00. Jarðsett veröur á Eyrarbakka.
Ferð verður frá Umferöarmiðstööinni í Reykjavík kl. 12.30.
Kristín Jónsdóttir.
Aðalsteinn Eiríksson,
Jón Eirfksson,
Hildur Eirfksdóttir,
Ágústa Eirfksdóttir,
Jónfna Eirfksdóttir,
Magnús Eirfksson,
Guðmundur Eirfksson,
Ásmundur Eiríksson,
Guðrún Larsen,
Sjöfn Kristjánsdóttir,
Saavar Valdemarsson,
Snorri Björn Sigurðsson,
Guðlaugur Óskarsson,
Ástþóra Kristinsdóttir,
Dagmar Hrönn Guðnadóttir,
Aldfs Eiríksdóttir,
Ingveldur Eiríksdóttir, Páll Skaftason
og barnabörn.
Morgnnblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til
birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á
skrifstofu blaðsins í Hafnarstræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki
eru tekin til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er
að birta ljóð eftir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal þá höfund-
ar getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú,
að minningargreinar birtist undir fullu nafni höfundar.
Við birtingu afmælisgreina gildir sú regla, að aðeins eru
birtar greinar um fólk sem er 70 ára eða eldra. Hins vegar
eru birtar afmælisfréttir með mynd í dagbók um fólk sem er
50 ára eða eldra.
Mikil áhersla er á það lögð að handrit séu vel frá gengin,
vélrituð og með góðu línubili.
og var óhrædd við að láta þær í
ljósi. Hún gerði ekki síður kröfur
til sjálfrar sín en annarra.
Hún ætlaði sér að komast til
þeirra efna að hún gæti búið sér
og fjölskyldu sinni það öryggi og
frelsi sem er því samfara að þurfa
ekki að örvænta um fjárhagslega
afkomu næsta dags.
Á erfiðum tímum stríðsáranna
stofnaði Anna af eigin rammleik
fyrirtækið Pijónastofu Önnu Þórð-
ardóttur. Það rak hún með
myndarbrag í fjölda ára. Anna var
því ein af frumkvöðlum kvenna
meðal íslenskra iðnrekenda.
Hún átti þá eiginleika til að bera
er ég held að sé það eina er geti
veitt konum fullkomið jafnrétti.
Hún leyfði sér aldrei að velta því
fyrir sér hvort kyn hennar væri
henni fjötur um fót. Hún leit ekki
á karlmenn sem sér fremri og hún
bar þá virðingu fyrir sjálfri sér sem
svo marga nútímakonuna skortir.
Fyrri mann sinn, Halldór Árna-
son, missti Anna af slysförum,
ungan að aldri. Nokkrum árum
síðar giftist hún eftirlifandi manni
sínum, Jóni Á. Gissurarsyni, skóla-
stjóra.
í ljós kom að sonur Önnu,
Steingrímur Gunnar, gekk ekki
heill til skógar. Hann andaðist
snemma á unglingsárum og varð
það hennar þungbærasta raun.
Jón og Anna áttu mörg sameigin-
leg áhugamál. Meðal annars nutu
þau bæði mjög útivistar og ferða-
laga. Einkum ferðuðust þau mikið
innanlands.
Anna var mikil húsmóðir og hún
og Jón bjuggu sér og dætrunum
Ólafíu og Halldóru einstaklega
höfðinglegt og menningarlegt
heimili. Anna var mjög ættrækin
og hélt góðu sambandi við systkini
sín og börn þeirra er þau komu til
sögunnar. Hún var oft ráðgjafi
systkina sinna og hjálparhella er
þau hófu framhaldsnám.
Fyrir utan margar heimsóknir til
Önnu á Sjafnargötuna var það fast-
ur liður í fjölda ára að systkini
hennar ásamt fjölskyldum og öðru
skyldfólki hittust þar um jól og var
þá rausnarlega veitt sem ætíð.
Ósjálfrátt litum við á hana sem
höfuð ættarinnar og bárum mikla
virðingu fyrir henni og heimili henn-
ar.
Fyrir nokkrum árum var húsið
við Sjafnargötuna stækkað svo þar
fengust þrjár fallegar íbúðir. Þar
bjuggu síðan dætur Önnu og Jóns
með fjölskyldum sínum. An efa
hefur hin nána sambúð Önnu við
barnabörnin; er orðin eru 6, veitt
henni mikla gleði.
Anna var ekki einungis falleg
sem ung kona, hún bar einnig ellina
með virðulegum glæsibrag og meg-
um við öll er hana þekktum mikið
af læra. Blessuð sé minning hennar.
Sigríður G. Sigurbjörnsdóttir
ÍLOMHB
HAFNARSTRÆT115.
Skreytingar við
hvert tækifæri.
Opiðfrákl. 09—21 alla
daga nema sunnudaga
frá kl.12-18.
Sími21330.