Morgunblaðið - 15.01.1987, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 1987
45
HilmarA.
Hilmarsson
Kveðjuorð
Frændi minn, Hilmar Arnar
Hilmarsson, er iátinn fyrir aldur
fram. Hann fæddist 5. janúar 1946.
Við lát hans er skarð fyrir skildi
í ættum vorum. A lífsleiðinni áttum
við skamma samleið, en svo lengi
sem hún varði var hún mér hugljúf
og eftirminnileg. Hvar sem hann
var og fór vann hann sér marga
vini, sem vel kunnu að meta kosti
hans og ljúfmennsku, enda bar allt
dagfar hans vott um að þar fór
mannkostamaður, sem hvarvetna
kom fram til góðs.
Hilmar var. trésmiður að mennt
og hefði sem sííkur innan skamms
öðlast meistararéttindi. Helsta
hugðarefni hans fyrir utan starfíð
var hljómlistin, og fór hann vegna
hennar víða um land með hljóm-
sveitum, og síðast var hann í
hljómsveit Jóns Sigurðssonar á
Hótel Borg.
Enda þótt hann mætti, eins og
að framan getur, enn kallast ungur
maður þegar ævi hans lauk, hafði
hann orðið fyrir ýmsum áföllum en
það sem honum varð hvað þyngst
í skauti var lát systur hans, Hildar,
er lést fyrir nokkrum árum.
Okkur, sem þekktum þennan
mæta dreng, er missir hans þungt
áfall. Eg mun ávallt minnast hans
með gleði og þakklæti í huga, jafn-
framt sárum söknuði.
Ástvinum hans votta ég djúpa
samúð mína og fínn vel að um hann
á við hið fornkveðna, Orðstírr deyr
aldregi hveim es sér góðan getr.
Árni Baldur Baldvinsson
Isafjarðardjúp:
Samkomulag
um lækkun
rækuverðs
SAMKOMULAG hefur náðst
milli rækjukaupenda og seljenda,
útgerðarmanna og sjómanna við
ísafjarðardjúp um lækkun
rækjuverðs frá því, sem um var
samið siðastliðið haust. Verðið
gildir til næstu mánaðamóta
Á haustmánuðum varð að sam-
komulagi að greiða skyldi 55,50
krónur fyrir hvert kíló af rækju,
en lágmarksverð Verðlagsráðs sjáv-
arútvegsins var þá og er enn 45 til
62,50 krónur fyrir hvert kíló af
samsvarandi stærðarflokkum.
Verðið nú verður 52,50 og eru veið-
ar hafnar. Helzta ástæðan fyrir
verðlækkuninni er lækkun mark-
aðsverðs frá því samið var um fyrri
verðlagningu.
Húsavík:
Aflinn tæp 9
þúsund tonn
á liðnu ári
Húsavík
HEILDARFISKAFLI landsettur
á Húsavík á sl. ári var tæp 9
þúsund tonn, eða svo til sá sami
og árið á undan. Útgerðin hér
hefur breyst mikið með tilkomu
kvótakerfisins. Flestir stærri
bátarnir voru búnir með sína
kvóta um mitt árið og fóru þá á
rækjuveiðar og síldveiðar þeir
stærstu.
Aflabrögð smábátaflotans voru
frekar léleg og gæftir frámunalega
lélegar allt haustið og fram að ára-
mótum. Fiskgengd virðist minnk-
andi á grunnmiðum. Frá áramótum
hefur verið hið besta veður hér og
góðar gæftir, en enginn bátur á sjó
vegna sjómannaverkfallsins.
Fréttaritari.
t
Eiginmaður minn,
LÚÐVIK H. KARVELSSON,
Droplaugarstöðum,
áður til heimilis að Templarasundi 3,
verður jarðsunginn frá kapellunni í Fossvogi föstudaginn 16. janúar
kl. 10.30.
Áslaug Guðmundsdóttir.
t
Bróðir minn,
SIGURÐUR GUÐJÓNSSON,
skipstjóri,
Litlu-Háeyri,
Eyrarbakka,
verður jarðsunginn laugardaginn 17. janúar frá Eyrarbakkakirkju
kl. 14.00.
Ferð verður frá Umferðarmiðstöðinni sama dag kl. 12.30.
Helga Guðjónsdóttir.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu samúð og vináttu við
andlát og útför eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og
ömmu,
GUÐRÚNAR í. JÓNSDÓTTUR
F.h. barna, tengdabarna og barnabarna,
Hjálmar I. Jónsson.
t
Þökkum auðsýnda samúð og hlýju við andlát og útför eiginmanns
míns, föður, tengdaföður, afa og bróður,
SNORRA GUNNLAUGSSONAR,
Esjubergi,
Kjalarnesi.
Sigrfður Gísladóttir,
Árni Snorrason, Kolbrún Guðmundsdóttir,
Oddný Snorradóttir, Ólafur Friðriksson,
Gi'sli Snorrason, Anna Steinarsdóttir,
barnabörn og systur.
Arctic Cat El-Tigre ’85 320 þús.
Polaris Indy400 ’85 290 þús.
Grizzly-de luxe Aktiv 250 þús.
YamahaSRV’84 280 þús.
Yamaha V-Max 310 þús.
Ski-doo Scandic ’84 210 þús.
Polaris Trail ’84 265 þús.
Ski-doo Scandic ’82 180 þús.
Kawasaki Drifter ’81 127 þús.
Kawasaki lnvader’81 160 þús.
Kawasaki Intruder ’81 190 þús.
Arctic Cat El-Tigre’81 200 þús.
Ski-doo EVEREST ’80 150 þús.
Arctic Cat Pantera 130 þús.
OPIÐFRÁKL. 9.00-19.00
Verið velkomin
Bíla-&
Vélsleóasalan
Suöurlandsbraut V.
84060 fi. 38600
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og
útfarar eiginmanns míns, föður okkur, tengdaföður og afa,
STEINGRÍMS JÓHANNESSONAR.
Brynjólfur Steingrfmsson,
Sigfríður Steingrimsdóttir,
Egill Steingrímsson,
Jóhannes Steingrfmsson,
Friðrik Steingrímsson,
Elín Steingrímsdóttir,
Herdfs Steingrfmsdóttir,
Helga Steingrfmsdóttir,
Þorgerður Egilsdóttir,
og barnabörn.
Guðrún Ossurardóttir,
Gunnar Ellertsson,
Þurfður Snæbjarnardóttir,
Sveina Sveinbjarnardóttir,
Hrönn Björnsdóttir,
Sæþór Kristjánsson
MBSNUSfMTAU
SÍMINN ER
691140
691141