Morgunblaðið - 15.01.1987, Side 55
55
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 1987
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691100 KL. 17-18
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
I/-JYH l U. *TH is tf
Um nöfn manna
Andrés Magnússon skrifar:
Stundum er það svo að merking
orða og hugtaka er á reiki og því
miður kemur það helst fram hjá
þeim sem síst skildi.
Síðastliðinn sunnudag var spum-
ingakeppni á dagskrá ríkissjón-
varpsins. Spurt var hvert væri
skímarnafn Bubba Morthens. Einn
keppenda svaraði réttilega að það
væri Ásbjörn, en þá endurtók dóm-
arinn, Helgi H. Jónsson, spuming-
una og tók fram að beðið væri um
„fullt skírnamafn". Þetta er algeng
hugsanavilla, en óþörf, nenni menn
að velta hlutunum aðeins fyrir sér.
Maðurinn var skírður Ásbjöm
og heitir Ásbjöm. Hitt er svo annað
mál að hann er Kristinsson, en
hann er líka Morthens, og ef hann
kærði sig um gæti hann eins verið
kenndur við móður sína. Mönnum
er ekki gefið nema eitt nafn (eða
tvö eftir atvikum), en svo em menn
kenndir við föður sinn eða móður
öðrum Jónum til aðgreiningar. Það
er ekkert sem gefur til kynna að
menn heiti t.d. Jón Jónsson og ekk-
ert annað. Má þessu til vitnis nefna
að er ekki óalgengt að sjá systkin
undirrita sameiginlega orðsendingu
„Fullt skírnarnafn" hans er Ásbjörn.
svo: Jón, Jónas og Jóna, Jónsböm, kvæmt rithætti í gömlum handrit-
af þeirri einföldu ástæðu að þau em um hefði nafn bréfritara verið svo
það. skráð:
Þess má til gamans geta að sam- Andrés Magnússon.
ALLT í RÖÐ OG REGLU!
Ef þú ert þreytt(ur) á óreiöunni
og uppvaskinu í kaffistofunni
þá er Duni kaffibarinn lausn á vandanum.
Duni er ódýrasti barinn í bænum
Duni kaffibarinn sparar bæöi tíma og pláss.
Hann getur staðið á borði eða hangið á vegg.
- hann kostar aðeins kr. 3.721-
(Innifalið í verði:
Málmstandur,
2000 mál, tíu höldur
og 500
teskeiðar.) FANNIR HF
•{ -
Bíldshöfða 14, sími 672511
Þessir hringdu . .
HafðuJ)Ökk
fyrir Omar
Margrét hringdi:
Þökk sé Ómari Ragnarssyni
fyrir hina sérlega hugþekku minn-
ingargrein um Gísla Gíslason á
Uppsölum í Morgunblaðinu
lO.jan. s.l.. Þegar Ómar kynnti
Gísla á Uppsölum í Stiklum sínum
komu í huga manns sagnir af
helgum mönnum sem kusu að
þjóna skapara sínum í einlífi,
nægjusemi og fjarri heimsins
glaumi. Það virðist Gísli hafa gert.
Grein Ómars er ein sú besta
minningargrein sem ég hef lesið
og ber vott um hjartaprýði höf-
undar.
Hvar eru jóla-
gjafirnar
mínar?
H.P. hringdi:
Fimm ára drengur kom til
Reykjavíkur þriðjudaginn 6.jan.
frá Raufarhöfn með millilendingu
á Akureyri, sama dag og litla
stúlkan í Flúðaseli tapaði dúkk-
unni sinni. Hann hafði lagt af
stað frá Raufarhöfn með tvær
töskur velmerktar honum, Stein-
ari Frey Sigurðssyni, en er hann
kom í flugstöð Flugleiða í
Reykjavík fannst ekki nema önnur
taskan. í þeirri glötuðu eru jóla-
gjafimar, jólafötin og sængurföt-
in ásamt fleiru.
Eflaust gerir afgreiðslufólk
Flugleiða það sem það getur til
að endurheimta hina glötuðu
tösku en litli drengurinn er orðinn
óþolinmóður að fá jólagjafir, því
það er jú liðin heil vika.
Nú langar mig til að spyija:
Ef taskan hefur farið á einhvem
annan viðkomustað Flugleiða ætti
þá ekki afgreiðslufólk þess staðar
að vera búið að uppgötva þessa
óskilatösku og senda hana til
Reykjavíkur? Eða getur átt sér
stað að óheiðarlegt fólk hafl tæki-
færi til að taka farangur i flug-
stöðinni?
Ég vona að þessi mál leysist
brátt, að litla stúlkan í Flúðaselinu
fái dúkkuna sína og dóttursonur
minn fái jólagjafímar sínar.
Sjónvarps-
myndin gód
Gagnrýnandi hringdi:
Umtalaða myndin sem sýnd var
í sjónvarpinu á nýárskvöld var að
mínu mati blákaldur raunveruleiki
hjá mörgum hér á landi en ekki
sú glansmynd af tilverunni sem
svo margir halda upp á.
Myndinni var að mínu mati
snilldarvel leikstýrt og ég hef
hvergi heyrt jafnvel gengið frá í
músík og hljóði, og talið var skýr-
ara en í nokkurri íslenskri
kvikmynd sem ég hef séð. Leikar-
arnir skiluðu vel sínu. Meira lof
er ekki hægt að gefa einni mynd.
Ég er aftur á móti sammála
um að myndina átti ekki að sýna
fyrr en kl.23.30 og taka skýrt
fram að hún væri ekki við hæfí
bama. En það er ekki við höfund
eða framleiðendur að sakast þó
þetta hafi farist fyrir. En nýsjá-
lenska myndin sem sýnd var 11/1
var því síður við hæfi bama með
sín manndráp en ég geri ekki ráða
fyrir að þær hneyksluðu persónur
sem hvað mest hafa óskapast yfir
myndinni á nýárskvöld fínni nokk-
uð að nýsjálensku myndinni.
Fyrirspurn
tilríkis-
útvarpsins
Útvarpshlustandi hafði sam-
band:
Af hveiju lætur ríkisútvarpið
ekki getið senditíðni sinnar og
bylgju í dagskránni sem þeir
senda frá sér? Líkt og t.d. Bylgjan
gerir.
Af hveiju ekki
leitað til Ál-
versins?
Árni Jóhannsson hringdi:
Mig langar til að benda mönn-
um á að það væri ráð að fá að
nota afgangsorku frá Álverinu til
að hita upp vegarkaflann við Kúa-
gerði. Þannig mætti koma í veg
fyrir mikla hálku sem oft mynd-
ast þarna á Keflavíkurveginum.
Fjölmargir hita upp hjá sér plön
og annað þvíumlíkt og ætti þetta
varla að vera mikið mál og alls
ekki dýrt ef höfð era í huga þau
tíðu slys sem þarna hafa orðið.
„Kærðu“
Kona af Suðurlandi hringdi:
Ég vil taka undir með einni
kvenkyns, sem skrifar í Velvak-
anda 6.jan., þar sem hún hvetur
Hákon Hansson dýralækni til að
kæra skipan Katrínar Andrés-
dóttur í stöðu héraðsdýralæknis í
Hreppaumdæmi.
Það er ekki nóg með að ráð-
herra hafí raglast á orðunum
jafnrétti og forréttindi milli
kynja. Janfrétti var heldur ekki
látið gilda milli kynsystra. Ef það
var aðeins kynferði sem réð þess-
ari stöðuveitingu hvers átti þá
Guðbjörg Þorvarðardóttir að
gjalda en samkvæmt punktakerfí
Dýralæknafélagsins var hún í
3.-4. sæti en Katrín í 6.-7. sæti.
Það mátti reyna þessa skýringu
meða fáar konur í stéttinni en
hana gleypa aðeins einfeldningar.
Ætli það sé ekki heldur gamla
skýringin að ekki er sama Jón og
séra Jón.
Og að lokum; Jón Helgason
segir einnig í umræddri frétt þann
17. des.: „Menn mega ekki gleyma
því að þessar stöður era ekki fyr-
ir dýralækna heldur fyrst og
fremst þá er þurfa á þjónustu
þeirra að halda."
Gott og vel en fyrir hveija era
ráðherraembættin? Fyrir mennina
prívat og persónulega eða fyrir
fólkið í landinu, mér er spum?
Fleiri tóku þátt
í leitinni
Einn að austan hringdi:
Mig langar til að það komi fram
að það vora ekki Eskfírðingar ein-
ir sem tóku þátt í leitinni að
Synetu. Stjómstöð leitarmanna
var t.d. á Fáskrúðsfírði. Norð-
fírðingar, Stöðfírðingar, Héraðs-
búar, Fáskrúðsfirðingar og fleiri
tóku einnig þátt í leitinni.
Sérstakt
janúartilboö
á Amitsubishi
farsímum.
79.980,-
staðgreidd eða kr.
84.980,- með afborgunum.
Greíðslukjör útborgun eftirstöðvar
Eurokredit 0 kr. 11 mán.
Skuldabréf 19.000,-kr. 6 - 8 mán.
VIÐTÖKUM VEIÁMÓTI
m