Morgunblaðið - 16.01.1987, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 1987
Hvað segja þeir um samnmgana
Skiptaverð hækkar í 7 6%
MEGINATRIÐI hins nýja
kjarasamnings útgerðar-
manna og sjómanna eru eftir-
farandi og er stuðst við yfirlit
hagfræðings Sjómannasam-
bands Islands:
1. Skiptaverð, þegar afli er seld-
ur óunninn hér á landi,
hækkar úr 71% í 75% frá 1.
janúar 1987 og í 76% frá 1.
júní næstkomandi. Skipta-
verðið hækkar því um 7% á
árinu. Skiptaverðið er tengt
olíuverði í birgðum og hækkar
eða lækkar ef frávik verða.
75% skiptaverðið miðast við
olíuverð á bilinu 98—144 doll-
ara tonnið og 76% skiptaverð-
ið miðast við 98—156 dollara.
Til samanburðar má geta þess
að olíuverð í birgðum er nú
132 dollarar tonnið en verð-
skráningar í Rotterdam voru
komnar upp í 160 dollara í
upphafi vikunnar vegna kulda
í Evrópu.
2. Þegar afli fiskiskips er fluttur
út ísaður í kössum með öðru
skipi, gámum, er skiptaverð-
mæti aflans 76% af heildar-
verðmæti að frádregnum
flutningskostnaði, erlendum
tollum og kostnaði við söluna
erlendis. Tekur þetta ákvæði
gildi 1. júní næstkomandi.
3. Skiptaverðmæti frystitogara
sem frysta bolfiskafla um
borð hækkar þannig: Fob-
verð til skipta hækkar úr 71%
í 74,5% (eða um 4,9%) frá 15.
janúar og í 75% (um 0,7%) frá
1. júní. Skiptaverðmæti frysti-
skipa sem frysta rækju um
borð hækkar þannig: Skipta-
verð af fob-verðmæti hækkar
úr 71% í 71,5% frá 15. janúar
og í 72% frá 1. júní (1,4%
hækkun).
4. Starfsaldursálag verður 2%
eftir 2 ár hjá sömu útgerð og
4% eftir 4 ár hjá sörnu útgerð
af kauptryggingu. Þetta er
metið um 1% í kauptryggingu.
5. Hlífðarfatapeningar hjá und-
irmönnum, sem greiðast hvort
sem aflast fyrir kauptrygg-
ingu eða ekki, hækka úr 1.103
krónum á mánuði í 1.324
krónur. Hlífðarfatapeningar
hjá vélstjórum og vélavörðum
verða 1.103 krónur. Nái hlut-
ur ekki kauptryggingu greið-
ist auk þessa 882 krónur á
mánuði í fatapeninga til við-
bótar kauptryggingu, eða
samtals 2.206 krónur á mán-
uði. Þessir liðir eru metnir á
um '/2% í kaupi.
6. Tímakaup hækkar um 18%
eða í 173 krónur á klukku-
stund hjá undirmönnum og í
263 krónur hjá vélstjórum.
Samningur undirmanna er
gerður til eins árs en yfirmanna
til tveggja ára. í samningunum
eru ný verkfallsákvæði, þar sem
öllum skipum verður gert að
hætta veiðum á sama tíma er
verkfall skellur á enda verði það
boðað með 21 dags fyrirvara og
mega þá skipin selja aflann hvar
sem er.
Farmanna- og fiskimanna-
sambandið telur að samningurinn
færi þeirra mönnum 12,6%
launahækkun, miðað við ákveðn-
ar forsendur um aflamagn. LIU
telur að samningamir auki út-
gjöld útgerðarinnar um 250 til
300 milljónir króna á ári.
Keflavík:
Sjómenn
óánægðir
með samn-
ingana
Keflavlk.
LOÐNUSJÓMENN gáfu tón-
inn á fundi sjómannafélag-
anna í Keflavík þegar
nýgerðir kjarasamningar
voru kynntir. Þeir sögðust
greinilega hafa setið lengi í
landi fyrir lítið og vildu fella
samningana. Fundinn sátu
um 130 sjómenn og stóð hann
í tvær klukkustundir.
Þeir Hólmgeir Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Sjómannasam-
bands Suðumesja, og Karl
Steinar Guðlaugsson alþm.
kynntu samningana. í máli
samningamanna kom fram að
I/EÐURHORFUR í DAG:
YFIRLIT á hádegi í gær: Skammt suðvestur af Hvarfi er víðáttumik-
il 970 millibara lægð, sem þokast norður, en við Færeyjar er 1043
millibara hæð, sem hreyfist austur. Áfram verður hlýtt sunnan- og
vestanlands, en vægt frost norðaustan- og austanlands.
SPÁ: í dag verður suðaustanátt á landinu. Allhvass víða vestan-
og suðvestanlands, en hægari um austanvert landið. Sunnan- og
vestanlands verða skúrir, en að mestu þurrt í öðrum landshlutum.
Hiti verður 3 til 5 stig á suðvestur- og vesturlandi. Annarsstaðar
verður hitinn rétt um frostmark.
I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
LAUGARDAGUR og SUNNUDAGUR: Áfram verður suðlæg átt og
fremur hlýtt í veöri. Rigning á suður- og vesturlandi en að mestu
þurrt noröaustanlands.
TÁKN: x Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- ■\ 0 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
A stefnu og fjaðrirnar •
jj Heiðskirt ▼ A vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. Skúrir * V E'
•( jím Léttskýjað / / / / / / / Rigning = Þoka
A / / / = Þokumóða
Hálfskýiað * / * ’ , ’ Súld
Askýiað r * / * Slydda r * r OO Mistur —j. Skafrenningur
/ K Alskýjað * * * * Snjókoma # * * Þrumuveður
*
VEÐUR VÍÐA UMHEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
Akureyri hiti -2 veður léttskýjað
Reykjavík 4 úrk.lgr.
Bergen -2 léttskýjað
Helsinki -13 skýjað
Jan Mayen 3 skýjað
Kaupmannah. -4 komsnjór
Narssarssuaq 7 alskýjað
Nuuk 1 skýjað
Osló -11 léttskýjað
Stokkhólmur -12 léttskýjað
Þórshöfn 4 alskýjað
Algarve 10 rigning
Amsterdam -7 mistur
AÞena 17 skýjað
Barcelona 7 léttskýjað
Berlín -13 renningur
Chlcago 2 þokumóða
Glasgow 2 slydda
Feneyjar -1 slydda
Frankfurt -13 snjókoma
Hamborg -9 renningur
Las Palmas 20 léttskýjað
London -1 snjókoma
Los Angeles 8 heiðsklrt
Lúxemborg -11 snjókoma
Madríd 4 hálfskýjað
Malaga 7 rigning
Mallorca 6 úrk. igr.
Miami 17 léttskýjað
Montreal 0 þokumóða
NewYork 7 rigning
París -11 snjókoma
Róm 7 rigning
Vín -9 snjókoma
j Washington vantar
, Winnipeg -25 heiðskírt
Lítil ánægja
með samninga
á fundi Sjó-
mannafélags
Reykjavíkur
Stígum fram með harðar launakröf-
ur um næstu áramót, sagði Guðmund-
ur Halivarðsson formaður
ÞUNG orð féllu um samningana
á félagsfundi Sjómannafélags
Reykjavíkur sem haldinn var í
húsi Slysavarnafélags íslands í
gær. Deildu menn einkum á að
hlutdeild sjómanna í olíukostn-
aði væri nú komin inn í kjara-
samninga og sögðu að erfitt
yrði að fella þetta ákvæði út.
„Við hefðum viljað ganga inn á
þennan fund með samninga sem
færðu ykkur fleiri krónur í
Iaunaumslögin Ég tel engu að
síður að nokkrum áfanga hafi
verið náð, ekki síst þar sem sjó-
menn gátu með samstöðu sinni
náð lagasetningunni út úr sölum
Alþingis," sagði Guðmundur
Hallvarðsson, formaður. „Það
koma áramót og þá munum við
stíga aftur fram og leggja til
grundvallar harða kröfugerð
um hreina peningahækkun sem
verður ekki frá kvikað.
í framsögu Guðmundar kom
fram gagnrýni á þau vinnubrögð
sem notuð voru við samningagerð-
ina af hálfu sjómanna. Sagðist
hann ætla að beita sér fyrir því
að fækkað í samninganefndinni.
Hefði reynst ófært að vinna með
á fjórða tug manna innbyrðis. Þá
hefði deilur um aukaatriði tafið
starfíð og væri vænlegra að fresta
heldur samningum um þau atriði
þar til verkfalli hefði verið aflýst.
Hann gagnrýndi einnig talsmenn
sjómannasamtakanna fyrir yfír-
lýsingar þeirra um löndunarbann
á togara erlendis. Þær lýstu
ábyrgðarleysi, enda hefði löndun-
arbann komið stéttarbræðrum
þeirra verst.
Guðmundur sagði að hags-
munapot fulltrúa landsbyggðar-
innar tefði allt of oft fyrir
heildarlausn í samningum. „Við
sitjum oft uppi með samninga sem
samþykktir eru með fyrirvara því
menn eru á leiðinni heim í hérað
til þess að semja betur bak við
tjöldin fyrir sína menn. Sjómanna-
samtökin verða að standa saman.
Af hverju ættu sjómenn á Aust-
fjörðum til dæmis að fá meira fyrir
sína vinnu en Reykvíkingar?"
spurði Guðmundur. Svöruðu fund-
armenn þessum orðum með
hrópum og lófataki.
Þórður Eiríksson var einn þeirra
sem kröfðust að samningamir
yrðu felldir. Hann sagði að sjó-
menn ættu heimtingu á því að fá
umbun erfiðis síns, þar sem þeir
legðu þjóðinni til meirihluta tekna
hennar. Benti hann á að inn í
samningin væri nú tekið ákvæði
um dánarbætur sem næmu aðeins
550.000 krónum. „Erum við svona
lítils metnir ?“ spurði Þórður. Hann
gagnrýndi kostnaðarhlutdeildina
og dró í efa að útgerðarmenn
myndu sína heilindi við útreiking
hennar. Starfsaldursálag sem
nemur 2% eftir tveggja ára starf
hjá sömu útgerð og 4% eftir 4 ár
hjá sömu útgerð var Þórði einnig
þymir í augum. Vildi hann að sjó-
menn sem störfuðu á mörgum