Morgunblaðið - 16.01.1987, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 16.01.1987, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 1987 7 Grafíkmyndir Andy War- hol í Norræna húsinu SÝNING á grafíkmyndum eftir bandaríska listamanninn Andy Warhol verður opnuð í anddyri Norræna hússins á laugardaginn. Hér er á ferð sýning, sem nefnist „Andlitsmyndir af Ingrid Berg- man“ og eru þetta, eins og nafnið bendir til, myndir af leikkonunni frægu i hlutverkunum: „Nunnan“ (úr „The Bells of St. Mary’s"), „Með hatt“ (úr „Casablanca") og „Hún sjálf“. Þessi grafíksýning kemur hingað til lands frá Galerie Böijeson í Malmö. Kveikjan að henni er sú að eigandi gallerísins, Per-Olov Böijeson og Andy Warhol hittust haustið 1982 og talið barst að andlitsmyndum þeim, sem Warhol hafði gert af ýms- um kvikmyndastjömum, frægust þeirra er mynd af Marilyn Monroe. Sú hugmynd kviknaði að gera grafíska myndaröð til minningar um Ingrid Bergman, sem þá var nýlátin. Andy Warhol hófst handa og árang- urinn má sjá á þessari sýningu. A sýningunni eru þijátíu myndir, þijár áritaðar silkiþrykksmyndir á þijú þúsund dollara hver og tuttugu og sjö „prófþrykk" listamannsins, en þau eru ekki til sölu. Auk þess verð- ur hægt að kaupa nokkur plaköt með hverri mynd um sig. Sendiherra Bandaríkjanna á ís- landi, Nicholas Ruwe, opnar sýning- una kl. 16.00 á laugardaginn og flytur ávarp við það tækifæri. Sýn- ingin verður síðan opin til 15. febrúar á venjulegum opnunartíma Norræna hússinsþ.e. kl. 09.00-19.00 virka daga og kl. 12.00-19.00 á sunnudögum. Kjarvalsstaðir: Frá sýningu Kjarvalsstaða á íslenskum abstraktverkum Morgunblaðið/Einar Falur Yfirlitssýning á verkum ís- lenskra abstraktlistamanna ennfremur í þessari sýningar- skrá viðtöl við Valtý Pétursson og Björn Th. Björnsson. Sýningin stendur yfir til 22. febrúar. 1500miðar seldir á Fats MIKILL áhugi er á hljómleikum Fats Domino og hljómsveitar hans í Broadway og Sjallanum um næstu mánaðamót. Tvo fyrstu dagana voru pantaðir 1500 miðar í Broadway, sem samsvarar að uppselt væri á þrenna hljómleika af sex, sem haldnir eru í Reykjavík. „Það er augijóst að Fats hefur sungið sig inn í hjörtu íslendinga þegar hann kom hingað í fyrra,“ sagði Olafur Laufdal veitingamaður í samtali við Morgunblaðið. Fats Domino heldur þrenna hljómleika á Akureyri. í gær lágu ekki fyrir upplýsingar um hve marga miða var búið að panta þar. Verkunum á sýningunni er stillt upp í tímaröð, en með því er ætlunin að sýna fram á tengsl listamanna innbyrðis samtímis því að fylgt verður eftir breyting- um og þroskaferli einstakra listamanna. í tengslum við sýninguna, sem hefur að geyma 178 listaverk eftir 48 listamenn, verður efnt til kynningar á íslenskri ab- straktlist. Haldnir verða fyrir- lestrar um tengsl abstraktlistar við aðrar listgreinar. Matthías Viðar Sæmundsson mun fjalla um tengsl abstrakt myndlistar og bókmennta og Hjálmar R. Ragnarsson mun taka saman dagskrá um tengsl tónlistar og abstrakt myndlistar. - söguleg og persónuleg þróun YFIRLITSSÝNING á verkum morgun, laugardag 17. jan- íslenskra abstraktlistamanna úar. A sýningunni verða bæði opnar á Kjarvalsstöðum á málverk og höggmyndir og á hún að gefa listunnendum tækifæri til að skoða þessa tegund myndlistar í sögulegu samhengi. Reynt er, eftir mætti, að spanna söguna og gefa áhorfendum sem flest sjónarhorn á hugtakið óhlut- læg myndlist í málverki og skúlptúr. Nokkrar af tízkusýningarstúlkum Gunnars Larsen. Gunnar hefur tekið fjölmargar myndir af íslenzkum sýningarstúlkum. t.d. Maríu Guðmundsdóttur. Gunnar Larsen heldur tvær tízkusýningar hér á landi HINN þekkti tízkufrömuður Gunnar Larsen er væntanlegur til landsins i lok þessa mánaðar ásamt 12 sýningarstúlkum frá 10 þjóðlöndum. Þær munu sýna það nýjasta í franskri tízku á tveimur skemmtikvöldum í Bro- adway þriðjudaginn 27. janúar og miðvikudaginn 28. janúar. Gunnar Larsen er ljósmyndari, rit- stjóri og útgefandi stærsta og dýrasta tízkutímarits í heimi, „Gunnar International.” Gunnar hefur lengi haft góð tengsl við Is- land og tízkumyndir hans birtast t.d. reglulega í Morgunblaðinu. Hann kom hingað til lands í fyrra- vor og var viðstaddur krýningu Fegurðardrotningar Islands. Gunnar og starfsfólk hans sækir árlega um 300 tízkusýningar í París og velur þann fatnað á sýningar sínar, sem það telur athyglisverð- astar. Ferðast þau vítt og breytt um heiminn í um mánaðartíma og halda sýningar. í frétt frá Broadway segir að sýningin taki u.þ.b. eina og hálfa klukkustund. Þar segir ennfremur að sýningin sé ákaflega nýstárleg, sé bæði tízku- og leiksýning og tónlist sé mjög fjölbreytt. Titill sýn- ingarinnar er „Fire of Desire." Kjell Bækkelund (Toikninp Ulf Aas) Sýningunni fylgir vegleg sýn- ingarskrá þar sem birtar eru greinar um íslenska abstraktlist. Olafur Kvaran, listfræðingur rit- ar um upphaf íslenskrar ab- straktlistar, Guðbjörg Kristjáns- dóttir um geometríska og lýríska abstraktion, Halldór Björn Run- ólfsson ritar um íslenska ab- straktlist síðastliðna tvo áratugi og Gunnar B. Kvaran um ab- strakt höggmyndalist. Þá eru INNLENT Kjell Bækkelund kveð- ur í Norræna húsinu NORSKI píanóleikarinn Kjell Bækkelund heldur píanótónleika í Norræna húsinu sunnudaginn 18. janúar kl. 17.00. í frétt frá Norræna húsinu segir að hann hafi oft komið hingað til lands og að sögn hans sjálfs sé þetta í siðasta sinn sem hann komi fram opinberlega á Norðurlönd- um og valdi hann sjálfur að halda þessa kveðjutónleika hér. Kjell Bækkelund fæddist í Osló 1930 og þótti snemma efnilegur píanóleikari. Hann kom fyrst fram opinberlega átta ára gamall, en hélt fyrstu sjálfstæðu tónleika sína árið 1951 í Osló. Hann hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir píanóleik sinn bæði innanlands og utan. Hann hefur ferðast víða og leikið í flestum löndum Evrópu og i öðrum heimsálfum, m.a. var hann fyrsti vestræni píanóleikarinn, sem boðið var til Kína eftir menn- ingarbyltinguna. Á efnisskrá tónleikanna í Norræna húsinu á sunnudaginrr vevða eingöngu verk eftir norræn tún.-káld: Edvard Grieg, Niels Yíggo Bentzon, Erik Bergman, Fmn Mortensen óg Lars Erik Lars- son. Aðgöngumiðar verða seldir við innganginn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.