Morgunblaðið - 16.01.1987, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 1987
19
Myndir og texti: HG
Fyrirtæki Lee Hasselmans
hefur fengið fjölda viður-
kenninga fyrir sölu á
matvæium.
hafa umsjón með fólkinu, sem er
að selja fyrir mig víða um landið
kaupir fískinn af okkar aftur og aft-
ur. Það, sem meira er, bömin halda
áfram að borða fisk, ekki bara í skól-
anum, heldur heima og á veitinga-
stöðum. Með þessu móti er framtíð
físksölu og fískneyzlu tryggð. Á sama
hátt er hún lögð í rúst með því að
selja vondan físk í skólana. Það er
skammsýni og vanþekking á hæsta
stigi. í Pittsburg Press, stærsta og
áhrifamesta dagblaði í Vestur-Penn-
sylvaniu, var úttekt á fæði í skólum
á Pittsburg-svæðinu. Það telur um
22 menntaskóla, 40 gagnfræðaskóla
og nærri 60 bamaskóla. Niðurstaða
blaðsins var sú, að bömunum hefði
nánast algjörlega verið snúið frá
fískáti, vegna þess, að innkaup á físki
miðuðust alltaf við lægsta verðið,
ekki gæði. Sé bömum frá 7 til 17
ára gefínn gæða fískur, munu þau
borða físk það sem eftir er æfínnar,"
sagði Lee.
„Það er engin leið til að lækka
kostnað við sölu físksins eða fækka
milliliðum. Umboðsmennimir, fá sín
umboðslaun og leggja jafnframt mik-
inn kostnað í söluna. Við leggjum
mikla áherzlu á kynningu á fískinum
okkar og samanburð við físk frá öðr-
um, þar sem fiskurinn frá Coldwater
er ætíð beztur. Verðið er líka hæst,
en menn vita það, að þeir fírra sig
vandræðum, með því að kaupa bezta-
fískinn. Síðan taka heildsalamir við
og þeir þurfa álagningu fyrir kostn-
aði. Loks þarf smásalan sína álagn-
ingu. Sölukerfíð er fastmótað og það
er ekki aðeins illa séð að fara fram-
hjá einhveijum milliliðnum, það getur
líka kostað mikilvæg viðskipti og rýrt
álitið á Coldwater. Það er ekki hægt
að selja fískinn með öðmm hætti.
Við vitum um aðra fískseljendur, sem
hafa reynt að komast framhjá um-
boðsmönnum og heildsölum og það
hefur að lokum farið illa fyrir þeim
öllum. Þeir geta ekki snúið til baka
aftur.
Ætli seljendur á físki, eins og Cold-
water, að sjá um alla söluna sjálfír,
mun það kosta þá mun meira af pen-
ingnm, en það gæti skilað þeim. Það
er dýrt að halda úti hundruðum eða
þúsundum sölumanna, vörugeymsl-
um, flutningabílum og svo framvegis.
Eins og kerfið er, er þessi kostnaður
hjá umboðsmönnum og heildsölum
ekki einungis byggður upp á fisksölu,
heldur öðrum matvælum líka. Fyrir-
tæki þessara aðilja eru ennfremur vel
flest byggð á gömlum merg með
mikilvæg persónuleg viðskiptasam-
bönd, sem myndu glatast með nýjum
leiðum. Coldwater þarfnast okkar því
og við þörfnumst Coldwater til að
geta selt gæðafísk án þess að þurfa
að hafa áhyggjur af kvörtunum,"
sagði Carolynn Hasselman.
Carolynn Hasselman ræðir málin við Pótur Másson, starfs-
mann Coldwater.
auk þess sé ég um nokkuð af
beinni sölu. Ég þarf því að skipta
um umboðsmenn, standi þeir sig
ekki, hvetja þá til afreka, koma
með nýjar hugmyndir og áætlan-
ir til að styrkja söluna og loks
að stjórna þessu 2,7 milljarða
„fyrirtæki“ minu og það er stíf
vinna,“ segir Gerald McGuire,
annar sölustjóra Coldwater.
„Það er margt, sem þarf að glíma
við. Samkeppnin er alltaf hörð, ný
framleiðsla og vörur er mikilvægar.
Þá er mjög mikilvægt að halda vöku
umboðsmannanna. Þeir selja fyrir
10 til 15 fyrirtæki í allt og markmið-
ið er að þeir gefí okkur eins mikinn
tíma og mögulegt er. Það er eitt
mikilvægasta málið í dag, þar sem
öll fyrirtækin reyna að hvetja um-
boðsmennina til afreka fyrir sig og
ná athygli þeirra frá öðrum, sem
þeir selja fyrir. Birgðastaðan er allt-
af vandmeðfarin. Okkur gengur
mjög vel nú að selja flökin þó við
þurfum að skammta allmargar teg-
undir, nánast allar aðrar en þorsk.
Fengjum við það af flökum, sem við
vildum, gætum við selt feikimikið.
Framboðið er mjög mikilvægt. Það
er til dæmis ekki hægt að byggja
upp sölu á verulegu magni af karfa
og þurfa síðan að sjá á eftir viðskipt-
unum vegna þess, að framboð er
ekki nægilegt. Það getur tekið að
minnsta kosti tvö ár eða meira til
að vinna þau viðskipti upp aftur.
V<;rð á íslenzka fiskinum er hátt,
en þrált fyrir það er ekki erfítt að
selja hann, vegna þess hve góður
hann er. Sala á þorsk- og ýsuflökum
gengur vel, þrátt fyrir hækkanir á
verði að undanförnu, en því miður
virðist verð á karfa hafa dregið lítil-
lega úr sölu. Karfinn er seldur meira
í almennri samkeppni en þorskurinn
og ýsan og því er salan á honum
viðkvæmari fyrir verðhækkunum,
en meðan framboð frá okkur er
nægilegt en ekki frá
keppinautunum, er verðið hjá okkur
í lagi. Komi Kanadamenn inn á
markaðinn með mikið af karfa og
grálúðu á lægra verði en við, fellur
salan hjá okkur. Þessar fisktegund-
ir fara mikið í stórmarkaðina og þvi
eru þær svo viðkvæmar fyrir verði,
þó við höfum gæðin okkar megin.
Gæði íslenzka físksins eru á hinn
bóginn ástæða þess, að við berum
höfuð og herðar yfír aðra seljendur
físks á markaðnum hér, bæði í verði
og sölu. Gæði íslenzka fískins eru
þekkt um allt land. Þegar Alaska-
menn fóru að framleiða þorsk fyrir
nokkrum árum án verulegs árang-
urs, var það markmið þeirra að ná
sömu gæðum á framleiðsluna og
íslendingar og ná þannig íslenzka
verðinu. Það sýnir okkur mjög vel
hve staða okkar er sterk. Ég óttast
það að íslenzkir framleiðendur hugsi
ekki nógu langt fram í tímann um
þessar mundir, en til lengri tíma lit-
ið mun Coldwater halda áfram að
vaxa og skila framleiðendum á ís-
landi hagnaði. Skammtímasjónar-
mið borga sig ekki; að selja fískinn
til Evrópu eða eitthvert annað en
til Bandaríkjanna í auknum mæli
mun valda okkur erfíðleikum, þegar
til lengri tíma er litið. Við getum
ekki byggt okkur upp á stopulu
framboði. Langtímasjónarmið með
stöðugt framboð fyrir markaðinn
hér er því það mikilvægasta af öllu.
Nú erum við líklega í hvað harð-
astri samkeppni síðan ég byrjaði
hér, sérstaklega í sölu fískrétta og
þar kemur margt til. Samdráttur
hefur orðið í sölu fískrétta í skóla,
en það var stór og mikilvægur mark-
aður fyrir okkur. Þá er sala fiskrétta
í smásölu minni en áður og sala á
kjúklingum er í mikilli samkeppni
við okkur í veitingahúsakeðjunum.
Kjúklingasamlokur hafa komið í
stað fiskisamlokunnar. Það er sam-
dráttur í sölu á fiskréttum og allir
berjast harðvítugri báráttu til að
halda sínum hlut eða auka hann.
Með aukinni umræðu um heilsu-
samlegt fæði, hefur dregið úr neyzlu
á djúpsteiktum físki og físki með
miklu af deigi og mylsnu. Þess
vegna hefur meðal annars orðið
aukning í sölu flaka, en samdráttur
í brauð- og deigfiskinum. Þeir stað-
ir, sem selja tilbúna fískrétti, leggja
æ meiri áherzlu á rétti, sem hægt
er að baka eða pönnusteikja og eru
með minni brauð- og deighjúp. Þetta
hefur einnig bætt stöðu ferskfisk-
sölu verulega hér í landi. Þess vegna
er okkur nauðsynlegt að breyta
verksmiðjuframleiðslunni hjá okkur
í samræmi við breyttar óskir mark-
aðsins og að slíkum breytingum er
unnið af krafti. það verður alltaf
viss eftirspum eftir fískstautum og
slíkum réttum, en jafnframt mun
eftirspum eftir verðmeiri réttum
vaxa, það er réttum, sem innihalda
hlutfallslega meira af físki, en nú
er algengast. Það er framundan
aukning í neyzlu sjávarrétta og
lausnin felst í því að finna réttu
pakkninguna, réttu fiskréttina bæði
til að svara eftii spurn og auka hana.
Það er margt að gerast í þessu
landi. Nú em myndbönd til á nær
þriðjungi heimila og fólk horfir því
mikið á alls konar sjónvarpsefni
heima hjá sér . Því er búizt við
því, að sala veitingahúsa færist í
miklum mæli yfír í heimsendingar
og rétti til að taka með heim. Bæði
konan og maðurinn vinna úti, koma
við á veitingastaðnum og taka með
sér eitthvað að borða og horfa á
bíómynd. Hlutverk okkar er því að
koma fram með fískréttina, sem
henta þessu lífsmynstri," sagði Ger-
ald McGuire.
BrSds
Arnór Ragnarsson
Bridsfélag Akureyrar
Sveit Gunnlaugs Guðmundssonar
sigraði í Akureyrarmótinu í sveita-
keppni sem lauk sl. þriðjudag.
Keppnin var mjög jöfn og spenn-
andi allt til loka. Sveit sem kallar
sig SS-Byggir hafði forystu í mót-
inu þar til í síðustu umferðinni að
sveit Gunnlaugs átti góðan loka-
sprett og sigraði eins og fyrr segir.
Með Gunnlaugi spiluðu í sigursveit-
inni: Magnús Aðalbjömsson, Páll
Jónsson og Friðfínnur Gíslason.
Lokastaðan:
Gunnlaugur Guðmundsson 303
Ámi Bjamason 288
SS-Byggir 284
Hellusteypan hf. 260
Gunnar Berg 252
Stefán Vilhjálmsson 243
Zarioh Hammadi 242
Símon I. Gunnarsson 241
Gísli Pálsson 225
Stefán Sveinbjömsson 218
Keppnisstjóri var Albert Sigurðs-
son.
Næsta keppni félagsins verður
Akureyrarmótið í tvímenningi sem
hefst á þriðjudaginn kemur. Spilað-
ur verður Barometer og verða
væntanlegir þátttakendur að láta
skrá sig fyrir kl. 20 á sunnudags-
kvöld. Allt spilafólk á Akureyri og
í nágrannasveitunum er velkomið.
Bikarkeppni Norðurlands er í
fullum gangi og em nú 8 sveitir
eftir í keppninni sem er útsláttar-
keppni. Nánar verður sagt frá
þessari keppni síðar í þættinum.
Bridsfélag- Suðurnesja
Aðalfundur brids-félagsins verð-
ur haldinn föstudaginn 16. janúar
1987 í húsi verslunarmanna Suður-
nesja, Hafnargötu 28 í Keflavík.
Félagar, fjölmennið og munið að
mæta sundvíslega.
Bridsfélag kvenna
Aðaltvímenningskeppni félagsins
lauk skömmu fyrir jól, með yfír-
burðasigri Gunnþómnnar Erlings-
dóttur og Ingunnar Bernburg. Þær
hlutu 599 stig, eftir að hafa leitt
keppnina frá upphafí.
Röð efstu para varð þessi:
Gunnþómnn Erlingsdóttir
— Ingunn Bemburg 599
Halla Bergþórsdóttir
— Kristjana Steingrímsdóttir 372
Alda Hansen
— Nanna Ágústsdóttir 331
Elín Jónsdóttir
— Sigrún Ólafsdóttir 269
Sigríður Ingibergsdóttir
— Jóhann Guðlaugsson 201
Ásgerður Einarsdóttir
— Rósa Þorsteinsdóttir 195
Ingibjörg Halldórsdóttir
—Sigríður Pálsdóttir 184
Dóra FViðleifsdóttir
— Ólafía Þórðardóttir 174
Sl. mánudag hófst svo aðalsveita-
keppni með þátttöku 16 sveita.
Spilaðir em 2 x 16 spila leikir á
kvöldi, allir v/alla.
Bridsfélag kvenna er til húsa í
Sigtúni 9 (nýja húsnæði Bridssam-
bandsins) og vill stjóm félagsins
koma á framfæri ánægju félags-
manna með þá aðstöðu, sem boðið
er upp á. Formaður félagsins er
Aldís Schram.
Bridsdeild Skagfirð-
inga, Reykjavík
Að lokinni einni umferð í aðal-
sveitakeppni félagsins er staða
efstu sveita á „viðkvæmu“ stigi.
Bmgðið getur til beggja átta, eins
og vera á. Staða efstu sveita er:
Lárasar Hermannssonar 225
Rögnvaldar Möller 224
Guðrúnar Hinriksdóttur 222
ÁrmannsJ. Lárassonar 199
Sigmars Jónssonar 189
Guðmundar Theodórssonar 183
Högna Torfasonar 182
Sveitakeppninni lýkur næsta
þriðjudag, en annan þriðjudag (27.
janúar) verður eins kvölds tvímenn-
ingskeppni. Spilað er í Drangey
v/Síðumúla og er allt spilaáhuga-
fólk velkomið. Keppni hefst kl.
19.30. Keppnisstjóri er Júlíus Sigur-
jónsson.
Bridsdeild Rang-
æingafélagsins
Eftir 2. umferð í aðalsveita-
keppni er staða efstu sveita þannig:
Gunnar Helgason 47
Sigurleifur Guðjónsson 47
Loftur Þ. Pétursson 42
Gunnar Guðmundsson 36
Lilja Halldórsdóttir 33
Frá Bridssambandi
Austurlands
Nýlokið er bikarkeppni sveita,
sem jafnframt var firmakeppni
sambandsins. Rörasteypan á Egils-
stöðum sigraði, en í sveitinni spil-
uðu: Pálmi Kristmannsson,
Guðmundur Pálsson, Páll Sigurðs-
son og Sigfús Gunnlaugsson.
Rörasteypan sigraði sveit Esk-
fírðings hf. í úrslitum. Alls tóku 12
sveitir þátt í keppninni að þessu
sinni.
Evrópumeistaramót,
opni flokkur 1987
Evrópumeistaramótið verður
haldið í byijun ágúst í Brighton á
suðurströnd Englands.
Landsliðsnefnd hefur ákveðið að
haldin verði keppni sex úrvalspara,
sem nefndin velur fyrir 10. febrúar.
Keppni þessi verður sveita-
keppni, sem hefst síðari hluta
febrúar.
Spiluð verða a.m.k. 150 spil.
Eftir keppnina verður liðið valið.
Landsliðsnefnd áskilur sér allan
rétt við val liðsins.
Evrópumeistaramót
kvenna 1987
Evrópumeistaramót kvenna
verður haldið í byijun ágúst í
Brighton á suðurströnd Englands.
Landsliðsnefnd hefur ákveðið, að
haldin verði undankeppni 21.—22.
febrúar. Þessi keppni verður
tvímenningskeppni, með Butler-
útreikningi. Keppnin mun standa
yfír eina helgi og verða spiluð
60—90 spil.
Eftir þessa undankeppni mun
landsliðsnefnd velja nokkur pör í
sveitakeppni í mars. Að henni lok-
inni verður liðið endanlega valið.
Landsliðsnefnd áskilur sér allan
rétt við val liðsins, þ.m.t. að velja
spilara, sem ekki hafa tekið þátt í
þessum keppnum.
Þær sem hug hafa á að spila í
landsliðinu skulu sækja um þátt-
töku fyrir 10. febrúar til:
Bridssambands íslands,
Sigtúni 9, Box 272,
121 Reykjavík.
Umsókninni skal fylgja stutt
kerfísyfírlit parsins.
Norðurlandamót yngri
spilara 1987
Hér með er vakin athygli á að
NM 1987 verður haldið í Hrafna-
gili í Eyjafirði í júnímánuði. Keppt
verður í tveimur aldursflokkum.
Yngra liðið verður skipað spiluram
fæddum 1966 eða síðar, en það
eldra fæddum 1962—1965.
Landsliðsnefnd hefur ákveðið, að
haldin verði undankeppni 21.—22.
febrúar. Þessi keppni verður
tvímenningskeppni, með Butler-
útreikningi. Keppnin mun standa
yfír eina helgi og verða spiluð
60—90 spil.
Eftir þessa undankeppni mun
landsliðsnefnd velja nokkur pör í
sveitakeppni í mars. Að henni lok-
inni verða liðin endanlega valin.
Landsliðsnefnd áskilur sér allan
rétt við val liðanna, þ.m.t. að velja
spilara, sem ekki hafa tekið þátt í
þossum keppnum.
Þcir som hug hafa á að spila í
landshðunum skulu sækja um þátt-
töku fyrir 10. febrúar til:
Bridssambands íslands,
Sigtúni 9, Box 272,
121 Reykjavík.
Umsókninni skulu fylgja fæðing-
arár og stutt kerfísyfírlit parsins.