Morgunblaðið - 16.01.1987, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 1987
29
Fræðslustjóradeilan magnast:
Fj órðungsstj ómin
mótmælir ákvörðuu
menntamálaráðherra
Telur ákvörðun ráðuneytisins um slgórnun
fræðsluskrifstofunnar ganga þvert á lög
FJÓRÐUNGSSTJÓRN Norð-
lendinga kemur saman til
fundar í dag og verður þar fjall-
að um brottrekstur Sturlu
Kristjánssonar úr starfi
fræðslustjóra Norðurlandsum-
dæmis eystra. í Fjórðungs-
stjórn eiga sæti sveitarstjórnar-
menn úr báðum Norðurlands-
kjördæmunum. Fyrir fundinum
liggja drög að ályktun sem
Morgunblaðið hefur komist
yfir.
í upphafsorðum þessara draga
er lýst yfir fyllsta trausti á aðgerð-
ir fræðsluráðs Norðurlandsum-
dæmis eystra varðandi „tilefnis-
lausa uppsögn" Sturlu. Síðan er
„gerræði ráðherra" vítt, „sem að-
för að sjálfstæði fræðslustjóra og
fræðsluráða í störfum og þar með
að valddreifingu í landinu.“ Síðan
segir: „Fjórðungsstjórn styður
ákvörðun fræðsluráðs, um að ann-
ast stjómun fræðsluskrifstofunn-
ar meðan reglulegur fræðslustjóri
gegnir ekki störfum og álítur þann
málatilbúnað menntamálaráðu-
neytisins, að skólaskrifstofu þess
skuli falið úrskurðarvald um mál-
efni fræðsluráða á meðan ekki er
áður enn til úrskurðar ráðuneytis
kom. Upplýsinga var eigi heldur
leitað hjá starfsbróður mínum í N.
vestra, fræðsluráðum eða fjórð-
ungssambandi.
Ráðuneytið sendi samdægurs af-
rit af bréfinu til starfsbræðra
minna. Framkvæmdastjóm FSN og
formönnum fræðsluráða er nú einn-
ig kunnugt efni þess.
Með tilvísun í viðbrögð starfs-
bræðra minna, sem yður munu
berast, vil ég leyfa mér að óska
eftir því að þér dragið umrætt bréf
til baka og léttið af mér þeirri alvar-
legu áminningu sem mér er þar
veitt.
Sturla Kristjánsson.“
Fræðsluráð mótmælir
Þetta hafði fræðsluráðið síðan að
athuga við áminningarbréf ráð-
herrans í bréfí dags. 13. september
s.l:
„Fræðsluráð Norðurlandsum-
dæmis eystra harmar bréf yðar frá
21. ágúst sl. til fræðslustjóra þar
sem þér veitið honum vítur vegna
blaðamannafundar sem haldinn var
á fræðsluskrifstofu N. eystra 14.
ágúst 1986 og fyrir að halda ekki
trúnað gagnvart menntamálaráðu-
neyti.
Vegna þessa máls vill fræðsluráð
taka eftirfarandi fram:
1. Áðumefndur blaðamannafundur
var haldinn af fræðsluráðum N.
eystra og vestra og til hans boð-
að af þeim.
2. Allt til þessa dags hefur fræðslu-
ráði og skólastjórum verið gerð
grein fyrir tillögum mennta-
málaráðuneytis til fjárlaga enda
litið svo á að þær taki gildi í
upphafi hvers skólaárs og skól-
um gert að starfa samkvæmt
þeim frá 1. september.
Fræðsluráð fer því þess á leit að
þér dragið umrætt bréf til baka því
augljóst er að fræðslustjóri er bor-
inn þar röngum sökum.
kominn fræðslustjóri til starfa á
ný, vera þvert á ákvæði reglu-
gerða og grunnskólalaga og
treystir því, að fræðsluráð standi
fast á rétti sínum í þessu efni.
Fjórðungsstjórn telur að efni
standi til að endurskoða ákvæði
grunnskólalaga um ráðningu
fræðslustjóra og ákveða í lögum
að hann skuli ráðinn af fræðslu-
ráði, eins og annað starfsfólk
fræðsluskrifstofu. Bent skal á í
því sambandi á afstöðu fulltrúa
Sambands íslenskra sveitarfélaga
við undirbúning gmnnskólalaga.
Því beinir Fjórðungsstjórn því til
stjórnar Sambands íslenskra
sveitarfélaga að beita sér fyrir
þess konar lagabreytingu við end-
urskoðun grunnskólalaga, sem nú
stendur yfir. Jafnframt beinir
Fjórðungsráð því til alþingis-
manna á Norðurlandi eystra að
leita sér stuðnings um lagabreyt-
ingu til að koma í veg fyrir
áframhaldandi aðgerðir mennta-
málaráðherra varðandi störf
fræðslustjóra þvert á vilja
fræðsluráðs og heimamanna í
umdæminu."
Fyrir fundi Fjórðungsstjórnar-
Þráinn Þórisson,
Hreinn Bemharðsson,
Tryggvi Aðalsteinsson,
Stefán Haraldsson,
Trausti Þorsteinsson,
Guðmundur Helgason,
Magnús Stefánsson."
Bréf fræðslusíjóranna
Fræðslustjórar landsins söfnuðust
saman til fundar á ísafirði 26. ágúst
s.l. og skrifuðu þá m.a. ráðherran-
um eftirfarandi bréf varðandi
áminningarbréfið til Sturlu:
„í 14. gr. laga nr. 63/1974 em
ákvæði um verkefni fræðslustjóra.
Þar segir í lið 2: „Hann hefur um-
sjón með gerð árlegra rekstraráætl-
ana fyrir gmnnskóla umdæmisins,
endurskoðar þær og sendir ráðu-
neytinu."
I reglugerð um störf fræðslu-
stjóra nr. 182/1976, gr. 33—34 er
fjallað um skyldur fræðslustjóra í
áætlanagerð og úrskurðarvald hans
innan ramma gildandi laga og
reglugerða. Á það skal bent, að
þótt fræðslustjóri sé fyrst og fremst
embættismaður ríkisins, er hann
einnig framkvæmdastjóri fræðslu-
ráðs, sbr. 2. gr. sömu reglugerðar.
í 17. gr. reglugerðar um fræðslu-
ráð nr. 183/1976 segir: „Fræðslu-
ráð sér um að gerðar séu áætlanir
um fræðslumál í umdæminu, bæði
árlegar fjárhags- og fram-
kvæmdaáætlanir m.a. til notkunar
við undirbúning íjárlagafrumvarps,
svo og áætlanir til lengri tíma um
skólaskipan, kennslufræðilega
þjónustu og annað er lýtur að fram-
kvæmd grunnskólalaga í umdæm-
inu.“
Fræðsluráð Norðurlands vestra
og fræðsluráð Norðurlands eystra
boðuðu til blaðamannafundar 14.
þ.m. Tilefni fundarins voru tillögur
Menntamálaráðuneytis til íjárlaga
varðandi sérkennslu á Norðurlandi
næsta vetur og niðurskurður á til-
lögum fræðslustjóranna, sem unnar
innar liggur einnig tillaga um að
lýsa yfír ánægju með störf Sturlu
Kristjánssonar að skólamálum. í
tillöguni er sagt að í umdæminu
hafi mótast skólastefna í
„byggðalegum skilningi". Segir
síðan að „réttur skóla í umdæminu
hafi verið sóttur gagnvart
Menntamálaráðuneytinu, svo sem
grunnskólalögin heimila." Loka-
orðin eru þessi: „Fjórðungsstjórn
vill standa vörð um þessa stefnu
og sækja lengra með eflingu starf-
seminnar heima í umdæmunum
og styður því Sturlu Krisstjánsson
til áframhaldandi starfa í stöðu
fræðslustjóra í Norðurlandsum-
dæmi eystra.
Með skírskotun til þessa leggur
Fjórðungsstjórn áherslu á, að við-
ræður eigi sér stað milli mennta-
málaráðherra og fræðsluráðs um
skipan í starf fræðslustjóra og
framkvæmd málefna fræðslu-
skrifstofu áður en gerðar eru
tillögur um ráðningu í starf
fræðslustjóra á ný. Fjórðungs-
sstjórn beinir því til forsætisráð-
herra og þingmanna á Norður-
landi eystra, að koma á slíkum
viðræðum."
eru eftir því sem mælt er fyrir í
reglugerð um sérkennslu nr.
270/1977. Formaður fræðsluráðs
Norðurlands vestra stjórnaði fund-
inum. Auk fræðsluráðsmanna voru
á fundinum Áskell Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Fjórðungssambands
Norðlendinga, Sturla Kristjánsson,
fræðslustjóri Norðurlands eystra og
Bjarne Helleman, forstöðumaður
ráðgjafar- og sálfræðiþjónustu í
Norðurlandsumdæmi vestra, sem
mætti fyrir Guðmund Inga Leifs-
son, fræðslustjóra, sem fulltrúi hans
á fundinum.
Það er föst venja að líta á af-
greiðslu Menntamálaráðuneytis á
íjárlagatillögum sem endanlega
niðurstöðu til að vinna eftir við
skipulag skólahalds. Í samræmi við
það er hlutaðeigandi (fræðsluráð-
um, skólastjórum, skólanefndum)
gerð grein fyrir niðurstöðum „hvítu
bókarinnar". í þessu tilviki var m.a.
ljóst, að ekki yrði hægt að uppfylia
kröfur um sérkennslu nema að
hluta til. Slíkar upplýsingar gefa
fræðslustjórar fræðsluráðum, skól-
um eða skólanefndum, eftir því sem
við á.
í samræmi við framangreint er
ljóst að ekki hefur verið litið á
„hvítu bókina“ sem trúnaðarmál,
enda hvergi um það beðið.
Með hliðsjón af framansögðu telj-
um við Sturlu Kristjánsson í engu
hafa brotið trúnað við yfirboðara
sína, þar sem honum er í raun skylt
að veita Fræðsluráði tilgreindar
upplýsingar sé þess óskað.
Væntum við þess að bréf það
dagsett 21. þ.m. sem þér senduð
til Sturlu Kristjánssonar verði aft-
urkallað með þeim ummælum sem
þar standa vegna þessa máls.
ísafirði, 26. ágúst 1986,
Virðingarfyllst,
Snorri Þorsteinsson,
Pétur Bjarnason,
Guðm. Ingi Leifsson,
Jón R. Hjálmarsson,
Helgi Jónasson."
Hrein óstjóm og óheið-
arlegt rekstrarfé
- segir Olafur G. Einarsson alþingis-
maður um vanda fiskvinnslufyrirtækja
„VIÐ þingmennirnir getum ekki
komið í veg fyrir að Útgarður
hf. selji Gaut GK til hæstbjóð-
anda. Hinsvegar höfum við verið
að beita okkur fyrir þeirri fjár-
hagslegu aðstoð, sem heimamenn
telja sig þurfa til að kaupa skip-
ið,“ sagði Ólafur G. Einarsson
alþingismaður í samtali við
Morgunblaðið, en hann ásamt
þeim Karli Steinari Guðnasyni
og Geir Gunnarssyni, situr í
nefnd sem skipuð var til að finna
leiðir til að halda togaranum
áfram á heimaslóðum, í Garði.
Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu á miðvikudag gær, hefur
togarinn verið auglýstur til söiu
vegna fjárhagsörðugleika fyrir-
tækisins og hefur hæsta tilboð í
skipið komið frá Hraðfrystihúsi
Grundarfjarðar.
„Við höfum fyrst og fremst áhyggj-
ur af atvinnulífinu á staðnum, en
ekki einstökum fyrirtækjum. Hrað-
frystihús Keflavíkur og Sjöstjarnan
eiga einnig í fjárhagsörðugleikum
og hafa bæði fyrirtækin leitað til
Byggðastofnunnar vegna þess. En
ef eigendur þessarra fyrirtækja
vænta fyrirgreiðslu frá stofnuninni,
verða hluthafar sjálfir að leggja
fram nýtt hlutafé og veð fyrir lán-
unum. Það hefur hinsvegar ekki
verið gengið frá tryggingum af
hálfu Kaupfélags Suðumesja og
SÍS, sem er aðalhluthafi Hráðfrysti-
húss Keflavíkur þó frystihúsinu
hafi nú nýlega verið veitt 20 millj.
kr. lánsloforð frá Byggðastofnun.
Stofnunin leggtir sig fram við að
aðstoða þessi svæði við að halda
skipum í heimahöfn. Þó hefur stofn-
unin vissulega ákveðnar skyldur við
stað eins og Grundarfjörð, sem hef-
ur misst skip,“ sagði Ólafur.
Aðspurður um orsakir slæmrar
rekstrarstöðu þessarra fiskvinnslu-
fyrirtækja sagði Ólafur að margar
ástæður lægu þar að baki. „Of lítið
eigið fé er fyrir hendi í upphafi sem
þýðir lántökur sem fyrirtækin geta
ekki staðið undir. í sumum tilvikum
er um hreina óstjórn að ræða og
stundum hafa menn náð sér í
rekstrarfé með óheiðarlegum hætti
sem þeir þurfa auðvitað að standa
skil_ á síðar.“
Ólafur sagði að ljóst væri að öll
fiskiskip, sem seld væru í dag,
væru á yfirverði vegna innflutn-
ings- og smíðabanns á nýjum
skipum. I öðru lagi sagði hann að
kvótakerfið ætti þátt í þessu yfir-
verði þar sem kvóti er seldur um
leið og skip er selt. Kvótakerfið
gæti því ekki gengið öllu lengur í
núverandi mynd.
Höfum gert ákveðinn
samning við Útgarð hf.
- segir Guðni Jónsson, fram kvæmda-
sijóri Hraðfrystihúss Grundarfjarðar
„VIÐ höfum gert ákveðinn samn-
ing við Útgarð hf. í Garði um
kaup á togaranum Gauti GK 244
og geri ég ráð fyrir að frá honum
verði endanlega gengið í næstu
viku,“ sagði Guðni Jónsson,
framkvæmdasljóri Hraðfrysti-
húss Grundarfjarðar, i samtali
við Morgunblaðið í gær.
Guðni vildi ekki skýra frá endan-
legu kaupverði, aftiendingardegi
eða öðru því sem við kemur samn-
ingnum, en samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins mun Hraðfrystihús
Grundarfjarðar hafa boðið í skipið
um það bil 170 millj. kr. „Við höfum
staðið í mikilli baráttu á liðnu ári
við að fá hingað skip og boðið í
íjölda skipa síðan við misstum Sig-
urfara til Fiskveiðasjóðs fyrir rúmu
ári. Auðvitað er kaupverðið hrika-
legt og langt yfír tryggingaverð-
mæti skipsins, sem eru rúmar 90
millj. kr., en það eina sem við hugs-
um um er að eignast skip, sem
getur veitt okkur hráefni."
Guðni sagðist skilja það manna
best að Garðmönnum þætti súrt í
broti að missa skipið. „Eg veit ekki
hvað heimamenn eru að hugsa, en
ég vona bara að þeir og aðrir verði
látnir lúta sömu lögmálum og yfir
okkur hafa gengið," sagði Guðni.
Hraðfrystihús Grundarfjarðar
hefur einnig nýlega fest kaup á
útgerðarfélaginu Skipanesi hf. frá
Grundarfírði, sem átti meðal annars
137 tonna bát, Skipanes.
Ekki er ástæða til að
ræða lánabeiðni Garð-
skaga ef Grundfirðingar
eru að kaupa Gaut GK
- segir Guðmundur Malmquist,
forstjóri Byggðastofnunnar
EIGENDUM Hraðfrystihúss
Keflavíkur hefur verið veitt 20
milljóna króna lán frá Byggða-
stofnun og reikna má með að
eigendum Sjöstjörnunnar verði
veitt svipuð upphæð að því til-
skildu að eigendur sjálfir auki
hlutafé í fyrirtækjum sínum og
leggi fram veð til tryggingar
lánunum, að sögn Guðmundar
Malmquist, forstjóra Byggða-
stofnunnar.
Beiðni Sjöstjörnunnai- hefur hins-
vegar ekki verið tekin fyrir í stjóm
Byggðastofnunnar. Þá hefur beiðni
Garðskaga og Útgarðs hf. frá
Garði, sem á Gaut GK 244, ekki
verið tekin fyrir í stjórn Byggða-
stofnunnar, en hún hljóðar upp á
40 millj. kr. „Það er engin ástæða
til að ræða málefni Útgarðs hf. í
stjóminni ef verið er að selja skipið
til Grundarfjarðar eins og allar líkur
benda til,“ sagði Guðmundur, en
Hraðfrystihús Grundarfjaðrar hefur
einmitt sótt um 40 miilj. kr. lán frá
Byggðastofnun, meðal annars til
að kaupa Gaut GK og verður sú
beiðni væntanlega tekin fljótlega |
fyrir í stjórninni.
i