Morgunblaðið - 16.01.1987, Page 37

Morgunblaðið - 16.01.1987, Page 37
37 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 1987 Lucy Winston Hannes- son kennari - Minning Fædd 23. júní 1920 Dáin 12. jánúar 1987 í öllum skólum ægir saman jurt- um af hinum ýmsu tegundum eða eins og máltækið segir, þar kennir ýmissa grasa. Sum stráin eru ung og auðsveigjanleg en hin eru eldri og þroskaðri og sá siður ríkir þar, sem og í öllum samfélögum, að þau eldri teygja höfuðið hátt á meðan nýliðarnir reyna að vera hljóðir, hikandi og forvitnir inn í þessa nýju veröld sem virðist geyma leyndardóma og ævintýri á bak við hvetja hreyfingu. Og svo hefst sagan hröð og mis- kunnarlaus og ungu stráin hrífast með straumnum og hafa vart við að drekka í sig allt sem fyrir verð- ur og við sem áttum í erfiðleikum með einbeitnina við námið urðum sérfræðingar í mannfólkinu og þá sér í lagi kennurunum — sterku eikunum. Sumir voru léttvægir fundnir, hégómlegir, hrokafullir, sumir voru góðlegir, hvetjandi, skemmtilegir, nokkrir voru af dýr- ustu tegund, og maður vildi ekki gleyma þeim. Gráhærða konan með hásu rödd- ina var ein af þeim sem ungu stráin tóku eftir strax. Stóru stráin, sem urðu vinveitt svona eftir vígsluna miklu, fræddu okkur á því að þetta væri Winston. „Hún kennir ensku — það er enginn svikinn af henni,“ sögðu þau og augnaráðið breyttist þegar þau töluðu. Og svo kom að því að við fengum að kynnast henni. Hún var rösk, klædd eins og hippi í mussu og sléttum striga- skóm; oftast sat hún með krosslagð- ar fætur á stólnum eins og Gandhi hefði vafalaust gert. Kennslan hófst án nokkurra aukaorða, hún talaði hratt og ákveðið og áður en maður vissi af var maður hugfanginn. Kannski var það ekki það sem hún sagði — heldur hvernig hún sagði það — það var eitthvað sem gagn- tók hugann og maður vildi allt fyrir manneskjuna gera. Reynslan var skráð í fas hennar og manni fannst hún hafa bitið á jaxlinn oft — og hún átti kjark sem fáir eiga. Svo heyrðum við af manninum hennar — þeir sögðu hann vera hugsuð, skáld og mikinn mann. Og við skildum að hún hefði auðvitað aldrei getað orðið samferða öðruvísi manni en einmitt honum. Stundum læddi hún inn orðum um hann og það var fallegt. En mitt í önnunum hvarf hann brott — og við fundum til langt inn í hjarta og þorðum ekki að segja neitt. Konan hélt áfram að beijast, bíta á jaxlinn, gefast ekki upp og kjarkurinn var óbilandi. Við skildum, þögðum, fundum til og fylltumst lotningu um leið. Við vorum farin að læra af henni dýrustu hluti — þessa sem aldrei eru sagðir með orðum og aldrei skráðir með krít á töflu. Tilvera hennar var orðin okkur veigamikið námsefni — hún var Birting af- mælis og minningar- greina Morgunblaðið tekur af- mælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á rit- stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafnar- stræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðviku- dagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. kennari af Guðs náð. Skarð hennar verður seint fyllt og þeirra hjóna. Guð blessi minningu þeirra. Gunnbjörg og Brynjólfur í dag, föstudaginn 16. janúar, verður til moldar borin frá Dóm- kirkjunni í Reykjavík Lucy Winston Hannesson, menntaskólakennari, sem andaðist í Landspítalanum í Reykjavík 12. þ.m. Lucy Winston, eða Winston eins og vinir hennar nefndu hana, fædd- ist í Richmond í Virginia í Banda- ríkjunum 23. júní 1920. Hún ólst upp þar vestra og var í námi í heim- speki og ensku við University of California í Berkeley þegar þangað kom ungur siglfírskur námsmaður, Jóhann S. Hannesson. Þau hittust þar fyrst haustið 1941 og gengu í hjónaband í janúar 1942. Fimm árum síðar lá leiðin til íslands og bæði gerðu ráð fyrir að þau væru alkomin hingað þá. Svo varð ekki. Jóhann fékk ekki stöðu, aðeins stundakennslu, og þrem árum seinna fluttust þau aftur til Banda- ríkjanna. Þar var ekki heldur um auðugan garð að gresja á vinnu- markaði þeirra, Winston vann ýmis algeng störf en Jóhann kenndi ensku við sinn gamla háskóla í Berkeley til ársins 1952. Þá fékk hann starf við Cornell University og var þar m.a. bókavörður við ís- lenska bókasafnið sem kennt er við Fiske. Þar réðst Winston síðar til starfa sem ritari við enskudeildina. Þar áttu þau heimili til ársins 1959 að þau fluttust alfarin til Islands og settust að á Laugarvatni þar sem Jóhann tók við skólameistarastarfi í ársbyijun 1960. Þar hóf Winston kennslu ári síðar og var síðan nær óslitið enskukennari við framhalds- skóla til æviloka. Leiðin lá frá Laugarvatni til Reykjavíkur árið 1970 og árið 1971 hóf Winston störf við Manntaskólann við Hamrahlíð, þar sem hún kenndi æ síðan. Winston Hannesson var afburða- kennari og hafði mikinn metnað fyrir hönd greinar sinnar, móður- máls síns. Hún gerði miklar kröfur til sjálfrar sín í starfi, stundum svo að samkennurum hennar ofbauð, hún gat verið nemendum sínum ströng, en af því öryggi sem þeir kennarar einir hafa sem jafnan gera sér fulla grein fyrir getu nem- andans. Ég hitti Winston og Jóhann fyrst þegar hún gerðist kennari við MH. Kynnin urðu ekki hröð, m.a. vegna þess að ungur kennari hlaut að bera óttablandna virðingu fyrir þeim hjónum. Jóhann einn kunnasti og merkilegasti skólamaður sem við höfum nokkurn tíma eignast, Winston ekki aðeins kona hans heldur fyrst og fremst þvílík per- sóna að engum gat dulist að þar fóru glæsilegar gáfur með mikilli reisn. En svo tókust kynni sem leiddu til vináttu og bar aldrei skugga á. Vináttu sem var svo auðgandi að maður kom ríkari af hveijum fundi við þau hjónin, ríkari af skilningi, hugmyndum, mann- þekkingu. Því það var einmitt á því sviði sem mér lærðist að skilja að yflrburðir þeirra beggja lágu. Þau skildu, hvort með sínu móti, meira í hegðun og eðli mannanna en nokk- urt það fólk sem ég hafði notið kynna af. Það fer ekki hjá því að maður á að leiðarlokum stóra skuld ógoldna þvílíku fólki. Ég skrifaði að Winston hefði ver- ið strangur kennari. Þannig kom hún mér fyrst fyrir sjónir. Það var áður en ég hafði gert mér grein fyrir hinni ofumæmu kviku sem bjó að baki. Seinna varð mér ljóst að nemendur hennar skynjuðu þessa kviku fyrr en samkennarar. Það duldist ekki hvert menn leituðu í öngum sínum, hver var „grátmúr- inn“ þegar á bjátaði. Þessi svip- fallega kona, sem alltaf talaði bjagaða íslensku, þeim mun fegur móðurmál sitt, vakti nemendum það traust sem aldrei virtist bila. Fleiri en nemendur sýndu henni traust. Um tuttugu ára skeið sat Winston Hánnesson í Fulbright- nefndinni og mörg áranna var hún formaður hennar. Hún sat einnig oftlega í þeirri undirnefnd sem vel- ur styrkþega. Samkennarar fólu henni oft vandasöm störf — og aldr- ei brást að Winston leysti verk sitt óaðfínnanlega af hendi. Eitt var að kynnast þeim hjónum hvoru um sig. Annað var að verða þeirrar gæfu aðnjótandi að kynnast þeim sem hjónum. Það er sumra sögn að hjónabönd sem til er stofn- að eftir skömm kynni verði sjaldan farsæl. Sé í einu vetfangi hægt að afsanna slíka kenningu gerðu Winston og Jóhann það. Sú ást, sú virðing, sem þau sýndu hvort öðru var þvílík að vinum þeirra mun aldr- ei gleymast. Hafi ég einhvern tíma skilið hvað átt væri við með orða- sambandinu að Jafnræði sé með hjónum" skildi ég það af kynnunum við Winston og Jóhann. Kannski stafaði það jafnræði m.a. af því að verkaskipting með þeim var hreint ekki eins og algengast er. Á heim- ili þeirra í Hafnarfirði smíðaði Winston innréttingarnar sjálf. Hún var líka bílstjórinn, jafnt í sumar- sem vetrarferðum, hún, útlending- urinn sem vaxinn var úr annarri mold en hinni íslensku, hafði vanist annarskonar veðráttu, annarskonar samgöngum. Utlendingur? Að vísu að uppruna en samt var aldrei á henni að finna eftir að okkar kynni urðu að hún ætti nokkurs staðar heima nema hér. Eftir að hún missti mann sinn árið 1983 kom fyrir að hún væri spurð hvort hún ætlaði ekki að flytjast aftur til Bandaríkjanna. Það þótti henni frá- leit spurning og varla svars verð. Þessu landi hafði hún gefist, þess- ari þjóð helgaði hún starfskrafta sína. Winston hafði fengið orlof skóla- árið 1986—87. En hún hafði ekki að fullu lokið störfum á vorönninni 1986 þegar uppgötvaðist sá sjúk- dómur sem dró hana til dauða. Við kvöddumst fyrir þremur vikum og bæði vissu að það var hinsta kveðja. Enn sem fyrr var Winston æðrulaus og styrk. Énn sem fyrr fór ég auð- ugari af fundi hennar. Aldrei hafði mér verið jafnljóst að í henni hafði ég kynnst eiginlegu stórmenni. Fyr- ir það skal þakkað. Bömunum, Wincie og Sigurði, og bamabömum Winston votta ég samúð um leið og ég þakka Winst- on Hannesson fyrir ógleymanlega samvem. Heimir Pálsson Kynni mín af Winston stafa frá námsárunum í Kaliforníu. Við Jó- hann urðum samferða vestur um haf og hófum nám við Háskólann í Berkeley. Þar kynntist hann hinni glæsilegu og gáfuðu skólasystur, Winston Hill, og skipti það engum togum að þau felldu hugi saman og giftust. Ég bjó hjá þeim framan af, þangað til eftir að Wincie, dótt- ir þeirra, fæddist. Við áttum samleið í námi. Lifandi áhugi Jó- hanns og Winston á öllum sviðum smitaði mig og víkkaði sjóndeildar- hring minn. í þessu sambýli tengdumst við þrjú, nánast án þess að taka eftir því, þeim vinaböndum sem síðan héldust þótt leiðir skildi. Er við hittumst aftur á íslandi, eftir méira en áratug, var eins og aðeins dagur hefði liðið. Eiginlega gerði ég mér þá fyrst grein fyrir því hve djúpstæð vinátta okkar var. Við það tækifæri hitti og Unni, kona min, þau hjón í fyrsta sinn. Bæði tóku þau henni tveim höndum. Tendraðist þar neisti sömu bylgju- lengdar sem æ síðan tengdi okkur öll fjögur. Það er ekki auðvelt að flytjast frá fijósömu landi feðra, úr hlýju loftslagi og eiga að aðlagast kaldri fegurð íslands og fella sig að að- stæðum þar, stundum við misjafnar móttökur af hálfu heimamanna. Þær eru þó ófáar konurnar sem gifst hafa íslendingum erlendis og flust til íslands. Með því að flytja með sér brot af menningarhefð og venjum heimalands hafa þær fijóvgað gróðurmold íslenskrar menningar. Winston Hannesson hafði marga þá kosti, sem auðveld- að geta aðlögun að nýju umhverfi — frábæra greind og glaðværa glettni, víðsýni og eðlislægt um- burðarlyndi. Hún tók ástfóstri við Island og allt það, sem íslenskt var, mál og menningu. Fósturland- inu gaf hún af heilum hug alla starfskrafta sína og fölskvalausa þjóðhollustu. Henni þótti vænt um alla sem urðu á vegi hennar, unga sem gamla. Einkum dáði hún dugn- að og áræði íslenskrar skólaæsku, en umburðarlyndi og hreinskilni gerðu henni jafnframt kleift að gagnrýna án þess að særa. Að minnast hennar er að minnast Jóhanns um leið. Hún var honum ómetanlegur styrkur í starfi hans. Hjónaband þeirra var skemmtileg blanda af gagnkvæmri aðdáun og samofnu samstarfi. Jóhann Hann- esson hefur verið kallaður einn af fremstu skólamönnum okkar kyn- slóðar á íslandi. Réttara .væri að segja að Jóhann og Winston hafi í sameiningu verið meðal fremstu kennara og uppeldisleiðbeinenda þessa lands. Svo mikinn þátt áttu þau hvort í annars ævistarfi. Farsælt framlag þeirra til heil- brigðrar menntunar íslenskrar æsku verður seint fullþakkað. Flestir skrifa eða senda samúðar- kveðjur til vinar, sem misst hefur maka eða annan ástvin. Þegar Jó- hann Hannesson dó var það Winston sem skrifaði okkur hjón- um. Við vorum í Moskvu. Hún vildi ekki að við fengjum fregnina úr blöðum. Þannig var Winston: Form skipti ekki máli né hégómi hefð- bundinna siða. Aðalatriðið var að ná til vina þótt íjarri væru. í bréfinu lýsti Winston söknuðin- um og einmanakenndinni eftir lát Jóhanns. Jafnframt rifjaði hún upp margar minningar úr gæfuríkri sambúð. Þau hjón áttu öll sín áhugamál, öll sín vandamál í sam- einingu. Allt, sem þau gerðu, það gerðu þau saman. Kannski var það þess vegna, sem þau gátu miðlað öðrum svo miklu. Bréfið frá Winston er fallegasta og hjartnæmasta bréf, sem við hjón- in höfum fengið. Að Jóhanni látnum hélt Winston ótrauð áfram kennslustarfinu við Hamrahlíðarmenntaskólann, þrátt fyrir þverrandi heilsu. Það var henni styrkur í baráttunni við einveruna. Sjúkralegunni síðustu mánuði tók hún með einstöku jafnaðargeði. Hún vissi vel hvert stefndi og gat rætt um það, æðrulaust, við Wincie dóttur sína. Við þökkum Winston samfylgd- ina, vináttuna og allt það sem hún gaf íslandi. Hún var landnámskona, hetja. Við missi hennar er ísland at fátækara. Hugur okkar leitar í dýpstu sam- úð til Wincie og Chris, Sigurðar og annarra nánustu aðstandenda. Unni og Haraldur í dag fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík útför Lucy Winston Hannesson. Lucy Winston Hill fæddist 23. júní 1920 í Richmond í Virginíuríki í Bandaríkjunum þar sem faðir hennar var lögfræðingur en móðirin sölustjóri hjá bókafor- lagi. Hún lagði stund á ensku og heimspeki við Kalifomíuháskóla, lauk þaðan Associate of Arts-prófi árið 1940 en hélt áfram námi um sinn. Haustið 1941 kom þangað ungur íslenskur námsmaður, Jó- hann S. Hannesson. Með þeim Winston tókust brátt kynni og í janúar 1942 gengu þau í hjóna- band. Árið 1947 fluttust þau til íslands, þar sem Jóhann sinnti stop- ulli vinnu við kennslu. Leiðin lá að nýju til Bandaríkjanna árið 1950. og Jóhann réðst bókavörður við Fiske-safnið í Cornell-háskóla í íþöku í New York-ríki. Árið 1959 fluttist fjölskyldan aftur til íslands og Jóhann tók við starfi skólameist- ara Menntaskólans á Laugarvatni. Þar kenndi Winston ensku á árun- um 1961—67. Þau Jóhann fluttust svo til Reykjavíkur og skömmu síðar, árið 1971, réðst Winston sem enskukennari að Menntaskólanum í Hamrahlíð, þar sem Jóhann var einnig kennari. Dóttir þeirra, Wincie, kom einnig að skólanum sem enskukennari og starfar þar enn. Mörgum hefur reynst erfitt að flytjast með maka til framandi lands, temja sér nýja tungu og að- lagast nýjum háttum, en allt frá því ég kynntist Winston Hannesson hef ég nánast litið á hana sem ís- lending, þótt henni væri vissulega tamt að grípa til móðurmáls síns í löngum orðræðum. Það duldist engum sem kynntist þeim Winston og Jóhanni, hve náið og innilegt samband þeirra var. Fráfall hans 9. nóvember 1983 var henni mikið áfall. Winston Hannesson var kennari við Menntaskólann við Hamrahlíð til dauðadags. Hún var afbragðs kennari og að sama skapi góður skipuleggjandi. Skólinn mun léngi búa að starfi hennar. Henni var sl. haust veitt eins árs orlof til fram- haldsnáms, en entist ekki heilsa til að nýta orlofið. Baráttu við erfiðan sjúkdóm lauk að morgni mánudags- ins 12. janúar. Að leiðarlokum votta ég börnum Winston, Wincie og Sigurði, bama- börnum ogöðrum ástvinum innilega samúð mína, og ég veit að ég má flytja þær kveðjur frá nemendum, kennurum og öðru starfsfólki Menntaskólans við Hamrahlíð. Ornólfur Thorlacius Kveðja frá ensku- kennurum við MH Þann 12. janúar sl., daginn sem kennsla hófst að loknu jólaleyfi, lést samkennari okkar Winston Hannesson. Hún beið lægri hlut í æðrulausri baráttu við banvænan sjúkdóm. Winston hlaut menntun í ensku máli og bókmenntum í Kaliforníu á vesturströnd Bandaríkjanna og vann síðan við kennslu mestan hluta starfsævi sinnar, á Laugarvatni og síðar við Menntaskólann við Hamrahlíð. Því starfi helgaði hún sig af lífi og sál. Einlægur áhugi hennar á menntamálum og viðmót í samskiptum við annað fólk gerði hana að jafngóðum kennara og raun ber vitni. Hún var ávallt reiðu- búin að tileinka sér nýjar hugmynd- ir og sótti námskeið í því skyni. Hún staðnaði því aldrei í starfí. Samskipti hennar við nemendur voru oft nánari en almennt gerist í skóla milli kennara og nemenda. Ófáir nemendur komu að heim- sækja hana í skólann, jafnvel mörgum árum eftir að námi þeirra lauk, sem sýnir að þeir kunnu að meta þá umhyggju sem hún bar fyrir þeim. Við samstarfsmenn Winston minnumst hennar með hlýhug. Við minnumst margra ánægjustunda þar sem hún sagði frá ferðalögum sínum, margvíslegri reynslu og hugmyndum. Hún var hjálpsöm og örlát á tíma sinn, hvort sem var í einkalífi eða starfi. Jafnframt lét hún sér mjög annt um okkur og fjölskyldur okkar. Winston var sérstaklega vel að sér í bókmenntum og málfræði' enskrartungu. En metnaður hennar fólst ekki aðeins í því að kenna ensku, heldur einnig að þroska hæfileika nemenda og auka þeim víðsýni. Dugnaður var aðalsmerki Winston. Megi góðar minningar styrkja börn og barnaböm í sorginni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.