Morgunblaðið - 16.01.1987, Side 49

Morgunblaðið - 16.01.1987, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 16. JANÚAR 1987 49 Benfica sigraði Ander- lecht BENFICA frá Portúgal vann And- erlecht, lið Arnórs Guðjohnsen, með tveimur mörkum gegn einu f vináttuleik á miðvikudaginn. Það var Michael Manniche sem skoraði fyrst fyrir Benfica. Júgó- slavinn Krncevic jafnaði fyrir Anderlecht en Carlos Manuel gerði sigurmark Benfica. Gunnarog Guðmundur löglegir með ÓL-liðinu GUNNAR Gfslason og Guð- mundur Steinsson er löglegir með Ólympíuliði íslands í knatt- spyrnu. Margir höfðu talið að þeir væru ólöglegir þar sem þeir komu inná sem varamenn í leik íslands og Spánar í undan- keppni HM. Það hefur komið í Ijós að leik- menn sem hafa leikið í minna en 90 mínútur með landsliðinu í undankeppni HM eða Evrópu- keppni mega leika með Ólympíu- liðinu. Fjölmargir leikir eru á dagskrá undankeppni Ólympíuleikana í sumar hjá íslenska landsliðinu. Stórmót íþrótta- fréttamanna áAkranesi Ómar og félagar leika gegn „gulldrengjunum“ af Skaganum STÓRMÓT íþróttafréttamanna í innanhússknattspyrnu verður haldið á sunnudaginn í iþrótta- húsinu á Akranesi og hefst klukkan 14.30. Það eru átta lið sem taka þátt í mótinu eins og venja er til. Lið- unum er skipt í tvo riðla þar sem allir leika við alla. í A-riðli eru Fram, ÍBK, Valur og lið íþróttaf- réttamanna. í hinum riðlinum eru KR, Þór, Víðir og Skagamenn. Hver leikur er 2x7 mínútur nema í undanúrslitunum og í sjálfum úrslitaleiknum en þá leika menn í 2x10 mínútur. Undanúr- slitin hefjast klukkan 18.15 og úrslitaleikurinn klukkan 19.15. Það verður eitthvað til skemmtunar á Akranesi á sunnu- daginn því Ómar Ragnarsson mætir með Stjörnulið sitt og leik- ur við „gulldrengina" af Akranesi og ætti það að vera jöfn og skemmtileg keppni. • Gunde Svan hefur mikla yfir- burði í heimsbikarnum í skfða- göngu karla. HSÍ og Flugleiðir: Fimm milljón króna auglýsingasamningur Handknattleikssamband ís- lands, HSÍ, hefur gert nýjan auglýsingasamning við Flugleiði sem gildir fram yfir Olympfuleik- ana í Seoul f Suður-Kóreu á næsta ári. Flugleiðir munu verða aðal- stuðningsfyrirtæki HSÍ fram að Olympíuleikum og munu öll lands- lið íslands í handknattleik, karla, Skíði: Gunde Svan enn efstur GUNDE Svan frá Svfþjóð hefur örugga forystu f heimsbikarnum í skíðagönu karla. Hann hefur nú 74 stig. Vladimir Smirnov, Sov- étrfkjunum er f öðru sæti með 43 stig. Karlarnir kepptu í 15 km göngu á laugardaginn. Þar sigraði Harri Kirvensniemi frá Finnlandi. Hann gekk á 41.52,2 mínútum. Torgny Mogren, Svíþjóð, varð annar á 42.02,7 mín. Christer Majbaeck, Svíþjóð, þriðji á 42.05,9 mín. og Gunde Svan í fjórað sæti á 42.42,2 mín. Staðan í heimsbikarnum síðustu helgi er þessi: Gunde Svan, Svíþjóð eftir 74 Vladímir Smirnov, Sovétrfkjunum 43 Torgny Mogren, Sviþjóð 42 Thomas Eriksson, Sviþjóð 34 Harri Kirvesniemi, Finnlandi 34 Christer Majbaeck, Svfþjóð 30 Pierre Harvey, Kanada 26 Vegard Ulvang, Noregi 24 Thomas Wassberg, Svíþjóð 21 kari Ristanen, Finnlandi 20 Andi Grúnonfelder, Sviss 19 • Ernst Vettori frá Austurrfki hefur staðið sig vel f vetur og er nú efstur f heimsbikarkeppninni f skíða- stökki. Hann er líklegur til afreka á heimsmeistaramótinu sem hefst í Oberstdorf í febrúar. Skíðastökk: Vettori hefur tekið forystu ERNST Vettori frá Austurríki hef- ur nú tekið forystu í heimsbikar- keppninni í skíðastökki. Hann sigraði í stökki af 70 metra palli í Oberwiesenthal f A-Þýskalandi f gær. Vettori, sem er 22 ára, náði lengsta stökki keppninnar í fyrra stökki sínu er hann stökk 92 metra. Hann stökk síðan 86, 5 metra og varð hinn öryggi sigurvegari með samtals 224,6 stig. Hann hefur nú hlotið 165 stig í heildarstigakeppn- inni. Hroar Stjernen frá Noregi varð annar stökk 88,5 og 91,5 metra og hlaut 223,5 stig. Jiri Parma frá Tókkóslóvakíu varð þriðji, stökk 88,5 og 88 metra og hlaut 219,9 stig. Staöan í heimsbikarnum í skíða- stökki er nú þessi: Ernst Vettori, Austurríkl 165 Vegard Opaas, Noregi 154 Jens Weissflog, A-Þýskalandi 103 Prlmoz Ulaga, Júgóslavíu 101 Ulf Findeisen, A-Þýskalandl 97 Hroar Stjernen, Noregl 88 Andreas Felder, Austurriki 82 MiranTepes, Júgoslavíu 70 Jiri Parma, T ókkóslóvakiu 70 Thomas Klauser, V-Þýskatandi 66 Matti Nykaenen, Finnlandi 62 kvenna, pilta og stúlkna, leika með merki Flugleiða á búningum sínum. HSÍ mun leitast við að kynna þjón- ustu og starfsemi Flugleiða hér,- lendis sem erlendis á þessum tíma. Auk þessa munu Flugleiðir styðja við bakið á landsliðinu með ýmsum hætti. Þeir munu til dæmis bjóða Júgóslövum, heims- og Olympíumeisturunum, hingað til lands til tveggja landsleikja í febrú- ar. Þessi samningur er sá stærsti sem íslenskt fyrirtæki gerir við sérsamband innan ÍSÍ og er áætl- að að stuðningur Flugleiða við HSÍ nemi um 5 milljónum króna á þessu keppnistímabili. Er samningurinn var undirritað- ur í gær sagði Jón Hjaltalín Magnússon formaður HSÍ meðal annars að frá því HSÍ var stofnað fyrir 30 árum hefðu handknatt- leiksmenn farið í um 10.000 ferðir með Flugleiðum. Jón sagði einnig að landsliðsmenn okkar yrðu mikið á ferðinni fram að Olympíuleikum og taldi ekki ofreiknað að þeir yrðu fjarri heimilum sínum í um 42 vik- ur, eða í tæpt ár, fram að Olympíu- leikum. • Emst Happel hefur ákveðið að hætta sem þjálfari HSV í vor. Happel hættir ÞJÁLFARINN góðkunni, Ernst Happel, sem þjálfað hefur HSV í Vestur-Þýskalandi um árabil hef- ur ákveðið að hætta hjá félaginu eftir þetta keppnistfmabil. Happel var búinn að lýsa því yfir fyrir nokkru að hann hyggðist hætta eftir þetta keppnistímabil en í gær sagði hann alls óráðið hvað hann tæki sér fyrir hendur. „Það getur vel verið að ég haldi áfram að þjálfa en það verður alla vega ekki hjá HSV því það er mik- ið meira en nóg að vera með sama liðið í sex ár,“ sagði kappinn. Frjálsar íþróttir: Egill hleypur vel innanhúss „MÉR hefur gengið vel á æfingum og á ugglaust eftir að ná betri tímum í mótum, sem eru fram- undan,“ sagði Egill Eiðsson, spretthlaupari úr UÍA í samtali við Morgunblaðið. Egill hefur náð góðum árangri á innanhússmótum í Vestur-Þýzkal- andi að undanförnu, en hann stundar nám við íþróttaháskólann í Köln. Egill hljóp 400 metra á 49,20 sekúndum í Dusseldorf á sunnu- daginn og varð fjórði í úrslitahlaupi á meistaramóti Nord-Rhein-fylkis- ins. Sigurvegarinn hljóp á 48,08 sek., en aðeins var hálf sekúnda milli þriggja næstu manna. Und- anrásir fóru fram aðeins rúmum tveimur klukkustundum fyrir úr- slitahlaupið og hljóp Egill þá á 49,50 sekúndum. Helgina áður, sunnudaginn 4. janúar, hljóp Egill 200 metra á 22,3 sekúndum á móti í Dortmund. Hvort tveggja er með því betra, sem íslendingur hefur náð innan- húss. 4- Kraftlyftingar: Unglingamót íslandsmeistaramót unglinga í kraftlyftingum verður haldið laug- ardaginn 7. febrúar en unglingar eru þeir sem eru á aldrinum 14—23 ára. Keppendur verða að senda þátt- tökutilkynningar til Halldórs E. Sigurbjörnssonar, Ásbraut 11 í Kópavogi eða í Æfingastöðina í Engihjalla fyrir 1. febrúar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.