Morgunblaðið - 29.01.1987, Side 1
72 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
23. tbl. 75. árg.
FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 1987
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Umsáturá Filippseyjum
Tæplega 1000 stjórnarhermenn sátu í gær um sjónvarpsstöð í Manila, sem uppreisnarmenn tóku á
sitt vald er þeir reyndu að ræna völdum á Filippseyjum á þriðjudagsmorgun. I gær var tvívegis
skotið táragassprengjum inn í bygginguna en þar voru tæplega 200 menn. Talsmenn stjórnar Coraz-
on Aquino segja fylgismenn Ferdinands Marcos, fyrrum forseta, hafa staðið að baki valdaránstil-
rauninni. Foringi þeirra sem hertóku sjónvarpsstöðina hóf í gærkvöldi samningaviðræður við
stjórnarherinn og var búist við að umsátrinu myndi brátt ljúka. Myndin var tekin í gær og sýnir
fjóra uppreisnarmenn fyrir framan sjónvarpsstöðina.
Stefnuræða Ronalds Reagan:
Sovéskir fjölmiðlar
gagnrýna forsetann
Moskvu, Washington, AP, Reuter.
SOVÉSK dagblöð veittust harð-
lega að Ronald Reagan Banda-
ríkjaforseta i gær og sögðu
stefnuræðu hans, sem hann flutti
í fyrrinótt, hafa verið uppfulla
af óhróðri um Sovétríkin. Frétta-
skýrandi JVovosti-fréttastofunn-
ar sagði ræðu forsetans hafa
valdið vonbrigðum og að Reagan
hefði fyrirfram ákveðnar hug-
myndir um stöðu alþjóðamála,
sem væru í engu samræmi við
raunveruleikann. A Bandaríkja-
þingi sögðu leiðtogar Demó-
krataflokksins að þeir væru
reiðubúnir til að vinna með Reag-
an þau tvö ár sem eftir lifa af
forsetatíð hans.
Robert Byrd, leiðtogi demókrata
í öldungadeild Bandaríkjaþings,
sagði í gær að flokksmenn hans
væru reiðbúnir til að eiga vinsam-
legt samstarf við Reagan forseta
og ástæðulaust væri að átök og
sundurþykkja settu svip sinn á þau
tvö ár sem Reagan mun sitjá til
viðbótar á forsetastóli. Byrd sagði
nauðsynlegt að forsetinn leysti
kreppu stjórnarinnar vegna vopna-
sölunnar til íran. Einungis á þann
hátt gæti forsetinn öðlast tiltrú
bandarísku þjóðarinnar á ný. Jim
Wright, forseti fulltrúadeildarinnar,
flutti ræðu í gær og ræddi einkum
stöðu efnahagsmála í Bandaríkjun-
um. Wright fagnaði því að Reagan
skyldi hafa rætt um hinn mikla við-
skiptahalla Bandaríkjanna en bætti
við að þingmenn hefðu þegar gripið
til aðgerða til að draga úr honum.
Tass-fréttastofan sovéska birti í
gær útdrátt úr ræðu Reagans og
lagði sérstaka áherslu á þá kafla
sem fjölluðu um samskipti risaveld-
anna og afvopnunarmál. Var
Reagan sakaður um að virða að
vettugi þau drög að samkomulagi,
sem rædd voru á fundi leiðtoganna
í Reykjavík. Fréttastofan sagði
„varfærni“ hafa einkennt ummæli
forsetans um vopnasöluna til Iran.
Að öðru leyti lýsti Tass ræðu forset-
ans sem takmarkalausum óhróðri
um Sovétríkin, stefnu þeirra og
þjóðfélagsgerð alla.
Sjá nánar um stefnuræðu
Reagans á bls. 27.
Fimm herskip Banda-
ríkjaflota á Persaflóa
Napólí, Washington, AP, Reuter.
FIMM herskip úr flota Banda-
ríkjamanna voru í gær send inn
á norðanverðan Persaflóa og
voru í gærkvöldi skammt undan
strönd Kuwait. Þá var tveimur
flugmóðurskipum skipað að
halda sig á Miðjarðarhafi og hélt
eitt, þeirra austur á bóginn í átt
til Líbanon.
Kuwait og hafa þeir m.a. rætt leið-
ir til að binda enda á Persaflóastríð-
ið. íranir sitja ekki fundinn og hafa
hryðjuverkahópar þeim hliðhollir
haft í hótunum við fundarmenn.
George Shultz, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagði á þriðjudag-
inn að Bandaríkjastjórn myndi telja
það alvarlega ógnun ef átökin fyrir
botni Persaflóa breiddust út. Sagði
hann að írönskum ráðamönnum
væri fullkunnugt um þessa afstöðu
ríkisstjórnarinnar. Vitað er að
bandarískir embættismenn óttast
mjög að öfgafullir múhameðstrúar-
menn komist til valda í fleiri ríkjum
við Persaflóa ef írönum tekst að
sigra íraka. Þar með yrði hagsmun-
um vestrænna iðnríkja ógnað því
flest kaupa þau olíu frá Persaflóa-
ríkjunum.
Fréttir ber-
ast af Waite
London, AP.
ERKIBISKUPNUM af Kant-
araborg bárust í gærkvöldi
þær fréttir að Terry Waite,
sendimaður biskups, væri í
öruggum höndum og væri
enn að semja um frelsi gísla,
sem eru í haldi í Líbanon.
Waite kom til Líbanon þann
12. þessa mánaðar og hafði
ekkert til hans spurst í rúma
átta sólarhringa. I tilkynningu
frá erkibiskupnum sagði að
Waite hefði í gær átt fundi
með öfgafullum múslimum en
getgátur höfðu verið uppi um
að honum hefði einnig verið
rænt.
Sovétríkin:
Kunayev vikið úr
stj órnmálaráðinu
Moskvu, Reuter, AP.
Morgunblaðið/Rax
Alexander Yakolev (t.h) á blaðamannafundi Gorbachevs í Háskólabíó.
Bandarískir embættismenn
sögðu í gær að með þessu viidi
Bandaríkjastjórn sýna Irönum og
skæruliðahópum í Líbanon að
Bandaríkjamenn hygðust vetja
hagsmuni sína á þessum slóðum.
Embættismaður einn, sem ekki vildi
láta nafns síns getið, sagði að skip-
in hefðu verið send inn á Persaflóa
til að fullvissa vinveitt arabaríki um
að Bandaríkjastjórn væri reiðubúin
til að sýna „styrk og ákveðni" þeg-
ar þess væri þörf þar sem spenna
færi nú vaxandi í þessum heims-
hluta. Bandaríkjastjórn skipaði
þegnum sínum í gær að hverfa frá
Líbanon innan 30 daga.
Flugmóðurskipið Nimitz var á
leið til hafna í Frakklandi og á ít-
alíu þegar skipherranum var í gær
fyrirskipað að halda sig á Miðjarð-
arhafi. Flugmóðurskipið Kennedy
er einnig í nágrenninu og í gær
bárust fréttir um að flugmóðurskip-
ið Kitty Hawk hefði fengið fyrir-
skipun um að halda frá Filippseyj-
um og hraða sér inn á Indlandshaf.
Leiðtogar arabaríkja funda nú í
Dinmukhanied Kunayev, sem
í eina tíð var náinn samstarfs-
maður Brezhnevs fyrrum Sovét-
leiðtoga, var vikið úr stjórn-
málaráði sovéska kommúnista-
flokksins í gær. Ennfremur
tilkynnti 7’ass-fréttastofan að
Mikhail Zimyanin, sem einnig
komst til metorða í valdatið Brez-
hnevs, hefði látið af störfum sem
ritari miðstjórnarinnar sökum
þverrandi heilsu.
í tilkyi.ningu Tass sagði að Alex-
ander N. Yakolev, sem verið hefur
ritari miðstjórnarinnar og er dyggur
stuðningsmaður Mikhails Gorb-
aohev, hefði verið gerður að fulltrúa
í stjórnmálaráðinu án atkvæðisrétt-
ar. Yakolev hefur farið með áróð-
ursmál og var í eina tíð sendiherra
í Kanada. Að auki voru þeir Nik-
olai N. Slunkov og Anatoly I.
Lukyanov hækkaðir í tign og skip-
aðir ritarar miðstjórnarinnar. Báðir
eru þeir handgengnir Gorbaehev.
Ritarar miðstjórnar standa skör
lægra en meðlimir stjórnmálaráðs-
ins í valdakerfi Sovétríkjanna.
Þar sem Kunayev var vikið úr
stjórnmálaráðinu (Politburo) sitja
þar nú ellefu fullgildir meðlimir með
atkvæðisrétt. Kunayev hafði verið
gagnrýndur fyrir slælega stjórn er
hann var flokksleiðtogi í Kazakhst-
an og gerður ábyrgur fyrir óeirðum
í Alma Ata í desembermánuði. I
ræðu sinni á þriðjudag gagnrýndi
Gorbachev hið staðnaða embættis-
mannakerfí Brezhnev-tímabilsins
og kom því ekki á óvait að Kunay-
ev skyldi víkja. Á hinn bóginn kom
á óvart að fullgildur meðlimur
skyldi ekki skipaður í hans stað og
telja fréttaskýrendur það vísbend-
ingu um að Gorbachev hafi ekki
náð þeim markmiðum sem hann
stefndi að.
Sjá ennfremur uin ræðu
Gorbachevs á bls. 26 og for-
ystugrein á miðopnu.