Morgunblaðið - 29.01.1987, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 1987
7
Öll leyfi til næturflugs á ísafirði hafa verið afturkölluð:
Undirbúin leit að flak-
inu á 130 metra dýpi
Landhelgisgæslan gagnrýnd vegna viðbragða við slysinu
FLUGMÁLASTJÓRN hefur aftur-
kallað öll leyfi til lendinga og-
flugtaka af ísafjarðarflugvelli að
næturlagi eftir flugslysið sem varð
á Isafjarðardjúpi þegar flugvél frá
flugfélaginu Ornum lenti í sjónum
um klukkan 20 að kvöldi miðviku-
dagsins 21. janúar siðastliðnum.
Fyrir hendi var leyfi til að ferja
flugvélar til Isafjarðar að nætur-
lagi, það er að fljúga þeim tómum
að undanskilinni áhöfn, og var flug
vélarinnar sem lenti í sjónum inn-
an þeirra marka. Flugfélaginu
Örnum var hinsvegar i desember
síðastliðnum synjað um leyfi til
annars næturflugs um Isafjarðar-
flugvöll.
Gagnasöfnum vegna slyssins
stendur enn yfir á vegum rannsókn-
amefndar flugslysa, og sagði Karl
Eiríksson formaður nefndarinnar við
Morgunblaðið að verið væri að und-
irbúa leit að flaki flugvélarinnar og
ná því upp á yfirborðið, en vitað er
að það liggur á 130 metra dýpi.
Yfirheyrslur vegna flugslyssins
hafa farið fram hjá sýslumanninum
á Isafirði, og hafa meðal annars ver-
ið teknar skýrslur af skipveijum á
varðskipinu Oðni, sem statt var 1,2
sjómílur frá þeim stað sem flugvélin
lenti í sjónum. Fram hefur komið að
miðunartæki, sem notað er til að
miða út sendingar frá neyðarsendum
flugvéla og átti að vera um borð í
varðskipinu, var bilað og í viðgerð.
Hinsvegar greindust merki frá neyð-
arsendi flugvélarinnar í viðtæki sem
notað er til fjarskipta við flugvélar
Landhelgisgæslunnar, en ekki var
hægt að miða út hvaðan merkin
komu.
Gunnar Bergsteinsson forstjóri
Landhelgisgæslunnar sagði í samtali
við Morgunblaðið að miðunartæki það
sem um ræðir sé ekki skylduútbúnað-
ur um borð í varðskipum og þau séu
aðeins til að miða út merki frá neyð-
arsendum flugvéla. Fyrir eru í
varðskipunum tæki til að miða út
neyðarsendingar frá skipum eins og
lög geri ráð yfir. Gunnar sagði að
Landhelgisgæslan hefði keypt þessi
tæki nýlega í gegnum umboðsmann
í Reykjavík. Tækið um borð í Oðni
hefði bilað og umboðsmaðurinn hefði
fengið það til viðgerðar, en honum
hefði ekki tekist að fá það sem þurfti
til að gera við miðunartækið.
Komið hafa fram ásakanir í ijöl-
miðlum á hendur áhöfn Óðins um að
fyrstu viðbrögð hennar hafi verið
óyfírveguð, og einnig að hún hafí
ekki reynt að grennslast fýrir um
hvaðan þau merki komu sem greind-
ust í viðtæki skipsins fyrr en varð-
skipinu var tilkynnt um flugslysið frá
stjómstöð Landhelgisgæslunnar tæp-
um hálftíma eftir slysið. Þegar
Morgunblaðið bar þetta undir Gunnar
sagði hann að rannsókn málsins færi
fram á vegum rannsóknamefndar
flugslysa og sýslumannsins á Isafírði
og hann hefði ekki úrskriftir úr þeim
yfírheyrslum enn. Þegar Gunnar var
spurður að því hvort ekki væri ástæða
til sérstakrar rannsóknar innan Land-
helgisgæslunnar sagði hann að það
væri venja að kanna mál og störf
starfsmanna þar innandyra.
Karl Eiríksson sagði aðspurður að
þáttur varðskipsins yrði tekinn fyrir
í skýrslu sem rannsóknamefndin mun
senda frá sér þegar rannsókn lýkur,
sennilega eftir nokkra manuði en á
þessu stigi vildi hann ekkert láta
hafa eftir sér um þetta mál.
P,
A At
<y
L
.ykilinn fœrð
þú hjá
Hei m ilistœkjum
Heimilistæki hf
S:62 12 15
hefur sigurför um allan heim.
Laugardagur
Kl. 16:00 HITC-
HCOCK. Hinir
öldruðu (III be
JudgeJury). Ný-
gift hjón á
brúðkaups-
ferðalagi i
Mexico eru
myrt. Lögregl-
unni mistekst
að sanna sekt
morðingjans
svo að ættingjar
fórnarlambanna taka tilsinna
ráða.
Auglýsendur hafið samband við
stöðina sem fyrst isima 673030
Kl. 21:05 AF BÆ í BORG.
(Perfect Strangers). Nýr
bandarískur framhaldsmynda-
flokkur. Þættirnir fjalla um
borgarbarn sem eraö reyna
að koma sér fyrir i lifinu. En
skyndilega kemurinn ílífhans
fjarskyldur ættingi og flytur
inn. Grátbroslegur þáttur. Kl.
21:30 BRÁÐLÆTI (Hasty
Heart). Bandarisk bíómynd.
Aðalhlutverk Gregory Harri-
son, Cheryl Ladd og Perry
King. Dauðvona, skapvondur
maður liggur á sjúkrahúsi i
Burma þar sem starfsliðið
ásamt sjúklingum reynirað
stytta honum stundirnar.
Á NÆSTUNNI
Föstudagur Kl. 23:35 BENNY
HILL. Bráðfyndinn breskur gam-
anþáttur sem farið
AÐEINS NOKKRIR DAGAR EFTIR
Vetrarútsalan stendur sem hæst — Allt nýjar og nýlegar vörur
Dæmi um verð
KARNABÆR ■ GARBÓ KARNABÆR
Unglingadeild
□ SVARTAR DENIM-BUXUR
Áður 2.390
Nú 1.290
□ BOLIR - GALLABUXUR
KULDAFLÍKUR O.M.FL.
□ DENIM KULDAJAKKAR
Áður 6.850
Nú 2.900
□ ÍTALSKIR LEÐURSKÓR
Áður 3.500
Nú 1.490
□ ULLARKÁPUR
Áður 8.900
l\lú 4.900
□ ULLARDRAGTIR
Áður 11.500
IMú 4.900
BOIUAPARTE
□ JAKKAFÖT ÚR MOHAIR-
EFNUM
Áður 13.900
Nú 5.900
□ STAKIR JAKKAR
Áður 5.890
Nú 2.900
Svo mikið
fyrir svo
lítið
Barnadeild
□ BARNABUXUR
Áður 2.290
Nú 1.090
□ BARNASKYRTUR
40% afsláttur
KARNABÆR
LAUGAVEGI
□ ULLARKÁPUR
Áður 8.900
Nú 4.900
□ HERRASKYRTUR
Áður 1.980
Nú 980
□ DÖMU ULLARBUXUR
Áður 2.890
Nú 1.590
Laugavegi 66 — Austurstræti 22
Laugavegi 30 — Glæsibæ
. Austurstræti 22