Morgunblaðið - 29.01.1987, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 1987
21
Andreas Scmidt á ljóða-
tónleikum í Gamla bíói
Tónlistarunnendum gefst
kostur á að heyra söng barítón-
söngvarans Andreas Scmidt frá
Vestur-Þýskalandi nk. mánu-
dag'skvöld 2. febrúar. Andreas
Scmidt syngur Ijóðasöngva eftir
Mozart, Beethoven og Schumann
með pianóleikaranum Thomas
Palm. Það er mikill viðburður
að Andreas Schmidt skuli syngja
á íslandi, en hann er nú svo eft-
irsóttur að óperuhús og tónleika-
hús út um allan heim keppast
um að fá hann til að syngja, seg-
ir i fréttatilkynningu sem blaðinu
hefur borist.
Þar segir ennfremur: „Andreas
Scmidt fæddist í Diisseldorf árið
1960, og er því aðeins 26 ára gam-
all. Söngferill hans hefur verið svo
glæsilegur, þó stuttur sé, að menn
líkja því helst við feril kennara hans
Fischer-Dieskau. Telja má upphaf
þessa óvenju skjóta frama fyrstu
verðlaun í tveimur stærstu söngv-
arakeppnum Þýskalands er hann
hlaut árið 1982. í framhaldi af því
var honum boðinn árs styrkur hjá
óperunni í Berlín og síðan starfs-
samningur og hefur hann þegar
komið fram f mörgum aðalhlutverk-
um þar. í desember sl. söng hann
hlutverk Wolframs í Tannhauser
eftir Wagner og var það einn stærsti
söngsigur hans til þessa. Á sl. ári
söng hann sem gestur í óperuhús-
unum í Hamborg, Munchen og
Covent Garden í London og mun
syngja við mörg önnur þekkt óperu-
hús á næstunni. Hann hefur komið
fram með mörgum sinfóníuhljóm-
sveitum í fremstu röð, svo sem
Berlínar Fílharmoníunni, Vínar
Fílharmoníunni, Lundúna Fílharm-
oníunni og Hljómsveit Scala óper-
unnar í Mílanó undir stjóm þekktra
hljómsveitarstjóra, Giulini, Colin
Davis, Cobos, Sawallisch, Sinopoli,
Rilling ofl. Auk þessa hefur Andre-
as komið fram á fjölda ljóða- og
óratóríutónleikum í mörgum Evrópu-
löndum, ísrael, Suður-Ameríku og
Japan. Píanóleikarinn Thomas Palm
hefur oftast leikið með Andreas
Schmidt á ljóðatónleikum, en auk
þess hefur hann unnið mikið með
píanóleikaranum Irwin Gage og
Jörg Demus, en til íslands kemur
hann einmitt beint úr tónleikaför
um
Ítalíu með Jörg Demus. Andreas
hefur komið fram í útvarpi og sjón-
varpi víða um lönd og sungið inn á
hljómplötur hjá Deutsche
Grammaphon, Philips og EMI.
Hann hefur hvarvetna hlotið mikið
lof gagnrýnenda, sem nefna oft
nafn Fischer-Dieskau í því sam-
bandi.
Andreas Schmidt hefur áður
heimsótt ísland og er mikill aðdá-
andi lands og þjóðar. Það má telja
til tíðinda að fyrsta sjónvarpspró-
gramm, sem hann gerði var hjá
Islenska sjónvarpinu árið 1982,
þegar hann var aðeins 22 ára gam-
all, en í það skipti söng hann einnig
einsöngskantötur eftir Bach í
Hallgrímskirkju. Minna má á að
hann var einnig „leynigestur" á
píanótónleikum Jörg Demus hjá
Tónlistarfélaginu árið 1984 oghreif
áheyrendur með flutningi nokkurra
þekktra Schubert-ljóða.
Á ljóðatónleikunum í Gamla bíói
á mánudagskvöldið munu þeir fé-
lagar m.a. flytja ljóðaflokkana „An
die feme Geliebte" eftir Ludvig van
Beethoven og Liederkreis op. 39
eftir Robert Schumann, sem báðir
tilheyra fegurstu perlum ljóða-
söngsins.
Aðgöngumiðar eru til sölu hjá
Istóni við Freyjugötu, hjá íslensku
Gítartónleikar
ópemnni í Gamla bíói og við inn-
ganginn. Tónleikamir heíjast kl.
20.30.“
Tónlist
Jón Ásgeirsson
Ungur gítarleikari, Sveinn Ey-
þórsson, hélt sína fyrstu tónleika
í Norræna húsinu og flutti tónlist
eftir Weiss, Falla, Brouwer,
Villa-Lobos, Mangore og Rodrigo.
Fyrsta verkið var Lútusvíta eftir
Weiss (1686—1750), fallegt verk
er Sveinn lék ágæta vel. Falla
starfaði um tíma í París og þekkti
Debussy mjög vel. Minningarlagið
um Debussy er sérkennilegt en á
engan hátt stæling á stíl meistar-
ans, þó heyra megi smá tón-
hendingu eftir hann. Falla var á
margan hátt eina spánska tón-
skáldið er náði að skapa sér
alþjóðlegan tónstfl, þó ævinlega
megi merkja sterk einkenni þjóð-
félagsins. Nútímalegasta verkið á
tónleikunum var Elogio de la
danza eftir Leo Brouwer, sem er
þegar mjög kunnur fyrir frábær-
lega vel gerð gítarverk. í þessu
verki sýndi Sveinn mjög skemmti-
leg tilþrif og vald sitt á hljóð-
færinu. Eftir hlé flutti Sveinn
tónlist eftir snillingana Villa-
Lobos, Mangore og Rodrigo og
var flutningur verkanna sannköll-
uð gítarveisla. Fyrst vom það
þijár etíður, nr. 4, 6 og 10, eftir
Villa-Lobos. Þar mátti heyra
sterka tilfínningu Sveins fyrir
„dynamic", eins og reyndar í tón-
verki Brouwers, sérstaklega í
tveim fyrri æfíngunum en í þeirri
þriðju leikandi tækni hans.
Prelúdía og „betlarabæn" eftir
Mangore em ljóðræn tónverk sem
Sveinn lék af innileik. Þrjú spönsk
lög eftir Rodrigo vom lokaverkin
á tónleikunum og þar gat að heyra
margt mjög vel gert. Óhætt er
að fullyrða að Sveinn Eyþórsson,
sem er aðeins tuttugu og tveggja
ára, hefur þegar aflað sér óvenju
staðgóðrar menntunar og auk
þess að vera mjög leikinn á sinn
gítar, má vel heyra að hann er
íhugull tónlistarmaður. „Hann á
eftir að láta heyra í sér, svo mun-
að verði, þessi strákur."
Utanríkisráðuneytið:
Nýr ráðuneytisstj óri
HANNES Hafstein, sem verið
hefur sendiherra íslands í
Genf, tekur nú um mánaða-
mótin við embætti ráðuneytis-
stjóra i utanrikisráðuneytinu.
Nú em að koma til fram-
kvæmda þær breytingar á yfir-
stjórn utanríkisráðuneytisins, sem
ákveðnar vom undir lok síðasta
árs. Ingvi S. Ingvarsson, fráfar-
andi ráðuneytisstjóri, er að taka
við störfum sendiherra í Wash-
ington og Hannes Hafstein við
ráðuneytisstjóraembættinu.
Við starfí sendiherra í Genf
tekur Sverrir Haukur Gunnlaugs-
son, skrifstofustjóri Vamarmála-
skrifstofu utanríkisráðuneytisins.
Sverrir Haukur fer þó ekki til
starfa í Genf fyrr en í maí- næst-
komandi.
Hannes Hafstein
HF. ÖLGERÐIN EGILL SKALLAGRÍMSSON________@ Að^ögðu