Morgunblaðið - 29.01.1987, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 29.01.1987, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 1987 Byggingaþj ónustan; Skipulag miðbæjar Reykjavíkur kynnt Morgunblaðið/Júlíus Skipulag miðbæjarins skoðað í Byggingaþjónustunni. Frá vinstri: Þorvaldur S. Þorvaldsson, for- stöðumaður Borgarskipulags, Davíð Oddsson borgarstjóri, Sigrún Magnúsdóttir borgarfulltrúi Framsóknarflokks og Bjarni P. Magnússon borgarfulltrúi Alþýðuflokks KYNNING stendur nú yfir á tillögu um miðbæjarskipulagið í Byggingaþjónustunni, Hall- veigarstíg 1, m.a, með líkani og teikningum. Einnig stendur þar yfir kynning á deiliskipu- lagstillögu af Þingholtinu og Ijósmyndir af líkani nýrrar þjónustumiðstöðvar, sem á að rísa á horni Vesturgötu og Garðastrætis, eru til sýnis í Byggingaþjónustunni. Tillaga þeirra Dagnýjar Helgadóttur og Guðna Pálssonar arkitekta að skipulagi miðbæjar- ins hefur verið í vinnslu frá miðju ári 1984. Tillagan tengist þeirri vinnu, sem unnin hefur verið að endurskoðun aðalskipulags Reykjavíkur. Að lokinni kynningu, 18. mars nk., fjallar skipulags- nefnd og borgarráð um athuga- semdir er borist hafa og afgreiðir síðan borgarstjóm skipulagið ásamt umsögn um hvetja athuga- semd og umsögn um skipulagstil- löguna til skipulagsstjómar. Nú er lokið vinnu við endur- skoðun á skipulagi gömlu hverf- anna í Þingholtinu er tengist beint aðalskipulagsvinnunni. Unnar hafa verið nokkrar tillögur að deiliskipulagi reita, sem ástæða hefur þótt til að vinna strax vegna óska lóðareigenda um breytingar á húsum eða umsókna um ný- byggingar. Á fundi skipulags- nefndar sl. mánudag var tillaga frá Teiknistofu Guðrúnar Jóns- dóttur að öðrum reit í Þingholtum samþykkt, en hún afmarkast af Bankastræti, Þingholtsstræti og Skólastræti. Tillagan verður kynnt í Byggingaþjónustinni í þijár vikur og skal koma athuga- semdum eða ábendingum til Borgarskipulags fyrir 20. febrúar nk. Samkeppni um ráðhúsbygg- ingu á svonefndri Bámlóð í norðvesturhomi Tjarnarinnar stendur nú yfir og rennur skila- frestur út 5. mars nk. Á líkani miðbæjarskipulagsins má sjá lausa plötu, sem svarar til bygg- ingarreits Ráðhússins en allir þátttakendur í samkeppninni fá slíka plötu til að fella á líkan af sinni tillögu. í Byggingaþjónustunni eru til sýnis húshlutar úr 100 ára gömlu húsi úr borginni. Húsið var á einni hæð á hlöðnum grásteinssökkli. Upphaflegur ytri frágangur var timburvatnsklæðning að götu óg bámjám að nærliggjandi húsum. Húshlutamir sýna þá þróun sem orðið hefur frá þeim tíma er eng- in byggingarreglugerð var til hér á landi. Húshlutunum er einnig ætlað að gefa innsýn í viðgerð og útlit fyrir og eftir viðgerð. Á homi Vesturgötu og Garða- strætis mun á þessu ári og tveimur næstu rísa ný þjónustu- miðstöð fyrir íbúa vesturbæjarins og em fyrirhugaðar framkvæmdir kynntar á sýningunni. Þar verður þjónustumiðstöð fyrir aldraða, heilsugæslustöð og 26 íbuðir, sem ætlaðar em öldmðum. I kjallara hússins verður bflageymsla, sem ætluð er almenningi. Byggingaþjónustan er sjálfs- eignastofnun. Aðilar að henni em átta: Arkitektafélag íslands, Ak- ureyrarbær, Félag íslenskra iðnrekenda, Húsnæðisstofnun ríkisins, Iðntæknistofnun Iðlands, Landssamband iðnaðarmanna, Rannsóknarstofnun bygginga- riðnaðarins og Reykjavíkurborg. Þar er um 600 fermetra sýningar- salur þar sem íslenskir og erlendir framleiðendur kynna vömr sínar í sýningarbásum og með mynd- böndum. I máli Ólafs Jenssonar, framkvæmdastjóra Bygginga- þjónustunnar, kom meðal annars fram við opnun kynningar borgar- innar að ýmsar nýjungar væm á döfinni hjá fyrirtækinu. Verið er að taka í notkun byggingarefna- skrá, sem er í tölvu og getur almenningur upplýsingar úr tölv- unni um hvar viðkomandi vara er fáanleg, hvar framleidd, hver sé umboðsmaður o.s.frv. Einnig hefur fyrirtækið nú upp á að bjóða verktakaþjónustuskrá, sem hefur að geyma upplýsingar um fag- menn á sviði byggingaiðnaðar. Þá hefur Húsnæðisstofnun ríkis- ins látið Byggingaþjónustunni í té tölvuforrit til þess að geta boð- ið upp á þá þjónustu að reikna út greiðslubyrði þeirra, sem ætla að fara út í íbúðakaup eða hús- byggingar. Byggingaþjónustan er þessa dagana í samvinnu við nokkra aðila að láta gera myndband um orsakir steypuskemmda, hvað sé til ráða til þess að koma í veg fyrir þær og hvernig sé hægt að gera við skemmdimar. I mars- mánuði verður sérsýning á efnum, tækjum og búnaði er varðar vatns- og fráveitulagnir í tengsl- um við námskeið sem endur- menntunamefnd HÍ heldur í samvinnu við Iðntæknistofnun Is- lands. Ólaf i Ragnari veitt viður- kenning fyrir framlag til af- vopnunarmála ÓLAFI Ragnari Grímssyni pró- fessor var í síðustu viku veitt viðurkenning Pomerance-sam- takanna. Samtök þessi starfa í nánum tengslum við Sameinuðu þjóðirnar á sviði afvopnunar- mála og veita árlega viðurkenn- ingu þeim sem þykja hafa lagt með nýjum hætti fram skerf til þess málaflokks. Ólafur Ragnar er formaður alþjóðlegra þing- mannasamtaka sem hafa látið að sér kveða á þessum vettvangi. William Epstein, framkvæmda- stjóri afvopnunardeildar Sameinuðu þjóðanna, afhenti Ólafi viðurkenn- inguna í New York á fimmtudag. „í máli Epstein kom fram að mér var veitt þessi góða viðurkenning af þremur ástæðum. I fyrsta lagi fyrir að hafa átt hlut að því að koma á samstarfi sex þjóðarleið- toga, sem undanfarin tvö ár hafa í æ ríkari mæli beitt sér á vett- vangi afvopnunarmála, t.d. á síðasta ári með tillögum og viðræð: um við Reagan og Gorbachev. í öðru lagi vegna þess að á síðasta ári lagði ég grundvöll að því ásamt samstarfsmönnum mínum, meðal annars með viðræðum við She- vardnadze utanríkisráðherra Sovét- rikjanna, að gerður var samningur þar sem heimilað er að bandarískir vísindamann komi til Sovétríkjanna og fylgíst með því að bann gegn tilraunum með kjarnorkuvopn sé virt. í þriðja lagi fékk ég þessa við- urkenningu vegna þess að samtökin sem ég er formaður fyrir, komu fram með ýmsar hugmyndir um hvernig ná mætti víðtækum af- vopnunarsamningum með því að beita ákvæðum í gildandi samning- um til þess að breyta þeim. Hingað til hefur ávallt verið samið frá grunni, með nýjum samningi í hvert sinn,“ sagði Ólafur Ragnar. Þegar Ólafi var veitt viðurkenn- ingin var honum flutt kveðja Perez de Cuellar, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna. í kveðju þess- ari kom fram ánægja framkvæmda- stjórans með störf prófessorsins. i- Húsgagna í fullum gangi Opið kl. 9-19 það hefur alltaf borgað sig að versla á Vörumarkaðinum Vúrumarkaöurinn hf. Nýjabæ-Eiðistorgi Sími 622-200
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.