Morgunblaðið - 29.01.1987, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. JANUAR 1987
I
Yinnuveitendur þroskist
eftirPétur
Sigiirðsson
í Morgunblaðinu sl. fimmtudag,
þ.e. 22. janúar, birtist „fréttatil-
kynning“ frá Vinnuveitendasam-
bandi Islands, hvar fjallað er um
samningsaðstöðu farmanna, en fyr-
ir þá semur Sjómannafélag Reykja-
víkur við kaupskipaútgerðimar.
Þar eð víða er hallað réttu máli
í þessari „fréttatilkynningu" þykir
mér sem herrar farmanna á landi
og legi sigli frekar á hvolfi en rétt-
um kiii.
Ég tel nauðsynlegt að koma
nokkrum athugasemdum að, ekki
aðeins vegna stöðu minnar í Sjó-
mannafélaginu, heldur einnig vegna
þess að margir góðviljaðir og ábyrg-
ir menn meðal beggja aðila hafa
reynt að miðla málum milli deiluað-
ila.
Þar á meðal ber að telja undirrit-
aðan, sem löngu er hættur að taka
þátt í beinu samningaþjarki, en
hefír talið rétt og skylt að liðka til
við lausn þessarar deilu, sem hefur
staðið, má segja, allt frá 1979, þeg-
ar þáverandi ríkisstjóm stöðvaði
verkfall undirmanna á farskipum
með bráðabirgðalögum. Og má með
sanni segja að þannig hafi þessi
stétt unnið síðan, með lítilli upp-
styttu, þ.e. undir lögum.
Það ár og deilan sú er að sjálf-
sögðu forsendan, en ekki árið 1986,
eins og VSÍ heldur nú fram. Til
viðbótar er rétt og skylt að benda
á, að hluta þess sem fólst í niður-
stöðu gerðardómsins hefur aldrei
verið framfylgt og þess vegna held-
ur þessi deila m.a. áfram. Einnig
vegna þess að heildarsamningar
ASÍ sem allt eiga að móta, geta
það ekki og gera ekki, þegar .þeir
sem þar fara með forræði mála,
gera aldrei ráð fyrir því að borð
þurfi fyrir bám.
Grátbroslegt er að lesa þá full-
yrðingu VSI að þeir hafi gert
ítrekaðar tilraunir til að koma við-
ræðum milli deiluaðila í gang á sl.
hausti. Eitthvað hefur blessuðum
útgerðarmönnunum okkar þótt að,
enda létu þeir sumarstörf nokkurra
starfsmanna sinna ganga til þess
að „búa til“ nýja kjarasamninga
fyrir farmenn og senda þá síðan á
hvern einstakling, sem hlut átti að
máli, þrátt fyrir aðvörun formanns
SR.
Auðvitað mega vinnuveitendur
senda hveijum sem þeir vilja bréf.
En ekki er það gáfulegt svo ekki
sé meira sagt að hefja samningavið-
ræður á þann hátt að leggja til
gjörbyltingu á áratuga gömlum
vinnuramma, án þess að hafa
nokkra samstöðu viðsemjenda þar
um. Því hafa samningar þessir lent
í þófi. Að sjálfsögðu lagði SR fram
sínar kröfur á grundvelli gildandi
„samninga“, sem voru ákveðnir
með lögum á sínum tíma.
Má benda útgerðarmönnum á,
að til þessa hefur SR mótmælt laga-
setningu um kaup og kjör félags-
manna sinna en alltaf hlýtt þeim.
Tel ég þetta nægja til að svara
finu VSI, er þeir segja í fréttatil-
kynningu sinni að „vinnuveitendur
hafi gert ítrekaðar tilraunir til að
koma viðræðum í gang á sl. hausti"!
Um kröfur farmanna í prósentum
eða krónutölu þýðir ekki að ræða
við þá sem ekki til þekkja. Enda
forðast fréttaskýrendur VSI að
minnast á vinnutímalengd, fjaiveru,
álag vegna starfsaðstöðu auk hætt-
unnar í starfi sjómanna, en halda
því frekar á lofti krónutölum án
þess að geta í einu eða neinu vinnu-
tímans. Er óþarfi að rifja nýliðna
atburði upp, en útgerðarmönnum
kaupskipa á að vera fullkunnugt
þar um. Eða hvað?
Þessum samtökum VSÍ er að
sjálfsögðu ekki sæmandi — og
reyndar út í bláinn — að koma fram
í „fréttatilkynningu“ sinni fullyrð-
ingu um laun á „viku eða átta
mánuðum", án þess að geta um það
sem að baki liggur, en það er vinnu-
tími þeirra, sem fyrir tilvitnuðum
upphæðum vinna.
Furðulegt þykir mér ennfremur
að heyra fullyrðingar sömu aðila
um nauðsyn aukinnar hagkvæmni
í rekstri og þá að sjálfsögðu með
aukið vinnuálag háseta og annarra
undirmanna í huga. Furðulegt segi
ég og hefi þá í huga eftirfarandi
magntölur, sem birtust fyrir
skömmu í blaði og hefur verið ómót-
mælt hingað til.
Sjá töflu
Sú þróun sem hefur átt sér stað,
þ.e. magn pr. sjómann, hefur öll
orðið innan þess gamla vinnu-
ramma, sem mér er nær að halda
að hafi orðið til við stofnun Eim-
skipafélags íslands!
Vissulega hafa margar breyting-
ar verið þar á gerðar á þessu langa
árabili. Eitt hefur þó alltaf staðið
upp úr: Ekki hefur verið látið undan
síendurteknum kröfum, sem rýrt
gætu öryggi áhafnar og þar með
skips og farms.
Því miður hafa sjómenn á far-
skipum skipt sér í tvo hópa, a.m.k.
stéttarfélagslega séð.
Nú þekkist ekki það sem ég varð
áður var við, að yfirmenn reyndu
að nýta sér kjarabaráttu undir-
manna, enda í flestum tilfellum
sameiginleg hagsmunamál áhafna.
En þau mál liggja víðar en á launa-
sviði. Mín spá er sú að í kjölfar
þessa samningaþófs munu yfir- og
undirmenn þjappa sér saman og
Niður
með hita-
kostnaðinn
OFNHITAST1LLAR
= HÉÐINN =
VÉLAVERZLUN-SIMI: 24260
LAGER-SÉRPANTANIR-ÞJÓNUSTA
Pétur Sigurðsson
„Eiga farmenn í
síauknum mæli að
gegna hlutverki gal-
eiðuþrælsins, sem flutt-
ur er milli hafna
innanlands og utan til
að gegna hlutverki
haf nar verkamannsins?
Surnum okkar, sem
f lokkast undir maga-
þenjandi jólakrása-
sveina, þætti ekki gott
frekar en öðrum Islend-
ingum að fá 20 mínútur
í matarhlé á aðfanga-
dagskvöld. En þetta var
hásetum á einum fossi
„óskabarnsins“ boðið
upp á um Si. jól í einu
austantjaldslandanna.“
mótmæla flumbrugangi útgerðar-
manna með því að knýja fram
frekari öryggi áhafna og vinnu-
vemd. Síðasttalda atriðið var ekki
með í löggjöf síðustu vinstri stjóm-
ar um vinnuvernd og öryggi á
vinnustað.
Samkvæmt ákvæðum laga áttu
aðilar að semja um þessi mál. Ekk-
ert boð hefur komið frá útgerðar-
mönnum þar um. Þó skal réttilega
bent á þátt Siglingamálastofnunar
á sviði öryggismála. En nú þarf að
semja þar um eða fá þriðja aðilann,
sem ASI og VSI styðjast svo oft við
í samningum sínum til að tosa í
taum útgerðanna eða lemja í lengd
þeirra, nema báðar verði. A ég hér
að sjálfsögðu við ríkisstjórn og Al-
þingi. Vonandi þarf ekki að leita
til Washington að þessu sinni. Enn
hefur aðeins verið rætt við félaga
okkar á Norðurlöndum.
Hvorki yfír- né undirmenn eiga
að óttast kröfuna um svokallað
„Combi-crew“, hvar hásetum og
öðrum er skylt að vinna frá mast-
urstoppi niður í kjalsog, hvenær
sem er sólarhringsins, hvemig sem
á stendur í þoku, náttmyrkri og
Rey ðarfj örður:
Þorrablót í
sumarveðri
Reyðarfjörður.,
Reyðfirðingar héldu sitt ár-
lega þorrablót sl. föstudag, eða
fyrsta þorradag.
Blótið var með svipuðu sniði og
undanfarin ár og mikill og góður
matur á borðum. Þá voru skemmt-
iatriði á meðan á borðhaldi stóð,
sungnar gamanvísur og lesinn
annáll. Loks dönsuðu allir til klukk-
an fjögur um nóttina við undirleik
hljómsveitarinnar Bumbumar frá
Neskaupsstað. Blótið sátu fjörutíu
manns og fór það í alla staði vel
fram. Sumarveður var á meðan,
enda hefur svo verið allan janúar-
mánuð. Elstu menn muna ekki eftir
iafn miklu blíðviðri á þorra.
Gréta.
1978
Skipafjöldi
Sjómenn
Flutt tonn
Olíuverð í Kaupmannahöfn
1979
Skipafjöldi
Sjómenn
Flutt tonn
Olíuverð í Kaupmannahöfn
1985
Skipaijöldi
Sjómenn
Flutt tonn
Olíuverð í Antwerpen
24
147 undinn.
589.000
180 U.S. $ pr. tonn
24
147 undirmenn
560.000
372 U.S. $ pr. tonn
15
83 undirmenn
704.000
180 U.S. $pr. tonn.
368 heildaráhöfn
364 heildaráhöfn
205 heildaráhöfn
KENWOOD
ÞAÐ VERÐUR ENGINN FYRIR VONBRIGÐUM MEO KENWOOD HEIMILISTÆKIN
KENWOOD CHEF
hefur sannað ágæti sitt í gegnum árin
\lr\»A 4 “í yinnmeö skál, þeytara, hnoðara,
vero KT. | | .T'UUhrærara, loki og mæliskeið.
Viðgerða- og varahlutaþjónusta
Fáðn I j ^ Raftækja- og heimilisdeild
fylgihlutir: Laugavegi 170-172 Simi 695550
+