Morgunblaðið - 29.01.1987, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. JANUAR 1987
27
Stefnuræða Bandaríkjaforseta:
Reagan segist bera fulla
ábyrgð á vopnasölunni
- skorar á Sovétmenn að sýna friðarvilja í verki
Washington. Reuter.
RONALD REAGAN, Bandaríkjaforseti, flutti í fyrrakvöld sjöttu
stefnuræðu sína á fundi beggja þingdeilda og var henni einnig sjón-
varpað til milljóna manna. Hann sagði að einn skugga bæri á starf
sljórnar sinnar undanfarin ár og átti þar við Iranmálið, að öðru
leyti hefði miðað á framfarabraut. Verðbólga væri minni en nokkru
sinni síðustu 25 ár, atvinnuleysi væri það minnsta í 7 ár, 13 milljón-
ir nýrra starfa hefðu bætst við á vinnumarkaðinum og friður og
frelsi ríkti í Bandarikjunum.
„En þó okkur hafí miðað á fram-
farabraut, ber einn skugga á. Ég
tók áhættu varðandi viðskipti við
íran, mál fóru á annan veg en von-
ast var til og á því ber ég fulla
ábyrgð", sagði forsetinn. „Mark-
miðin voru verðug, ég álít það ekki
rangt að reyna að koma á tenglsum
við ráðandi öfl í hernaðarlega mikil-
vægu riki og vissulega var það ekki
rangt að vilja bjarga bandarískum
þegnum sem haldið er glæpsamlega
í gíslingu. En okkur tókst ekki
ætlunarverk okkar og alvarleg mi-
stök voru gerð. Við munum komast
til botns í þessu máli og ég mun
gera allt sem í mínu valdi stendur
til þess að svo verði“. Er forsetinn
hafði mælt þessi orð stóðu þing-
menn Republikana á fætur, klöpp-
uðu og fögnuðu ákaft. Forsetinn
minntist ekki á það að hluti af hagn-
aðinum af vopnasölunni til Iran
rann til Contra-skæruliða í Nic-
araqua, en lauk umfjöllun sinni um
Iran við mikinn fögnuð stuðnings-
manna sinna á þessum orðum. „Við
skulum ekki láta segja það um
núlifandi Bandaríkjamenn að þeir
hafi látið mistök heltaka sig svo
að þeir þyrðu ekki að taka áhættu
er stuðlað gæti að framgangi friðar
og frelsis í heiminum“.
Reagan lýsti yfir vilja sínum til
að eiga vinsamleg samskipti við
Sovétríkin, en sagði að þau yrðu
V estur-Þýskaland:
CDU og CSU eigast
við eftir kosmngarnar
Ziirich, frá Önnu Bjamadóitur, fréttaritara Morgunblaðsins.
LEIÐTOGAR kristilegu bræðra-
flokkanna, CDU og CSU, áttu
sinn fyrsta fund eftir þingkosn-
ingarnar í Vestur-Þýskalandi í
gær og undirbjuggu stjórnar-
myndunarviðræður flokkanna
við frjálsa demókrata, FDP.
Josef Strauss, forsætisráðherra
Bæjaralands og formaður CSU,
sagði fyrir fundinn að stefna
flokkanna í umræðunum yrði
mótuð á fundinum en deiluatriði
yrðu rædd síðar.
Heiner Geissler, framkvæmda-
stjóri CDU, sagði að fundinum
loknum að bræðraflokkarnir myndu
leggja áherslu á endurbót á skatta-
kerfinu og á félags- og umhverfis-
mál í stjórnarmyndunarviðræðun-
um. Framkvæmdastjóri CSU sagði
að afvopnunar- og utanríkismál
yrðu einnig rædd í viðræðunum.
FDP vann sigur í kosningunum,
sem voru haldnar á sunnudag, en
CDU/CSU töpuðu tæplega fimm
prósenta fylgi. Geissler kenndi
kosningabaráttu CSU að hluta til
um úrslitin strax að kosningunum
loknum. Orð hans komu við kaunin
á mörgum í Bæjaralandi og nú eru
deilur hafnar milli hans og frammá-
manna í CSU. Strauss gagnrýndi
utanríkisstefnu Hans-Dietrichs
Genscher, utanríkisráðherra, harð-
lega í baráttunni og sagði tíma til
kominn að stjórn Helmuts Kohl
mótaði sína eigin utanríkisstefnu.
Þetta er talið hafa hjálpað Gensch-
er og FDP í kosningunum.
Ronald Reagan, Bandaríkja-
forseti flytur þingheimi stefnu-
ræðu sína sl. þriðjudagskvöld.
að sýna friðarvilja sinn í verki og
virða mannréttindi. „Þrátt fyrir þá
staðreynd að þriðjungur fjölskyldna
í Sovétríkjunum hafi ekki heitt vatn
í íbúðum sínum, þá hefur sovéska
rlkisstjórnin á síðustu fimm árum
varið 75 milljörðum bandaríkjadoll-
ara í hernaðaraðstoð við ýmis ríki
s.s. Sýrland, Víetnam, Kúbu, Líbýu,
Angóla, Eþíópíu, Afganistan og
Nicaraqua“, sagði forsetinn. Hann
spurði síðan hvort hægt væri að
draga í efa að Sovétmenn ætluðu
að auka áhrif sín í heiminum þegar
litið væri á þá staðreynd að mikill
fjöldi sovéskra hermanna og hern-
aðarlegra ráðunauta væru í Asíu,
Afríku og Latnesku-Ameríku. Re-
agan kvað það ekki nóg að Sovét-
menn segðust vilja binda enda á
hina grimmilegu stytjöld í Afganist-
an, þeir yrðu að draga her sinn
heim og leyfa afgönsku þjóðinni að
ákvarða framtíð sína.
„Lýðræðisleg sjónarmið eru að
vinna á í Mið- og Suður-Ameríku“,
sagði Bandaríkjaforseti. „Nic-
araqua sker sig þó þar úr, því
yfirvöld þar reyna að stemma stigu
við starfsemi kirkjunnar, þagga nið-
ur í fjölmiðlum og andófsmönnum
og grafa undan friði í þessum
heimshluta". Hann sagði síðan að
hann myndi berjast með kjafti og
klóm gegn því að Sovétmenn næðu
varanlegri fótfestu í Mið-Ameríku.
Reagan sagði Bandaríkjamenn
alltaf vera reiðubúna til að finna
friðsamlega lausn mála og hvað
Sovétríkin varðaði þá viidi ríkis-
stjórn sín semja um að dregið yrði
úr vígbúnaðarkapphlaupinu. „Á ís-
landi höfðum við tækifæri í október,
til að ná árangri, en Sovétmenn
gerðu það að engu því þeir lögðu
ofurkapp á að eyðileggja geim-
varnaráætlun okkar. Slíkt sam-
þykkti ég ekki og mun aldrei gera“.
Forsetinn ítrekaði andstöðu sína
við vemdartollastefnu, en sagði að
sýna þyrfti sanngirni í viðskiptum.
Hann kvað mikið hafa áunnist í
efnahagsmálum, en hallinn á §ár-
lögum væri of mikill ogyrði að finna
lausn á þeim vanda. Hann sagðist
ekki álíta að hækka bæri skatta
heldur draga úr ríkisútgjöldum.
Velferðarkerfið þyrfti að endur-
skoða og bæta.
I lok hinnar 34 mínútna löngu
ræðu sinnar fjallaði Reagan forseti
um framtíð bandarísku þjóðarinnar,
sem hann kvaðst álíta bjarta, ef
fólkið nýtti ser hin óendanlega
margþættu tækifæri til betra lífs
sem nú biðust.
Gengi
gjaldmiðla
London, AP.
BANDARÍKJADOLLAR snar-
lækkaði gagnvart öllum helztu
gjaldmiðlum heims á gjaldeyris-
mörkuðum i Japan og Evrópu í
gær og hefur hann ekki verið
Iægri gagnvart vestur-þýzka
markinu í sex ár. Verð á gulli féll
einnig.
Mikið framboð var á dollar í gær
vegna efasemda um að framundan
sé efnahagsbati í Bandaríkjunum og
frétta um methalla á utanríkisvið-
skiptum Bandaríkjanna. Þá þótti
ekkert benda til að vestur-þýzki
seðlabankinn myndi grípa til aðgerða
til að styrkja dollarann.
Brezka pundið kostaði 1,5470 doll-
ara í London, miðað við 1,5310 í
fyrradag, og hefur það ekki verið
hærra skráð gagnvart dollar frá 13.
júní 1983. Þýzka markið var skráð á
1,7750 dollara í Frankfurt en lægri
hefur dollarinn ekki verið skráður
gagnvart markinu frá 6. ágúst 1980.
Gengi dollarans var annars þannig
að fyrir hann fengust:
1,4865 svissn. frankar (1,5248)
5,9150 frankir frankar (6,0600)
2,0005 holl. gyllini (2,0465)
1.264,00 ít. lírur (1.290,50)
1,3360 kanad. dollarar (1,34485)
í Tókýó féll dollarinn þriðja daginn
í röð og var skráður á 151,20 jen
(151,95). í London lækkaði dollarinn
enn frekar og var skráður á 150,40
jen.
Gullúnsan kostaði 408,80 dollara
í London (411,40) og 411,00 í Zurieh
(411,,50)
Veldur hárlos
áhyggjum?
Ný þjónusta á íslandi!
Meðhöndlun með laser-geisla hefur gefið
góða raun. Meðferð þessi stöðvar hárlos,
er hættulaus og hefur engar þekktar auka-
verkanir.
Upplýsingar og tímapantanir í síma 11275
kl. 10.00-17.00.
PHIIIPS
V#
POTTÞETTA
ELDAVÉLIN FRÁ PHILIPS
Verð kr.
19
Heimiiistæki hf
Hafnarstræti 9, sími 20455 — Sætúni 8, sími 27500.