Morgunblaðið - 29.01.1987, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 1987
57
Keila:
Met hjá Valgeiri
- náði átta fellum í röð og hlaut 266 stig
SUNNUDAGINN 25. janúar var
slegiS tæplega ársgamalt ís-
landsmet Hjálmtýs Ingasonar af
Valgeiri GuSbjartssyni. Gamla
metiS var 258 stig í einum leik,
en met Valgeirs er 266 stig. Til
aS ná þeim stigafjölda þurfti Val-
geir aS ná samfellt 8 fellum og
loka öSrum römmum. (Fella er
þaö þegar leikmaSur fellir allar
keilurnar í einu kasti).
Keilufélagið hefur nú myndað
landsliðshóp sem kemur til með
áð keppa við bestu leikmenn varn-
arliðsins á Keflavíkurflugvelli þann
15. febrúár nk. Var öllum félags-
mönnum boðið að keppa um
réttindi í 16 leikjum. Þátt tóku um
50 manns og náðu 20 félagar rétt-
indum til áframhaldandi æfinga í
landsliðshópi.
Hópurinn samanstendur af:
Konur:
Dóra Siguröardóttir Kaktus
Guðný Pálsdóttir Kaktus
Kristrún Árnadóttir Petra
Sólveig GuÖmundsdóttir Petra
Birna Þórðardóttir Keiluvinir
Ásdís Steingrímsdóttir Feykjurnar
Heiðrún Þorbjörnsdóttir Dúkpjötlur
HrafnhildurÓlafsdóttir Valkyrjur
Karian
AIoí8 Raschofer Víkingasveitin
Ásgeir Heiöar Víkingasveitin
Gunnar Kjartansson Víkingasveitin
Höskuldur Höskuldsson Fellibylur
Þorgrímur Einarsson Fellibylur
Ólafur Skúlason Fellibylur
Jónas Gunnlaugsson Mánaskin S.F.
Guðmundur HarÖarson Mánaskin S.F.
ValgeirGuÖbjartsson Yfiriiðið
Björn Baldursson Þröstur
Halldór Ragnar Halldórsson Keilubanar
Magnús Reynisson B.B. Smiöjan
Keppnis- og
æfingaferð
Á fimmtudaginn munu 22
manns fara til Newcastle í keppn-
is- og æfingaferð. Keppt verður í
blönduðum flokkum á laugardag
og sunnudag. Ekki er að efa að
þar fá íslensku keilararnir góða
reynslu. Munu þeir örugglega
vekja mikla hrifningu í rauðum og
grænum keppnisbolum með
íslenska Svala-auglýsingu í bak og
fyrir.
Morgunblaöiö/Gunnlaugur Rögnvaldsson
• Alfreð ásamt félögum sínum hjá Essen.
Flugleiðamótið:
Tomas Bartlett:
Alfreð kemur
á morgun
Sár þegar ég kom
fyrst til íslands
TOMAS Bartlett er af bresku
bergi brotinn. Hefur búið á fs-
landi í tíu ár og var annar þeirra
sem tóku þátt f Opna breska
meistaramótinu f pílukasti fyrir
íslands hönd. Segist sjálfur vera
sport-ídfót og hafa áhuga á öllum
þróttum, hefur m.a. lagt stund á
knattspyrnu, box og borðtennis
auk pílukastsins.
„Ég varð mjög sár þegar ég kom
fyrst til íslands, því hér var hvorki
pílukast né drukkinn bjór. Það var
því mikið ánægjuefni fyrir mig þeg-
ar ÍPF var stofnað. Á yngri árum
stundaði ég pílukast mikið í Bret-
landi og var því feginn að geta
dustað rykið af pílunum aftur eftir
um tíu ára hlé.
Mig óraði nú ekki fyrir því að
eiga eftir að keppa fyrir (sland í
pílukasti og það á móti Bretum.
MFI — British Open-keppnin hefur
gefið mér mikla reynslu og það var
óneitanlega spennandi að fá að
vera þarna innan um bestu spilara
heimsins.
Það sem dreifði einbeitingunni
í þessari keppni var það, að ég
þurfti að átta mig á fyrirkomulagi
keppninnar og stærð hennar. Ég
tók eftir því að aðrir keppendur
höfðu flestir aðstoðarmenn til að
ganga frá skipulagningu og smá-
atriðum, þetta tók frá manni
dýrmætan tíma sem annars hefði
verið hægt að nýta í upphitun og
til að byggja upp einbeitingu.
Mér fannst leikurinn sem ég
spilaði við Jeff Foster vera búinn
áður en ég vissi af. Ég spilaði vel
og fékk góð skor á móti honum
en átti einfaldlega ekki möguleika.
Hann var of góður fyrir mig, fór
alltaf úr á fyrstu pílu og fékk há
skor, gaf mér aldrei tækifæri á að
reyna útgang. Þessir þrír leggir
kláruðust allir á 15—17 pílum og
óður en ég vissi af var Foster bú-
inn að taka í hendina á mér og
þakka fyrir leikinn.
Nú varst þú númer tvö í fs-
landsmótinu eftir tveggja og
hálfrar stunda úrslitaleik við Ægir
Ágústsson. Hefurðu hug á að
hreppa íslandsmeistaratitilinn á
þessu ári?
Vitanlega stefni ég að því og
ætla að reyna allt sem í mínu valdi
stendur til að ná titlinum. Ég er
með æfingaborð heima hjá mór
og reyni að æfa lágmark klukku-
tíma á dag. Ég æfi mig á tvöföldun
og þreföldun allan hringinn, legg
áherslu á reit 20 og svo uppáhalds
útgönguleiðir mínar, tvöfaldan 20
og 10. Annars finnst mér hálf leið-
inlegt að æfa einn og gef mér því
meiri tíma þegar ég hef fleiri til
að spila við. Á æfingum ganga
hlutirnir yfirleitt upp en þegar í
keppni er komið þá bætist tauga-
spennan við, þetta tvennt er
gjörólíkt. Það eina sem getur sigr-
að taugaspennuna er reynslan.
Það er enginn vafi að íslands-
mótið í ár verður mjqg sterkt.
Hérna eru að koma upp spilarar
sem hafa mikla hæfileika, það
verður tvísýnt hver hreppir titilinn
í lok ársins.
Ég ætla mér að ná lengra í þess-
ari íþrótt og veit að ég get sigrað
hvern sem er á góðum degi.
Telurðu okkur íslendinga eiga
einhverja möguleika gegn þess-
um sterku erlendu þjóðum?
Já, ég tel okkur geta haldið vel
í við þessa erlendu spilara. Ef við
lítum á það að hér eru flestir að-
eins búnir að æfa í tvö ár og þegar
farinn að myndast kjarni sem spil-
ar leiki á 16—17 pílum og fær alltaf
öðru hvoru 180 í skor, það hlýtur
að teljast mjög góður árangur á
ekki lengri tíma. Með fleiri mótum
og meiri reynslu náum við að koma
upp pílukösturum sem eru gjald-
gengir í hvaða keppni sem er.
Mér finnst nokkuð undarlegt að
fjölmiðlar eins og sjónvarpið skuli
ekki sýna þessari íþrótt meiri
áhuga því t.d. í Bretlandi er þetta
eitt vinsælasta sjónvarpsefni al-
mennings. Ég er sannfærður að
það myndi efla íþróttina verulega
ef hún næði betur til almennings.
Greinarhöf.: Óðinn Helgi Jónsson
Ljósm.: Hjörtur Hjartarson
ALFREÐ Gíslason handknatt-
leiksmaður hjá Essen í Þýska-
landi, kemur til landsins á
morgun, föstudag, til þess að
taka þátt í Flugleiðamótinu í
handknattleik sem hefst í Laugar-
dalshöll á mánudaginn.
Bjarni Guðmundsson kemur frá
Wanne Eicke og Atli Hilmarsson
frá Leverkusen. Kristján Arason,
Páll Ólafsson og Sigurður Sveins-
son komu með landsliðinu til
landsins á mánudaginn og verða
þeir líka með í mótinu. Miklar líkur
eru á að Einar Þorvarðarson komi
frá Spáni en Sigurður Gunnarsson
reiknaði síður með að hann kæm-
ist að þessu sinni.
Það verður greinilega hægt að
stilla upp sterku liði í Flugleiðamót-
inu en auk íslenska liðsins taka
þátt landslið Alsír, Sviss og ungl-
ingalandsliðs íslands. Mótið hefst
á mánudaginn en á sunnudag
verða tveir leikir, ísland og Sviss
og Alsír gegn yngra liði okkar, og
eru þeir liður í 75 ára afmæli ÍSL
Skiða-
göngu-
keppni
TOYOTA-skíðagöngumótinu sem
auglýst var á laugardaginn hefur
verið frestað fram á sunnudag
vegna afmælishátíðar ÍSÍ sem
verður á laugardag. Keppnin
verður við gamla Borgarskálann
í Bláfjöllum. Nafnakall verður
klukkan 13.00 en keppni hefst
klukkustund siðar.
Handknattleikur:
Fræðslufundur
Landsliðsnefnd HSÍ gengst í
kvöld fyrir fræðslufundi fyrír
þjálfara kvennaflokka í hand-
knattleik f húsnæði ÍSÍ í Laugard-
al. Fundurinn hefst klukkan 20
og eru allir sem áhuga hafa á
handknattleik kvenna hvattir til
að mæta.
Skutlan frá Lancia kostar nú frá aðeins 266 þúsund krónum.
gengtsskr. 14.1.87