Morgunblaðið - 29.01.1987, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 1987
49,41% halli á fréttastofu Sjónvarps:
Leiðtogafundur-
inn setti stórt
strik í reikninginn
- segir Ingvi Hrafn Jónsson, fréttastjóri
FRÉTTASTOFA Sjónvarpsins var rekin með 49,41% halla á síðasta
ári samkvæmt bókhaldi. Fréttastofunni voru áætlaðar 52 millj. kr.,
en hún eyddi á árinu tæplega 77,7 millj. kr. Hallinn nemur því tæp-
lega 25,7 millj. kr.
Ingvi Hrafn Jónsson, fréttastjóri,
sagði í samtali við Moi'gunblaðið að
miðað við upphaflegar áætlanir og
útistandandi skuldir um áramót
væri hið rétta að fréttastofan bæri
30% halla. Leiðtogafundurinn átti
hvað stærstan þátt í hallanum, auk
Skyggnis og íþróttadeildarinnar,
sem hafði meðal annars beinar út-
sendingar frá tveimur heimsmeist-
aramótum á dagskrá síðasta árs.
Hann sagði að útvarpsráð hefði á
sínum tíma samþykkt beinar útsend-
ingar frá knattspymunni í Mexíkó
og frá handboltanum í Sviss. „Eðli-
leg útgjöld fréttadeildarinnar á sl.
ári eru 67 milljónir í stað 77,7 millj.
kr. og þurfti ég á því fjármagni að
halda til þess að byggja upp frétta-
stofuna til að mæta væntanlegri
samkeppni.
Þegar ég tók við starfinu, lagði
ég fram áætlun fyrir útvarpsstjóra
um hvernig ég hygðist byggja upp
fréttastofuna og var hún samþykkt.
Ég og útvarpsstjóri gerðum okkur
grein fyrir auknum fjárútlátum sam-
fara öflugri fréttastofu."
Ingvi Hrafn sagðist hinsvegar líta
björtum augum á nýhafið ár og nýja
fjárhagsáætlun fréttadeildarinnar,
sem hljóðar upp á rúmar 60 millj.
kr. „Ég hef haft hina ýmsu fjármála-
sérfræðinga stofnunarinnar mér við
hlið nú við að gera áætlunina og
finnst mér ég vera að ná góðum
tökum á fjármálastjóminni og get
sparað mikið. Hinsvegar hef ég
stundum gagnrýnt yfírstjóm Sjón-
vai-psins fyrir að skýra mér ekki frá
því í upphafi að jafnframt því að
vera orðinn fréttastjóri, væri ég
framkvæmda- og fjármálastjóri fyr-
irtækis, sem eyðir tugum milljóna
af almannafé,“ sagði Ingvi Hrafn
að lokum.
10. umferð Wijk aan Zee-skákmótsins:
Helgi Ólafsson tap-
aði fyrir Zapata
HELGI Ólafsson tapaði fyrir
Zapata í 10. umferð alþjóðlega
skákmótsins í Wijk aan Zee,
sem tefld var í gær, og er ásamt
Zapata og Ljubojevic í 7.-9.
sæti á mótinu með 5 vinninga.
Short gerði jafntefli við Miles
og er einn í efsta sæti með 7,5
vinninga og næstir koma Korc-
hnoi og Nougeiras með 6
vinninga og innbyrðis biðskák
úr 10. umferðinni.
Önnur úrslit í 10. umferð urðu
þau að Ljubojevic vann Flear,
Gutman vann van der Wiel og
Anderson vann van der Sterren.
Jafntefli varð í skák Hulak og
Sosonko.
Helgi gerði jafntefli við van der
Sterren í 9. umferð skákmótsins,
Sosonko og van der Sterren, Gut-
man og Hulak, Miles og van der
Wiel, Ljubojevic og Short og Nou-
geiras og Flear.
Morgunblaðið/Þorkell
„Rympa á ruslahaugnum“
Nýtt barnaleikrit í Þjóðleikhúsinu
BARNALEIKRITIÐ „Rympa á
ruslahaugnum" eftir Herdísi
Egilsdóttur verður frumsýnt í
Þjóðleikhúsinu laugardaginn
7. febrúar. Sigríður Þorvalds-
dóttir leikur Rympu og brá hún
sér í bæinn í því gervi til að
kynna æskunni frumsýning-
una.
Með önnur hlutverk í „Rympu
á ruslahaugnum" fara Sigrún
Edda Björnsdóttir, Gunnar Rafns-
son, Viðar Eggertsson og Margrét
Guðmundsdóttir. 21 barn leikur
svo ruslahauginn. Leikstjóri er
Kristbjörg Kjeld, leikmynd og
búningar eru gerðir af Messíönu
Tómasdóttur, lýsingu annast
Björn Guðmundsson, dansar eru
eftir Láru Stefánsdóttur og hljóm-
sveitarstjóri er Jóhann G. Jó-
hannsson. Sýningarstjórar eru
tveir, Kristín Hauksdóttir og Jó-
hanna Norðfjörð.
Ekkí rétt
að vera
með yfir-
lýsingar
- segir Matthías Á.
Mathiesen um full-
yrðingar Aftenpost-
en þess efnis
að Islendingar
hindri nefndarskip-
an um kjarnorku-
vopnalaust svæði
VEGNA fréttar í Morgunblaðinu
í gær, þar sem fram kemur að
norska dagblaðið Aftenposten
segir íslendinga hindra skipan
nefndar um kjarnorkuvopna-
laust svæði á Norðurlöndunum,
snéri Morgunblaðið sér til ut-
anríkisráðherra Matthíasar A.
Mathiesen og innti hann álits á
þessari fullyrðingu. Matthias
svaraði á eftirfarandi hátt:
„Það er kveðið á um það í álykt-
un Alþingis um afvopnunarmál,
sem samþykkt var í maí 1985, að
utanríkismálanefnd kanni í samráði
við utanríkisráðherra hugsanlega
þátttöku íslands í frekari umræðu
um kjarnorkuvopnalaust svæði á
Norðurlöndum. Utanríkismála-
nefnd hefur enn ekki afgreitt málið
og á meðan sv.o er, sýnist mér að
ekki sé rétt af mér að vera með
yfirlýsingar. Utanríkismálanefnd
mun væntanlega fjalla um málið á
næstu vikum, þar sem það verður
á dagskrá fundar norrænna ut-
anríkisráðherra, sem haldinn verður
hér í Reykjavík í lok marz.“
Ríkisstjórnin veitir lántökuheimild:
60 milljónum veitt til
Egilsstaðaflugvallar
Þingmenn Austurlands fagna þessari ákvörðun
sem tefld var á mánudag. Þá vann
Short Gutman, Korchnoi vann
Zapata, Hulak vann Anderson og
Nougeiras vann Ljubojevic. Jafn-
tefli varð í skák Sosonko og van
der Wiel og Miles vann Flear. Þijár
biðskákir voru tefldar á mánudag-
inn. Hulak vann Zapata, Miles
vann Ljubojevic og Zapata vann
van der Sterren.
Ellefta umferð verður tefld í
dag. Þá tefla saman Helgi og
Korchnoi, Anderson og Zapata,
Auk þeirra skipa, sem áður er
getið tilkynntu eftirtalin um afla á
mánudag: Haipa RE 600,
Skarðsvík SH 650, Magnús NK
500, Þórshamar GK 600, Albert
GK 600, Hrafn GK 650, Bergur
VE 530 og Kap II VE 700 lestir.
Tvö síðastnefndu skipin fóru með
RÍKISSTJÓRNIN samþykkti á
fundi sínum á þriðjudag að heim-
ila lántöku allt að 60 milljónum
króna, til þess að hefja fram-
kvæmdir við nýja flugbraut á
Egilsstaðaflugvelli, að fengnu
samþykki Alþingis. Matthias
Bjarnason samgönguráðherra
lagði fram frumvarp til laga um
flugmálaáætlun í ríkisstjórninni
og fjáröflun til framkvæmda í
aflann til Færeyja.
Frá þriðjudegi til miðvikudags-
morguns tilkynntu eftirtalin skip
um afla: Víkurberg GK 560, Dag-
fari ÞH 530, Gullberg VE 620,
Grindvíkingur GK 1.030, Sighvatur
Bjamason VE, 680, Helga II RE
530, Hilmir II SU 590, ísleifur VE
flugmálum. Auk þess flutti hann
tillögu til þingsályktunar um að
ríkisstjórninni verði heimiluð sér-
stök lántaka til að hefja undirbún-
ing að framkvæmdum við
Egilsstaðaflugvöll.
„í skipunarbréfi flugmálanefndar
var sérstaklega minnst á Egilsstaða-
flugvöll sem forgangsverkefni og ég
flyt tillögu til þingsályktunar um að
ríkisstjórninni verði heimilað að láta
730, Beitir NK 1.250, Erling KE
650, Guðrún Þorkelsdóttir SU, 450,
Hákon ÞH 800, Sigurður RE 1.400,
Gígja VE 480, Hilmir SU 1.340,
Huginn VE 600, Þórður Jónasson
EA 700, Súlan EA 800, Júpíter RE
1.200, Rauðsey AK 620, Eldborg
HF 1.450, Húnaröst ÁR 620, Pétur
Jónsson RE 680, Albert GK 600,
Bjami Ólafsson AK 1.000, Ljósfari
RE 570, Harpa RE 580, Eskfirðing-
ur SU 610, Magnús NK 530,
Guðmundur Ólafur ÓF 610,
Skarðsvík SH 620, Höfrungur AK
910, Keflvíkingur KE 540, Börkur
NK 1.200, Víkurberg GK 540 og
Gullberg VE 590 lestir.
þegar heQa undirbúning og forvinnu
vegna nýrrar 2000 metra flugbraut-
ar á Egilsstaðaflugvelli og það er
stefnt að því að framkvæmdir hefj-
ist á árinu,“ sagði Matthías Bjarna-
son samgönguráðherra í samtali við
Morgunblaðið. Hann sagði að þessi
mál væru nú til umfjöllunar hjá þing-
flokkum stjórnarflokkanna og hann
vonaðist eftir niðurstöðum þeirra í
dag. Yrðu þær jákvæðar, yrði undir-
búningur hafinn af fullum krafti.
Kostnaður við gerð brautarinnar
er áætlaður 217 milljónir króna og
verði hitalögn lögð í brautina er
gróft áætlað að viðbótarkostnaður
verði um 15 milljónir krónur.
„Þetta er í einu orði sagt stórkost-
legt. Þetta er frétt áratugarins fyrir
Austurland," sagði Sverrir Her-
mannsson, þriðji þingmaður Austur-
lands, í samtali við Morgunblaðið.
Sverrir sagði að Matthías Bjamason
í samráði við þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins á Austurlandi hefði gefið
yfirlýsingu snemma á samgönguráð-
herraferli sínum, um að fram-
kvæmdir við Egilsstaðaflugvöll væru
forgangsverkefni og nú hefði hann,
eins og vant er, staðið við orð sín.
„Þetta er samgöngumiðstöð heils
landshluta og hér var um lífsspurs-
mál að tefla,“ sagði Sverrir og bætti
við: „Það leysa engir framfaramál
Austurlands né annarra landshluta,
nema sjálfstæðismenn."
„Ég hef ekkert nema gott um
þetta að segja og ég fagna því að
það sé stefnt að þessum fram-
kvæmdum,“ sagði Helgi Seljan
annar þingmaður Austurlands. „Hér
er um svo brýnt verkefni að ræða
og auk þess greinilegt sérverkefni
að það þarf að útvega sérfjármagn
til þess. Þetta er það stórt verkefni
að fjármagn til þess verður ekki tek-
ið af því fé sem ætlað verður almennt
til flugmála," sagði Helgi Seljan.
Flotbúningar
í öll f iskiskip
LÍU hafa nú borizt pantanir í um
2.200 flotbúninga til notkunar um
borð í fiskiskipum. Innkaupa-
deild LÍU stendur fyrir útboði i
þess háttar búninga fyrir öll
fiskiskip landsmanna og er nú
verið að kanna áhuga útvegs-
manna.
Gylfi Guðmundsson, forstöðu-
maður Innkaupadeildar, sagði í
samtali við Morgunblaðið, að áhugi
manna væri mikill og ætlunin að
flýta þessu eins og unnt væri. Stefnt
yrði að því að í september yrðu flot-
búningar komnir um borð í allan
flotann, en alls gætu það orðið um
5.000 búningar.
Mokveiði á loðnumiðunum
Mikið af loðnu fundið norður af Rauðanúp
MOKVEIÐI var á loðnumiðunum frá því á þriðjudag og fram undir
hádegi á miðvikudag. Á þessu tímabili fengu skipin 27.210 lestir
alls og náðu sum þeirra fullfermi tvívegis. Skipin voru á leið á mið-
in að nýju í gær og stefndu sum þeirra norður fyrir. Hafrannsókna-
skipið Bjarni Sæmundsson varð vart við dágóðan loðnukökk um 45
milur norður af Rauðanúp um klukkan 5 á þriðjudagsmorgun. Hún
var þá ofarlega í sjó og vel veiðanleg. Ennfremur fundu leiðangurs-
menn á Bjarna mikið af Ioðnu aðeins norðar og vestar, en hún stóð
djúpt.