Morgunblaðið - 29.01.1987, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 1987
Viðtalstími borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins f Reykjavík
is
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins
verða til viðtals i Valhöll Háaleitis-
braut 1, á laugardögum frá kl. 10-12.
Er þar tekið á móti hvers kyns fyrir-
spurnum og ábendingum og er öllum
borgarbúum boðið að notfæra sér
viðtalstíma þessa.
Laugardaginn 31. janúar verða til viðtals Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson formaður skipulags-
nefndar og Guðrún Zöega í stjórn veitustofnanna, skólamálaráði og fræðsluráði.
Greiðsluvandi útgerðarfyrirtækja:
A
Utvegsbankinn er að gera
Frá hádegisverðarfundi svæðisráðs Framsóknarmanna á Suður-
nesjum í Keflavík. Steingrímur Hermannsson í ræðustól.
INNRÖMMUN
Alhliða innrömmun, smellu-
rammar, tilb. álrammar
Plaköt og myndir
RyOvarnarskáh
Sérverslun með inn-
römmunarvörur
RAMMA
MIDSTOÐIN LWJ'
SIGTLIN 20, 105 REYKJAVÍK. SIMI 25054.
Næg bílastæði v/dyrnar Opið á laugardögum
GOOÐYEAR
LEIÐANDI
ULTRA GRIP 2
VEITIR FULLKOMIÐ
ÖRYGGI í
VETRARAKSTRI
Goodyear vetrardekk
eru gerð úr sérstakri
gúmmíblöndu og með
munstri sem gefur
dekkinu mjög gott
veggrip. Goodyear
vetrardekk eru hljóðlát
og endingargóð.
HEKLA HF
Laugavegi 170-172 Simi 26080 695500
aaooi
hreint fyrir sínum dyrum
- sagði Steingrímur Hermannsson
Keflavfk.
STEINGRÍMUR Hermannsson for-
sætisráðherra sagði á hádegis-
verðarfundi hjá svæðisráði
Framsóknarmanna á Suðurnesjum
í Keflavík laugardaginn 24. janúar
sl., að það væri vegna kröfu frá
bankastjórum Útvegsbankans, að
fyrirtækið Útgarður hf. í Garði,
stendur nú frammi fyrir því að
verða að selja aflaskipið Gaut GK
224. Einnig kom fram í máli
Steingríms að fyrirtækin Sjö-
stjarnan, Dagstjarnan og Keilir
standa í sömu sporum, vegna
þrýstings frá Útvegsbankanum.
Um þetta mál sagði Steingrímur:
„Ég vil bara, til að gera hér algjör-
lega hreint fyrir mínum dyrum, taka
það fram að sala þessa togara er í
raun frá Útvegsbankanum kominn.
Útvegsbankinn hefur krafist þess.
Sjálfur hefur eigandi togarans, Guð-
mundur Ingvarsson, sagt mér að
hann skilji þá kröfu vel, því nú er
mikið verð á togurum og menn viti
í hvaða stöðu Útvegsbankinn er. Út-
vegsbankanum er mikið kappsmál,
eða bankastjórunum þar að hreinsa
til fyrir sínum dyrum og í raun hefur
þessi niðurstaða fengist í fullu sam-
komulagi Útvegsbankans og
Guðmundar."
„En eftir að ákveðið var að selja
togarann hefur myndast töluvert
kapphlaup um hann. Sambandið eða
Samvinnufélögin vilja kaupa hann á
Grundarfjörð þar sem þaðan fór tog-
ari, en heimamenn vilja að sjálfsögðu
halda honum heima, og ég vil taka
það fram að ég hef sagt, að þegar
til mín hefur verið leitað með málið,
að sjálfsögðu er það eigandi togarans
sem ræður því hvert hann selur hann.
Ég hef hinsvegar sagt, að ef það
kemur sambærilegt boð úr Garðinum,
þá finnst mér sjálfsagt að hann taki
því boði.“
„En það er hann sem verður að
ákveða það. Og það er alrangt, eins
og verið er að ýja að, eins og ég hef
séð í blöðum hér, að jafnvel ég, sé
að stuðla að því að togarinn fari úr
byggðarlaginu. Það er alrangt, ég
hef sagt það við Sambandsmennina,
þið eigið þetta við eigandann. Ef boð
kemur úr Garðinum sem er jafngott
eða betra, þá myndi ég mæla með
því að hann tæki það til að stuðla
að því að togarinn verði áfram í sínu
byggðarlagi."
„Þetta liggur algjörlega á hreinu.
Og þetta mál og fleiri strönduðu nú
inni í Byggðastofnun, eða var frestað
þar, m.a. til þess að gefa heimamönn-
um tækifæri til að ná sínum vopnum
eins og sumir segja og koma með
tilboð sem eigandinn getur staðið að.
Ég ræddi við Guðmund í morgun og
hann sagði mér að hann væri þegar
búinn að bjóðast til að taka þátt í
hlutafélagi sem héldi togaranum
heima fyrir. Og þama held ég að
allt sé á hreinu af okkar hálfu.“
- BB
Freddi snýr aftur
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Martröð í Álmstræti II: Hefnd
Freddys. (Nightmare at Elm
Street Part II: Freddy’s Re-
venge). Sýnd í Laugarásbíó.
Stjörnugjöf: **.
Bandarísk. Leikstjóri: Jack
Sholder. Handrit: David Chask-
in. Framleiðandi: Robert
Shaye. Kvikmyndataka: Jaques
Haitkin. Tónlist: Christopher
Young. Helstu hlutverk: Mark
Patton, Kim Myer og Robert
Englund.
Martröðin í Álmstræti II er
ágætis hryllingsmynd rétt eins og
fyrirrennari hennar. Hún er
tæknilega betur gerð, brellurnar
eru fleiri og líflegri þótt þær séu
ekkert nýmeti, en það var meiri
spenna í þeirri fyrri. í staðinn
fyrir spennu eru komnar tækni-
brellur.
„Martröðin 11“ ætti þó að geta
fengið kalt vatn til að renna á
milli skinns og hömnds, eða hárin
til að rísa eða framkallað gæsahúð
og nokkur bakföll kvikmynda-
húsagesta, sem komnir em í bíó,
ekki til að slappa af, heldur í þeim
skrítna tilgangi að láta hræða úr
sér líftómna.
Martröðinni í Álmstræti er
sumsé langt í frá lokið, ef einhver
skyldi halda það. Og henni lýkur
ekki með þessari mynd. Freddy
(Robert Englund) á harma að
hefna úr fyrri myndinni, en eins
og þeir þekkja sem mest hafa
gaman af að láta hræða sig er
Freddy sjálf martröðin sem mynd-
in dregur nafn sitt af. Og hann
er langt frá því að vera einhver
draumaprins. Hann er aðalpersón-
an í martröðum Jesse (Mark
Patton) og hann fær Jesse smám
saman til að vinna ódæðisverkin
fyrir sig í e.k. draumkenndu óráði.
En það er meira lagt upp úr
tæknibrellum en sjokkatriðum og
stigmagnandi spennu í þessari
hrollvekju. Freddy rífur glottandi
af sér höfuðleðrið svo skín í beran
heilann og rífur sig útúr líkaman-
um á Jesse og þar fram eftir blóði
drifnu götunum, en hann er samt
ekki eins ógnvænlegur og í fyrri
myndinni af því það tekst ekki
nema endrum og eins að byggja
í kringum hann verulega spennu
og hrylling. Auk þess er aldrei
eins mikið varið í hrollvekjur sem
gefa ímyndunarafli manns ekkert
svigrúm heldur sýna allt og spara
ekki blóðið.
Robert Englund leikur Freddy
með sömu kaldhæðninni og áður
og Mark Patton er ágætlega móð-
ursjúkur í hlutverki Jesse og
tryllingslegur þegar líða tekur á
myndina. Kim Myer leikur vin-
konu hans, sem hjálpar honum
útúr erfiðleikunum og hún er rétt
eins og smækkuð mynd af Meryl
Streep í eldri myndum sínum. Það
er ekki nóg með að hún líti út
eins og Streep heldur talar hún
oft eins og hún líka. Kannski hana
hafi dreymt Streep of mikið.