Morgunblaðið - 29.01.1987, Page 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 1987
Morgunblaðið/Þorkell
Fjórar konur voru heiðraðar í afmæli Kvenréttindafélags ís-
lands. Sitjandi frá vinstri Valborg Bentsdóttir og Sigurveig
Guðmundsdóttir. Standandi frá vinstri Lóa Kristjánsdóttir og
Guðrún Gísladóttir.
Laufey Sigurðardóttir lék nokkur lög á fiðlu við Afmælisgestir. í afmælið kom m.a. Þorsteinn
undirleik Jórunnar Viðar. Pálsson fjármálaráðherra, sem er einn fárra karla
félagi í Kvenréttindafélagi íslands.
Kvenr éttindaf élagið 80 ára:
Fjölbreytt hátíðardagskrá
Á Hallveigarstöðum stendur
yfir sýning á iistaverkum
kvenna sem efnt er til í tilefni
80 ára afmælis Kvenréttindafé-
lags Islands. Afmælisins var
minnst með fjölmennri veislu
síðastliðinn þriðjudag þar sem
fjórar konu voru gerðar heið-
ursfélagar.
„Afmælið var mjög fjölsótt
tókst í alla staði ljómandi vel og
erum við mjög ánægðar," sagði
Lára V. Júlíusdóttir formaður fé-
lagsins. Næstu helgar verður
afmælisins minnst með umræð-
um, upplestri úr verkum kvenna
og léttri tónlist. Laugardaginn 31.
janúar kl. 15 verða umræður,
„opinn ræðustóll" og verður Kar-
itas Gunnarsdóttir frummælandi.
Laugardaginn 7. febrúar lesa kon-
ur úr verkum sínum á Hallveigar-
stöðum og sunnudaginn 8.
febrúar sýnir leikhús Brúðubílsins
stutta Ieikþætti fyrir yngstu kyn-
slóðina kl. 16.
Námsefni:
□ Kynning á tölvum______________________'
□ Stýrikerfi og skráarkerfi_______________
□ Kerfisgreining______________________________
□ Kerfishönnun________________________________
□ Forritun____________________________________
□ Gagnasafnsfræði_____________________________
□ íslenski tölvumarkaðurinn___________________
777 að uppfylla kröfur atvinnulífsins
Miöaö er viö aó nemendur hafi stúdentspróf eöa sambærilega menntun eöa starfs-
reynslu. Námió er byggt upp á fyrirlestrum og verklegum æfingum sem teknar eru
úr atvinnullfinu. Lokapróf ertekið í hverri grein. Nemendur sem útskrifast úrTölvu-
skóla Stjórnunarfélags íslands geta aó námi loknu unniö meó tölvunar-, vióskipta-
og kerfisfræöingum viö hugbúnaðarframleiöslu og rekstur tölvukerfa.
Nánari upplýsingar gefur skólastjóri Tölvuskólans,
Magnús Ingi Óskarsson, i síma 62 10 66.
Stjórnunarfélag íslands
TÖLVUSKÓLI
..' Ánanaustum 15 Simi: 62 10 66 ' ' r>
Tölvuskóli Stjórnunarfélags Islands hefur nú startað í þrjú misseri. Mikill áhugi
hefur verið fyrir námi á bessu sviði. Á vormisseri 1987 tekur skólinn til starta
3. febrúar. Kennt verður í 4 klst. á dag í 14 vikur (samt. 280 klst.)
Reykjavík:
20 milljónir til
íþróttamannvirkja
hverfafélaga
12,5 milljónir í vélfryst skautasvell
BORGARSTJÓRN hefur sam-
þykkt að veita 20 milljónum
króna á þessu ári til uppbygging-
ar íþróttamannvirkja á íþrótta-
svæðum níu helstu hverfafélaga
í borginni. Á síðasta ári var veitt
4,5 milljónum til þessara sömu
framkvæmda. Þá hefur verið
ákveðið að veita 12,5 milljónum
króna í vélfryst skautasvell í
Laugardal.
Júlíus Hafstein formaður íþrótta-
og tómstundaráðs sagði að hér
væri um stefnubreytingu að ræða.
Vonandi héldi þetta áfram á næstu
þremur árum þannig að í lok
kjörtímabilsins ætti að vera búið
að byggja íþróttaaðstöðu hverfafé-
laganna upp. Reykjavíkurborg mun
greiða 80% af kostnaði við fram-
kvæmdir félaganna og er þá miðað
við að komið verði upp íþróttavöll-
um utanhúss, búningsaðstöðu,
áhorfendasvæði og frágang á
íþróttasvæðinu en ekki verður veitt
fé til íþróttahúsa eða félagsheimila.
Styrkur til þeirra bygginga verður
með öðrum hætti.
„Með þessu viljum við leggja
áherslu á starfsemi íþróttafélag-
anna og þar með styrkja hið mikla
íþrótta- og æskulýðsstarf sem fer
fram á vegum þeirra,“ sagði Júlíus.
„Við munum stefna að því að ljúka
þeim verkefnum þar sem þörfin er
mest hveiju sinni.“
Samþykki borgaryfirvalda þarf
fyrir íjárframlagi.
Löndiuiarheimild-
ir veittar út júní
RÍKISSTJÓRNIN hefur sam-
þykkt að endurnýja löndunar-
heimildir grænlenskra rækju-
skipa fram á mitt ár.
Löndunarheimildirnar runnu út
um áramót og voru ekki end-
urnýjaðar vegna ágreinings um
veiðar Islendinga og Grænlend-
inga úr sameigjnlegum fiski-
stofnum. Embættismenn beggja
landanna ræddu ágreiningsmálin
á fundum í Reykjavík um helg-
ina.
Halldór Ásgrímsson sjávarút-
vegsráðherra og Matthías Á.
Mathiesen utanríkisráðherra lögðu
til á ríkisstjórnarfundi á þriðjudag
að löndunarheimildir grænlensku
rækjuskipanna yrðu endurnýjaðar
fram til 30. júní. Tillaga ráðherr-
anna var samþykkt. íslensk stjórn-
völd hafa venjulega endumýjað
löndunarheimildir grænlenskra
skipa í eitt ár í senn.
Utanríkismálanefnd:
Fyrirhugaðar viðræður
um kjötkaup kynntar
MATTHÍAS Á. Mathiesen ut-
anríkisráðherra hefur skýrt
utanríkismálanefnd Alþingis frá
fyrirhuguðum viðræðum við full-
trúa Bandaríkjahers um hugsan-
leg kjötkaup hér á landi fyrir
varnarliðið á Keflavíkurflug-
velli.
Eyjólfur Konráð Jónsson formað-
ur utanríkismálanefndar sagði að
engar athugasemdir hefðu verið
gerðar við þetta mál. Það væri enn
mjög óljóst hvað þetta gætu orðið
mikil viðskipti og undirbúningur
skammt á veg kominn.