Morgunblaðið - 29.01.1987, Side 26

Morgunblaðið - 29.01.1987, Side 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 1987 Furðuhlut- urimi var Júpiter New York, AP. KOMIÐ er í ljós að furðuhlutur- inn, sem fiugmenn japanskrar þotu töldu hafa flogið samsíða vélinni er hún var á leið frá Is- landi til Alaska, var í raun og veru reikistjarnan Júpíter. Vísindamenn hafa reiknað út að Júpiter var 10 gi'áðum yfir sjóndeildarhring og því virtst vera í sömu hæð og flugvélin, 35.000 fetum. Hafi reikistjarnan Marz verið aðeins neðar og til hægri og komi það heim og sam- an við það að flugmaðurinn taldi sig í fyrstu sjá tvö ljós. í afritum af samtölum flug- mannanna við stöðvar á jörðu niðri kemur í ijós að þeir sögðu „furðuhlutinn" hafa horfið er þeir flugu í hring á miðri leið. Haft var hins vegar eftir flug- stjóranum í fjölmiðlum að ljósin hefðu fylgt vélinni eftir í hring. Júgóslavía: 10 deyja úr kulda Belgrað, Reuter. TÍU Júgóslavara hafa látið lífið af völdum kulda síðustu tvær vikurnar, að sögn embættis- manna. Nokkrir hinna látnu frusu í hel. Fótbolta- unnendur í fangelsi Cherbourg, Reuter. FIMM brezkir knattspymuunn- endur voru dæmdir í tveggja mánaða fangelsi hver fyrir að ráðast á tvo lögregluþjóna og slasa þá sl. nóvember. Atvikið átti sér stað er 30 kófdrukknir áhangendur knatt- spymuliðsins Gosport tóku að brjóta allt og bramla í stórmark- aði í frönsku borginni Cher- bourg. Þegar lögreglumennimir birtist og hugðust stilla til friðar réðust fimm úr hópnum á þá. í ryskingunum slösuðust lög- regluþjónamir. 69 drukkna í flóðum í Brazilíu Sao Paulo, AP. FIMM daga skýfall leiddi til flóða og skriðufalla í Brazilíu með þeim afleiðingum að 69 manns dmkknuðu í vatni eða aur og tæplega 10 þúsund misstu heimili sín. Hinnir látnu bjuggu flestir meðfram ánni Ti- ete, sem liggur í gegnum Sao Paulo. Flóðin tóku með sér brýr, vegi, rafmnagnslínur og tveir flugvellir vom undir vatni í nokkra daga. Aldraðar jarðmenjar Eugene, AP. FUNDIST hefur elzti steingerv- ingur, sem vitað er um, við Potters Mills í miðju Pennsyl- vaníuríki. Er um að ræða nokkur greni eða göng, sem dýr á borð við þúsundfætlur, em talin hafa grafíð. Talið er að steingervingamir séu 438-448 milljónir ára gaml- ir, að sögn Gregory Retallack, jarðfræðings í Oregonháskóla. Elztu steingervingar, sem vitað var um, vom 414 milljónir ára. Þeir vom einnig af þúsundfætl- um og fundust í Skotlandi og Wales. Ár liðið frá því Challensrer fórst Kanaveralhöfóa. AP. ^»« ^ Kanaveralhöfða, AP. ÞESS var minnst í gær í geimvís- indastofnuninni á Kanaveral- höfða að eitt ár var þá liðið frá því geimferjan Challenger splundraðist skömmu eftir geim- skot. Challenger sprakk 73 sekúndum eftir að henni var skotið á loft og beið áhöfnin, sjö menn, öll bana. Til að minnast hins hörmulega atburðar var starfsemi stofnunarinnar stöðv- uð í 73 sekúndur í gær. Að þagnar- stundinni lokinni ávarpaði Ronald Reagan, forseti Bandaríkjanna, starfsmenn NASA í lokaðri sjón- varpssendingu. Einnig var efnt til 73 sekúndna minningarstundar í bamaskólum um land allt. Þingnefnd kanni rann- sókn Palme-morðsins Hans Holmer skipaður lögreg-lustjóri Svíþjóðar? Stokkhólmi, frá Erik Liden, fréttaritara SÆNSKA stjórnin ákvað í dag að fela sérstakri þingnefnd að fara ofan í saumana á rannsókn- inni á morðinu á Olof Palme, fyrrverandi forsætisráðherra Svíþjóðar. Þá komst sá orðrómur á kreik í gær að Ingvar Carlsson, forsætis- ráðherra, og leiðtogi Jafnaðar- mannaflokksins, hefði gert samkomulag við leiðtoga annarra stjórnmálaflokka um að rannsókn á morðinu á Palme yrði tekin úr höndum Hans Holmer, lögreglu- stjóra í Stokkhólmi. Ekki fékkst staðfest hvað hæft væri í þessu. Þá var því einnig hvíslað að Hol- mer yrði í dag hækkaður í tign og útnefndur ríkislögreglustjóri Svíþjóðar. Það fékkst heldur ekki staðfest. Búizt er við að Solveig Riberdahl verði í dag skipaður saksóknari í Palme-morðmálinu. Hinn 28. febrúar nk. verður eitt ár liðið frá morðinu á Palme. Verð- ur þess minnst með mikilli blysför Morgunblaðsins: í miðborg Stokkhólms og minning- arguðsþjónustu. ERLENT Terry Waite Reuter Mannránin í Líbanon: Vestur-Þj óð verj - arnir saefðir á líii Bonn, Beirút, London, AP. Reuter. YFIRVÖLD i Bonn hafa fengjð upplýsingar um að tveir Þjóðverjar, sem rænt var á dögunum í Líbanon, séu á lífi. Jafnframt var frá því skýrt að fundizt hefði birgðir af öflugu fljótandi sprengiefni í felu- stað, sem tilheyrði flugræningjanum Mohammad Ali Hammadi, sem handtekinn var nýlega í Vestur-Þýzkalandi. Hamadi var að koma frá Beirút rændu Vestur-Þjóðverjunum Rudolf er hann var handtekinn á flugvellin- um í Frankfurt. Fundust níu lítrar af sprengiefninu í fórum hans en til að villa um fyrir tollvörðum var því komið fyrir í vínflöskum. A mánudag var bróðir Hamadi, Ali Abbas Ham- adi, sem er vestur-þýzkur ríkisborg- ari, handtekinn er hann kom frá Beirút. Hann var samferða bróður sínum til V-Þýzkalands 13. janúar sl. en starfsmenn útlendingaeftirlits- ins áttuðu sig ekki á hver þar væri á ferðinni því hann framvísaði þýzku vegabréfi. Hélt hann aftur til Beirút með næstu flugvél. Fullyrt er að það séu menn ná- tengdir Hamadi-bræðrunum sem Cordes og Alfred Schmidt í Beirút til að koma í veg fyrir framsal Mo- hammeds til Bandaríkjanna. Hann er eftirlýstur vegna ráns á þotu TWA-flugfélagsins 1985 og morða því tengdu. Líbanskur samstarfsmaður Ham- adi-bræðranna var handtekinn er lögregla gerði áhlaup á tvö hús í þorpinu Beckingen í Saarlandi, rétt hjá frönsku landamærunum. í að- gerðunum fundust rúmlega 20 lítrar af methyl nítrati, sem er gífurlega öflugt sprengiefni. Er það notað sem eldsneyti í eldflaugar. Áletranir á flöskum, sem sprengiefnið var geymt í, voru á arabísku. Talið er að sprengi- efnið hafi verið í eigu arabískra hryðjuverkasamtaka, sem hafi bæki- stöðvar í Vestur-Þýzkalandi. Þá hélt blaðið an-Nabar í Beirút því fram í gær að það hefði fengið sönnur fyrir því að Terry Waite, sendimaður ensku biskupakirkjunnar væri ekki í haldi mannræningja. Hann ætti í viðræðum við ræningja tveggja Bandaríkjamanna og færi sér hægt í von um að ná árangri. Hefðu læknir og fyrrum ráðherra staðfest að ekkert amaði að Waite og að hann væri ekki fangi mannræningja. Talsmaður brezku ríkisstjórnarinn- ar sagði í gær að hún væri reiðubúin að stofna til viðræðna við öfgamenn í Beirút ef það mætti verða til að upplýsa hvar Waite væri niðurkominn og til að tryggja frelsi Bandaríkja- mannanna tveggja. Ekkert hefur spurzt til Waite frá 20. janúar. Miðstjórnarfundur sovéska kommúnistaflokksins: Gorbachev réðst heiftarlega á stjórnarhætti Brezhnevs Einkenndust af sýndarmennsku, orðagjálfri, veisluglaumi og skrifræði Moskvu. Reuter. MIKHAIL Gorbachev Sovétleiðtogi réðst heiftarlega á stjórnarhætti Leonids Brezhnevs, fyrrum æðstráðanda i Kreml, í ræðu, sem hann flutti á fundi miðstjórnar sovéska kommúnistaflokksins á þriðjudag, og sagði, að í stjórnartíð hans hefðu stöðnun og hnignun sett mark sitt á þjóðlíf í Sovétríkjunum. Gorbachev sagði, að á síðustu árum Brezhnev-stjómarinnar hefði foiystuliðið horft upp á „sívaxandi drykkjuskap, eiturlyfjaneyslu og glæpastarfsemi", en hvorki hrært legg né lið til að sinna þörfum venju- legs fólks. Lífínu var lifað í „heimi sýndarmennsku, þar sem alvarleg vandamál hurfu í skuggann af orða- gjálfri og veisluglaumi og skrifræði sligaði efnahag landsins og kæfði menningarlífið". Gorbachev fordæmdi veikleika for- ingjans fyrrverandi fyrir orðum og titlum, án þess þó að nefna hann nokkru sinni á nafn, svo og tilhneig- ingu hans til að halda hlífískildi yfír hátt settum vinum sínum, sem nú hafa verið úthrópaðir fyrir spillingu. í þessari hvassyrtu ræðu, sem Tass-fréttastofan greindi frá, er gengið miklu lengra í að gagnrýna Brezhnev-tímann en tíðkast hefur hjá nýju foiystunni og opinberum málgögnum undanfarið ár. Frétta- skýrendur, sem lengi hafa fylgst með þróun mála í Kreml, segja, að tónn- inn minni á fordæmingu Nikita Khruschev á Stalín árið 1956 — og viðleitni hins fyrmefnda til að breyta sovésku þjóðfélagi nýtur nú vel- þóknunar forystunnar, þótt ekki sé haft hátt um það. „Það er engu líkara en þetta sé fyrsti kaflinn í því sem við gætum nefnt „afbrésnefun“,“ sagði erlendur fréttaskýrandi. Árásir Khruschevs á stjómarhætti Stalíns og arfinn frá valdatíð hans voru á sínum tíma oft nefndar „afstalínun". Gorbachev beindi spjótum sínum að því „sem gerðist í landinu seint á áttunda áratugnum og í upphafi hins níunda" — á síðustu stjómarárum Brezhnevs, sem varð flokksleiðtogi 1964, þegar Khruschev var ýtt út í kuldann, og lést í embætti í nóvem- ber 1982, 75 ára að aldri. „Hugsjónaeldi, vinnugleði og föð- urlandsást" þjóðarinnar var spillt með þjóðfélagslegri uppdráttarsýki, sem leiddi til vantrúar og sinnuleys- is, sagði hinn 55 ára gamli Sovétleið- togi, sem nú hefur verið við völd í bráðum tvö ár. „Sá hluti þjóðarinnar, þar á meðal ungt fólk, sem hafði það að æðsta markmiði í lífínu að öðlast efnisleg gæði með öllum tiltækum ráðum, varð æ stærri," sagði Gorbachev. „Fólk varð sífellt forhertara í þess- ari afstöðu sinni, eitraði andrúmsloft- ið í kringum sig og ýtti undir neysluhyggju. Sívaxandi drykkju- skapur, eiturlyfjaneysla og glæpa- starfsemi voru til merkis um þjóðfélagslega hnignun," sagði Gorbachev, sem ýtt hefur undir um- ræður um síðasttöldu vandamálin. „Virðingarleysi fyrir lögum, mútu- þægni, tækifærismennska og smjað- ur höfðu eyðileggjandi áhrif á andrúmsloftið í þjóðfélaginu," bætti hann við og átti þar greinilega við allt lofíð, sem hlaðið var á Brezhnev. Þegar Brezhnev lést var hinn „frá- bæri leiðtogi" formlega hylltur fyrir „sögulegt starf“ í þágu landsins, flokksins og alþjóðahreyfíngar kommúnista. Iðnaðarborgin Naber- ezhniye Chelny var heitin eftir honum, svo og hverfí í Moskvu, torg í stórum borgum, raforkuver, skólar, verksmiðjur, kjamorkuknúinn ísbijótur, herskip og farþegaskip. Fréttaskýrendur segja, að mikil líkindi séu til, að mörg upprunalegu nafnanna verði tekin fram aftur á svipaðan hátt og gerðist eftir 1956, þegar nafr. Stalíns var máð út af landakortum. Þrátt fyrir hörð orð um innan- landsstjóm Brezhnevs sagði Gorb- achev ekki eitt styggðaryrði um utanríkisstefnuna í tíð þessa fyrrver- andi Sovétleiðtoga, og er núverandi forysta þó að leitast við að komast upp úr því fari, sem utanríkismálin lentu í á áttunda áratugnum. í grein, sem birtist í flokksmál- gagninu Prövdu í síðasta mánuði, í tilefni af því, að þá hefði Brezhnev orðið áttræður, sagði, að hann hefði átt þátt í uppbyggingu sovéska hers- ins og beitt sér fyrir slökunarstefnu gagnvart Vesturlöndum á áttunda áratugnum. En reiðitónninn í ræðu Gorbachevs á mánudag bendir til, að það jákvæða í stjómartíð Brezhn- evs sé nú litið smáum augum í Kreml. „Sú kommúníska meginregla, að allir séu jafnréttháir, var oft brot- in,“ sagði Gorbachev. „Margir flokksmanna, sem gegndu háum embættum, voru hafnir yfír eftirlit og gagnrýni, og það leiddi til þess, að þeir gerðu mistök í starfí og frömdu alvarleg brot á siðareglum flokksins," bætti hann við og átti þar greinilega við háttsetta embættis- menn, sem voru í vinfengi við Brezhnev.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.