Morgunblaðið - 29.01.1987, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 1987
33
Ritgerðasamkeppni um
Finnland í grunnskólum
Skilafrestur
er til 1. mars
EFNT verður til ritgerðasam-
keppni um Finnland í febrúar í
grunnskólum landsins. Að keppn-
inni standa Finlandia-félagið í
Helsinki og Suomi-félagið í
Reykjavík í samráði við mennta-
málaráðuneytið og Námsgagna-
stofnun.
Ritgerðasamkeppnin er ætluð
grunnskólanemendum í 4. til 9. bekk
og ber að skila ritgerðum fyrir 1.
mars. Tíu manna matsnefnd á vegum
Suomi-félagsins mun velja verð-
launahafa. Niðurstöður dómnefndar
verða kynntar símleiðis þeim er hljóta
verðlaun og þeir síðan boðaðir til
verðlaunaafhendingar sem fram fer
á sumardaginn fyrsta, 23. april, í
beinni útsendingu á Rás 2. Fem verð-
laun verða veitt, tvenn nemendum í
4. til 6. bekk og tvenn nemendum í
7. til 9. bekk. Verðlaunin eru ferð
til Finnlands í sumar. Verðlaunahaf-
ar munu dvelja á heimilum meðlima
Islandia-félagsins í Helsinki og munu
þeir skipuleggja skoðunarferðir verð-
launahafa. Fararstjóri verður með í
förinni, sem stendur frá 30. júní til
14. júlí.
Markmið keppninnar er að kynna
Finnland fyrir íslenskum grunnskóla-
nemum og stuðla að auknu framboði
á námsefni um Finnland. í því skyni
hefur ýmiskonar kynningarefni verið
sent í skólana, meðal annars bækl-
ingur á íslensku um Finnland og
annar um Kalevalakvæðin. Þá verða
myndbönd og skyggnur fáanleg til
láns hjá Námsgagnastofnun. Finn-
land og Island hafa nokkra sérstöðu
meðal Norðurlanda, sérstaklega hvað
varðar tungumál landanna auk þess
sem líta má á þau sem útverði Norð-
urlanda. Þrátt fyrir ólík tungumál
er menning Finna og íslendinga um
margt lík.
Þetta kom meðal annars fram á
blaðamannafundi er haldinn var til
kynningar ritgerðarsamkeppninni. í
ríkisfjölmiðlum eru fyrirhugaðir
þættir í tengslum við samkeppnina.
Á sunnudaginn mun Tryggvi Jakobs-
son sjá um þátt á rás 2 um Finnland.
Einnig mun Bamaútvarpið á Rás 1
sjá um kynningar á Finnlandi alla
næstu viku og sagði Tryggvi að í
ráði væri að fá ýmsa dagskrárgerðar-
menn á Rás 2 og Bylgjunni til að
fylgja samkeppninni eftir. Þá hefur
verið farið fram á það við Sjónvarpið
að það sýndi þætti um Finnland.
Sigþór Magnússon, námsstjóri í
samfélagsfræði hjá Námsgagna-
stofnun, sagði á fundinum að allir
grunnskólar landsins hefðu nú þegar
fengið upplýsingar um ritgerðarsam-
keppnina og upp á því stungið við
kennara að annaðhvort væri hægt
að taka námsefnið um Finnland beint
inn á námsskrá vetrarins, eða að
Vitni að
árekstri óskast
EIGANDI rauðrar Opel Kadett
bifreiðar, sem lenti í árekstri við
Ford Cortina á gatnamótum
Kringlumýrarbrautar og Borg-
artúns sl. fimmtudagskvöld kl.
20.30, óskar eftir vitnum að að-
draganda slyssins.
Sá sem telur sig hafa einhverjar
upplýsingar um málið er beðinn um
að hafa samband við Slysarann-
sóknadeild lögreglunnar sem fyrst.
Morgunblaðið/Júlíus
Aðstandendur ritgerðarsamkeppninnar, frá vinstri: Anna Schau-
mann, Hannele Henttinen, Timo Karlsson, Barbro Þórðarson,
Tryggvi Jakobsson, Anna Kristjánsdóttir og Sigþór Magnússon
öðrum kosti myndu kennarar aðstoða
þá nemendur sem vildu taka þátt í
keppninni. Þau Timo Karlsson sendi-
kennari í fínnsku við Háskóla íslands
og Anna Geirsdóttir hafa tekið að
sér með tilstyrk fínnska mennta-
málaráðuneytisins að heimsækja
skóla sem þess óska til þess að kynna
ritgerðarsamkeppnina og Finnland.
Þeir aðilar sem stutt hafa Finn-
landskynningu með ýmsum hætti
eru: Islandia-félagið í Helsinki,
menntamálaráðuneyti Finnlands,
Ferðaskrifstofan Matka Yhtymá,
Su'omifélagið á íslandi, fínnska
sendiráðið á Islandi, Samveinnuferð-
ir-Landsýn, Flugleiðir, Námsgagna-
stofnun, menntamálaráðuneytið
skólaþróunardeild og ríkisfjölmiðlar
á íslandi.
Hildur Jónsdóttir hjá Samvinnu-
ferðum-Landsýn sagði á fundinum
að svo virtist sem áhugi Finna á því
að heimsækja ísland væri að
glæðast. SL hefur staðið fyrir leigu-
flugi frá Keflavík til Helsinki
undanfarin fímm ár og væru nú til
dæmis 120 Finnar á biðlista eftir því
að komast í vikutíma til íslands í
Amarflug
fjölgar ferðum
- fimm daga í viku til Evrópu
í febrúar og mars verður fjölgað ferðum í áætlun-
arflugi Arnarflugs. Flogið verður fimm daga í viku til
Amsterdam, tvo daga í viku til Hamborgar og einu
sinni í viku til Zurich.
Oryggisfræðsla hjá
Sly savarnafélaginu
EINU af mörgum fjögurra daga
námskeiðum Slysavaranfélags Is-
lands um öryggisfræðslu sjó-
manna lauk síðastliðinn föstudag.
Kennslan fór að mestu fram um
borð í skipi SVFÍ, Sæbjörgu. Skip-
ið er sérstaklega útbúið til
námskeiðahalds, en námskeiðinu
íslenska íhugunar-
félagið:
Ari Halldórs-
son með
fyrirlestur
ARI Halldórsson hjá íslenska
íhugunarfélaginu heldur almenn-
an kynningarfyrirlestur á vegum
félagsins um innhverfa íhugun í
kvöld, fimmtudagskvöld. Fyrir-
lesturinn hefst kl. 20.30 í Odda,
húsi félagsvísindadeildar HI.
Ari lauk kennaraprófí í svokall-
aðri TM-tækni eða innhverfri íhugun
frá MERU-háskólanum í Sviss í des-
ember sl., en hér á landi hefur tækni
þessi verið kennd um 2.000 íslend-
ingum.
lauk með björgunaræfingu á ytri
höfn Reykjavíkur með þátttöku
þyrlu Landhelgisgæzlunnar og
björgunarskips SVFÍ, Gísla J. Jo-
hnsens.
Umsjónarmaður námskeiðsins var
Þorvaldur Axelsson, fýrrverandi
skipherra, fræðslufulltrúi Slysa-
varnafélagsins. Námskeiðið var
fullskipað og þátttakendur að þessu
sinni á ýmsum aldri, flestir úr röðum
farmanna. Einn þeirra var Gústav
Magnús Siemsen, skipstjóri. Hann
sagði þátttakendur hafa lokið miklu
lofsorði á skipulag og framkvæmd
námskeiðsins.
Amsterdam: 5 daga í viku:
Hamborg: 2 daga í viku:
Mánudaga
Þriðjudaga
Fimmtudaga
Föstudaga
Laugardaga
Mánudaga
Fimmtudaga
Zurich:
sinni í viku: Laugardaga
3f4RNA RFLUG
Lágmúla 7, simi 84477
Leiðrétting
í greininni um Sláturfélag Suður-
lands í blaðinu í gær var mishermt
að Matthías Gíslason hafí tekið
saman ágrip af sögu fyrirtækisins,
sem þar birtist. Höfundur er Gísli
Andrésson formaður félagsins. Þá
misritaðist föðurnafn Björns Bjarn-
arsonar í Grafarholti (stóð Bjarna-
son).
Sagt frá Jökuls-
árgljúfrum
FRÆÐSLUFUNDUR í Fugla-
verndarfélagi íslands er í kvöld,
29. janúar, í Norræna húsinu.
Að þessu sinni verður fjallað um
hin stórmerkilegu náttúrufyrir-
bæri Jökulsárgljúfur.
í Skarðsárannál frá 15. öld segir
að mikil flóð hafí orðið í Jökulsá á
Fjöllum og hafi í þeim t.d. sópast
burtu hreiður arna, fálka og hrafna.
Það verður Þóroddur Þóroddsson
starfsmaður Náttúruvemdaráðs
sem mun segja frá gljúfrunum m.m.
og mun hann máli sínu til frekari
glöggvunar bregða upp litskyggn-
um úr Jökulsárgljúfrum. Fundurinn
er sem aðrir fundir í Fuglaverndar-
félaginu opinn öllum.
RYMINGAR
15-50% AFSLÁTTUR
OPIÐ LAUGARDAG
VATNS VIRKINN HF.
ÁRMÚLI 21 - PÓSTHÓLF 8620 - 128 REYKJAVÍK
SÍMAR: VERSLUN 686455, SKRIFSTOFA 685966