Morgunblaðið - 29.01.1987, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. JANÚAR 1987
51
frumsýnir:
Himnasendingin
Bráðskemmtileg, ný gamanmynd með hinum óvið-
jafnanlega Tom Conti, sem lék m.a. í „Reuben,
Reuben" og „American Dreamer". Tom Conti
vann til gullverðlauna fyrir leik sinn í þessari mynd.
Aðalhlutverk:
Tom Conti, Helen Mirren
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Vísnatónleikar á
Borginni
Bubbi Morthens
og
Megas
Alvöru trúbador
tónleikar
22—01
Sími 11440
Lagnafélag íslands:
Fræðslufundur haldinn
um snjóbræðslulagnir
FRÆÐSLUFUNDUR um snjó-
bræðslulagnir verður haldinn í
ráðstefnusal Hótels Loftleiða
laugardaginn 31. janúar og hefst
fundurinn kl. 13.30. Fyririesarar
verða Dr. Oddur B. Björnsson,
Ragnar Kristinsson, Sigurður
Grétar Guðmundsson, Leifur
Hannesson og Páll Árnason.
Fundarstjórar verða Karl Ómar
Jónsson og Skúli Guðmundsson.
Fundurinn er haldinn á vegum
Lagnafélags íslands.
Að framsöguerindum loknum
verða fýrirspumir og pallborðsum-
ræður. í umræðunum taka þátt
þeir Gunnar H. Kristinsson, yfir-
verkstjóri hjá Hitaveitu Reykjavík-
ur, Jón Steinar Guðmundsson,
verkfræðingur hjá Orkustofnun,
Trausti Jónsson, veðurfræðingur
hjá Veðurstofu íslands, og Ragnar
Gunnarsson, tæknifræðingur hjá
Byggingafulltrúa Reykjavíkurborg-
ar. I tengslum við fundinn kynna
innflytjendur og framleiðendur efni
til snjóbræðslulagna.
Raflagnir og frárennslislagnir
eru að mestu úr plasti og plast-
barkar eru notaðir í loftræstingu
að því marki sem hagkvæmt er og
henta þykir. Þessi breyting hefur''
gerst átakalaust enda hafa yfirvöld
ekki séð ástæðu til að óttast hana,
segir í frétt frá Lagnafélaginu.
I vatnslagnir utanhúss hefur
plast þótt gott en bann hefur verið
við því víðast hvar að plaströrin
væru leidd inn í hús. Sumum hefur
þótt afstaða byggingarfulltrúa á
banninu sérkennileg fyrir það að
engar skýringar hafa verið gefnar
því samfara. Pípulagningarmenn
hafa takmarkaðan áhuga á að fjár-
festa í endurmenntun á meðan
notkun röranna er bönnuð. Mennt-
un hönnuða er miðuð við hefð-
bundin efni. Framleiðendur hafa
ekki uppfyllt þær gæðaeftirlitskröf- ,
ur sem gera þyrfti, vegna þess að
þeir vita ekki hvaða kröfur verða
gerðar og einnig að eftirlit er dýrt.
Þeir vita heldur ekki hvort sú fyrir-
höfn og kostnaður skili sér í
jákvðara viðhorfi byggingarfull-
trúa. Byggingarfulltrúar hafa ekki
ástæðu til að breyta afstöðu sinni
á meðan þeir geta ekki verið sæmi-
lega öruggir um rörin og handverk-
ið, segir jafnframt í fréttatilkynn-
ingunni.
Brids
Arnór Ragnarsson
Bridsfélag Suðurnesja
Karl Hermannsson og Jóhannes
Sigurðsson hafa forystu í meistara-
mótinu í tvímenningi sem fram fer
hjá félaginu. Tuttugu pör taka þátt
í mótinu og er 14 umferðum lokið
af 19. Spilaður er barometer og er
staða efstu para nú þessi:
Karl — Jóhannes 118
Logi—Jóhann 96 _
Gísli — Guðmundur 80
Haraldur — Gunnar 76
Óli Þór — Einar 49
Síðustu umferðimar verða spil-
aðar á mánudaginn kemur í
Samkomuhúsinu í Sandgerði kl. 20.
Bridsfélag Akraness
Nú stendur yfir Akranesmeist-
aramót í tvímenningi. Spilaður er
barometer með sex spilum á milli
para. Tuttugu og sex pör taka þátt
í mótinu og eftir fimmtán umferðir
af tuttugu og fimm er staða efstu
manna þessi:
Alfreð Viktorsson
— Jón Alfreðsson 260
Ólafur G. Ólafsson
— Guðjón Guðmundss. 200
Tryggvi Bjamason
— Bent Jónsson 152
Ámi Bragason
— Erlingur Einarsson 114
Hörður Pálsson
— Þráinn Sigurðsson 110
Bridsfélag Hvolsvallar
og nágrennis
Þann 11. janúar var haldið KR-
mót í brids hjá Bridsfélagi Hvols-
vallar og nágrennis. Mót þetta er
árlegur barometer og er öllum spil-
urum sýslunnar boðið til leiks.
Kaupfélag Rangæinga styrkir
mótið og veitir verðlaun í formi
vömúttektar fyrir fyrstu þrjú sætin.
Torfi Jónsson — Jón Þorkelsson.
Gunnar Bragason — Ægir Þorgilsson.
Brynjólfur Jónsson — Haukur Baldvinsson.
VELSTJÓRAHATIÐ
Árshátíð Vélstjórafélags íslands og kven-
félagsins Keðjunnar verður haldin með
glæsibrag að vanda í nýjum Glæsibæ
þann 7. febrúar næstkomandi.
Hátíðin hefst með hanastéli í Borgartúni 18.
Hin sívinsæla hljómsveit Birgis Gunn-
laugssonar, sem skemmti okkur í fyrra,
mætir á staðinn.
Miðasala og borðapantanir á skrifstofu
félagsins í Borgartúni 18 fimmtudaginn
29. og föstudaginn 30. janúar milli kl.
15.00 og 18.00.
Miðaverð kr. 2.100.
Á hápunkti kvöldsins verður dregin út
sólarlandaferð fyrir tvo.
Mél og Kim 5., 6. og 7. febrúar. Boris Gardiner 19., 20. og 21. febrúar.
FRÁBÆR FIMMTUDAGUR
og fjölmargt framundan
Hæsta mánuðinn verður varla þverfótað í
EVRÓPU fyrir heimsfrægum skemmtikröft-
um. Við birtum hér „skemmtanaalmanak"
EVRÓPU fyrir febrúar og hvetjum fólk til
að klippa það út svo það missi nú örugg-
lega ekki af neinu.
SKemmtanaalmanaK EVRÓPU !
5., 6. og 7. febrúar
12., 13. og 14. febrúar
19., 20. og21. febrúar
Mél og Kim
Dolly' Dots
BorisGardiner
í Kvöld verða allir þrælhressir í EVRÓPU.
Daddi leikur glænýja tónlist, kveikt verður
á risaskjánum og svo geta Ijónheppnir
gestir hreppt boðsmiða á skemmtunina
með Mél og Kim næsta fimmtudag.