Morgunblaðið - 29.01.1987, Side 60
STERKTKORT
VJterkurog
U hagkvæmur
auglýsingamiöill!
FIMMTUDAGUR 29. JANUAR 1987
VERÐ I LAUSASOLU 50 KR.
Líkur eru á
samningumá
Vestfjörðum
LÍKUR voru á að samningar
tækjust milli Alþýðusambands
Rækjuverk-
smiðjan í
Hnífsdal
er til sölu
ALLAR eignir Rækjuverksmiðj-
unnar í Hnífsdal eru nú til sölu
eftir að hafa verið í eign sömu
aðila í tæp 30 ár. Þar á meðaj eru
tvö skip í eigu fyrirtækisins. Áætl-
að söluverð þessara fastafjár-
muna, sem þarna um ræðir, er um
250 milljónir króna og er Rækju-
verksmiðjan eitt öflugasta fyrir-
tæki á sínu sviði á landinu.
Sigurður S. Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri og einn eigenda
verksmiðjunnar, sagði í samtali við
Morgunblaðið, að hann væri farinn
að eldast og búinn að fá nóg. „Það
er kominn tími til að hvíla sig,“
sagði Sigurður.
Rækjuverksmiðjan í Hnífsdal var
stofnuð 1959 og er fjölsky'.dufyrir-
tæki. Það á nú skipið Guðmund
Einarsson ÍS 28, sem er rúmar 180
lestir að stærð og er nú i yfirbygg-
ingu í Bretlandi. Auk þess er
Rækjuverksmiðjan með 130 til 140
lesta bát í smíðum á Isafirði og er
hann einnig til sölu.
Sigurður sagði engin tilboð hafa
borizt enn, en hann vissi af mörgum
á leiðinni, bæði frá heimamönnum
og öðrum. Prýðilegur rekstur hefði
verið á fyrirtækinu og því eðlilegt
að menn hefðu áhuga á því að eign-
ast það.
Sjá nánar Viðskipti/Atvinnulíf B1
Vestfjarða og vinnuveitenda í
gærkveldi um kjör landverka-
fólks. ASV er ekki aðili að
samningum ASÍ og VSÍ, sem
gerðir voru í desember, og hafa
samningaviðræður staðið yfir að
undanförnu um nýja kjarasamn-
inga.
Samningarnir eru í grundvallar-
atriðum byggðir á samningum ASI
og VSÍ, en til viðbótar eru ákvæði
um starfsaldurshækkanir hjá fólki
í fiskvinnslu. Pétur Sigurðsson, for-
seti ASV, sagði í gærkveldi í samtali
við Morgunblaðið, að hann vonaðist
til þess að samkomulag væri að
takast. Enn væri þó ófrágengið eitt
atriði er varðaði launahvetjandi
kerfi í rækjuverksmiðjum. Hann
sagði að samkomulag væri um svip-
aðar breytingar og samist hefði um
í Vestmannaeyjum, en þó væru
starfsaldurshækkanir, sem náðst
hefðu fram, heidur rýmri. Hann
bjóst við að samningurinn myndi
gilda frá og með þessari viku og
ákveðin upphæð kæmi í stað aftur-
virkni samninganna.
ROSTUNGURÁ POLLINUM
Jóhann Björgvinsson
ROSTUNGUR spókaði sig á Akureyrarpolli í
gærmorgun. Var hann hinn rólegasti og leyfði
fólki að koma mjög nálægt sér. Að sögn Helga
Hallgrímssonar hjá Náttúrugripasafninu er ekki
vitað til þess að rostungur hafi komið inn á
Eyjafjörð síðustu áratugina. Hann sagði, að í
kringum 1960 hefði þess verið getið að eitt-
hvert stórt dýr hefði sést á firðinum, en þá
helst talið að um einhveija tegund af hval hefði
verið að ræða.
Stjórn BHMR slítur viðræðum við ríkisvaldið:
Samningagerðin verður í
höndum einstakra félaga
Nú reynir í fyrsta skipti á ný samningsréttarlög opinberra starfsmanna
STJÓRN BHMR hefur ákveðið
að slíta viðræðum um nýjan
Afkomandi
gamlagljá-
víðisins í
Aðalstræti
gróðursettur
AFKOMANDI
gamla gljávíðisins,
sem féll í óveðrinu
hér á dögunum, hef-
ur nú verið gróður-
settur í gamla
Víkurkirkjugarðin-
um við Aðalstræti,
sem almenningur
kallar gjarnan Fóg-
etagarðinn. Nýja
tréð, sem er græðl-
ingur úr hina gamla,
er 20 ára gamalt,
en forðfaðir þess var
hins vegar 100 ára
að aldri. Vonandi
nær afkomandinn
að halda uppi merki
ættarínnar, laufgast
og vaxa borgarbú-
um til yndisauka og
standa af sér óveður
í ókominni framtíð.
Nýja tréð er fjær á
þessari mynd en
Moixunblaðið/Ól.K.M.
nær stendur ailfur-
reynir, sem staðið
hefur óhaggaður á
sínumstaðí 102 ár.
kjarasamning við ríkisvaldið og
mun því samningagerðin verða í
höndum einstakra aðildarfélaga
Bandalagsins, en þau hafa sam-
kvæmt nýsamþykktum samn-
ingsréttarlögum fyrir opinbera
starfsmenn fullt samningsumboð
með verkfallsrétti. Þó er verk-
fallsrétturinn ekki undantekn-
ingalaus, þannig að allir
f élagsmenn geti lagt niður vinnu
í verkfalli. Aðildarfélög BHMR
eru 24. Næstkomandi laugardag
verður haldinn samráðsfundur
allra stjórna og samninganefnda
félaga í BHMR, þar sem rætt
verður um framhald samninga-
viðræðna.
„Undanfamar vikur höfum við
verið að reyna að ná rammasamn-
ingi við fulltrúa fjármálaráðherra
um kjör háskólamenntaðra starfs-
manna ríkisins, en aðildarfélögin
höfðu falið stjórn BHMR að gera
slíkan samning. Stjórnin hafði um-
boð til þess að semja um nokkur
meginatriði í slíkum rammasamn-
ingi, lágmarkslaun, breytingar' á
starfsaldurskerfi og form á fast-
launasamningum. Öllum kröfum
BHMR um þessi atriði var hafnað,“
sagði Július Bjömsson, formaður
BHMR, í samtali við Morgunblaðið
um ástæður þessarar ákvörðunar.
Meginkröfur BHMR em að lág-
markslaun hækki í 45.500 krónur,
prófaldurskerfi verði endurskoðað
og form fastlaunasamninga verði
ákveðið til þess að samræma kjör
háskólamenntaðra ríkisstarfs-
manna við kjör háskólamanna á
almennum markaði. Júlíus sagði að
það eina sem fulltrúar ríkisins hefðu
boðið þeim væm sambærilegar
áfangahækkanir og samið var um
milli ASI og VSI í desember og þar
að auki 3,5% launahækkanir.
„Þetta hefur í för með sér að á
meðan aðrir em að fá lágmarkslaun
— til dæmis iðnaðarmenn upp á 35
þúsund krónur, bókagerðarmenn
upp á 38 þúsund krónur og fleiri
sem fá svipuð lágmarkslaun — þá
verða háskólamenn, ef tilboðinu
væri tekið og það allt notað til þess
að hækka lágmarkslaunin, með um
það bil 34 þúsund króna lágmarks-
laun í lok samningstímans. Eins og
gefur að skilja er þetta fullkomlega
óaðgengilegt fyrir okkur,“ sagði
Júlíus.
„Stjórn BHMR mun skila hverju
einstöku félagi því samningsum-
boði, sem stjórnin fékk fyrir fjórum
vikum síðan. Samkvæmt þessum
nýju lögum um samningsrétt opin-
berra starfsmanna ber ríkinu að
semja við hvert einstakt félag fyrir
sig og ég vona að það fari í gang
raunverulegar samningaviðræður.
Við höfum haft það sterklega á til-
finningunni að fulltrúar fjármála-
ráðherra hafi í raun og veru
meðhöndlað okkur á sama hátt og
áður, þegar kjaradeilur fóru fyrir
Kjaradóm. Við gengum til þessara
viðræðna með það í huga að nú
værum við í fyrsta skipti að fara í
raunverulegar samningaviðræður,
þar sem ekki væri um neitt annað
að ræða en þessir aðilar semdu.
Ég vona að það komi til með að
gerast. Að öðrum kosti munum við
grípa til þeirra vopna sem okkur
eru tryggð með lögunum," sagði
Júlíus ennfremur.
Farmannadeilan:
Kvöldfundur en lítið miðar
BOÐAÐ var til kvöldfundar hjá
ríkissáttasemjara í kjaradeilu
undirmanna á kaupskipum og
kaupskipaútgerðarinnar í gær.
Fundinum var ekki Iokið þegar
Morgunblaðið fór í prentun á
miðnætti, en talið að lítið hefði
miðað í samkomulagsátt.
Undanþágunefnd Sjómannafé-
lags Reykjavíkur veitti í gær skip-
inu Keflavík undanþágu frá
verkfalli til þess að flytja salt til
þriggja Austfjarðahafna. Birgir
Björgvinsson hjá Sjómannafélagi
Reykjavíkur sagði í samtali við
Morgunblaðið að í gær hefði einnig
borist beiðni frá skipafélaginu
Víkurskipum um leyfi til að flytja
loðnumjöi úr landi, en afstaða til
þeirrar beiðni yrði ekki tekin í bráð.