Morgunblaðið - 19.02.1987, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1987
Steingrímurtil
Sovétríkjanna
og Danmerkur
STEIN GRÍMUR Hermannsson
forsætisráðherra og frú Edda
Guðmundsdóttir hafa þegið boð
sovésku ríkisstjórnarinnar um
opinbera heimsókn til Sovétríkj-
anna. Forsætisráðherra mun
eiga fund með Gorbachev aðal-
ritara sovéska kommúnista-
flokksins og viðræður við
Rysjkov forsætisráðherra.
Heimsókn forsætisráðherra mun
standa yfir í þijá daga, frá 1. til
3. mars næstkomandi. í heimleið-
inni fer hann í tveggja til þriggja
daga heimsókn til Danmerkur.
Átta sækja um
fimm umdæm-
issljórastöður
Samgönguráðherra mun á
næstunni taka ávörðun um ráðn-
ingu fimm umdæmisstjóra Sigl-
ingamálastofnunar rikisins úti á
landi. Eru þetta nýjar stöður sem
koma í kjölfar nýrra laga um
Siglingamálastofnun, sem sam-
þykkt voru á síðasta ári. Störf
skipaeftirlitsmanna eru lögð nið-
ur en settar á stofn umdæmis-
skrifstofur á fimm stöðum og
ráðnir umdæmisstjórar.
Fjórhliða stöðvunarskylda á gatnamótum Bólstaðarhlíðar og Stakkahlíðar
BORGARRÁÐ hefur samþykkt að tekin verði upp til reynslu
í eitt ár, fjórhliða stöðvunarskylda á gatnamótum Bólstaðar-
hlíðar og Stakkahlíðar.
Að sögn Guttorms Þormars fyrrverandi starfsmanns umferða-
deildar hefur fjórhliða stöðvunarskylda á gatnamótum gefíst vel
í Bandaríkjunum og Svíþjóð. Stöðvunarskyldan hefur dregið úr
slysum á homum þar sem áður voru tíð óhöpp. „Umferð um gatna-
mótin við Bólstaðarhlíð og Stakkahlíð er tímabundin. Mest að
morgni dags og á hádegi þegar foreldrar eru að koma með bömin
í ísaksskóla og sækja þau,“ sagði Guttormur, en tíð umferðar-
óhöpp hafa verið þegar umferð við skólan er sem mest. „Ökumenn
verða að ná samkomulagi ef íjórar bifreiðar koma samtímis að
gatnamótunum og enginn einn á réttinn. Þetta verður svipað og
þegar götur vom þrengdar. Þá höfðu einhveijir áhyggjur af að
það mundi skapa erfíleika þegar bifreiðar mættust, en það hefur
ekki orðið."
Húsnæðisstofnun ríkisins:
Um umdæmisstjórastöðuna í Ól-
afsvík sótti Guðmundur Magnússon
skipaskoðunarmaður þar á staðn-
um. Siguijón Hallgrímsson skipa-
eftirlitsmaður á ísafirði sótti um'
stöðuna þar og Ámi Valmundsson
skipaeftirlitsmaður á Akureyri um
umdæmisstjórastöðuna á Akureyri.
Um Fáskrúðsfjörð sóttu Agnar
Jónsson vélvirkjameistari á Fá-
skrúðsfírði, Albert Kemp skipa-
skoðunarmaður þar og Línberg
Þorsteinsson skipaeftirlitsmaður á
Neskaupsstað. Tveir sóttu um stöð-
una í Vestmannaeyjum: Jónatan
Aðalsteinsson stýrimaður og Þórar-
inn Sigurðsson skipaeftirlitsmaður,
báðir búsettir á staðnum.
Víðtæk leit að
8 ára dreng
Lánsloforð hafa geng-
ið kaupum og sölum
Loforðin verða felld úr gildi og viðkomandi útilokaðir frá lán-
veitingum segir Sigurður E. Guðmundsson framkvæmdastj óri
VÍÐTÆK leit að 8 gömlum dreng
stóð yfir í Árbæjarhverfi í nótt.
Drengsins varð síðast vart klukk-
an 18 á miðvikudaginn og sagðist
hann þá vera á leið heim.
Þrátt fyrir að kannaðir hefðu
verið allir möguleikar, sem hugsan-
legir voru taldir, hafði drengurinn
ekki fundizt á þeim heimilum, sem
taiin voru koma til greina um mið-
nættið. Þá þegar var skipulögð
víðtæk leit í nágrenni hverfisins og
tóku þátt í henni lögreglumenn með
sporhund. Þegar Morgunblaðið
hafði síðast fréttir af leitinni kl.
eitt hafði ekkert spurzt til drengs-
ins.
„ÉG hef falið lögfræðingum
stofnunarinnar að kanna annars
vegar með hvaða hætti hægt er
að fyrirbyggja að lánin gangi
kaupum og sölum og hins vegar
að finna leið til að fella úr gildi
þau lánsloforð sem notuð hafa
verið með þessum hætti,“ sagði
Sigurður E. Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Húsnæðisstofnun-
ar ríkisins, í samtali við
Morgunblaðið í gær. Kvaðst Sig-
urður þegar vita um tvö dæmi
þess að lánsloforð stofnunarinn-
ar hafa verið seld og sagði hann
að kannað yrði nánar hversu við-
tækt þetta væri.
Sigurður sagði, að tiltölulega
auðvelt ætti að vera að fylgjast
með þessu og yrðu þau lánsloforð
sem þannig væri farið með umsvifa-
laust felld úr gildi og kæmu ekki
til greiðslu. Jafnffamt yrðu bæði
upphaflegir handhafar lánanna og
þeir sem keyptu þau útilokaðir frá
lánveitingum í framtíðinni.
Sigurður kvaðst vilja í leiðinni
leiðrétta misskilning, sem upp hefði
komið um óeðlilega langan biðtíma
eftir húsnæðismálalánum. Sagði
hann, að nýju reglumar væru mjög
skýrar og í stuttu máli þær að þeir
sem væru að kaupa í fýrsta skipti
nytu forgangsafgreiðslu. Að und-
anfömu hefðu liðið um sex mánuðir
eftir að umsögn var lögð inn og þar
til fyrri hluti lánsins væri greiddur
út.
„Ég lít svo að biðtíminn svokall-
aði sé nú úr sögunni," sagði
Sigurður. „Með gamla lánakerfinu
var það siður í landinu að fólk gerði
fyrst íbúðarkaup og skuldbatt sig
til að greiða svo og svo stórar fjár-
hæðir, sem áttu meðal annars að
koma í formi húsnæðislána. Oft
kom fyrir að þessar greiðslur féllu
ekki saman og fólk lenti í vandræð-
um. Samkvæmt nýja lánakerfinu
Ú flutnings ver ðmæti loðnu-
afurða 4,3 milljarðar króna
ÁÆTLAÐ útflutningsverðmæti
loðnuafurða á yfirstandandi
vertíð er um 4,3 miHjarðar
króna. Stærstur hluti þess er
loðnumjöl, en verðmætasta af-
urðin er fryst loðnuhrogn, sem
kosta nálægt 100.000 krónum
hver lest. Lestin af heilfrystri
loðnu kostar að meðaltali um
45.000 krónur, af mjöli um
16.400 og lýsi 8.400 krónur.
Verðmæti loðnunnar upp úr sjó
eru rúmir 2 milljarðar króna.
Veiðiheimildir eru fyrir rúmri
einni milljón lesta af loðnu. Samið
hefur verið um sölu á 5.000 lestum
af frystum hrognum og um 6.000
lestum af heilfrystri loðnu til Jap-
ans. Mjöl og lýsi er ýmist selt
fyrirfram, jafnóðum eða eftir á og
fer að mestu til Evrópulanda.
Nýting loðnunnar er mjög mis-
munandi eftir árstíma, fituinnihaldi
og þurrefnis. Áætla má að meðal-
nýting í framleiðslu lýsis sé um
10%. Það þýðir að framleiðsla úr
einni milljón lesta verður um
100.000 lestir. Verð að meðaltali
frá upphafí vertíðar er um 210
dalir á lestina, 8.400 krónur. Heild-
arverðmæti eru því 840 milljónir
króna. Áætluð nýting í mjölfram-
leiðslu er 16,5%. Því fást 165.000
lestir af mjöli úr milljón lestum.
Verð að meðaltali er um 5,85 dalir
á hveija próteineiningu. Um 70
slíkar einingar eru í hverri lest og
verð fyrir hana því um 16.400 krón-
eiga menn að leggja inn umsóknir
og bíða eftir því að fá skuldbind-
andi lánsloforð áður en þeir gera
nokkuð annað í íbúðarkaupum.
Þannig geta menn gert skuldbind-
ingar á öruggum grundvelli með
hliðsjón af afgreiðslu lánanna,"
sagði Sigurður.
Grunnuriiin á horni Garðastrætis og Vesturgötu:
Sprengt í þynnri lögum
til að minnka titringinn
„VIÐ munum sprengja í þynnri lögum framvegis til að minnka titring-
inn,“ sagði Ólafur Snorrason framkvæmdastjóri Ræktunarsambands
Flóa og Skeiða en eigendur Naustsins hafa sent skriflegar kvartanir
til borgaryfirvalda vegna ónæðis af sprengingum í grunni heimilis fyr-
ir aldraða á horni Garðastrætis og Vesturgötu. Þegar hefur verið lokið
við 75% af sprengingunum og er stefnt að því að ljúka þeim í næstu viku.
Ólafur sagði að á fundi með borg-
aryfirvöldum í gærmorgun hefði
komið fram að eigendur veitingastað-
arins hefðu aldrei farið fram á að
hlé yrði gert á sprenginum. „Verk-
stjórinn okkar fór þarna inn í fyrra-
dag og fékk að vita að borðað er á
staðnum í hádeginu fram til hálf
þijú,“ sagði Ólafur. „Við sögðum að
það væri sjálfsagt að reyna að haga
þessu þannig að sem minnst ónæði
yrði af.“ Að sögn Ólafs er fyrirtækið
tryggt gegn hugsanlegum skemmd-
um sem kunna að verða vegna
sprengmganna.
Tilboð Ræktunarsambandsins í
verkið er 4 milljónir króna en kostn-
aðaráætlunin var 9 milljónir. „Við
erum með mjög fullkominn afkasta-
mikinn bor og beitum sérstökum
aðferðum við sprengingamar," sagði
Ólafur. „Þess vegna getum við boðið
þetta verð. Sprengingamar eru mjög
vægar enda höfum við hugsað okkur
að rífa upp klappimar .með 50 tonna
jarðýtu. Með því að sprengja í þynnri
lögum förum við grynnra niður í
hveiju skoti."
ur. Heildarverðmæti mjöls verða því
2.706 milljónir króna. Miðað við
sölu á 6.000 lestum af heilfrystri
loðnu á 45.000 krónur að meðaltali
fást fyrir það 270 milljónir króna
og fyrir 5.000 lestir af hrognum
480 milljónir. Þetta er samtals um
4,3 milljarðar króna.
Lítils háttar af loðnunni hefur
verið selt ferskt í Færeyjum á svip-
uðu verði og fengizt hefur hér
heima, í kringum 2.000 krónur fyr-
ir lestina. Hærra verð er greitt fyrir
þá loðnu, sem nýtist til fiystingar
og hrognatöku, en jafnframt er
greitt minna fyrir það, sem gengur
af í vinnslunni. Því má ætla að
verðmæti loðnunnar upp úr sjó verði
rúmir tveir milljarðar króna.
Morgunblaðia/Júlíus
Lokið verður við sprengingar í grunni þjónustuíbúða fyrir aldraða
sem Reykjavíkurborg reisir á horni Garðastrætis og Vesturgötu í
næstu viku.