Morgunblaðið - 19.02.1987, Qupperneq 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1987
ÚT V ARP / S JÓN V ARP
Lagavalið
Hlustandi hringdi í fyrradag í
Pál Þorsteinsson, stjórnanda
morgunþáttar Bylgjunnar, og kvart-
aði yfir því að lagavalið gerðist
nokkuð einhæft: Hvað ætliði hafið
spilað lagið hans Megasar, Lóa Lóa,
oft. Væruði til í að spila til dæmis
óperuaríur? Páll: Tjah, útvarpsstöð
eins og Bylgjan verður að sníða sér
stakk eftir vexti og takmarka sviðið.
Hlustandi: Þið verðið að fara að vara
ykkur, þetta er alltof einhæft laga-
val.
Sammála?
Eru hlustendur sammála fyrr-
greindum hlustanda um að Bylgjan
og þá væntanlega líka rás 2 séu tek-
in að hjakka svolítið í sama farinu
hvað varðar lagaval? Væri kannski
heillaráð að gefa þáttarstjórum svo-
lítið frjálsari hcndur og færa þá á
milli þátta þannig að þeir hefðu færi
á að nálgast áheyrendur úr nýrri
átt? Veit ég vel að áheyrendur taka
gjaman ástfóstri við ákveðna þátta-
stjómendur, í það minnsta benda
kannanir frá Bandaríkjunum til
slíkrar fastheldni. Hitt má ljóst vera
að ef sömu mennimir sitja ætíð í
sama stólnum á tónlistarútvarpi þá
fer ekki hjá því að lagavaiið verði
svolítið einhæft. Því legg ég til að
stjómendum verði víxlað. Til dæmis
væri upplagt að hinn bráðhressi Þor-
steinn J. Vilhjálmsson er sér um
kvöldþætti settist eina vikuna í stól
Páls eða Sigurðar morgunþáttastjóra
Bylgjunnar; Páll eða Sigurður flygju
þá með útvarpshlustendum á vit
kvöldsins þá vikuna og ekki má
gleyma morgunþáttastjómendunum
á rás 2. Ég nefni hér nöfn af handa-
hófí en sumir þáttastjómendur gera
nú lítið annað en snúa plötum og
henta því ekki í fjölbreytta þætti á
borð við morgunþættina.
Beint í œÖ
Ég hef áður lofað og prísað tón-
leika hinna svoneftidu trúbadora á
rás 2 en fyrir skömmu settust þeir
Bjami Tryggva og Bjartmar þar við
hljóðnema og fluttu okkur ljúfa
söngva við undirleik kassagítara.
Slíkir tónleikar rjúfa síbylju hins al-
þjóðlega rafvædda popps er verður
þvf miður stundum svo óhugnanlega
einhæft að grænar bólur springa á
hljóðhimnunni. Í Sviðsljósi síðastlið-
inn sunnudag flutti trúbadorinn
Bubbi ástarljóð þannig að poppþreyt-
an sópaðist af heilahvelunum og
tónlistin var sem ferskur regnskúr
að morgni. Veit ég vel að það er
býsna dýrt að kveðja til trúbadora
en hversu lengi þola neytendur (þess-
ir sem borga auglýsingamar) sfbylju
hins rafvædda popps? Og hvað um
ástkæra ylhýra málið okkar er fær
skáldlegt form í textum hinna bestu
trúbadora. Höfum við ekki skyldum
að gegna gagnvart okkar eigin
tungumáli að það drukkni ekki alveg
í hinu alþjóðlega poppflæði?
í síðasta þætti Ljósaskiptanna á
Stöð 2 var fjallað um mann er lenti
í því að konan hans og starfsfélag-
amir tóku smám saman upp nýtt
tungumál þannig að blessaður mað-
urinn varð líkt og fískur á þurru
landi. Á sunnudagsmorguninn var
sat undirritaður við morgunverðar-
borðið — á efri hæðinni hömuðust
bandarísku leikaramir við að lesa
inná amerísku teiknimyndimar, niðrí
eldhúsi gargaði enskættaða I-love-
you-poppið. Eg horfði yfír kaffíkönn-
una á konuna og hugsaði með mér,
skyldi hún tala íslensku eða I-love-
you-málið? Og hugurinn þaut áfram
til rásar 2 þar sem stundum er rætt
við engilsaxneska poppara í beinni
útsendingu og svo er viðtalinu snarað
undir lokin svona til málamynda.
Slíka þætti á auðvitað að taka upp
fyrirfram og flytja íslensku þýðing-
una jafnóðum. Á dögunum var
reyndar einn slíkur þáttur sendur út
án nokkurra skýringa en ég vil taka
fram að Kristján Siguijónsson kom
ekki nálægt þeim þætti.
Ólafur M.
Jóhannesson
Stöð tvö
Alaskagull
í kvöld verður á
Q Q 20 dagskrá Stöðvar
“ ö— tvö vestri með
John Wayne og Stewart
Granger, Fabian Capucine
og Emie Kovacs í aðal-
hlutverkum.
Myndin segir frá tveim-
ur gullgröfurum, sem
auðgast mjög á greftri
sínum í Alaska á síðasta
áratugi síðustu aldar.
Granger gerir Wayne út
af örkinni til þess að sækja
kæmstu sína suður til
Seattle í Washington-fylki.
Wayne fer og nær í stúlk-
una, en á leiðinni norður
fellur hann kylliflatur fyrir
henni sjálfur og að lokum
takast með þeim ástir.
Granger sættir sig við
orðinn hlut og leitar að
nýjum stúlkum milli þess
sem hann stundar of-
drykkju áfengis og áflog.
Þá kemur til sögunnar
vafasamur náungi, sem
fær þá félaga til liðs við
sig í vægast sagt dularfull-
um áformum.
Um mynd þessa segir
kvikmyndahandbók vor að
þar sé á ferðinni tveggja
tíma skemmtun fyrir alla
vestraunnendur. Af áflog-
um mun meira en nóg og
ein viðamestu kráaráflog
gervallrar sögu Hollywood
munu vera í mynd þessari.
Rás2:
72. Tónlistarkrossgátan
Sunnudaginn, 22. febrúar
■■I^N Næstkomandi
-| (r 00 sunnudag verð-
AO—“ ur 72. tónlistar-
krossgáta Jóns Gröndal
send út frá rás 2. Lausnir
skal merkja Tónlistar-
krossgátunni og stíla á:
Ríkisútvarpið, rás 2,
Efstaleiti 1,
108 Reykjavík.
UTVARP
FIMMTUDAGUR
19. janúar
6.45 Veðurfregnir. Bæn.
7.00 Fréttir.
7.03 Morgunvaktin. — Jón
Baldvin Halldórsson, Sturla
Sigurjónsson og Guðmund-
ur Benediktsson. Fréttir eru
sagðar kl. 7.30 og 8.00 og
veðurfregnir kl. 8.15. Til-
kynningar eru lesnar kl.
7.25, 7.55 og 8.25.
Guömundur Sæmundsson
talar um daglegt mál kl.
7.20.
9.00 Fréttir.
9.03 Morgunstund barn-
anna: „Fjörulalli" eftir Jón
Viðar Gunnlaugsson. Dóm-
hildur Sigurðardóttir les (4).
(Frá Akureyri.)
9.20 Morguntrimm. Tilkynn-
ingar.
9.35 Lesiðúrforustugreinum
dagblaðanna. Tónleikar.
10.00 Fréttir.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Ég man þá tið. Her-
mann Ragnar Stefánsson
kynnir lög frá liönum árum.
11.00 Fréttir.
11.03 Morguntónleikar.
a. Ungversk rapsódía nr. 1
í F-dúr eftir Franz Liszt. Sin-
fóníuhljómsveitin í Bamberg
leikur; Richard Kraus stjórn-
ar.
b. Scherzó-þáttur úr Sin-
fóníu nr. 9 í C-dúr eftir Franz
Schubert. Ríkishljómsveitin
í Dresden leikur; Karl Böhm
stjórnar.
c. Fyrsti þáttur Fiðlukon-
serts í e-moll op. 64 eftir
Felix Mendelssohn. Pinch-
as Zukerman og Fílharm-
oníusveitin í New York leika;
Leonard Bernstein stjórnar.
d. ftalskar kaprísur op. 45
eftir Pjotr Tsjaíkovski.
Fílharmoníusveitin í Berlín
leikur; Ferdinand Leitner
stjórnar.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynn-
ingar. Tónleikar.
13.30 í dagsins önn — Efri
árin. Umsjón Anna G.
Magnúsdóttir og Guðjón S.
Brjánsson.
14.00 Miödegissagan: „Þaö
er eitthvaö sem enginn
veit." Líney Jóhannesdóttir
les endurminningar sínar
sem Þorgeir Þorgeirsson
skráði (7).
14.30 Textasmiðjan. Lög við
texta eftir Jónas Friðrik
Guðnason.
15.00 Fréttir. Tilkynningar
Tónleikar.
15.20 Landpósturinn. Frá
svæðisútvarpi Reykjavikur
og nágrennis.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpiö.
17.00 Fréttir.
17.03 Tónskáldatími. Leifur
Þórarinsson kynnir islenska
samtímatónlist.
17.40 Torgiö — Nútímalifs-
hættir. Umsjón: Steinunn
Helga Lárusdóttir. Tilkynn-
ingar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.30 Tilkynningar.
Daglegt mál. Endurtekinn
þáttur frá morgni sem Guð-
mundur Sæmundsson
flytur.
19.45 Að utan. Fréttaþáttur
um erlend málefni.
20.00 „Nú ætla ég til Græn-
lands." Vernharöur Linnet
ræðir við Gunnar Stein-
grimsson í Julianeháb sem
segir frá lifi sinu eftir að
hann lagöist í ferðalög um
noröurslóöir.
20.30 Frá tónleikum Sinfóniu-
hljómsveitar (slands í
Háskólabíói. Fyrri hluti.
Stjórnandi: Giuseppe Resc-
igno. Kristján Jóhannsson
syngur óperuaríur. Kynnir:
Jón Múli Árnason.
21.20 Leiklist í New York.
Annar þáttur af þremur.
Umsjón: Árni Blandon. Les-
arar: Júlíus Brjánsson og
Gisli Rúnar Jónsson.
SJÓNVARP
ÁJt.
FÖSTUDAGUR
20. febrúar
18.00 Nilli Hólmgeirsson
Fjórði þáttur
Þýskur teiknimyndaflokkur
gerður eftir kunnri barna-
sögu eftir Selmu Lagerlöf
um ævintýraferö dreng-
hnokka i gæsahópi.
Þýðandi Jóhanna Þráins-
dóttir.
18.25 Stundin okkar — End-
ursáyning
Endursýndur þáttur frá 15.
febrúar.
19.06 Á döfinni
Umsjón: Anna Hinriksdóttir.
19.10 Þingsiá
Umsjón: Ólafur Sigurðsson.
19.25 Fréttaágrip á táknmáli.
19.30 Spítalalíf
(M*A*S*H)
Nítjándi þáttur
Bandarískur gamanmynda-
flokkur sem gprist í neyöar-
sjúkrastöð bandaríska
hersins í Kóreustríðinu. Að-
alhlutverk: Alan Alda.
Þýðandi Kristmann Eiðsson.
20.00 Fréttir og veöur
20.30 Auglýsingarogdagskrá
20.40 Rokkarnir geta ekki
þagnaö
Valin atriði úr þáttum á liðnu
ári.
Umsjón: Halldóra Káradótt-
ir.
21.05 Mike Hammer
Fjórði þáttur
Bandariskur sakamála-
myndaflokkur gerður eftir
sögum Mickey Spillane um
einkaspæjarann Mike
Hammer.
Aðalhlutverk Stacy Keach.
Þýðandi Stefán Jökulsson.
21.55 Kastljós — Þáttur um
innlend málefni
Umsjónarmaður Hallur
Hallsson.
22.25 Seinni fréttir
22.35 Saklaus fórnarlömb
(Cry of the Innocent)
Bandarisk sjónvarpsmynd
frá 1980 gerð eftir spennu-
sögu eftir Frederick For-
syth.
Leikstjóri Michael O'Herl-
ihy.
Aðalhlutverk: Rod Taylor,
Joanna Pettet, Nigel Dav-
enport og Cyril Cusack.
Maður sem barist hefur í
víkingasveitum Bandaríkja-
manna í Víetnam missir
fjölskyldu sína í hörmulegu
slysi á irlandi. Þegar hann
kemst að því að slysið varð
af mannavöldum ákveður
hann að hafa hendur í hári
ódæðismannanna.
Þýöandi Stefán Jökulsson.
00.15 Dagskrárlok
a
o
STOD2
FiMMTUDAGUR
19. febrúar
i 17.00 Hernaðarleyndarmál.
(Top Secret.) Bandarisk
kvikmynd frá 1984 með Val
Kilmer og Lucy Gutteridge
í aðalhlutverkum. Myndin
er skopstæling á kvikmynd-
um af öllum hugsanlegum
gerðum: gert er grin aö tán-
ingamyndum, njósnamynd-
um, stríðsmyndum og
ástarmyndum. Endursýn-
ing.
i 18.30 Myndrokk
19.00 Glæframúsin. Teikni-
mynd.
19.30 Fréttir
20.00 Opin lína. Áhorfend-
um gefst kostur á aö hringja
í síma 673888 og spyrja
Stjórnanda, sem í kvöld er
Edda Björgvinsdóttir, um
Stöð tvö almennt og svo
allt það sem hugurinn girn-
ist.
20.15 Ljósbrot. Kynning
helstu dagskrárliða Stöðvar
tvö næstu vikuna og stiklað
á helstu viðburðum menn-
ingarlífsins. Umsjónarmaö-
ur er Valgerður Matthías-
dóttir.
20.35 Morðgáta (Murder
She Wrote). Bandarískur
sakamálaþáttur.
} 21.20 Barn annarrar konu
(Another Womens Child).
Bandarísk sjónvarpsmynd
frá CBS með Linda Lavin
og Tony LoBianco í aöal-
hlutverkum. Leikstjóri er
John Erman.
| 22.55 Af bæ í borg (Perfect
Strangers.) Bandarískur
gamanþáttur.
5 23.20 Alaskagull (North to
Alaska.) Bandarískur vestri
með John Wayne og Stew-
art Granger í aðalhlutverk-
um.
Myndin gerist í Alaska í
kringum 1890. Tveir gull-
grafarar hafa heppnina með
sér og hyggjast njóta af-
raksturins. En ókunnur
maður birtist á sjónarsvið-
inu og dregur þá til tíöinda.
01.20 Dagskrárlok
22.00 Fréttir. Dagskrá morg-
undagsins. Orð kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Lestur Passíusálma.
Andrés Björnsson les 4.
sálm.
22.30 Jarðnesk öfl. Þáttur f til-
efni af sjötugsafmæli enska
rithöfundarins Anthony
Burgess. Umsjón: lllugi Jök-
ulsson.
23.10 Kvöldtónleikar.
,a. Fiölukonsert nr. 3 i G-dúr
K. 216 eftir Wolfang Ama-
deus Mozart. Gidon Kremer
leikur með og stjórnar Sin-
fóníuhljómsveitinni í Vínar-
borg.
b. Sinfónía nr. 1 í C-dúr eft-
ir Georges Bizet. St. Mart-
in-in-the-Fields-hljómsveitin
leikur; Neville Marriner
stjórnar.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
24.05 Frá alþjóðaskákmóti í
Reykjavik. Jón Þ. Þór flytur
skákskýringar.
24.15 Dagskrárlok.
FIMMTUDAGUR
19. febrúar
9.00 Morgunþáttur í umsjá
Kristjáns Sigurjónssonar og
Sigurðar Þórs Salvarssonar.
Meðal efnis: Tvennir tímar
á vinsældalistum, tónleikar
um helgina, verðlaunaget-
raun og ferðastund með
Sigmari B. Haukssyni.
12.00 Hádegisútvarp með
fréttum og léttri tónlist i
umsjá Margrétar Blöndal.
13.00 Hingað og þangað um
dægurheima með Inger
önnu Aikman.
15.00 Djass og blús. Vern-
harður Linnet kynnir.
16.00 Tilbrigði. Þáttur í umsjá
Hönnu G. Sigurðardóttur.
17.00 Hitt og þetta. Andrea
Guðmundsdóttir kynnir létt
lög úr ýmsum áttum.
18.00 Hlé.
20.00 Vinsældalisti rásár tvö.
Gunnar Svanbergsson
kynnir tíu vinsælustu lög vik-
unnar.
21.00 Gestagangur hjá Ragn-
heiöi Daviðsdóttur.
22.00 Rökkurtónar. Stjórn-
andi: Svavar Gests. Rætt
um bræðurna Gibb og
söngkonuna Oliviu New-
ton-John.
23.00 Svifflugur. Hákon Sigur-
jónsson kynnir Ijúfa tónlist
úr ýmsum áttum.
24.00 Dagskrárlok.
Fréttir eru sagðar kl. 9.00,
10.00, 11.00, 12.20, 15.00,
16.00 og 17.00.
SVÆÐISÚTVARP
REYKJAVÍK
SVÆÐISÚTVARP VIRKA
DAGA VIKUNNAR
17.30-18.30 Svæðisútvarp
fyrir Reykjavík og nágrenni
- FM 90,1
AKUREYRI
18.00-19.00 Svæðisútvarp
fyrir Akureyri og nágrenni —
FM 96,5
Má ég spyrja? Umsjón:
Finnur Magnús Gunnlaugs-
989
BYLGJAN
FIMMTUDAGUR
19. febrúar
07.00—09.00 Á fætur með
Siguröi G. Tómassyni. Létt
tónlist með morgunkaffinu.
Sigurður litur yfir blööin og
spjallar við hlustendur og
gesti.
Fréttir kl. 7.00, 8.00 og
9.00.
09.00—12.00 Páll Þorsteins-
son á léttum nótum. Palli
leikur uppáhaldslögin ykkar,
gömul og ný. Tapaö — fund-
ið, opin lína, mataruppskrift-
ir og sitthvaö fleira.
Fréttir kl. 10.00, 11.00 og
12.00.
12.00—14.00 Á hádegismark-
aði með Jóhönnu Harðar-
dóttur.
Fréttapakkinn. íóhanna og
fréttamenn Bylgjunnar fylgj-
ast með því sem helst er í
fréttum, segja frá og spjalla
við fólk. Flóamarkaöurinn
er á dagskrá eftir kl. 13.00.
Fréttir kl. 13.00 og 14.00.
14.00—17.00 Pétur Steinn á
réttri bylgjulengd. Péturspil-
ar síödegispoppiö og spjall-
ar við hlustendur og
tónlistarmenn. Tónlistar-
gagnrýnendur segja álit sitt
á nýútkomnum plötum.
Fréttir kl. 15.00, 16.00 og
17.00.
17.00—19.00 Hallgrímur
Thorsteinsson í Reykjavik
síðdegis. Þægileg tónlist
hjá Hallgrími, hann lítur yfir
fréttirnar og spjallar við fólk-
ið sem kemur við sögu.
Fréttir kl. 18.00.
19.00—20.00 Tónlist með
léttum takti.
20.00—21.30 Jónina Leós
dóttir á fimmtudegi. Jónína
tekur á móti kaffigestum og
spilar tónlist að þeirra
smekk.
21.30—23.00 Spurningaleikur
Bylgjunnar. Jón Gústafsson
stýrir verðlaunagetraun um
popptónlist.
23.00-24.00 Vökulok. Frétta-
tengt efni og þægileg tónlist
f umsjá Karls Garðarssonar
fréttamanns.
24.00—07.00 Næturdagskrá
Bylgjunnar. Tónlist og upp-
lýsingar um veður.
ALFA
irlitlltf ÉtTarpaitM.
FM 102,9
FIMMTUDAGUR
19. febrúar
13.00 Tónlistarþáttur með
lestri úr Ritningunni.
16.00 Hlé.
21.00 Kvöldstund með
Tomma.
22.00 Fagnaðarerindið flutt I
tali og tónum. Þáttur sér-
staklega ætlaður ensku-
mælandi fólki.
24.00 Dagskrárlok.