Morgunblaðið - 19.02.1987, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 19. FEBRÚAR 1987
15
brennd. Sumir voru famir að gjóa
ískyggilega oft augum að skólabók-
um bamanna. En svo kom dag-
blaðasending að heiman, maður
grét fögmm þakklætistárum, sett-
ist niður og las blöðin í gegn án
þess að éta eða fara á klósett, og
stakk þeim svo í ofninn. Eftir stans-
laust basl og óteljandi njósnaferðir
í hús Norðmanna, Iærðum við loks
að kynda upp með viði, og gátum
farið að lesa blöðin í rólegheitum.
En til að ná sömu gæðum og hita-
veitan heima, verður maður að
gæta eldsins vel, bæta á viði á
hálftíma fresti. Ofan á þetta bætist
svo að húsin em hræðilega illa ein-
angmð og því mega þau aldrei
kólna upp, því þá frýs í vatnsleiðsl-
unum og rörin springa. Ef enginn
er heima til að bæta á eldinn slokkn-
ar hann að sjálfsögðu og því kemur
maður inn úr kuldanum inn í kalt
húsið, sest á fjóra fætur fyrir fram-
an ofninn og byijar að skara og
ná upp glóðinni. Þegar því er lokið
sest maður örmagna niður með sót-
ugar og skítugar hendur, starir í
eldinn og sér fyrir sér híbýli þar
sem stórir flatir ofnar em í hveiju
herbergi og sjóðandi vatnið rennur
bara svona einhvem veginn inn í
þá. Hvort maður hafi séð þannig
undur einhvem tíma eða hvort
maður er bara að ímynda sér þetta,
það veit maður ekki lengur, blóð-
þrýstingurinn hefur lækkað svo í
kuldanum að rökrétt hugsun er
ekki lengur fyrir hendi.
Kuldinn fer illa með fólk. Liða-
gigt er alvarlegur sjúkdómur hér í
Noregi og læknar em alltaf að vara
fólk við frostbólgum í andliti. Enda
em flestir andiitslausir, þ.e. það
sést ekki í andlitið fyrir húfum og
treflum eða svona hettu eins og
Iðnaðarbankaræninginn notaði hér
forðum daga. Fólk klæðir sig og
vefur hveijum leppanum utan um
annan, streymir vélrænt inní strætó
því bíllinn fer ekki í gang, og eina
hugsunin, ef hugsun skyldi kalla,
því blóðþrýstingurinn hefiir lækkað
svo, er að komast ófrosinn í vinn-
una. Það verður ekki fyrr en í vor
sem maður fer að bera kennsl á
þetta fólk aftur, sjá hvort það er
karlkyns eða kvenkyns. Götumar
em mannlausar og bíllausar. Lög-
reglan situr sigri hrósandi inni í
kaffístofu með ijúkandi kaffi og
vindla því bófamir treysta sér ekki
út í kuldann. Þeir em heima að
kynda upp með viði. Sjálfur á mað-
ur í basli með útlitið, hárið stendur
út í loftið, strítt og rafmagnað eftir
húfumar, húðin þurr og varimar
spmngnar, hendumar bláar og
bólgnar eins og á rússneskri bónda-
konu og klæðnaðurinn og fatastíll-
inn a la Friðþjófur Nansen.
Karlmennimir em hættir að raka
sig.
Og svo kynda þeir upp með viði.
Meira að segja í sjónvarpinu höfðu
þeir leiðbeiningaþátt um hvemig
best mætti nýta viðinn, ná sem
mestum hita. Þar kom einnig fram
að viðurinn veitir öryggistilfínn-
ingu, og að það þyki svo „koselig"
að kynda upp með viði. Það þýðir
sumsé notalegt eða huggulegt. Eg
held að félagsfræðingar ættu að
fara að rannsaka þessa „koselig“-
þörf Norðmanna. Það skiptir þá
engu hvort þeir fái frostbólgu eða
lungnabólgu, „koselig" skal það
vera og kynt upp með viði. En Is-
lendingurinn klórar sér í skallanum
og mun aldrei skilja þetta hversu
gamall sem hann verður. Já, hugsa
sér, og mennimir að dmkkna í olíu.
Höfundur er húsmóðir, kennari
og nemi i Kristiansand í Noregi.
Athugasemd
frá Mennta-
skólanum á
Laugarvatni
í MORGUNBLAÐINU 12.
febrúar sl. bls. 26 er athyglis-
verð frásögn af starfi nefnd-
ar, sem menntamálaráðherra
hefur skipað, um málefni
Reykholtsstaðar í Borgar-
firði. í tengslum við þá
frásögn er m.a. haft eftir
formanni nefndarinnar, Har-
aldi Blöndal hrl., að Mennta-
skólinn á Laugarvatni eigi í
„mjög erfiðri samkeppni við
þéttbýlisframhaldsskóla".
Þessi fullyrðing verður að telj-
ast hæpin. Sé átt við aðsókn og
nemendafjölda, eins og líklegast
er af samhenginu, stenst hún
raunar alls ekki. Sést það glöggt
af eftirfarandi yfirliti um fjölda
nemenda í skólanum síðustu 10
skólaár:
1977-78: 193, 1978-79: 186,
1979-80: 175, 1980-81: 162,
1981-82: 164, 1982-83: 157,
1983-84: 155, 1984-85: 169,
1985-86
201, 1986-87: 180.
Aðalfundur
AFS á íslandi
AÐALFUNDUR AFS á íslandi
fyrir árið 1987 verður haldinn
laugardaginn 21. febrúar í
menningarmiðstöðinni Gerðu-
bergi í Breiðholti, B-sal, og
hefst kl. 14.00.
Ef þú ætlar að byggja...
þá eigum við lóð. g
--------------- o
Olympic lyftingasett Vinyl lyftingarsett
Póstverslun Vaxtarræktarinnar Pósthólf 80 172 Seltjamames
STALVIRAR
BENSLAVÍR
KRANAVÍR
VÍRMANILLA
•
LANDFESTARTÓG
KARAT
KARAT-TÓG
3 M/M-36 M/M
MARLIN-TÓG
KRAFT-TÓG
LOFT-TÓG
BLÝTÓG
NÆLON-TÓG
•
BAUJUBELGIR
LÓÐABELGIR
NETAFLÖGG
•
NETAKEÐJA
FÓTREIPISKEÐJUR
KEÐJUR SVARTAR
KEÐJUR GALV.
•
BLAKKIR GALV.
TROLL-BLAKKIR
MÖLLERODDEN—
BLAKKIR
KASTBLAKKIR
TROLL-LÁSAR
SKRÚFLÁSAR GALV.
PATENT-LÁSAR
VÍRAKLEMMUR
KÓSSAR
SIGURNAGLAR
•
BAUJUSTANGIR
ál, bambus, plast
BAUJULUKTIR
ENDURSKINS-
BORÐAR
•
FLATNINGSHNÍFAR
BEITUHNÍFAR
SVEÐJUR
HVERFISTEINAR
í kassa og lausir
STILL-LONGS
ullarnærföt
nælonstyrkt
dökkblá fyrir börn
og fullorðna
SOKKAR
með tvöföldum botni
•
ÍSSKÓFLUR
SALTSKÓFLUR
ÁLSKÓFLUR
SNJÓÝTUR
STUNGUSKÓFLUR
KARFAKVÍSLAR
•
LÍNUGOGGAR
NETARÚLLU-
GOGGAR
ÚRGREIÐSLU
GOGGAR
KARFAGOGGAR
FISKIHAKAJÁRN
BAUJUHAKAR
FISKISTINGIR
•
GÚMMÍSLÖNGUR
Vz“-2V2
ÞRÝSTISLÖNGUR
V*“- 1V*“
LOFTSLÖNGUR
3/ie“-1 V2“
BENSÍNSLÖNGUR
Vl6“-1“
•
ELDVARNAR-
BÚNAÐUR
BRUNASLÖNGU
TENGI
BRUNASTÚTAR
KRANAR
I BRUNASLÖNGUR
1Vz“ og 2“
BRUNASLÓNGU-
SKÁPAR
BRUNASLÖNGU-
HJÓL
m/25 m og 30 m
•
SLÖKKVITÆKI duft
1-2-6-12-25 kg.
SLÖKKVITÆKi
HALON
ýmsar st.
KOLSÝRUSLÖKKVI
TÆKI
2-6 kg.
VATNSSLOKKVI-
TÆKI
10 Itr.
ELDVARNATEPPI
REYKSKYNJARAR
VATNSSKYNJARAR
Ánanaustum, Grandagarði 2, sími 28855.
Opið laugardaga 9—12
MetsöluUcidá /iverjum degi!