Morgunblaðið - 09.05.1987, Page 1
64 SIÐUR OG LESBOK
STOFNAÐ 1913
103. tbl. 75. árg.
LAUGARDAGUR 9. MAÍ 1987
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Tilkyiinir Thateher um
kosninarar eftir helari?
I iindnn Rpntpr.
London, Reuter.
í LJÓSI úrslita í bæjar- og sveit-
arsljórnarkosninguiium í Bret-
landi eru allar líkur taldar á því
að Margaret Thatcher, forsætis-
ráðherra, boði á mánudag til
þingkosninga 11. júní nk. íhalds-
flokkurinn er talinn öruggur um
að vinna þingmeirihluta þriðja
kjörtimabilið í röð verði af því.
Flokkurinn bætti við sig fylgi í
kosningunum í fyrradag þótt kjör-
sókn væri aðeins 30%. Þegar taln-
ingu var nær lokið í gær hafði
flokkurinn bætt við sig 67 fulltrúum
frá því sem áður var og unnið hrein-
an meirihluta í 155 bæjar- og
sveitarstjórnum, eða þremur fleiri
en áður. Vann flokkurinn m.a.
meirihluta í borginni Nottingham,
sem verið hefur vígi Verkamanna-
flokksins.
Kosningabandalag Jafnaðar-
mannaflokksins og Ftjálslynda
flokksins bætti við sig 368 fulltrú-
um og hlaut meirihluta í 14 bæjar-
og sveitarstjómum, miðað við 11
síðast. Verkamannaflokkurinn tap-
aði 181 fulltrúa og meirihluta í sjö
bæjar- og sveitarstjórnum en ræður
áfram 153 slíkum.
Norman Tebbit, formaður íhalds-
flokksins, sagði fylgi flokksins
benda til þess að hann fengi 100
sæta þingmeirihluta ef kosið yrði
eftir mánuð. Brezka ríkisútvarpið,
BBC, lét reikna út hver úrslitin
hefðu verið ef um þingkosningar
hefði verið að ræða. Samkvæmt þvi
hefði íhaldsflokkurinn fengið 340
þingsæti, Verkamannaflokkurinn
259, Kosningabandalagið 31 og
óháðir frambjóðendur 20.
Thatcher þarf ekki að boða til
kosninga fyrr en í júní að ári en
góð útkoma í skoðanakönnunum,
jákvæð efnahagsþróun, velheppnuð
Moskvuferð hennar og sundrung í
Verkamannaflokknum hafa orðið
hvati til að boða til kosninga fyrr.
Sjá einnig „Thatcher treystir
enn stöðu sína“ á bls. 28.
Bílferjan tæmd
Unnið er að því að ná farþega- og vörubílum út úr brezku ferj-
unni Herald of Free Enterprise, sem lagðist á hliðina og sökk
við Zeebrugge í Belgiu. Ferjan náðist á flot og liggur nú við
bryggju í Zeebrugge. Vonast er til að lokið verði við að tæma
hana af bílum á mánudag. Verður ferjan síðan lagfærð.
Langdrægar kjarnorkueldflaugar:
Bjóða Rússum
helmingsfækkun
Tillagan byggist á niðurstöðum
leiðtogafundarins í Reykiavík
Genf, Reuter. 0
SAMNINGAMENN Bandaríkja-
stjórnar í Genf lögðu í gær fram
drög að samkomulagi þar sem
gert er ráð fyrir helmingsfækk-
un langdrægra kjarnorkuflauga
Tvísýnar
kosningar
áMöltu
VaJetta, Reuter.
KOSNINGAR verða á
Möltu í dag í fyrsta sinn frá
1981 og er útilokað að segja
um hvor flokkurinn, Verka-
mannaflokkurinn eða Þjóð-
ernisflokkurinn, sigrar.
Engar kannanir á fylgi flokk-
anna hafa farið fram.
í kosningunum 1981 hlaut
Verkamannaflokkurinn 49% at-
kvæða og meirihluta á þingi, eða
34 þingsæti af 65. Þjóðernis-
flokkurinn hlaut hinsvegar 51%
atkvæða en aðeins 31 þingsæti.
Vildu leiðtogar flokksins fá að
mynda stjóm þar sem hann
hlaut hreinan atkvæðameiri-
hluta og mættu þingmenn
flokksins ekki til þingfunda í
eitt ár til að mótmæla stjómar-
myndun Verkamannaflokksins,
sem stjórnað hefur í 16 ár.
Kosningalögunum hefur nú
verið breytt og er tryggt að sá
flokkur, sem fær meira en 50%
atkvæða, hlýtur þingmeirihluta.
Búist er við að úrslit liggi fyrir
á mánudagsmorgun. Að sögn
stjómarerindreka er ekki að
vænta mikilla breytinga í efna-
hagslífi landsins eða utanríkis-
stefnu.
Sjá ennfremur „Halda sósí-
alistar völdunum . . .“ á
bls. 40.
í vopnabúrum stórveldanna. Ron-
ald Lehman, sem er helsti
samningamaður Bandaríkja-
stjórnar á sviði Iangdrægra
kjarnorkuvopna, sagði frétta-
mönnum að lagt væri til að
þessum áfanga yrði náð á sjö
árum.
Samkomulagsdrögin vom lögð
fram á sérstökum fundi samninga-
manna risaveldanna í sovéska
sendiráðinu í Genf. Er þetta í fyrsta
skipti sem lagt er fram skriflegt
tilboð um vopnabúnað sem þennan
frá því afvopnunarviðræður hófust
að nýju í marsmánuði árið 1985.
Ronald Lehman sagði að tillögur
Bandaríkjastjómar byggðust á við-
ræðum leiðtoga stórveldanna í
Reykjavík í október í fyrra. Þá urðu
þeir Reagan og Gorbachev sam-
mála um að fækka kjarnaoddum í
langdrægum flaugum verulega og
var lagt til að hvort ríkið réði yfir
6.000 kjarnaoddum í stað 10.500.
Lehman bætti við að í tillögum
þessum væri ennfremur gert ráð
fyrir því að takmarka fjölda kjama-
odda, sem koma mætti fyrir í hverri
eldflaug. Væri þetta gert til að
koma í veg fyrir að Sovétmenn
kæmu fyrir fjölda kjarnaodda í hin-
um öflugu SS-18 eldflaugum
sínum. „Ef við náum ekki að tak-
marka fjölda þessara ógnvænlegu
kjamaodda kann fækkun eldflaug-
anna að reynast haldlítil," sagði
Lehman.
Samningamenn Sovétríkjanna
hafa hingað til verið ófáanlegir til
að takmarka fjölda kjamaodda í
hverri eldflaug og hefur sú afstaða
komið í veg fyrir árangursríkar við-
ræður. Lehman staðfesti einnig að
Bandaríkjamenn hefðu orðið við
kröfu Sovétstjórnarinnar um að eld-
flaugunum skyldi fækkað á sjö
ámm í stað flmm eins og leiðtogam-
ir samþykktu á fundinum í
Reykjavík.
Reuter
Gary Hart og kona hans Lee veifa til stuðningsmanna eftir ræðu á hótelinu Executive Tower Inn í
Denver þar sem hann sagðist ekki mundu sækjast eftir útnefningu Demókrataflokksins við forsetakosn-
ingarnar í Bandaríkjunum á næsta ári.
Eg er hnuggiim en
ekki niðurbrotinn
- sagði Gary Hart um leið og hann dró sig í hlé
Denver, Reuter.
„ÉG ER hnugginn maður en ekki
niðurbrotinn," sagði Gary Hart
er hann tilkynnti í gær að hann
mundi ekki sækjast eftir útnefn-
ingu Demókrataflokksins við
forsetakosningamar á næsta ári.
„Ég get ómögulega haldið bar-
áttunni áfram við þessar kringum-
stæður," sagði Hart og vísaði til
ásakana um framhjáhald. Um
síðustu helgi hélt blaðið Miami
Herald því fram að fegurðardís
hefði dvalið á heimili hans meðan
kona hans, Lee, var fjarverandi.
Nýjar ásakanir um hjúskaparbrot
birtust síðan í fjölmiðlum í gær.
Hart gagnrýndi fjölmiðla harð-
lega í gær og sakaði þá um æsi-
fréttamennsku. „Við þurfum að
íhuga það fyrirkomulag, sem við
notum til að velja menn til forystu,
fyrirkomulag sem hefur í för með
sér að frambjóðendur eru hundeltir
af fjölmiðlum. Blaðamenn laumast
í tijárunnum, ljósmyndarar gægjast
á glugga, þyrluskari sveimir yfír
húsþökum og hin styrka eiginkona
mfn kemst ekki inn á sitt eigið heim-
ili að kvöldlagi án þess að verða
fyrir átroðninei." saeði hann.
Hart sagðist háfa á sínum tíma
íhugað að sækjast ekki eftir að
verða forsetaefni flokksins þar sem
það hefði óhjákvæmilega vakið mik-
inn áhuga fjölmiðla á einkalífi hans
og persónu hans. „Ég kem til dyr-
anna eins og ég er klæddur, hvort
sem ykkur líkar betur eða verr, og
þannig vil ég helzt vera,“ sagði
Hart.
Gary Hart þótti afar líklegur til
að verða valinn frambjóðandi
Demókrataflokksins við forseta-
kosningamar. Með ákvörðun hans
beinist athyglin nú að öðrum, sem
koma til með að sækjast eftir út-
nefningu. Sjö tiltölulega lítt þekktir
menn hafa ákveðið að keppa um
hnossið. A þessu stigi eru möguleik-
ar þeirra taldir nokkuð jafnir.
Leiðtogar Demókrataflokksins
hörmuðu ákvörðun Harts en töldu
hana ekki mundu veikja möguleika
flokksins á sigri í kosningunum.
Sjá ennfremur „Nýjar ásakan-
ir um hjúskaparbrot" á bls. 28.